Morgunblaðið - 22.03.1959, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.03.1959, Blaðsíða 9
Sunnudagur 22. marz 1959 MORCUHItL AÐIÐ 9 Bevan beðinn um að hjarga aldraðri og sjúkri konu ISVÍÞJÓÐ er nú mjög rætt um undarlegt mál, sem sýnir fólki þann megin mun sem er á frjálsu þjóðfélögunum og þjóðskipulagi kommúnista í viðhorfunum til einstaklingsins. Þetta. mál snertir eina fjölskyldu. Aldraða og sjúka konu, sem býr í Eistlandi á eng- an að annan en dóttur sína hinu megin við Eystrasalt. Það hefur verið sótt um það, að gamla kon- an fái leyfi til að fara úr' landi til dóttur sinnar, en Sovétyfir- völdin hafa hvað eftir annað neitað. Slíka framkomu yfirvald- anna í Rússlandi eiga Svíar erfitt með að skilja. En hún verður vissulega til þess að færa fólki heim sanninn um kúgunarkerfi kommúnismans. — Slíkt sem þetta gæti ekki gerzt í nokkru lýðræðislegu menningarlandi. ★ GAMLA konan heitir Aline Gauf og er 65 ára. Hún býr í bænum Keila, skammt fyrir sunnan Tallin, höfuðborg Eist- lands. Dóttir hennar Helga og tengdasonur Robert Raiend búa i Norrköbing og hafa þau hjón góðar tekjur, svo að þau gætu Frú Aline Gauf búið gömlu konunni góða að- hlynningu í ellinni. Frú Aline Gauf hefur orðið að þola miklar raunir eins og marg- ir landar hennar. Strax að stríði loknu handtóku Rússar hana og mann hennar og vörpuðu í fang- elsi. Voru þau ákærð um að hafa hjálpað þremur Eistlendingum að flýja úr landi. Urðu þau að þola vosbúð og iila meðferð í fangels- inu. Maðurinn missti sjónina og var fluttur í þrælkunarbúðir austur í Síberíu, þar sem hann lézt, en frú Eline sat'í fangelsi í Tallinn fram til 1951, er henni var sleppt úr hakli. Árið 1957 fékk hún þó uppreisn æru, þar sem talið var að hún hefði verið saklaus fangelsuð og dæmd í ógnaræði Stalins. Er frú Aline kom út úr fang elsinu var hún niðurbrotin og heílsulaus kona. Hún þjáist enn af hjartabilun, lifrarveiki og liðagigt og er andlega nið- urbeygð. Hún átti tötra eina tii að kiæðast í og skorti bæði peninga og þak yfir böfuðið. f fyrstu varð hún að betla og fá að hýrast inni í skúmaskot- um að næturlagi, en síðar skaut góðhjartað fólk í Keila yfir hana skjólshúsi. Hún hef- ur nú vinnu þrjá daga í viku frá kl. 7 á morgnana tií kl. 10 á kvöldin og fær fyrir þetta í kaup sem samsvarar 240 kr. á mánuði. Er hún svo örvingl- uð yfir örlögum sínum og öll- um kjörum, að hún hefur Hjónin Kobert og Helga Raiend nokkrum sinnum gerí tilraun til að fremja sjálfsmorð. ★ ÓTTIR hennar er 35 ára. Hún flúði frá Eistlandi 1944 og komst eftir mikla hrakninga til Svíþjóðar 1947. Þar kynntist hún samlanda sínum, verkfræðingn- um Robert Raiend og giftist hon- um. Er þau nú sænskir ríkisborg- arar. Þau vissu ekkert um örlög frú Aline fyrr en 1956, enda var Eistland algerlega lokað land. Þá fengu þau nafnlaust bréf með heimilisfangi gömlu konunnar og hafa síðan ítrekað sent umsóknir til rússneska sendiráðsins um að hún fái leyfi til að koma til þeirra. Allt er tilbúið til að taka á móti henni. Ungu hjónin geta framfleytt henni og þau hafa lagt til hliðar fé til að kosta ferð hennar til Svíþjóðar. Sænsk yfirvöld leyfa dvöl konunnar í Sviþjóð. Aðeins eitt vantar, far- arleyfi rússneskra yfirvalda. Margháttaðar viðræður hafa far- ið fram við starfsmenn rússneska sendiráðsins í Stokkhólmi, en öll- um hefur verið svarað með þveru neii. 'Síðasta neitunin kom í febrúar sl. Raiendhjóniu hafa líka snúið sér til sænska Rauða krossins og beðið hann að stuðla að því að Rússar sýni hinni öldruðu konu meiri linkind. Sænski Rauði krossinn hefur rætt um þetta við fulltrúa rússneska Rauða kross- ins en árangurslaust. Einnig rituðu hjónin til séra Hewlett Johnsons, hins rauða djákna af Kantaraborg, sem er í miklum metum meðal kommún- ista. Djákninn kom skilaboðun- um til rússneska sendiráðsins í London, sem gerði ekkert annað í málinu en að útskýra hvernig ætti að sækja um brottfarar- leyfi. ★ Xí SÍÐAST hefur mál þetta komizt á dagskrá þannig, að einn af æðstu mönnum rúss- neskra kommúnista, Mikahil Suslov er í heimsókn í Bretlandi sem gestur Aneurins Bevans, eins af foringjum brezka Verka- mannaflokksins. Hafa þau hjón- in Robert og Helga Raiend ritað honum bréf, þar sem þau biðja um náð fyrir görnlu konuna. -— Jafnframt hafa þau ritað Aneurin Bevan bréf, þar sem þau biðja hann um að ganga í málið og gera allt sem hann geti til að milda hjarta síns rússneska gests. Enn einu sinni hefur verið sótt um fararleyfi fyrir gömlu kon- una og er beðið eftir svari. Það er ekki aðeins beðið eftir svari um örlög einnar aldraðrar konu, heldur eftir svari um það, hvort Rússar ætli stöðugt að halda uppi siðum og framkomu, sem hvergi tíðkast í menningarlöndum. oyftromberg A6 |{ji|n]|j((|rar Hannes Þorsteinsson & Co. Rafmótorar 3-fasa fyrir- liggjandi í eftirtöldum stæ rðum: 14—% —1—2—3 _4—7i4_ip_15 0g 23 ha. Einnig 1-—*asa mótorar % og 1 ha. Allir STRÖMBERG-mólorar eru vatns- og rykþéltir. — Hafnarstræti 5 Aukastarf Umboðsmenn óskast til að afla trygginga. — Almennar Tryggingar hf. Austurstræti 10, sími 1-77-00 H úsgagnasmiður Húsgagnasmiður óskast (helzt vélamaður). NÝJA KOMPANÍIÐ HF., Grettisgötu 51, sími 13850. Hinar mjög eft-irspurðu A.E.G. rafmagnseldavélar eru komnar. — Höfum enn nokkur stykki ólofuð. BRÆÐURNIR ORMSSON HF., Vesturgötu 3, sími 11467. Herbergi Reglusamur maður í góðri atvinnu óskar eftir góðu herbergi til leigu strax. Tilboð leggist inn á afgreiðslu Morgunb&ðsins fyrir þriðjudags- kvöld 24. marz, merkt: „Regla — 5344“. Ungtemplarar Ársháfíð ungmennastúknanna Andvara og Framtíðarinnar verður haldin í kvöld, sunnudaginn 22. marz, í Góðtemplarahúsinu kl. 9. Góð skemmtiatriði. Miðar afhentir við innganginn. Árshátíðarnefnd. Orðsending frá Bólsturgerðinni Fram til 1. maí n.k. seljum við öll bólstruð hús- gögn með mjög vægum útborgunum við móttöku húsgagnanna. Fyrirliggjandi margar gerðir a f dagstofusófaseftum stökum sfólum o g svefnsófum Notið tækifærið, eignist húsgögn með slíku móti. Bólsturgerðin Skipholti 19, sími 10388.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.