Morgunblaðið - 22.03.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.03.1959, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ Hvass suðaustan. — Higning öðru hverju. Reykjavíkurbréf Sjá bls. 13 68. tbl. — Sunnudagur 22. marz 1959 Vagnoþörf S. V. R. eykst stöðugt sótt um leyfi fyrir 8 vögnum Ein af myndunum á sýningunni, „Úr Grafningnum". Þetta er eitt af síðustu málverkum Ásgríms. Sýning á listaverkagjöf Ásgríms opnuð í gœr Á FUNDI bæjarráðs er haldinn var á föstudaginn, var rætt nokk- uð um vagnakost Strætisvagna Reykjavíkur og kom forstjóri fyrirtækisins, Eiríkur Ásgeirsson á fundinn og gerði þar nánari grein fyrir þessu máli. Samþykkti bæjarráð á fundinum aðgerðir forstjórans í þessum efnum, en hann hafði með samþykki borg- arstjóra sótt um leyfi fyrir 8 nýj- um strætisvögnum. Vagnakostur Strætisvagna Reykjavíkur er nú 50 vagnar. Ár- lega er nauðsynlegt að fá að minnsta kosti fimm vagna nýja til endurnýjunar öðrum, sem taka verður úr umferð vegna slits. Forstjórinn gerði bæjarráðs- mönnum grein fyrir þörf nýrra leiða og nefndi hann þar fyrst Hálogalandshverfið og Vogahverf ið. Sem kunnugt er, fer fólkinu, sem flytur í þessi hverfi nú nærri dagfjölgandi, en þarna eru mörg stórhýsi. Taldi Eiríkur Ásgeirsson að til þess að mæta þörfinni fyrir strætisvagna í þessum hverfum, þá þurfi að bæta þar við tveim nýjum vögnum. f öðru lagi nefndi hann leiðina inn að Kleppi. Á þeirri leið aka alls 4 vagnar nú, en vegna sífjölgandi íbúatölu, og þá ekki sízt vegna „Prentarasam- byggingarinnar" sem hýsa mun hundruð \anna, þá verður ekki hjá því komizt að bæta fimmta vagninum á þessa leið. Loks ræddi forstjórinn um nýja leið, sem hann kvað mikla þörf vera á að opnuð yrði. Væri það vagn, sem æki um hverfiíl í Aust- urbænum, og hæfi akstur við gatnamót Laugarásvegar og Sund laugavegar, æki um nýju hverfin og Smáíbúahverfið niður að Lönguhlíð og kæmi þar til móts við hraðferðina Austurbæ Vest- urbær, sem skilaði farþegum áfram niður í bæinn og vestur. Frá Lönguhlíð æki vagninn síðan aftur inn á Laugarásvegi, að nýja biðskýlinu þar. Þannig yrði slík- um hringakstri um Austurbæinn komið á, en slíkt er lika aðkall- andi. Hvassviðri veldur tjóiii í Grundar- firði GRUNDARFIRÐI, 20. marz. — í gær og í nótt var hér hvasst mjög af suðri. í morgun lygndi nokkuð, og fóru þá bátar uftur ásjó, en veður var þó það sla'mt, að þeir hafa átt erfitt með að athafna sig. Áður en hann rauk upp, höfðu bátarnir aflað ágæt- lega í tvo daga og flutt að landi um 320 lestir af góðum fiski. Hefur því verið nóg að gera hér, og má segja, að hver vinnufær hönd hafi unnið að verkun afl- ans. f rokinu í nótt vildi það óhapp til, að fiskhjalk.r Verzlunar. félagsins Grundar féllu að nokkru, en þar var nýbúið að hengja upp mikinn fisk. Fór vinnuflokkur árla í morgun til þess að reisa hjallana og bjarga fiskinum frá skemmdum eftir föngum. Sem betur fer virðist tjón ekki hafa orðið ýkjamikið. — E.M. SÍÐDEGIS í gær var opnuð í Listasafni ríkisins í Þjóðminja- safninu sýning á myndum eftir Ásgrím Jónsson. Er hér um að ræða myndir úr safni því, sem listamaðurinn gaf íslenzka ríkinu eftir sinn dag, og megnið af mynd unum á sýningunni hefir ekki verið sýnt áður. Aðeins tæpur helmingur þeirra fullgerðu Umferðarreglur um Miklubraut BÆJARRÁÐ samþ. á fundi sín- um á föstudaginn að mæla með þeirri tillögu umferðarnefndar, að umferð um íbúðagötu Miklu- brautar skuli víkja fyrir umferð þvergatna Miklubrautar, enda verði komið þar fyrir varúðar- merkjum. Sama gildi um umferð úr íbúðagötunni inn á aðalak- braut Miklubrautar. Ennfremur verði einstefnu- stur ákveðinn í nefndri íbúða- götu frá austri til vesturs. mynda, sem listamaðurinn ánafn- aði ríkinu, rúmaðist á sýning- unni. Gylfi Þ. Gíslason, menntamála- ráðherra, opnaði sýninguna með ræðu, og Ragnar Jónsson, for- maður sýningarnefndar, flutti stutt ávarp um lífsstarf og lífs- baráttu Ásgríms. Alls eru á sýningunni 172 olíu- málverk, vatnslitamyndir og teikningar, en gjöf Ásgríms var 420 fullgerð olíumálverk og vatns litamyndir auk margra teikninga og á þriðja hundrað ófullgerðra mynda. Listmálararnir Svavar Guðnason og Jón Þorleifsson völdu myndirnar á sýninguna og önnuðust alla uppsetningu sýn- ingarinnar. Sýningin verður opin í hálfan mánuð. Mildl vinna við fiskinn STYKKISHÓLMI, 20. marz. — í fyrradag var afli Stvkkishólms- báta með bezta móti um langt skeið. Aflahæstur bátanna þann dag var Tjatduv, með 26 lestir. í gær var varsta veður á miðun- um, og urðu bátarnir að hverfa frá netjum sínum. Einn þeirra gat þó dregið tvær trossur og fékk 16 lesta afla. Einn bátanna fór inn til Grundarfjarðar og tveir til Sands. Bátarnir eru á sjó í dag, en ekki kunnugt um afla þeirra enn. Mikil vinna er nú við fiskvinnsl una hér, bæði vegna góðs afla bátanna í fyrradag, og einníg lagði Þorsteinn þorskabitur hér upp 180 lestir fyrir nokkrum dög- um, sem enn er verið að vinna að. —Árni. Skipsmeim veikt- ust og hætta varð veiðum SIGLUFIRÐI 21. marz. — Hinn nýi austur-þýzki togveiðabátur Margrét, varð að hætta veiðum í fyrstu veiðiför sinni, vegna veik inda skipsmanna, en inflúenza gaus upp á skipinu og veiktust 5 menn. Kom skipið hingað inn á fimmtudaginn. Hér voru ekki til taks aðrir menn í stað þeirra er veiktust og liggur því skipið enn í höfn hér. Er óvíst hvenær Mar- grét kemst á veiðar aftur. Héraðslæknirinn telur að in- flúenzufaraldurinn sé í rénum, en þó er veikin enn allútbreidd í bænum. — Stefán. Káffisala Kvenna- deildar Slvsa- j varnafélagsins KVENNADEILD Slysavarnafé- lagsins hefur síðdegis í dag kaífi- sölu í Sjálfstæðishúsinu til ágóða fyrir söfnunina vegn ahinna ný- afstöðnu sjóslysa. Gefa félags- konur alls kyns heimabakaðar kökur og góðgæti og eru slíkar kaffisölur frægar orðnar vegna hinnar rausnarlegu framreiðslu. Sýna konurnar mikinn dugnað og áhuga, til að geta lagt góðu málefni lið, og ættu Reykvíking- ar ekki að láta bregðast að njíita veitinga þeirra í Sjálfstæðishús- inu í dag, og gera þar með sitt til að styrkja gott málefni. Stofnfundur Sjált stœðisfélags í Höfnum SJÁLFSTÆÐISMENN í Höfnum hafa ákveðið að boða til stofnfundar Sjálfstæðisfélags. Fundurinn verður haldinn í samkomuhúsi staðarins þriðjudaginn 24. þ. m. kl. 8 e. h. Á fundinum mæta: Þingmaður kjördæmisins, Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins og Gunnar Helgason, erindreki Sjálfstæðisflokksins. Þessi mynd var tekin austur í Dráttarhlíð, Þing/allavatnsmegin, og er hún tekin skömmu eftir að búið var að sprengja í gegnum hlíðina jarðgöngin fyrir Efra Sogsorkuverið. Þessir menn vinna erfitt verk og áhættusamt, en það er að hreinsa til í jarðgöngunum eftir að sprengt hefur verið. Nota þeir til þess meðal annars langar stálstangir til þess að losa grjótið í hlíðum og hvelfingu jarðganganna. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Kaffikvöld þátttakenda í stjórnmálaskóla Varðar UNDANFARNAR vikur hefur stjórnmálaskóli Varðar starfað tvisvar í hverri viku. Hafa þar verið flutt 13 erindi um ýmisleg efni af þjóðkunnum mönnum. í kvöld mun stjórnmálaskólanum Ijúka með sameigin- legri kaffidrykkju allra þátttakenda. Jafnframt mun verða tekin ákvörðun um það, hvort haldnir skuli málfundir fyrir þá, sem þátt hafa tekið í stjórnmála- skóianum, og^ þeim veittar leiðbeiningar í ræðu- mennsku. Kaffikvöldið hefst kl. 8,30 í kvöld í Valhöll við Suðurgötu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.