Morgunblaðið - 23.12.1959, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.12.1959, Blaðsíða 23
Miðvilcudagur 23. des. 1959 MORGUNBLAÐIÐ 23 Sveifin rotaði mannmn AKRANESI 22. des.: — f gær- kvöldi var einn af starfsmönnum Sementsverksmiðjunnar, Sig- valdi Ragnarsson, að setja raf- magnsvél í gang. Sveif við vél- ina sló Sigvalda, kom höggið á nefið og rotaðist hann. Var Sig- valdi fluttur meðvitundarlaus í sjúkrahúsið. Heima var hann í dag, en fer til vinnu í fyrramál- ið, harður af sér eins og hann á ætt tiL — Oddur. Myndin er úr jólablaði Hamars og er frá Víðava ngshlaupi í Hafnarfirði árið 1920. — Eru þarna þekktustu bæjarbúar á myndinni, svo sem Árni h eit. Mathiesen, sem er merktur nr. 1, Gísli Sig- urðsson nr. 2, Jakob Sigurðsson nr. 3, Marinó Si gurðsson nr. 5 og Sigurður heit. Gunnarsson nr. 6. Maðurinn á miðri myndinni, sem er að ræsa h lauparana, er Bjarni Bjamason skólastjóri. Mað- urinn yzt til hægri er Stígur Sæland og Þorleifu r Jónsson við hlið hans. Myndarlegt Jólablað Hamars komið út HAFNARFIRÐI — Jólablað Ham ars er komið út, 32 bls. að stærð og prýtt fjölda mynda. Á forsíðu er litmynd af Firðinum og Jóla- minning eftir Matthías Jochums- son. Þá er jólahugvekja eftir séra Bjarna Sigurðsson á Mosfelli, Spjallað við Guðbjart Ásgeirs- son matsvein, sem er sjötugur i dag (Þorláksmessu). Nefnist greinin Hálfa öld á hafinu. Á 9. síðu er Ávarp fjallkonunnar eftir Finnboga F. Arndal, en það flutti ungfrú Kristbjörg Kjeld leikkona, 17. júní sl. Gísli Sigurðs son lögregluþjónn skrifar um Herjólfshöfn, og fylgja gamlar myndir úr Hafnarfirði. Grein er eftir Pál Kolka héraðslækni, sem nefnist Fyrirtækið „Mannabein Sf.“ Ferðaþáttur er frá Noregi Helgi Sæmundsson formaður Mennta- málaráðs Á FUNDI Menntamálaráðs í gær var Helgi Sæmundsson kosinn formaður ráðsins, Vilhjálmur Þ. Gíslason, varaformaður, og Krist- ján Benediktsson, ritari. eftir frú Elínu Jósefsdóttur. Við- tal við Ásgeir Long, sem nefnist Dagleg störf og tómstundir. Á 16. og 17. síðunum er eftirfarandi: Á kvöldvökunni, Fermdir í Garðaprestakalli 1904, Jólasiðir, mynd af skipshöfn Júní gamla, önnur mynd af stúlkum í sund bolum síðan 1914 (auðvitað hafn firzkum), mynd af Hafnarfirði 1920 og mynd af gömlum Hafn firðingum. Á 20. síðu eru köku- uppskriftir, Tunglskinssónata Beethovens (þýtt). Á 20. síðu er mynd af 3. flokki Hauka sumarið 1932. — Ýmislegt fleira er þessu jólablaði Hamars, sem boð ið verður til sölu í húsum bæjar- ins í dag, en einnig fæst það bókabúðum. — G. E. Jólasveinn ó Saudarkroki Árekstur í akrein í Bankastræti 1 GÆRKVÖLDI um kl. 8 varð árekstur tveggja bíla á gatnamót- um Ingólfsstrætis og Bankastræt- is. Var annar bílanna leigubíll en hinn einkabíll að vestain. Eftir því sem nærstaddir skýrðu frá hafði þessi árekstur verið lær- dómsríkur á vissan hátt. Utan- bæjarbíllinn, sem verið hafði í hægri akrein, hafði þegar græna- ljósið kom, ekið yfir í hægri ak- rein, ætlaði inn í Ingólfsstræti og varð áreksturinn þá, en úr þessari akrein má ekki undir neinum kringumstæðum sveigja yfir til vinstri og þótti sýnt að utanbæj- arbíllinn væri í algjörum óréti. — Eisenhower Framh. af bls. 2. eitthvað fyrir Serki. Fjöldi ann arra spjalda fagnaði komu for- setans. Múhameð Marokkokonungur hélt Eisenhower dýrðlega veizlu og var aðalrétturinn svonefnt „Pastilla“, en það er þjóðréttur Araba, gerður úr steiktum dúf- um. í Casablanca dvaldist Eisen- hower sex klukkustundir. Síðan þaut hann með þotu sinni vest- ur yfir hið mikla úthaf. SAUÐÁRKRÓKI 20. des. — Ungt erlent ferðafólk heimsækir Sauð árkrók. í gær var mikið um að vera hjá börnum á Sauðárkróki. Kl. 9 um morguninn var byrjað að spyrjast fyrir um komu flug- vélar til Sauðárkróks og gekk á með símahringingum og fyrir- spurnum, þar til vélin lágði af stað frá Reykjavík. Tilefnið þessa mikla áhuga barnanna var að jólasveinn Flugfél. íslands var meðal farþega ásamt 7 enskum börnum sem F. í. hafði boðið með í ferðina til Sauðárkróks, á- samt fylgdarliði. Vélin lenti á Sauðarkróki kl. 14,30. Á flug- vellinum voru margir bílar eða milli 40 og 50 og mikill fjöldi barna og fullorðinna. Fararstjóri F. í. var Njáll Símonarson. Þegar jólasveinninn steig út úr vélinni var honum ákaft fagn- að og var haldið til samkomu- hússins Bifröst. Húsið var þétt skipað börnum. Þar flutti Ólafur Gunnarsson, sálfræðingur, ávarp og lýsti tilgangi fararinnar, en að því loknu birtist Kertasníkir, er söng og börnin tóku undir. Ólaf- ur las þjóðsöguna um Höfða Þórð ,en ensku börnin sungu jóla sálma. Þá var og happdrætti. Alvarlegt ílugslys í Brazilíu I RIO de Janeiro 22. des. NTB: Óttast er, að yfir 60 manns hafí farizt í flugslysi í Rio de Janeiro, höfuðborg Brasil- iu. Slysið varð með þeim hætti, að brasilísk farþega- vél af tegundinni Viscount og æfingaflugvél brasilíska flug- hersins rákust á. Hröpuðu þær báðar brennandi til jarðar og féllu á sjö íbúðarhús. Á æfingaflugunni var að- eins einn maður og bjargaðist hann með því að varpa sér út í fallhlíf. I farþegaflugvélinni var sex manna áhöfn og 26 farþegar. Þeir fórust allir. Að minnsta kosti um 30 manns létu lífið í húsum þeim, sem flugvélarnar féllu á og fjöldi manna særðist bæði í húsun- um og meðal vegfarenda, sem ' áttu leið um götuna. Matstofa Austurbæjar hefur opið jóladag á matmáls tímum, vegna fjölda óska viðskiptavina. Matstofa Austuróæjar Laugavegi 116. Einar Ásmu idsson ■* hæstaréttarlögmaður. Hafsteinn Sigurðsson héraósdómslögmaður Skrifstofa Mafnarstr. 8, II. hæð. Simi 15407, 19113. Meðal vinninga var reiðhjól, á vísun á flugferðir, 10 bækur o.fl, Að samkomunni lokinni þakk- aði Valgarð Blöndal F. í. fyrir hina ágætu heimsókn, en enskur drengur þakkaði fyrir hönd út- lendingana og óskaði öllum gleði legra jóla. Aðkomufólkið naut góðgerða í Hótel Villa Nova frá gestgjafan- um og bæjarstjórinn Rögnvaldur Finnbogason afhenti börnunum jólapakka sem í voru ljósmyndir af Sauðárkróki, gerðar af Stef- áni Petersen ljósmyndara. Flug- vélin, sem flutti gestina til R-vík ur, hóf sig á loft kl. 18,18 og hafði þá einn farþegi bæzt við, Ólafur Magnússon frá Mosfelli. — jón. — Skothrið Framhald af bls. 1. hann allt í einu í ljósinu manns- andlit. Þessi óþekkti maður stóð á stéttinni framan við húsið. Maðurinn hljóp niður í garð- inn og hrópaði til annars sem fylgdi honum: „Reynum að kom- ast undan. Lögreglan, allt þýð- ingarlaust. Þeir hurfu inn í mik inn og þéttan skóg, sem er þarna skammt frá. Lögreglumaðurinn skipaði körl um þessum að nema staðar og þegar þeir hlýddu því ekki, hleypti hann skotum af skamrfl- byssu sinni. Hann hæfði þó ekki. Sl. föstudag fékk Brandt borg arstjóri hótanabréf í pósti. Síð- an hefur lögregluvörður lun bú- stað hans verið efldur. - NATO Framhald af bls. 1. Var því samþykkt að „þótt r4ð- stefnan fagni horfum á auknum skilningi, álítur hún nauðsynlegt að endurtaka grundvallarstefnu þá, er tekin var 16. des. 1958 varðandi Berlín á þá leið að Vesturveldin mættu ekki hlaup- ast undan skyldum sínum þar, og að ítreka þá staðreynd að sam- tökin verði að halda áfram að vera árvökul og sterk.“ Skýrslu ráðstefnunnar lýkur á því að lýsa samstöðu í þeirri von hinna fjögurra ríkisleiðtoga að væntanlegur aprílfundur megi stuðla að sameiningu friðar og réttlætis. Innilegt þakklæti til allra þeirra sem gáfu mér gjafir og sendu mér skeyti á sjötugasta fæðingardegi mínum 17. des. 1959. Sigurður Berndsen. Þakka hjartanlega vinarhug á 60 ára afmæli mínu með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum. Guð blessi ykkur öll. Guðríður Halldórsdóttir, Borgarnesi. Lokað fyrir hádegi í dag vegna jarðarfarar. Almenna Byggingaf. h.f. Öxull hf. Eiginmaður minn og faðir okkar HÁLFDÁN ÁRNASON Valshamri, Mýrum, andaðist að heimili dóttur sinnar þann 20. des. Elín Jónsdóttir og börnin. SIGRtÐUR INGIMUNDARDÓTTIR lézt í Landsspítalanum að morgni hins 21. þ.m. Vandamenn. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og fósturmóðir SIGRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR andaðist mánudag. 21. desember í Bæjarspítala Reykja- víkur. Jónína Stefánsdóttir, Jón Finnbogason, Guðrún Guðnadóttir, Ágúst Stefánsson, Málfríður Stefánsdóttir, Sveinn Guðmundsson, Stefania og Einar Jósepsson. Maðurinn minn og faðir okkar PÁLL PÁLSSON aíidaðist í Landspítalanum 22. þessa mánaðar. Jóhanna Vilhjálmsdóttir og böm Hugheilar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlá,t og útför föður okkar, tengdaföður og afa SIGURJÓNS ARNLAUGSSONAR fyrrverandi verkstjóra í Hafnarfirði Ennfremur þökkum við fyrir margvíslega vinsemd og virðingu er honum var sýnd við útför hans. Böm, tengdabörn og barnabörn. Hugheilar þakkir öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför móður okkar og tengdamóður KRISTlNAR JÓNSDÓTTUR Fálkagötu 13. Börn og tengdabörn. Hugheilar þakkir færum við öllum þeim, sem með nærveru sinni eða öðrum vinahótum heiðruðu útför ÞÓRÐAR KRISTINS JÓNASSONAR Stóru-V atnsley su Þórunn Einarsdóttir og börn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.