Morgunblaðið - 13.09.1960, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 13.09.1960, Qupperneq 17
Þriðjudagur 13. sept. 1960 MORCUlSBLAÐtÐ 17 — Minningarotð \f_ára Jónsdóttir fn/fin/fig Framhald af dIs. 10. Árið 1933 fluttist Guðrún til Zophoníasar bílstjóra á Blöndu- ósi og konu hans Guðrúnar Ein- arsdóttur, er hún dvaldist síðan : bjá, til æviloka. F Þó segja megi að lífsstarf Guð- rúnar Pálmadóttur, sé eigi mjcig frábrugðið lífi og störfum marga húsmæðra í sveitum undanfarna áratugi, þá voru störf henriar og tframkoma þess eðlis að minn- ing hennar varpar björtum geisla yfir það mikla og fórn- fúsa starf, sem miklar konur f'bafa á öllum tímum leyst af iiendi fyrir samtíð sína og eftir- komendur. i Guðrún var þeim móðurlegu eiginleikum gædd, að henm var auðvelt að skilja og na þeim áhrifum á börnin að þau elskuðu ihana og virtu samfara góðum uppeldisáhrifum. Hun átti svo miíkið af fórnfýsi, velvilja og mannkostum, að áhrif hennar urðu gott veganesti til fullorð- insáranna. Þessir hæfiieikar fylgdu henni til æviloka og náðu til barna sona hennar, enda mun þeim vera minningin um ömmu góð. 1 Guðrún var tíguleg kona í út- liti, og svo prúð í umtali að hún lét eigi falla ógætiieg orð 1 ann- arra garð. Hún var dugmikil til allra starfa og vinnuhneigð, og óvenjulega fjölhæf á kvenleg störf. Þrekkona mikil til allrar vinnu, úti og inni. Sérstaklega var henni ’agið að umgangast skepnur og hirðia þær. Dýravin- ur mikill. og átti auðvelt með að gera þau sér að vinurn. ■ Þrátt fyrir erfið ár og baráttu var Guðrún hamingiukona. Hún eignaðist mannvænleg.i syni, og vel metna. Fóstursynir hennar ■urðu vel metnir menn, og sona- börn hennar efniiegt fólk. Allir er kynntust henni báru virðingu fyrir henni. Eftir að. Guðrún fluttist til Zophoníasar sonar síns á Blöndu ósi og konu hans — en hjá þeim dvaldist hún 27 síðustu æviarin — var umhyggju hennar fyrir velferð þessa heimilis, sífellt starfssvið, ásamt uppeldi barna þeirra. Jarðarför Guðrúnar fór fram 4. ágúst sl. að viðstöddu fjöl- menni í fögru veðri og sólríkum degi. Séra Þorsteinn B. Gíslason jarðsöng. Eftir kirkjulega út- fararathöfn á Blönduósi var •hún flutt til legstaðar að Ból- staðarhlíð þar sem ýmsir ástvin- ir hennar ásamt fyrri eigin- manni voru áðúr jarðsetti Það var virðuleg iíkför er fjöldi bifreiða ók skipulega fram Langadal heim tii hennar æskustöðva. Á Æsustöðum, hennar kæra bæ, var stutt minningarathöfn í trjágarðinum, sem hún hafði svo oft hlúð að. Þar voru mættir nokkrir eldri vinir hennar, og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. Þar heiðruðu þeir hara með nokkrum sálma og ætijarðar- lögum og séra Þorstein.i flutti kveðjuorð. Jarðarför Guðrúnar Pálma- dóttur fór fram með hátíölegum og virðulegum hætti. Öllum var ljóst að hér var lokið nukiu og •löngu lífsstarfi, mikillar sæmd- arkonu, sem með framkomu sinni, vinsemd og hjálpfýsi, hafði öllum viljað velfarnaðar, og var að síðustu kvödd með góðum endurminningum við- staddra vina og margra annarra. Ágúst B. Jónsson. Ráðskona rúð og hreinleg eldri kona >kast sem ráðskona á fá- iennt heimili í Reykjavík. ilb. er greini aldur og fyrri örf sendist afgr. Mbl. fyrir 3. þ.m. merkt: „Ráðskona — ÞANN 23. ágúst var jarðsett í Reykjavík frú Lára Jónsdóttir, vökukona á Kleppsspítala. Hún andaðist á Landsspítalanum þann 16. ág., eftir stutta legu, en langan sjúkdóm, sem hún bar með fá- gætu þreki. Lára var borin og barnfædd að Grund í Eyjafirði 27. júní 1898. Lára var tvíkvænt og bjó fyrst í Reykjavík, síðan í Möðrudal á Fjöllum, þá í Vopnafirði og flutt- ist síðan til Reykjavíkur 1950 og var búsett þar til dauðadags. Mann sinn, Harald Björnsson, missti hún eftir átta ára sambúð, en fimm börn hennar af sex eru á lífi. Síðustu árin starfaði Lára sem vökukona á Kleþpsspítala. Það kann að standa öðrum nær en mér undirritaðri að skrifa minningarorðin um Láru heitna, því að kynni okkar voru örstutt, en á þann veg, að mig langar að votta minningu hennar virðingu mína og aðstandendum samúð. Einn kemur þá annar fer, segir máltækið að sönnu, en hætt er við að sæti Láru verði vandfyllt, slík var hún að mannkostum. Ég get varla ímyndað mér betri full- trúa þeirrar merkilegu kynslóðar sem óx úr grasi um aldamótin. Ósérplægni, æðruleysi og ljúf- mennska voru meginþættirnir í skapgerð þessarar konu. Skyldan) var henni nærtækara hugtak en réttindin; verkið verksins vegna og án tillits til launa voru hin óskráðu einkunnarorð hennar. Kún var ein þeirra kvenna sem flytja með sér ljós og yl hvar sem þær fara. Lára var fátöluð um sjálfa sig Og óskaði ekki eftir hlutdeild annarra í erfiðleikum sínum, en var þeim örlátari á að veita hlut- deild í gleði sinni, barnabörnum sínum, sem hún talaði oft um. En þótt Lára segði fátt, vissum við samverkakonur hennar, að óblíð örlög höfðu á henni mætt og ævi hennar verið ævi verka- konunnar sem alla tíð vinnur hörðum höndum. En ekkert mót læti fékk bugað þessa harðgerðu en ljúfu konu. Jafnvel eftir að sjúkdómurinn, sem dró hana til dauða, hafði markað andlit henn- rúnum þjáninganna, var engin breyting á viðmóti hennar, það var eftir sem áður jafn nota- legt að taka við vakt af Láru að morgni dagis. Á köldum vetrar morgnum var það eins og sólar- geisli að mæta hlýju viðmóti Láru, og aldrei leið eitt andvarp, ein kvörtun, yfir varir hennar, svo þjáð sem hún vann síðustu fiiánuðina. Hönd hennar hjúkrar ekki lengur sjúkum og bros hennar Ijómar ekki lengur í húsakynn- um Gamla Kleppsspítala, en minning hennar lifir í hugum samverkafólks hennar, og þegar og heitri kærleikslund, með þinni ástúð ætíð varstu að færa okkur blessun, fram að hinztu stund. Og öðrum varstu ljós á leiðum þínum, því ljósið sanna bjó í sálu þér. Það lýsir áfram, sjálf þó hverfir sýnum, og sendir blessun, ástvinunum hér. Nú, lífsins tign að liðnum ævidegi, Ijómar yfir þinni sigurför. Með guði þínum gekkstu á réttum vegi, sem gaf þér þrek að bera margþæt kjör. Með helgri þökk, frá barnsins heitu hjarta, til himins stígur bæn og kveðju mál. Þér Drottinn launi allt, um eilífð bjarta, og æðstu blessun veiti þinni sál. góðra verður getið í þeim hóp verður nafn Láru nefnt. Þessu fátæklega skrifi mínu vil ég ljúka með því að tilfæra orð eins þeirra sjúklinga, sem spítalann gista, en því fólki er annað tamara en að tjá tilfinn- ingar sinár á ljósu máli: Það er eitthvað svo tómt síðan Lára fór. Þau orð vil ég gera að mínum og votta um leið aðstandendum I.áru dýpstu samúð mína. Blessuð sé minning hennar. H. J. KVEÐJA FRÁ BARNABÖRNUM í KEFLAVÍK F. 27. júní 1898 — D. 16. ág. 1960 Af jörðu horfin ertu, amma góða, nú eilífð Drottins brosir móti þér. í klökkvu hjarta kveðjustundin hljóða kallar allt það fram, sem liðið er. Um árin liðnu eigum minning bjarta, þín ömmubörn, þá leiðir skilja hér. Þú, góða hlutann geymdir trú í hjarta og gafst í verki, það sem fegurst er. Þinar góðu gjafir, amma kæra, þú gafst af ríkri TRÚLOFUNARHRINGAR Afqrcittir samdægurs HAILDÓR SLólavbrðustiq 2, 2. Kæá 1 34-3-33 Þungavinnuvélðr Biladekk ísoðin: 900x20 — 825x20 — 750x20 — 700x20 — 650x20 — 900x18 — 700x17 — 750x16 — 700x16 — 650x16 — 600x16 — 670x15 — til sölu. Uppl. í síma 22724 kl. 12—1 á hádegi. Nýtt - Nýtt Glamorene teppahreinsarinn og Glamorene Shampoo Þægilegasta aðferðin fyrir húsmæður til að hreinsa gólf- teppi og áklæði. — Selt hjá: BRIMNES HF. Mjóstræti 3. — Sími 19194. Mjög góð 4ra herb. íbuð við Bólstaðarhlíð til sölu. Sér inngangur og sér hiti. Nánari upplýsingar gefur: Málfiutningsskrifstofa Einars B. Guðimindssonar, Guðiaugs Þorlákssonar, Guðniundar Péturssonar, Aðalstræti 6, Símar 1-2002, 1-3202 og 1-3602. * Framköllun Kopering ★ Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu. { Fótófix Vesturveri. 1 EINAR ÁSMUNDSSON hæstaréttarlögmaður HAFSTEINN SIGURÐSSON héraðsdómslögmaður Skrifstofa Hafnarstr. 8, II. hæð. Sími 15407, 19113. Jóhannes Lárusson héraðsdómslögmaður lögfræðiskrifstofa-fasteignasala Kirkjuhvoli. Sími 13842. Gísli Einarsson héraðsdómslögmaður. Málflutningsstofa. Laugavegi 20B. — Sími 1963L Ódýrt 280 REGNKÁPUR á 1—10 ára, lítið gallaðar. Seldar í dag og næstu daga. Verð frá kr. 65.— Smásala, Laugavegi 81. Skrifstofustulka getur fengið starf við símavörzlu og vélritunarstörf frá næstu mánaðarmótum. Tilboð merkt: „Vön — 925“ sendist afgr. Morgunblaðsins fyrir 17. þ. m. Framkvæmdabankinn óskar að ráða skrifstofustúlku með góðri kunnáttu í vélritun og tungumálum. Hraðritun æskileg. Um- sóknir, er tilgreini menntun og fyrri stöi'f, afhendist í bankanum. Innanhússmálning LÖKK í litum og glær MÁLNINGARÚLLUR og PENSLAR Allt scm nota þarf til að má!a# Við lögum litina. — Við sendum heim. NÝKOMIÐ EASY-OFF ofnhreinsunarefnið margeftirspurða- COPYDEX glerfægilögur kr. 14.60 flaskan COPYDEX sprautur fyrir glerfægilög kr. 18,05. COPYDEX fata- og teppalim í túbum kr. 24.50. í glösum kr. 35,— í brúsum kr. 66,50. COPYDEX fata og teppalím í túbum kr. 24,50, COPYDEX lím fyrir mjúkt plast s.s. kápur kr. 13,50 túban. „1001“ teppa- og áklæðis hreinsunarefni kr. 25.50 fl. „1001“ Húsgagnabón kr. 32.00 glasið Bankastræti 7.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.