Morgunblaðið - 09.10.1960, Page 13
Sunnudagur 9. oTct. 1960
MORCrnrtTAÐIÐ
Yó
— Hvað vantar
manninn
Framh. aí bls. 11
nr tætt. 90—95% óbótamannanrva
var annað hvort alveg ókunnur
eða lítt kunnur siðgæðishug-
myndum kristindómsins. Og
þetta láta menn sér vel líka, þar
til í óefni er komið. Þá vakna
menn og fara að spyrja.
Hér á landi ættum vér að taka
ráð í tíma: Hætta að láta eina
stofnun rikisins rífa nióur það
sem önnur byggir upp. Þetta
þætti skynsamlegt í byggingaiðn-
aðinum, en sætir eflaust andmæl-
um í uppeldmu. Góð byrjun gæti
t. d. verið að hætta að láta út-
varpið rífa n'ður það sem heimili
Og skóli og jafnvel það sjálft
byggir upp við og við. Spor í
■vipaða átt eru þegar hafin í
■umum löndum. Þannig greinir
ein heimild (N. L. júní 1960) frá
því að Kanadamenn hafi bann-
að hjá sér sölu 400 „publica-
tions“, þ. e. rita, frá Bandaríkj-
unum og Astralíumenn 80 sams
konar rita. Eru þó áhrif rita
miklu meinlausari en áhrif
slæmra kvikmynda, sjónvarps-
og útvarpsefnis.
IV.
Hinn eini og hinir mörgu. —
Ég á hér í fórum mínum úr-
klippu frá 5 apríl þ. á. Það er
þriðja blaðið, sem þessi frétt
bitrist 1, á Norðurlöndum. Orð-
rétt er hún á þessa leið í þýð-
ingu:
„Þetta átti sér nýlega stað í
Danmörku: Lítil stúlka, 9 ára,
fannst myrt — hún hafði verið
stungin þó nokkrum hnífsstung-
um og lögreglan lét fara fram
mikla rannsókn til þess að leita
hins seka, sem hún taldi að hlyti
nð vera kynglæpamaður. Svo
kom það allt í einu fram að
Stúlkan hafði verið drepin af 10
ára leikbroður sínum. Hann
skýrði svo frá að hann hefði séð
„Wild West“ sýningu í sjónvarp-
inu. Þar hafði ein hetjan stung-
ið óspart með hníf sínum, en
bráðlega voru hinir drepnu bráð-
lifandi á ný. Þessi spennandi atr-
iði höfðu blásið drengnum þeirri
hugmynd í brjóst að hann skyldi
leika þetta sama. Hann var „kúa-
drengur“ og vinstúlka hans
„kóngsdóttir". Hún hljóp frá hon
um og þegar hún hrasaði, settist
hann ofan á hana og stakk hana
mörgum sinnum með hníf, eins
og hann hafði séð á sjónvarps-
tjaldinu. En að leik loknum stóð
hún aldrei á fætur framar".
Já, þú getur enga ályktun
dregið út írá einu tilfelli, segja
hinir skynsömu. Ekki það?
Draga menn ekki ályktanir sí
og æ af hinni einu kjama-
sprengju yfir Hiroshima og töngl
ast á því inn til leiðinda, en
gleyma bæði Perluhöfn og Naga-
saki? Eða mundum vér ekki telja
eina slíka sprengju óæskilega
yfir vorri borg — og eitt tilfelli
með drenginn og stúlkuna óæski-
legt á voru eigin heimili? Eða
er sannleikurinn aðeins sannur
þegar hann er nógu nærgöngull
við þig eða mig?
Jú, en í Hiroshima fórust marg
ir og það var átakanlegþ Vissu-
lega, en voru ekki Japanir búnir
að valda dauða tvö þúsund sinn-
«m fleiri manna en dóu í Híró-
shima, þótt Kínverjar einir séu
taldir?
Hér var ekki aðeins um eitt
barn að ræða, heldur tvö. Og
þau eru orðin mörgum sinnum
tvö þau börn og ungmenni, sem
myrt hafa verið fyrir áhrif frá
afvegaleiðandi skemmtiefni. Sá
tími kemur að sjónvarpið mun
ná kjarnorkusprengjunni í beinu
tjóni í mannslífum, auk alls ann-
ai-s —
Hvers vegna láta menn sér á
luna standa?
Það liggur í eðli voru að telja
frelsi hinna ýmsu menningar-
greina til aðalsmerkja menning-
ar vórrar og það ber að hafa í
heiðri. En er bað rétt og skvn-
samlegt að heimta sama frelsi
fyrir ómenningu sem menningu?
Og til ómenningar ber að telja
ekki aðeins það, sem afvegaleiðir
vitsmuni manna, heldur einnig
afvegaleiðsla tilfinningalífs og
siðgæðislífs. Hvað hér er um að
ræða, skilur alþýða manna að
nokkru leyti af brjóstviti sínu og
oft er bragð að, þá barnið finn-
ur. Sérfróðir menn þekkja þetta
nokkru betur og nota það mark-
visst í fjárgróðaskyni í skemmt-
anaiðnaðinum. Forráðamenn
sjónvarps hafa opinberlega sagt:
Vér tökum ekki tillit til hinna
viðkvæmustu. Það er sama gamla
sagan um að fótum troða rétt
smælingjans — barnsins — og
þar sem sízt skyldi. á heimili
hans, hinu eina athvarfi sem
hann á. Menn skyldu hér rifja
upp söguna um lamb fátæka
mannsins.
Hollt og skylt er hér einnig að
minnast orða Drottins: Hver sem
hneykslar einn af þessum smæl-
ingjum, sem á mig trúa, betra
væri honum að stór kvarnar-
steinn væri hengdur um háls
honum og honum væri sökkt í
sjávardjúp. Það ætla ég að þessu
sé óhætt að trúa.
En hvað segja menn tun
hneykslanir nú? Menn nota þær
í auglýsingaskyni. Menn nota
hneykslanir, viðbjóð og svívirð-
ingu til þess að draga aðra að
jötunum í skemmtanabúskapn-
um. Allt þetta er fyrir löngu orð-
ið verzlunarvara og vegur til
frægðar. Og það vitum vér að
vér erum ekki saklausir ef vér
svíkjum smadingjann með þögn-
inni um pessa hluti. Eða mun
ekki blóð hans hrópa til Guðs
frá jörðinm eins og forðum?
Hér er verkefni fyrir samvizku
manna. Hér eru tilefni til að
vinna góð verk, til að bæta fyr-
ir brot, sem of lengi hefir dreg-
izt að bæta fyrir, það er að
hjálpa þeim, sem hafa verið af-
vegaleiddir — og vinna gegn af-
vegaleiðslu, því hún getur ekki
talizt einkamál. Það er hið sí-
gilda verkefni að greina gott frá
illu og berjast undir merkjum
hins góða.
Jóhann Hannesson.
Frá Byggingarsamvinnufélagi
Beykjavíkur
’élaginu hefur nú verið úthlutað byggingarlóð undir
6 íbúðir, sem ætlað er að hefja byggingu á svo fljótt
. em auðið verður. Þeir félagsmenn vorir sem hefðu
nuga á að eignast íbúðir í téðri sambyggingu, eru
neðnir að snua sér til skrifstofu félagsins á Hverfis-
;;ötu 116, sem allra fyrst. Skrifstofan er opin á
riðju- og fimmtudögum frá kl. 2—6 e.h.
úmi 1-87-95.
STJÓRfílN.
Viljum ráða vanan
motsvein, eðo matrdðskonu
fyrir komandi vertíð, í mötuneyti okkar,
ME,TILLINN h.f.
Þorlákshöfn.
PILTAR =
EFÞiÐ EIGIP UNNUSTUNA
ÞÁ Á ÉG HRINGANA /
fádrfá/?\[f-
/ffo/sfráef/ S \ 1 V '—
bbbbbbbbbbbbbtbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb
W E S L O C K-kúluhúnar
SKRÁR O G HÚN AR
m.a. ASSA, UNION, JOWILL
INNIHURÐALAMIR
ÚTIHURÐALAMIR
yggingavörur h.f.
Simi J56VI
Laugaveg 178
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
.b
Húsmæður:
ROYAL
ávaxtahlaup
(Gelatin) er Ijúf-
fengt og nærandi,
inniheldur C bæti-
efni.
Eitinig nnjög fallegt tit
skreytingar á tertum.
Margar bragðtegundir,
auðvelt í notkun.
Selzt milliliðalaust.
Uppl. gefnar í Stóragerði 22 frá kl. 1—5 í dag.
— Sími 3-35-71 —
GaR^EBo dieselvélar í fiskibáta
24 fil 200 hö við 900-1300 sn. a mín.
89% af fiskibátum sem byggðir voru í brezk-
um skipasmíðastöðvum árið 1958 með vélar
frá 28 tii 152 hö höfðu Gardner.
Gardner dieselvélin er heimskunn og er
allsstaðar eftirsótt — hentar einnig vel í ís-
lenzka fiskibáta.
Einkaumhoð fyrir ísland:
Jónsson & Júlíusson
Tryggvagötu 8 — Sími 15430.