Morgunblaðið - 18.07.1963, Blaðsíða 14
14
MORGVISBL 4 Ðitp
Fimrv'hidagur 18. júli 1963
Hjartans þakkir til sveitunga minna, frænda og vina,
er heðiruðu mig og glöddu með heimsóknum, gjöfum og
heillaskeytum á sextugs afmæli mínu 13. júlí sl.
Isleifur Gissurarson, Drangshlíð.
Þakka hjartanlega öllum vinum og vandamönnum
fjær og nær, sem gerðu mér áttatíu ára afmælisdaginn
ógleymanlegan með heimsóknum, blómum, skeyt-
lun og gjöfum — Lifið heil.
Margrét Jónsdóttir, Akranesi.
Konan mín
HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR
andaðist í Bæjarsjúkrahúsinu í Reykjavík 14. júlí sL
Fyrir hönd vandamanna.
Jón Magnússon frá Stokkseyri.
Móðir okkar
guðrCn þórðardóttir
Hverfisgötu 88B
andaðist að heimili sínu sunnudaginn 14. þ.m. — Jarðar
förin fer fram frá Neskirkju n.k. föstudag kl. 3.00.
Þórður Gíslason,
Þóra Gísladóttir,
Auður Gísladóttir,
«> Ásthildur Guðrún Gísladóttir.
Móðir okkar
GEIRLAUG SIGURÐARDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum
lézt að morgni 17. júlí.
Sigríður Ólafsdóttir,
Guðjón Ólafsson,
Ólafur Erlendsson.
Sonur minn
STEFÁN KRISTINSSON
lézt af slysförum, sunnudaginn 7. þ.m. Utförin hefur
farið fram. Fyrir hönd vandamanna.
Sigfrið Sigurjónsdóttir.
Maðurinn minn, faðir og sonur
BJARNI SÆVAR JÓNSSON
Skúlaskeiði 34, Hafnarfirði
andaðist aðfaranótt 17. júlí að Sjúkraheimilinu Sól-
vangi.
Hulda Jónsdóttir og börn.
Ólöf Jónsdóttir, Jón Sigurgeirsson.
Hjartkær dóttir okkar
AUÐUR BERGSDÓTTIR
andaðist þann 16. júli.
Sara Ólafsdóttir,
Bergur Arnbjörnsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför
BJARNA BJARNASONAR
Dætur hins látna.
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur vinsemd
og samúð við andlát og jarðarför litla drengsins okkar
BALDURS BJÖRNS
Fyrir hönd barna okkar og annarra vandamanna.
Kristín Ólafsdóttir,
Guðjón Kristinsson,
Urðarvegi 17, Vestm.eyjum.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför litla sonar okkar
JÓNS GUÐMUNDSSONAR
Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir,
Guðmundur Jónsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför móður okkar
GUÐRÍÐAR EINARSDÓTTUR
Laugavegi 55
Fyrir hönd fjarstaddra systra okkar og vandamanna.
Þrúður Gunnarsdóttir,
Jón Gunnarsson.
ifiiiiiw'ii"11 .....
Jóhannes Helgason
ÞANN 11. þessa mánaðar varð
Jóhannes Helgason, kaupmaður,
Njálsgötu 45 a. hér í bæ, bráð-
kyaddur í sumarbústað sínum að
Fellskoti í Biskupstungum. Eins
og mörg undanfarin sumur hafði
hann lagt leið sína að Fellskoti
til þess að njóta þar hvíldar frá
erilsömum önnum starfsins.
Okkur kunningjum hans var
kunnugt, að til þessarar ferðar
og dvalar í sumarbústaðinum
hlakkaði Jóhannes jafnan og
sizt grunaði okkur, að þetta yrði
hans hinzta för, því að Jóhannts
var aðeins 58 ára er hann Jézt.
Jóhannes var fæddur 1 Reykja-
vík 23. júní 1905. Foreldrar hans
voru Helgi Árnason safnhúsvörð-
ur og Hólmfríður Björnsdóttir.
Ólst hann upp hjá föður sínum
og konu hans Þuríði Bjarnadótt*
ur ásamt fjórum hálfsystkinum
sínum.
Jóhannes fór snemma að vinna
fyrir sér og vann almenna vinnu;
en snemma beindist hugur hans
til þess, sem hann síðar gerði að
ævistarfi sínu — verzlun og
verzlunarstörf. Sextán ára að
aldri hóf hann nám í Verzlunar-
skólanum og lauk burtfararprófi
þaðan árið 1923. Næstu árin þar
á eftir stundaði hann verzlunar-
störf með föður sínum og nokk-
uð á eigin spýtur, unz hann árið
1932 setti á stofn sina eigin
verzlun að Njálsgötu 43 a, sem
hann rak af miklum dugnaði til
dauðadags.
Kynni mín og Jóhannesar hóf-
ust fyrir allmörgum árum og er
margs að minnast, er-litið er yfir
farinn veg. Jóhannes var maður
greindur, sem lét sig skipta menn
og málefni, sem efst voru á baugi
hverju sinni. Hann hafði mikmn
áhuga á þjóð- og fjármálum og
hafði ákveðnar skoðamr á þeim
málum og hafði hann ánægju af
að ræða þessi áhugamál við
kunnuga. í starfi sinu kynntist
Jóhannes mörgum og margir
eru þeir, sem notið hafa lið-
sinnis hans á emn eða annan
hátt, en hann var maður bón-
góður, er til has var leitað. Jó-
hannes var ósérhlífinn og helg-
aði verzlun smm og heimili alla
orku. Þann skugga bar þó á, að
undanfarin ár átti hann við mikla
vanheilsu að stríða og gat því
ekki notað starfskrafta sína ems
og hann hefði kosið.
Eftir að heilsan bilaði hjálpuð-
ust eiginkonan og börnm að
reka verzlunma. Jóhannes bar
mikla umhyggju fynr heímili
sínu. Hann og konu hans, sem
bæði voru mjög gestrisin, var
gott að heimsækja og við hátíð-
leg tækifæri veittu þau af rausn,
Börnum sínum var hann góður
faðir. Eiginkona hans reyndist
honum traustur förunautur, þvl
að á hennar herðar komu oft
verk beggja eftir að veikmdi
hans ágerðust. Dætrabörnum sín-
um var hann góður afi og hafði
hann mikið yndi af þeim.
Jóhannes kvæntist eftirlifandi
konu smm Eirnýju Guðlaugsdótt-
ur, 5. nóv. 1932. Þau eignuðust
fjögur mannvænleg börn: Eisu,
sem gift er Hilmarí Magnússyni,
verkstjóra og Katrínu, Dagmar og
Guðlaug, sem eru í heimahús-
um.
Með þessum fáu kveðjuorðum
vil ég votta eftirlifandi konu
hans, sem var stoð hans og stytta
svo og börnum hans samúð
mina. Með Jóhannesi er geng.
inn góður drengur, ötull starfs-
maður og hjálpfús maður. Sá,
sem þetta ritar vill þakka marg-
ar ánægjulegar samverustundir
á heimili hans og í sumarbústaðn-
um.
Blessuð sé minning hans.
G. H,
Þeir félagsmenn
Byggingasamvinnufélags
lögreglumanna í Reykjavík
sem neyta vilja forkaupsréttar að húseigninni Sunnu
braut 27, Kópavogi, gjöri svo vel að snúa sér til for-
manns félagsins Kristjáns Sigurðssonar innan viku
frá birtingu auglýsingarinnar. Mun hann veita nán-
ari upplýsingar um íbúðina.
Stjórnin
Snyrtiskólinn
auglýsir
Andlits- og handsnyrtinám
skeið verður haldið á Ak-
ureyri dagana 22.—25. júlí.
Innritun og upplýsingar í
Akureyrarapóteki.
SNYRTISKÓLIIMN
Hverfisgötu 39. — Simi 13475
Fimm ára styrkir
Menntamálaráð Islands mun í ár úthluta 7 náms-
styrkjum til stúdenta, sem hyggjast hefja nám við
erlenda háskóla eða við Háskóla Islands. Hver styrk
ur er tæpar 40 þús. kr. Sá, sem hlýtur slíkan styrk,
heldur honum , allt að 5 ár, enda leggi hann árlega
fram greinagerð um námsárangur, sem Menntamála
ráð tekur gilda. Þeir einir koma til greina við út-
hlutun, sem luku stúdentsprófi nú í vor og hlutu háa
fyrstu eiakunn.
Við úthlutun styrkjanna verður, auk námsárangurs
höfð hliðsjón af því, hve nám það, er umsækjendur
hyggjast stunda, er talið mikilvægt frá sjónarmiði
þjóðfélagsins . __
Styrkir verða veittir til náms bæði í raunvísindum
og hugvísindum.
Umsóknir, ásamt afriti af stúdentsprófsskírteini,
svo og meðmæli, ef fyrir liggja, eiga að hafa borizt
skrifstofu Menntamálaráðs, Hverfisg. 21, fyrir 15.
ágúst n.k. Skrifstofan afhendir umsóknareyðublöð
og veitir allar nánari upplýsingar.
Reykjavík, 15. júlí 1963.
Menntamálaráð Islands.
Jarðarför mannsins míns og föður okkar
VIGFÚSAR GUÐBRANDSSONAR
klæðskerameistara
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 19. þ.m. kl. 10,30
f.h. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hins látna skal bent á Kristniboðið í Konsó og
Ekknasjóð Klæðskerameistarafélags Reykjavíkur.
Kristín Ólafsdóttir,
Rósa Vigfúsdóttir, Friðrik Vigfússon,
Haukur Vigfússon.
Útför föður okkar
ODDS SÆMUNDSSONAR
frá Súgandafirði
sem lézt 12. þ.m. verður gerð frá Fossvogskirkju föstu
daginn 19. júlí kl. 1,30 e.h.
Guðmunda Oddsdóttir,
Karl Oddsson.