Morgunblaðið - 30.10.1965, Síða 12
12
4
Laugardagur 30. október 19*
MORGUNBLAÐIÐ
NÝJUM BÍLi
! Almenna
bifreiialeigan hf.
Klapparstíg 40
sími 13776
SIM'3-11-60
Fastag-jald kr. 250,00,
og kr. 3,00 á km.
Vólkswagen 1965 og ’66
m
■
í
BÍLALEICAN
LITL A
biireiðoleigon
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200
Sími 14970
ER ELZTA
REYNDASTA
OG ÓDÝRASTA
bílaleigan í Beyk.iavík.
BILALEIGAN BILLINN
RENT-AN - ICECAR
SÍMI 18833
BILALEIGAN BILLINN
RENT-AN - ICECAR
SÍMI 18833
J==’BIIAÍ£/EJUÍ
FERÐ
SÍMI 34406
SENDUM
Daggjald kr. 250,00
og kr. 3,00 hver km.
BIFREIÐALEIGAN
VAKUR
Sunidlaugav. 12.
Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Daggjald kr. 250,- og kr. 3,-
á hvern km.
FræðsluþátUr Garðyrkjufélags íslands:
Inniræktun laukjurta
í EINUM af fræðsluþáttum
Garðyrkjufélagsins, er birtist ný-
lega, var vakin athygli á ýmsum
laukjurtum, sem rækta má hér í
görðum, og settar eru niður að
haustinu. Hér skal bent á, að
sumar tegundir garðlauka má
einnig rækta í heimahúsum að
vetri til. Þetta gera t.d. einstaka
húsmæður við goðaliljur eða hya-
sinthur. Þær rækta þær á ein-
faldan hátt í sérstaklega löguð-
um glösum, sem munu hér kölluð
hyasinthuglös. Glös þessi eru fá-
anleg í ýmsum litum, og eru ekki
aðeins framleidd úr gleri, heldur
einnig úr plastefnum. Eru þá
goðaliljurnar ræktaðar eingöngu
í vatni, eða með örfáum viðar-
kolamolum á botni glassins, til
þess að halda vatninu fersku.
Að rækta lifandi lauka í stór-
um stofum að vetri er ekki síður
ánægjulegt og spennandi starf en
margt annað frístundagaman, og
lífgar auk þess upp á skamm-
degistilveruna í margvíslegum
skilningi. Hér mun þó ekki mikið
fengizt við þetta, máski sökum
þess, að flestir álíta það erfitt.
Kannski stafar það einnig af ó-
kunnugleika. Að vísu eru fáar
laukjurtir jafnauðveldar í rækt-
un og goðlijur, því þeim nægir
vatnið eitt sér til viðurværis.
Aðrir laukar þurfa mold og ann-
að ílát en glas. Hins vegar er
ræktunin ekki .beinlínis erfið við
fangs og ætti það að vera hvatn-
ing fyrir þá, sem hafa gaman af
ræktun og kunna að meta skraut-
gróður.
Hvernig á nú að framkvæma
þessa ræktun?
Byrjað er á því að verða sér
úti um þroskavænlega og góða
lauka af t.d. hvítasunnuliljum,
páskaliljum, tulipönum,. dverglilj
um og vetrargosum, eða öðrum
tegyndum, sem áhugi er á að
reyna. Laukarnir eru síðan lagð-
ir í potta eða hæfilega djúpar
skálar í sæmilega frjóa mold.
Hverri tegund er haldið sér. Þeg-
ar laukunum hefur verið komið
fyrir í ílátunum, er gott að
sáldra örlitlu sandlagi (um 1 cm)
ofan á moldina. Að því búnu þarf
að vökva mjög vel. Síðan mi
grafa ílátin niður úti í garði eða
setja þau í svala, dimma geymslu
við 6—8° hita, er þá gott að setja
8—10 cm lag af rökum mosa ofan
á pottana. Bezt fer um laukana
að grafa þá niður úti. Er þá graf-
in 20 cm djúp hola og ílátunum
raðað þétt saman á botn hennar,
síðan er moldinni mokað gæti-
lega ofan á. Sé hætt við miklum
frostum, er gott að setja nokkuð
af mosa eða laufblaðaúrgangi of-
an á moldina. Úti eða í geymslu
þurfa flestir laukar að liggja
minnst 8 vikur, og sumir lengur,
áður en þeir eru teknir inn, en
þann tíma þurfa þeir til þess að
mynda öflugt rótarkerfi, en það
er frumskilyrði þess, að ræktunin
takist vel, þegar þeir eru komnir
í stofu. Við upptöku þarf að losa
moldina gætilega frá pottunum,
vökva þá síðan vel þegar þeir eru
komnir inn.
í helztu atriðum skal nú lýst
undirbúningi til ylræktunar á
túlipönum, en í stórum dráttum
gildir svipað um aðrar tegundir.
Goðalilja í glasi. Hctta til hliðar.
Séu túlipanar lagðir um þetta
leyti, ætti að vera óhætt að taka
þá fyrstu inn eftir 10—12 vikuf,
og blómgast þeir þá síðari hluta
febrúar. Túlipana má leggja í
potta eða djúpar skálar, sem fyr-
ir notkun þurfa að hafa legið í
vatni stutta ' tund. Má leggja 3
lauka í pott, sem er 12 cm á vídd,
og 4 lauka í 15 cm pott. Byrjað
er á því að sléttfylla ílátið af
mold, síðan er laukunum þrýst
það langt niður í moldina, að
toppar þeirra séu um 1 cm hærri
en pottabrúnin. Þar næst er sáldr
að sandi á milli laukanna, en þess
þó gætt, að þykkt sandlagsins
verði ekki meiri en svo, að hæfi-
leg vatnsborð verði í ilátinu
(1—2 cm). Að lokum er gengið
frá laukunum í geymslu annað
hvort inni eða úti. Þegar lauk-
arnir eru svo teknir inn, er þeim
komið fyrir á svölum stað fyrstu
vikuna, og síðan fluttir á bjartan
Laukar í skál.
stað. Túlipanar þurfa mjög jafn-
an raka, þegar farið er að yl-
rækta þá, og svipuðu máli gildir
um aðrar tegundir laukjurta.
Ennfremur þarf að gera ráð fyr-
Dægurlög
á nótum
í TIEFNI af tíu ára afmæli Fé-
lags ís'l. dægurlagahöfunda gefur
félagið út nótnahefti með 12
dægurlögum eftir nokkra félags-
menn. Lögin eru öll útsett fyrir
píanó, sum jafnframt með gítar-
hljóm. Hefir félagið ákveðið að
halda áfram slíkri nótnaútgáfu
og er annað hefti væntanlegt á
næsta ári. Lögin í heftinu eru:
Nótt í Njarðvík. Lag: Jóhannes
Jóhannesson; Söngur æskunnar,
hægur foxtrot. Lag og ljóð: Jenni
Jónsson; Hrannarvals. Lag: Krist
inn Reyr; I Reykjavík. Lag: Hjör
dís Pétursdóttir. Ljóð: Jenni Jóns
Laukar í potti.
ir, að hávaxnar tegundir þurfi
að binda upp.
Goðalijur eru ýmist settar 1
laukglös, sem fyllt eru með
vatni, eða þá í mold, eíns og áð-
ur er lýst. Þess er gætt, að vatns-
borðið sé ávallt 3—5 mm undir
lauknum. Verður því að bæta
vatni í glasið við og við. í byrj-
un er bezt að koma laukglasi
fyrir á dimmum stað við 10—12“
hita. Hærri hiti seinkar rótar-
myndun. Þegar blaðhvirfingin
fer að togna, er glasið flutt í
glugga og sett pappahetta yfir
unz blómskipunin hefur teygt sig
upp úr blaðhvirfingunni. Lauk-
ar, sem hafa verið ylræktaðir
inni, má setja niður í garðinn að
vori, geta þéir þá blómgast eftir
2—3 ár, sé vel að þeim búið.
Óli Valur Hansson.
son; Ég sá þig fyrst. Lag: Ás-
björn Ó. Jónsson. Ljóð: Vilhjálm-
ur frá Skáhölti; Reyndu aftur.
Lag: Jónatan Ólafsson. Ljóð:
Númi Þorbergsson; ó, komdu nú
{ kvöld. Lag: Ágúst Pétursson.
Ljóð: Kristinn Reyr; Á æskuslóð
um. Lag: Gunnar Vilhjálmsson.
Ljóð: Númi Þorbergsson; Þýtur
í rökkvuðum runnum. Lag og
ljóð: Sigríður Jónsdóttir; Hljóða
nótt. Lag: Svavar Benediktsson.
Ljóð: Reinhard Reinhardsson;
Ástarkveðja. Lag: Þórunn Franz.
Ljóð: Valgerður ólafsdóttir;
Móbergsminni. Lag: Árni ísleifs-
son.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Sunnudagskaffi
Sunnudagskaffi
Skemmtun fyrir alla ffölskylduna
að Hótel Sögu nk. sunnudag kl. 15 — til
ágóða fyrir hjálparstarfs Rauða krossins.
★ Þorsteinn Ö. Stephensen.
★ SAVANNA tríóið.
★ Tízkuskóli Andreu sýnir grímubúinga
frá Þóru Borg.
Gunnar Axelsson við píanóið.
Ungir nemendur Hermanns Ragnars
sýna vinsæla barnadansa.
Haukur Morthens kynnir.
'A Bára Magnúsdóttir; Danssýning.