Morgunblaðið - 20.04.1967, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.04.1967, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1967. Adenauer kanzlari, biðst fyrir í kirkju í Moskvu. legra demókrata 139 atkvæði af 402. Sósíaldemókratar fengu 131 atkvæði en^\denauer tókst að lcöma á samstarfi við Frjáláa demókrata og var kjör- Inn kánzlari með eins atkvæð- is meirihluta. Frá upphafi var ljóst, að Adenauer hugðist byggja stefnu Vestur-í>ýzkalands á sterkum tengslum við Banda- ríkin, jafnframt þvi að reynt yrði að bæta samskiptin við Frakka. Því' að Adenauer var þess fullviss, að deilur Aust- urs og Vesturs yrðu fyrr en varði til þess, að Vestur-iÞýzka land yrði tekið sem fullgildur meðlimúr í varnarkerfi Vest- urveldanna. Hann veitti vest- rænum ríkjum stuðning til end urhervæðingar Þýzkalands og ætlaði nenni að verða skref í átt til alþjóðlegs hers Vestur- Evrópuhers Efnahagsbanda- lagsins, sem þá var þegar stofn að og var eitt helzta áhugamál kanzlarans. Sú ráðagerð strand aði á andstöðu franska þíngs- ins', en endurvæðing Þýzka- lands komst engu að síður á, innan ramma Atlantshafs- bandalagsins. Þegar Eisenhower varð for- seti Bandaríkjanna árið 1952, efldust enn tengslin milli Bandaríkjanna og Vestur- Þýzkalands og ári siðar fór Adenauer í sína fyrstu heim- sókn til Bandaríkjanna. Þar barðist hann fyrir því að fá Ioforð Eisenhowers fyrir því, að ekki yrðu gerð nein hrossa- kaúp um framtíð Þýzkalands við Sovétstjórnina. Þetta var um þær mundir, sem Stalín féll frá og sú skoðun var út- breidd ? Evrópu, að fyrir dyr- um væri meiriháttar samkomu lag miíli Austurs og Vesturs. Eisenhower hét Adenauer því, að ekkert yrði gert varðandi framtíð Þýzkalands, án vitund- ar Bonn-stjórnarinnar og hafði hún eftir það vi'tneskju um all- ar orðsendingar, sem fram fóru milli Moskvu og Washington, þar að lútandi. Adenauer hafði frá upphafi mestan áhuga á utanríkismál- unum og hafði sjálfur mað höndum embætti utanríkisráð- berra allt til ársins 1955. Hann gerði frá því fyrsta lýðum ljóst, að sameining Þýzkalands ýrði ekki framkvæmd öðru vísi en friðsamlega, jafnframt því, sem hann lagði á það áherzlu, að Vestur-Þjóðverjar mundu aldrei viðurkenna end- anlega þau austurlandamæri Þýzkalands, sem Potsdam-ráð- stefnan 1945 hafði gert ráð fyr ir. f september 1955 för Aden- auer í heimsókn til Moskvu og var þá tekið upp stjórnmála- samband milli Vestur-Þýzka- lands og Sovétríkjanna. Jafn- framt létu Rússar lausa þýzka stríðsfanga, sem þeir höfðu enn í haldi. Varð för þessi mjög til að auka hróður Adenauers við kosmngarnar til þriðja sam bandsþingsins, árið 1957, hlaut flokkur kristilegra demókrata hreinan meirihluta, 270 þing- sæti af 487, — árangur, sem enginn þýzkur stjórnmála- flokkur hafði nokkru sinni náð. Ekki varð Moskvuferðin þó til þess að breyta í neinu utan- ríkisstefnu Þýzkalands, né sam vinnu þess við Vesturlöndin. Adenauer stóð fast við þá af- stöðu, að einungis Bonn-stjórn in væri talsmaður Þýzkalands alls og hann iýsti því yfir á þingi, að stjórnin mundi líta á það sem fjandskaparbragð, ef önnur ríki viðurkenndu Austur-Þýzkaland sem sjálf- stætt ríki. Þetta varð síðan eitt höfuðatriðið í stefnu Vestur- veldanna í Þýzkalandsmálinu. Vinsældir og völd Adenauers náðu hámarki 5. maí 1955, er hann gat lýst því yfir við lands menn sína, að hernámi Vestur- veldanna í Þýzkalandi væri lokið og Vestur-Þýzkaland væri frjálst og óháð ríki. Tveimur dögurn síðar tók hann sæti sitt sem fulltrúi Vestur- Þýzkalands á ráðherrafundi NATO. Næsti stórsigur hans var vináttusamningurinn milli Frakklands og V-Þýzkalands, sem hann undirritaði, ásamt de GauIIe Frakklandsforseta, í janúar 1963. Adenauer hafði markvisst unnið að því að ná fullum sættum við Frakka og vakti mikla athygli heimsókn hans til Frakklands í júlí 1962 og heimsókn de Gaulle til Þýzkalands tveimur . mánuðum síðar. Var þar með bundinn endi á væringar þessara tveggja nágrannaríkja. Raunar dró það nokkuð úr áhrifum af undirritun vináttu- samningsins, að Adenauer hafði oiðið að færa allstóra fórn til þess að af honum gæti orðið. Hann stóð við hlið de Gaulle gegn tilraunum Breta til þess að fá aðild að Efna- hagsbandalagi Evrópu. Þessi af staða Adenauers vakti mikla gagnrýni og andstöðu, bæði innan flokks hans og utan og þegar vinátbusamningurinn kom til endanlegrar staðfest- ingar fyrir sambandsþingið í Bonn, var þar bætt við hann málsgrein, þar sém sagði, að tilgangur samningsins væri að efla einingu Evrópu og Atlants hafsbandalagsins. Upp frá þessu fór gagnrýni á Adenauer vaxandi og þegar A-Þjóðverjar reistu múrinn mikla á borgarmörkum Aust- ur- og Vestur-Berlínar, haust- ið 1961 — þá í miðri kosninga- baráttunni í Vestur-Þýzkalandi urðu þær raddir enn háværari, sem sögðu, að Adenauer væri orðinn gamall aftur'haldssegg- ur, sem gæti ekki hætt stjórn- málavafstri — og væri nú kom inn tími til þess að yngri menn tækju við. Deilur þessar urðu til þess að flokkur hans missti hinn hreina meirihluta sinn og töldu nú margir, að dagar Adenauers væru taldir. Svo var þó ekki, — homim tókst að hrinda af sér andstæðing- unum, bæði innan flokks og ut- an, náði samningum við Frjálsa demókrata og í nóv- ember var hann kjörinn kanzl- ari í fjórða sinn. En cánægjuöldurnar urðu ekki lægðar úr þessu og stöð- ugt dró úr fylgi kristilega demókrataflokksins. Kom svo í desember 1962, að Adenauer lýsti þvi yfir, að hann mundi segja af sér næsta haust. Enn neitaði hann þó að skipa Lud- wig Erhard eftirmann sinn og Adenauer í Maria Laach- klaustrinu. hélt því statt og stöðugt fram, að þótt Erhard væri snillingur á fjármálasviðinu, væri hann alls ekki heppilegur stjórn- málaleiðtogi. Þessu vildu stuðn ingsmenn Erhards í flokknum ekki trúa og lauk svo, að þeir kusu Erhard eftirmann hans gegn vilja hans — og 15. októ- ber 1963 sagði Adenauer loks af sér. Eftir að Erhard hafði tekið við kanzlaraembættinu hélt hann áfram að gagnrýna hann. Einkum var honurti þyrnir i augum að Erhard skyldi ekki leggja meiri rækt við sam- bandið við Frakka. Smám saman kom í ljós, að Erhard hafði ekki eins mikið lán sem stjórnmálaleiðtogi og vænzt hafði verið og urðu menn nú nauðugir viljugir að viðurkenna að ,,sá gamli“ hefði haft nokkuð til síns máls, er hann efaðist um stjórnmála- hæfni efnahagssérfræðingsins. Adenauer var áfram leiðtogi flokks kristilegra eftir að hann lét af kanzlaraembætti og haustið 1964 fór hann til Frakk lands til þess að reyna að draga úr þeirri spennu, sem þá hafði myndazt í samskipt- um landanna, fyrst og fremst vegna ágreiningsins innan Efnahagsbandalagsins og NATO. Árangur þeirrar heim- sóknar varð sá, að Frakkar lofuðu að sýna ögn meiri lip- urð í samningunum innan Efnahagsbandalagsins um korn verðið gegn því, að þýzka stjórnin færi sér rólega í kröf- um sínum um þátttöku í sam- eiginlegum kjarnorkufherstyrk NATO, 'sem Frakkar voru and- vígir. En Frakkar virtust ekki, er fram í sótti, taka eins mikið tillit til Þjóðverja og Aden- auer hafði vænzt. Þeir fóru að auka samskipti sín við Rússa, — sem varð til þess, að Aden- auer skrifaði de Gaulle bréf, þar sem hann varaði við því að láta sambandið við Moskvu ganga út yfir sambandið við Bonn. Þegar de Gaulle sinnt.i engu þessum viðvörunum kast- aði Adenauer sér af afli út í kosningi-baráttuna í Vestur- Þýzkalandi, hélt harðorðar ræður, þar sem hann varaði Þjóðverja við því að láta af- skrifa sig sem „annars flokks“ riki með því að afsala sér möguleikum á þátttöku í kjarn orkuvörnum Evrópu. Konrad Adenauer var að allra dómi mikilhæfur maða%« en mjög umdeildur. Mörgum gramdist hin þurra, fculd*- lega framkoma hans, ein- þykkni, óráðþægni og alU a8 því einræðiskennd afstaða tS samstarfsmanna sinna. Aðrir þóttust hinsvegar skynja hlýrri persónu bak við harðan greindarsvipinn — og hann var sagður góður og traustur vinur vina sinna. Þegar deilurnar stóðu sem hæst um það, hvort Adenauer skyldi láta af em.bætti kanzl- ara eða ekki, var hann hátt á níræðiseldri .Einhverju sinni um þær mundir, var hann sjálfur spurður hvað verða vildi og svaraði þá: „Adenauer tímabilinu er enn ekki lokið“. Að vísu lét hann af embætti kanzlara nokkru síðar. En margir munu þó þeirrar skoð- unar, að þau spor, sem Aden- auer markaði í stjórnmálalíf Vesturveldanna — og þá fyrst og fremst Þýzkalands og Vest- ur-Evrópu, hafi verið stærri og dýpr; en svo, að þau af- máist með því einu, að hann falli frá. Skerfur hans til upp- byggingar og einingar Evrópu, til uppbyggingar og endur- reisnar Þýzkalands, er slíkur, að í stjórnmálasögu Vestur- landa á þessari öld, verður Adenauer-tímabilið tæpast ein- skorðað við þá tæpu tvo ára- tugi, sem hann sat að völdum sem kanzlari Vestur-Þýzka- lands. LANDSHAPPDRÆTTt SJÁLFSTÆOISFLOKKSINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.