Morgunblaðið - 07.11.1968, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.11.1968, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1968 Glímumenn vilja aukna glímu í sjónvarpi — og strangari kröfur um búninga á mótum — ÁRSÞING Glímusambands ís- lands var haldið nýlega. For- maður sambandsins, Kjartan Bcrgmann Guðjónsson, setti þing ið. í upphafi þingsins minntist formaður tveggja glímumanna, sem látizt höfðu frá síðasta Glímuþingi, þeirra: Jóns Helga- sonar, stórkaupmanns í Kaup- mannahöfn, og Jóhannesar Jós- efssonar, fyrrv. hótelstjóra á Hótel Borg. Margir gestir sátu þingið. 'Þingforsetar voru kjörnir Gísli Halldórsson, forseti fþróttasam- bands íslands, og Sigurður Inga- son, en ritarar Þórður B. Sigurðs son og Ólafur Guðlaugsson. Formaður gaf skýrslu um starfsemi sambandsins á sl. starfs ári, en hún var fjölþætt og ýms mál í athugun til eflingar glímu- íþróttinni í landinu. Ýms mál voru tekin til um- ræðu og afgreiðslu, meðal ann- ars var rætt um glímu í sjón- varpinu og kom fram áhugi á aukinni samvinnu við sjónvarp- ið eftir hina ágætu reynslu, sem varð af glímukeppni sjónvarps- ins, en jafnframt var bent á, að hvergi mætti slaka á kröfum um hæfni þeirra glímumanna, sem þar kæmu fram. Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt: „Ársþing Glímusembands ís- lands, haldið 20. október 1968, leggur áherzlu á, að farið sé í hvívetna eftir reglum um búnað ghmumanna á opin'berum mót- um, og beinir því til stjómar GLÍ, að viðurlögum verði beitt, sé út af brugðið". í glímudómstól voru þessir menn kjörnir: Sigurður Ingason, Ólafur H. Óskarsson og Sigurð- ur Sigurj ónsson. Stjóm Glímusamdandsins var öll endurkjörin og er hún þannig skipuð: Kjartan Bergmann Guð- jónsson, Reykjavík, formaður, Sigurður Erlendsson, Vatnsleysu, varaformaður, Sigtryggur Sig- urðsson, Reykjavíik, gjaldkeri, Ólafur H. Óskarsson, Reykjavík, fundarritari, Sigurður Sigurjóns- son, Reykjavík, bréfiritari. KEPPNI í ýmsum greinum hestamennsku og listreiðum er ein af vinsælli greinum hverra Olympíuleika. Þetta er mjög dýr keppni, því mikið umstang og kostnaður er við að flytja hestana svo tugum skipti á keppnisstað, auk þess sem mikið starfslið þarf í sambandi við hestahaldið. Á lokadegi leikanna hverju sinni er keppt í hindrunarhlaupi inni á sjálfum Ol- ympíuleikvanginum. Hér sést sigurvegarinn í þeirri grein, þar sem hann er á leið yfir eina af mestu hindrununum. Hvernig á að bæta knattspyrnuna? f SfÐASTA fréttablaði KSÍ birt ist grein sem ofangreindri fyrir- sögn. Þar er drepið á nokkur atriði sem athyglisverð teljast til úrbóta. Höfundar er ekki getið, en þar sem við teljum að grein- in getí orðið grundvöllur til um- Enska deildakeppnin: EVERTON í EFSTA SÆTI I 1. DEILD Staðan í 1. Everton Liverpool Leeds Chelsea Arsenal West Mam Tottenham Burnley W. Bromw. Sheffield W. deild: 17 10 17 10 16 10 17 8 16 8 17 7 17 7 17 9 17 7 16 5 34:14 25 33:11 24 26:15 24 31:16 22 20:11 22 34:19 21 32:26 20 26:31 20 27:28 19 20:20 17 ÚRSLIT í ensku deildakeppninni Sunderland 17 5 6 6 20:28 16 s.l. laugardag: Newcastle 17 4 7 6 26:25 15 Manch. City 17 4 7 6 24:25 15 1. deild: Manch. Utd. 16 5 5 6 21:25 15 Burnley — Ipswich 1-0 Soutfaampton 17 4 6 7 20:26 14 Chelsea — Man. City 2-0 Stoke 17 5 4 8 17:24 14 Coventry — Southampton 1-1 Wolves 17 4 6 7 15:22 14 Everton — Sunderland 2-0 Ipswich 17 5 210 22:29 12 Man. Utd. — Leeds 0-0 Nottm. For. 15 18 6 2:1:26 10 Newcastle — Leicester 0-0 Coventry 17 2 6 9 16:36 10 Nottm. For — Wolves 0-0 Leicester 17 3 41014:28 10 Sheff. Wed. — Arsenal frestað Q.P.R. 17 2 51022:40 9 Tottenham — Stoke 1-1 West Brom. — Liverpool 0-0 2. deild (Efstu og neSstu liðin): West Ham — QIPR 4-3 Millwall 17 9 4 4 32:18 22 Middlesbro 16 10 2 4 26:19 22 2. deild: Derfay County 16 8 5 3 16:11 21 Birmingham — Oxford 0-1 Blackfaurn 17 8 5 4 33:16 21 Bury — Derby frestað Huddersfield 17 8 4 5 26:20 20 Cardiff — Blackburn 2-1 Crystal Pal. 17 8 4 5 31:25 20 Carlisle — Hul'l frestað Charlton 1:7 7 6 4 23:22 20 Gharlton — Blackpool 0-0 — Crystal Pal. — Bolton 2-1 Birmingham 17 6 1 10 32:35 13 Huddersfield — Aston Villa 3-1 Oxford 17 4 5 8 13:21 13 Middlesbro — Bristol C. frestað Carlisle 16 3 6 7 13:24 12 Norwich — Miliwall 0-3 Aston Villa 17 2 7 8 13:27 11 Portsmouth — Sheffield U. 2-1 Fulham 16 2 6 8 13:23 10 Preston — Fulfaam frestað Swindon er efst í 3. deild með 23 stig, en Bournemouth, Wat- ford og Barrow fylgja fast á eft- ir með 22 stig hvort. í 4. deild eru Darlington og Aldershot jöfn með 23 stig 'hvort. Chester hefur 21 og Doncaster og Lincoln 20 hvort. í Skotlandi er Celtic efst með 14 stig, en St. Mirren, Dundee United og Dunfermline faafa 13 stig hvert. Rangers er með 12. ræðu um knattspyrnumálin, birt ist hún hér: Landsleikirnir í sumar ollu mönnum vonbrigðum enn eitt árið, ef frá er talin frábær frammistaða unglingalandsliðs- ins. Leikir A-landsliðsins sýndu, að enn stöndum við talsvert að baki þeim þjóðum, sem við heyj um landsleiki við, að undamskild um Færeyjum. Það er því nauð- synlegt, að við gerum okkur ljóst á hvern hátt við getum bætt knattspyrnu okkar svo að það verði eftirsóknarvert að heyja landsleiki við okkur og um leið að landsieikir verði eft- irsótit skemmtun fyrir áfaorfend- ur. Hingað til faefur það oftast verið látið nægja að skamma knattspyrnuforustuna og auðvit- að hefur hún ekki gert allt, sem hún gæti hafa gert til að stuðla að bættri knattspyrnu. En það er ekki nóg að gera knattspyrnu forustuna fullkomna, ef ekki tekst að fá félögin, þjálfanana og leikmennina til að taka þátt í endurbótunum. Nú þegar nýtt knattspyrnuár fer í hönd, ættum við að reyna að bæta okkur á eftirfarandi hátt: Rúmenio — Englnnd 0:0 ENGLAND, heimsmeistararnir í knattspyrnu, gerðu í gærkvöldi jafntefli gegn Rúmeníu í lands- leik í Búkarest. Þéttskipaður völlur áfaorfenda sá skemmtilegan leik, þar sem Englendingar sóttu öllu meira í fyrri hálfleik, en Rúmenar í þeim síðari. Enski bakvörðurinn Wrigfat (Everton) varð að yfir- gefa völliinn eftir 11 mínútna leik, en inn kom Arsenal-leik- maðurinn McNáb. Leiku%inn var þó ekki grófur, en hinir rúm- ensku áfaorfendur bjuggust þó við mun meiri sókna.rleik af enska liðinu. 1) Félögin eiga eingöngu að ráða þjálfara, sem a.m.k. hefðu tekið 1. og 2. stig í þjálfun eða fengið aðra samlbærilega mennt- un. Þetta á ekki aðeinis við um eldri flokkana, faeldur jafnvel fyrst og fremst um yngstu flokk- ana. Því miður skeður það aíltof oft, að ráðnir eru fajá yngstu flokkunum þjálfanar, sem ekki hafa næga þekkingu til að kenna knattspyrnu, en ljóst er, að nauð synlegt er að unglingar fái gtrax í upphafi þá kennslu, sem nauð- synleg er, til að þeir verði síð- ar góðir knattspyrnumenn. 2) Nútímia knattspyrna krefet þess, að faún sé stunduð allt ár- ið um kring. Lengja þarf því keppnistímabilið yfir sum'armán uðina og koma þarf á innanhúss- mótum á vetrum, þannig að tryggt sé, að ekkert hlé verði á æfingum. Eins og nú er faáttað liggur knattspyrnan víðast í Fótbolti í Laugardal í KVÖLD efna Víkingar til iinnanhússkeppni í knatt- spyrnu í LaugairdalshölJinni, eins og skýrt var frá í gær. Leikirnir verða í þessari röð: Keflavík — Akranes Valur — Fram Víkingur B — KR Víkingur A — Þrót.tur Keppnin er útsláttarkeppni, 1 en keppt er um silfurbikar se.m vinnst til eignar. Til skemmtunar verður svo leikur — í knattspyrnu einn- ig — milli Hljóma frá Kefla- ' vík og liðs Lúðrasveitar Reykjavíkur. Muin marga án I efia fýsa að sjá þann leik. dvala frá haustmótum fram yfir áramót. Þennan tíma væri hins vegar unnt að nota til þjálfun- ar á tækniatriðum knattspyrn- unnar. Óþarfi á því að vera fyr- ir knattspyrnumenn okkar að leita í aðrar íþróttagreinar á vetrum, en það leiðir af sér, að þeir taka enn síðar til við knatt- spyrnuna aftur. Knjattspyrnu- íeiða geta þjálfarar yfirunnið á margan hát.t. Byrjum því stnax æfingar og komum á íslandsmóti í iininan- hússknattspyrnu. 3) Við þurfum að fá leik- mennina tií að leggja sig fram við æfingar og leitast við að bæta t.d. þrek sitt og þol, en þar stöndum yið yfirleitt að baki erlendum liðum. Þrekmælingar og skorpuæfingar, þar sem æf- ingarfjöldi er talinn, miðað við ákveðinn mínútufjölda, geta orð ið leikmönnum til favatningar. 4) KSÍ þarf að auka upplýs- ingastarfsemi sína t.d. með út- gáfiu kennslubókar í knattspyrnu og auknu starfi unglinga- og tækninefndar, en sú starfsemi hefur því aðeins gildi, að félög- in stuðíi að því að gera hana virka. Bikarkeppni deildarliða SWINDON Town sigraði Denby County í 5. umferð bikarkeppni deildaliða í Einglandi í fyrra- kvö’ld 1—0. Derby, sem er í þriðja sæti í 2. deiíd, skoraði sjálfsmark í lok leiksins og það dugði, Derby féll úr keppninni. Swindon er efst í 3. deild og hef- ur sýnt afburða góða knatt- 'spyrnu í haust. Swindon gerði jafntefli í Derby í fyrri leik félaganna, 0—6. Undanúrslitin verða því milli .Swindon og Burnley annars veg- ar og Arsenal og Tottenham hins vegar. Leiknir verða tveir leikir, heima og faeiman, og skal þeim lokið fyrir 5. desember nk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.