Morgunblaðið - 20.04.1971, Síða 24
24
MORGUNBLAÐJÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1971
i
/ffimnjro
HÁRÞURRKAN
FALLEGRUFLJÓTARI
Vönduð vara — Agætt verð
Fermingargjöf!
FYRSTA
FLOKKS
F RÁ....
SlMI 2-t-GO
- SUÐURG. 10 - RVÍK
Herbergisþernur
Kaupmannahöfn
Nokkrar ungar stúlkur geta
fengið vinnu á 1. fl. hóteli í
hjarta Kaupmannahafnar. Góð
laun og vinnuskilyrði. Getum
útvegað húsnæði. 1 fridagur í
viku.
Hótel Cosmopole
Colbjörnsensgade 11
DK 1652 Köbenhavn V.
HLUSTAVERND
STURLAUGUR JONSSON & CO.
Vesturgö'u 16, Reykjavík.
Símar 13280 og 14680
Miðvikudaginn 21. apríl
Stórdansleikur
Kveðjum veturinn og fögnum sumri á stór-
dansleik í Tónabæ síðasta vetrardag
frá klukkan 9—1.
TRÚBROT Ieikur fyrir dansi.
Danssýning, stúlkur úr Flensborgarskóla
sýna frumsaminn dans eftir Henný Her-
mannsdóttur.
Verðlaunaafhending: Sigurvegarar í yngri
flokkum íslandsmótsins í körfuknattleik.
Aldurstakmark, fædd ’55 og eldri. Verð kr.
125. — Hafið nafnskírteinin með.
'FELAGSSTARF
SJÁ'LFSTÆÐISFLOKKSINS
Sjálfstæðisfélagið Ingólfur
Hveragerði
heldur almennan fund þriðjudaginn 20. april kl. 21 í Hótel
Hveragerði.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri ræðir um
STJÓRNMALAVIÐHORFIÐ I LOK KJÖR-
TfMABILSINS og svarar fyrirspurnum.
STJÓRNIN.
Sjálfstæðiskonur
Hvöt félag Sjálfstæðiskvenna heldur fund í Átthagasal Hótel
Sögu þriðjudaginn 20. marz kl. 8,30 e.h.
Fundarefni:
Kristján J. Gunnarsson skólastjóri
ræðir um
GRUNNSKÓLAFRUMVARPID.
Síðan verða frjálsar umræður.
Félagskonur fjölmennið og takið
með ykkur gesti.
STJÓRNIN.
— Minning
Gviðný
Framh. af bls. 23
Hún var ekki stór ibúðin á
Klapparstíg 13 en þar var marg
ur íraendinn og frænkan hýst
og gert vel við í mat og drykk,
jafnvel klæðum lika. Húsbónd-
inn var fengsæll og hendur hús
móðurinnar bætandi því hún
var mjög vel verki farin. Rausn
arlegt eðli hennar fékk þvi
ávailt notið sín og ég hygg að
nú muni mörgum hugsað til
þeirra glöðu stunda og ilmandi
rétta er þeir nutu á heimili
þessara hjóna. Lífsnautn Guðnýj
ar var að gefa og gleðja hrygga,
og eftir að sonur hennar eign-
aðist sitt heimili, konu og börn
vafði hún það kærleiksörmum
sínum. Þar kvaddi hún svo lif-
ið á þann hátt sem hún oft hafði
beðið guð að gefa sér. Hún var
veitandi til hinztu stundar. Sú
var ósk hennar heitust.
Þau endalok eru ekki það
sem nú setja okkur hljóð er vor
um alla tið í þeim hópi er hún
veitti bezt. Við stöndum hijóð
við beð þessarar konu, vegna
þess, að hve hátt, sem við lét-
um gjald það gjalla, er við átt-
um ógreitt henni til handa,
myndi það engu fá breytt. Eft-
ir stöndum við, og horfum á
tjaldið. Hjá okkur er myndin,
sem okkur var gefin sameigin-
lega, á bak við það lögsögn sú
er við öll verðum að hlíta.
Heimili mitt kveður hana í
dag þakklátum huga, hún lét
sér annt um það frá fyrstu tíð
og rausn hennar kom þar víða
við. Orð ná skammt yfir dauð-
ans haf. En hennar vil ég geta
sem þeirrar persónu er hlýjast
breiddi sig yfir mitt heimili og
oftast allra lét sér hag minn
varða, eftir að ég lét úr foreldra
húsum.
Blessuð sé minning hennar af
okkur hjónum, börnum og
tengdamóður. Hún mun lifa með
okkur, systkinum hennar og
vinum, svo lengi sem lif okkar
endist.
glerullarskólar
til einangrunar á
heita- og kaldavatns-
leiðslum.
GLASULD
glerullarmottur
í mörgum breiddum
með álpappír
og vindþéttum pappír
með asfaltpappír
og vindþéttum pappír
með asfaltpappír.
Fæst í helztu
byggingavöru-
verzlunum.
Manni hennar, syni og fjöl-
skyldu hans, vottum við samúð
okkar af hrærðum huga.
Sú borg var traust er hún
byggði þeim. Ég veit að þau
munu verja hana með sæmd, urn
ókomna tlð.
Jónína Jónsdóftir
frá Gemlufalli.
Kveðja frá sonarbörnum.
Elsku amma, þessi sáimaerindi
langar okkur til, að nú séu helg
uð þér, þegar við njótum ekki
lengur þinna hlýju og fórnfúsu
handa.
Margs er að minnast, margt er
hér að þakka;
Guði sé loí fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast, margs
er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
Far þú í friði, friður guðs þig
blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með guði, guð þér nú
íyfgí-
Hans dýrðarhnoss þú hljóta
skalt.
— Laxár-
kjósendur
Framh. af bls. 17
lag hinna landlausu" gæti hald-
ið áfram að þroskast og taka
framförum sem fullkomlega
sjálfsftætt riki i ríkrmu undir
forysibu hins víðsýna og ráð-
snjalla bæjarstjóra Akureyr-
ax. — Borgriki Bjama þyrfti
þá hvorki eitt eða neitt
til neinna annarra að sækja . . .
Þá gætu Akureyringar undir
forystu B.E. ræktað sinn Lysti-
garð, en Þingeyingar sinn við
Laxá og Mývatn."
Látum Áskel Einarsson (áður
tilv., bls. 93f) svara þessu af
hógværð: „Þeirri skoðun hefur
mjög verið haldið á loft, að hags
munir dreifhýlisins og einstakra
héraða hefðu verið betur tryggð
ir með þeirri kjördæmaskipan,
sem ríkti fyrir 1959 . . . starfs-
svið þingmanna gagnvart kjós
endum var héráðsbundnara en
nú á sér stað. Hins vegar fylgdi
sá galli, að smáu kjördæmin
voru keppinautar. Þetta gerði
litlu kjördæmin andvirkari inn-
byrðis og oftast óhæf til sam-
stöðu um málefni, sem
telja mætti einu þeirra frekar
en öðru til ávinnings. Meiri-
hlutastyrkur fulltrúa dreifbýlis-
ins kom að litlu gagni til þess
að stuðHa að byggðajafnvægi og
hindraði ekki valdasamdrátt í
landskjamamum."
Þessi ummæli eru dómur sög-
unnar. Tregðu sums fólks á að
skilja það vil ég láta einhvern
, ,soeialanthropolog“ eða félags-
sálfræðing rannsaka með
Vísindasjóðsstyrk og geyma nið
urstöður í doktorsriti eða þjóð-
háttasafni mönnum til ánægju
og skáldum til að yrkja út af.
Vafalaust tel ég auk þess, að
meðfætt skáldeðli hafi gætt Ár-
nesbóndann meira en litlu af
óraunsæi og hetjukappi. Um þá
hlið f jallar grein mín ekki.
3. apríl 1971
Björn Sigfússon.
-----♦ ♦ ♦--;—
— Iðnþing
Framh, af bls. 25
þolir án hættulegrar verA
bólgu.
Vegna þeirrar almennu
framleiðsluaukningar, sem átt
hefur sér stað í atvinnuveg-
um þjóðarinnar á árinu sem
leið, er þegar orðinn skortur
á vinnuafli og þvi aukin
hætta á launaskriði og minnk
andi afköstum eftir hvern
starfsmann. Telur ársþingið
því nauðsyn bera til, þegar
slíkt ástand skapast, að riki
og sveitarfélög dragi úr fram
kvæmdum er þola bið.
Undanfarna áratugi hafa
að tilstuðlan rikisvaldsins átt
sér stað miklir f jármagnsflutn
ingar milli landshluta og at-
vinnugreina og verið að
nokkru leyti varið til lítt arð
bærra íjárfestinga eða niður
greiðslna á framleiðsluvörum
niður íyrir kostnaðarverð
þeirra. Ein afleiðing þessa
hefur verið aukin tekjuþörf
rikissjóðs, sem hækkað hefur
verðlag innanlands, sem aít-
ur veklur hærra kaupgjaldi
og hamlar þannig m.a. upp
byggingu útflutningsiðnaðar
og samkeppnisaðstöðu iðnað-
arins almennt.
Önnur afleiðing alvarlegri
er að óarðbær íjárfesting
kemur fram í minni þjóðar-
framleiðslu, sem orsakar lak
ari lifsafkomu þjóðarinnar
allrar."
Sjötugur
sendiherra
1 GÆR varð sjötugur fyrrum
sendiherra Dana hér i Reykja-
vik, Eggert A. Knuth greifi, sem
verið hefur nú um nokkurt
skeið sendiherra lands síns í
Osló. Hann dvelst heima hjá sér
í Danmörku um þessar mundir.
Eggert Knuth sendiherra er
lögfræðingur að mennt, en gerð-
ist starfsmaður utanrikisráðu-
neytisins danska árið 1926. Hef-
ur hann á löngum starfsferli í
ráðuneytinu gegnt ýmsum mik-
ilvægum stöðum heima og er-
lendis. Hann hafði aðeins starí-
að í ráðuneytinu um þriggja ára
skeið er hann var sendur á þess
vegum til Sidney í Ástralíu. Þá
var hann skipaður sendiráðsrit-
ari við danska sendiráðið hér í
Reykjavík árið 1935. Hann var
hér i tæpt ár í það skiptið og
urðu kynni hans af landi og
þjóð mikil á ekki lengri tima,
en sendiherrann hefur alltaf
haft vakandi áhuga á íslandi og
íslenzkum málefnum.
Frá Reykjavík lá leið hans til
Lundúna og þar starfaði hann
tvívegis með nokkra ára milli-
bili við sendiráð Dana, en fyrsta
útnefning hans sem sendiherra
var árið 1956 er hann var skip-
aður sendiherra hér í Reykjavík.
Var hann það í 3 ár. Hér eign-
uðust hann og kona hans, Lily,
fædd Rantzau, greifadóttir,
margt góðra vina, enda var mik-
il gestrisni ríkjandi á heimili
þeirra og þau virðulegir fulltrú-
ar þjóðar sinnar. Þegar hann
hætti störfum hér, var hann
skipaður sendiherra Dana í
Belgíu, síðan sendiherra S Róm
1967 og árið 1968 varð hann
sendiherra í Osló, en af sendi-
herrastörfum þar mun hann
láta á næstunni.
Vinum sendiherrans skal á það
bent að hann dvelst nú á heim-
ili sinu, Krengerupslot ved
Glansberg á Fjóni.
Nokkrir vinir.