Morgunblaðið - 18.07.1973, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.07.1973, Blaðsíða 32
fllíifpmMsiMS* nucivsincoR ^-»22480 p|iaip0inimMaíJiíí> MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1973 Stofnlán landbúnaðarins: Vextir hækka almennt um 2% VEXTIR af stofnlánum frá Stofn lánadeild landbúnaðarins munu almennt hækka i dag um 2%. í*etta er í sem mörgum öðrum málum öfugþróun við það sem stendur i stjórnarsáttmála núver andi rikisstjórnar, en þar stend- ur, „að ríkisstjórnin muni beita sér fyrir því, að lækka vexti á stofnlánum atvinnuveganna og Jengja lánstíma þeirra." Hinir nýju stofnlánavextir verða nú 10% af jarðarkaupum, en voru 8% áður, stofnlánavext- ir verða nú 8,5% í stað 6,5% og eru þau lán óvísitölutryggð. Lán til íbúðarbygginga verða nú 8% í stað 6% áður. Þessir nýju vext ir munu eflaust þy ngja róður bænda, og var hann þó nógu þungur fyrir. Ægir rakst á LINCOLN Freigátan hafði brynjað sig fríholt- um og braut allar siglingareglur KRKZKA freigátan Linroln F-99 og varðskipið Ægir rákust á út af Hvalbak i gærdag, er Ægir var þar að stugga við brezkum togiirum, en samtals voru á svæðinu við Kvalbak í fær um 30 Iandhelgisbrjótar að ólögleg- nm veiðum. Lincoln, sem var brynjuð fríholtum á báðar hlið- ar virti að vettugi alþjóðlegar siglingareglur og reyndi ítrekað að sigla á Ægi. Skyndilega sigldi freigátan i veg fyrir Ægi og dré úr ferðinni, er hún var stödd beint framan við varðskipið. Tókst þvi ekki að stöðva og fór stefni þess á skut freigátunnar. Engar skemmdir urðu á Ægi, en kefi á freigátunni brotnaði. Landhelgisgæzlan segir svo frá þessum atburðum: „Varðskipin halda áfram að stugga við brezkum togurum út af Hvalbak. Eftir hádegi i gær voru 7 brezkir togarar þar að veiðum er varðskipið Ægir kom að þeim. Fimm togaranna hífðu strax vörpur sinar, en tveir héldu áfram veiðum undir vemd dráttarbátanna Irishman, English man og freigátunnar Berwick F-115. Um klukkan 15 kom freigátan Lincoln F-99 á svæðið og reyndi hún ítrekað að sigla utan 1 varð- skipið. Braut freigátan allar sigl ingareglur, en báðar síður henn- ar voru klæddar með friholtum. Freigátan sigldi einnig fram fyr- ir Ægi og klukkan 15.25 minnk- aði hún ferðina skyndilega og lenti stefni Ægis á skut freigát- unnar. Engar skemmdir urðu á Ægi, en kefi á freigátunni brotn- aði. Varðskipsmewn tóku bæði kvikmyndir af atburðinum og ljósmyndir. Á sama tíma og þessir atburð- ir voru að gerast, stuggaði Óð- inn við eriendum togurum við Grímsey, eh ekki kom þar til neinna árekstra." Kaíandi laxveiði- maður MAÐUR nokkur var í fyrra- dag við laxveiðar í Elliðaán- um. Eitthvað fannst honum laxinn vera tregur og þar sem hann sá engan lax, brá hann sér í froskmannsbúning og kafaði niður i ána við stífl- una. Ekki fara neinar sögur af þvi hvort maðurinn sá nokkra laxa í köfunarleið- angri sinum i ánni, en lög- reglunni leizt ekká á biikuna og stöðvaði kafanir manns- ins. Álagningarseðlum er nú dreift til skattborgaranna í Reykjavík. í fyrradag vom sendir út seðlar gjaldenda, sem fyrsti stafur nafns þeirra byrjar á A og allt aftur að M. 1 gær voru svo sendir út seðlar með nöfnum, sem byrja á M og aftur úr. Myndin er tekin á Skattstofu Reykjavikur, er ung stúlka var að ganga frá skattseðlum til sendingar í pósthúsið. — Ljósim.: Br. H. Flugslysiö: RANNSÓKN Á FRUMSTIGI ENN hefur ekkert komið í ljós, sem bent getur ti-1 orsaka flug- slyssins á sunnudaginn. Sigurð- ur Jónsson, yfirmaður Loftferða eftirlitsins sagði 1 gær, að öl'l rannsókn væri enn á frumstigi, og því ekkert hægt að segja um málið ennþá. NÝTT BORGARBÓKASAFN RÍS í KRINGLUMÝRINNI Áætlaður kostnaður 230 millj. kr. BORGARRÁÐ Reykjavíkur hef- ur nú samþykkt tillögur þeirra Gunnlaugs Halldórssonar og Guð niundar Kr. Krlstinssonar arld- tekta um nýtt borgarbókasafn, sem á að rísa í nýja miðbænurn við Kringlumýrarbraut. Stærð hins fyrirhugaða borgarbóka- safns er á grunnteikningum 2308 fermetrar, en brúttóstærð gólf- flatar er 5455 fermetrar og rúm- mál 25.685 rúmm. Ekki er gert ráð fyrir, að hægt verði, að hefja byggingaframkvæmdir fyrr en snemma á árinu 1974, og að lokið verði við smíðí húss- ins á árinu 1979. Áætlað er, að bygging hússins kosti 230 millj- ónir króna miðað við núverandi verðlag. Morgunbiaðið hafði tal af Birgi ísieifi Gunnarssyni borg- arstjóra í gærkvöldi og innti hann eftir þessu máli. Hann sagði, að borgarráð hefði sam- þykíkt hugmyndir þeirra Gunn- iaugs og Guðmundar, og hefði það samþykkt að feia þeim, að vinna frekar úr þes.sum hug- myndum og vinna að frekari gerð útboðsgagna, sem áætiað er að verði tiibúir.. í febrúar. Þegar útboðsgögn verða tilbúin verður 1. áfangi verksins boðinn út, en ekki er gert ráð fyrir, að verkinu Ijúki íyrr en á árinu 1979. Og að sjálfsögðu mun byggingarhraðinn miðast að Framhald á bls. 20 Sigluf jörður: Færeyingur stunginn með hnífi í kviðarholið af skipsfélaga sínum SKIPVERJI á færeyska bátnum Vesturhafið var stunginn með hnifi í kviðarholið í fyrrinótt, en þá lá skipið í höfn á Siiglufirði. Sá sem verknaðinn framdi, var skipsféiagi mannsins, sem fyrir stumgunni varð, og situr sá mað ur nú i haidi hjá iögreglunni á Bandaríski freðfiskmarkaðurinn: Þorskblokk hefur hækkað um 228,6% frá marzmánuði 1969 Gífurlega hagstæð þróun markaðarins, sem nú gefur allt að 69 sent fyrir pund af þorskblokk VERÐ frystra fiskafurða á Bandaríkjamarkaði hefur hækkað gífurlega undanfarin ár eða frá því er markaður- inn var lægstur árin 1967 og 1968. Hundraðshlutahækkun á frystum fiskblokkum frá þessum tíma og til dagsins í dag nemur hvorki meira né minna en 228,6% og frá miðjum júlímánuði 1971 nem- ur hækkunin 60,8%. Vcrðið á frystri fiskblokk hefur aldrci verið hærra en nú, 67 til 68 cent fást fyrir hvert pund og dæmi eru til að í einstaka sölum hafi hvert pund af blokkinni farið upp í 69 cent. Fyrir beinlaus kanadísk Framhald á bls. 20 Siglufirði. Maðurinn, sem varð fyrir hnifsstungunni var fluttur með sjúkraflugvél til Reykjavík ur, þar sem hann var lagður inn á Landspdtalann, og leið hon um eftir vonum í gærkvöldi og var ekki talinm í lífshættu, en þá hafði Morgunblaðið samband við lækni á Landspítalanum. Að sögn lögreglunnar á Siglu firði er ekki vitað um tildrög þessa atburðar, en hann gerðist um klukkan 03 í fyrrinótt. Skip verjar bátsins höfðu eitthvað ver ið að skemmta sér um kvöldið, óg haft áfengi um hönd. í»egar þeir komu um borð, munu menm irnir tveir, eitthvað hafa farið að kljást, og enduðu deilur þeirra með þessum afleiðimgum. Ramnsókn málsins mun fara fram í dag á Siglufirði. Vestur- hafið var búið að vera á færa- veiðum við Island um nokkum tíma, og hafði að mestu verið á veiðum við Langanes.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.