Morgunblaðið - 08.05.1975, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 08.05.1975, Blaðsíða 40
 ÆNGIR, Aætlunarstaðir: Blönduós — Siglufjörður I 'Gjögur — Hólmavfk Búðardalur — Reykhólar I Hvammstangi — Flateyri,— Bildudalur | Stykkishólmur — Rif Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: 2-6060 & 2-60-66. -ti FIMMTUDAGUR 8. MAt 1975 Austantjaldsfloti hreinsar grálúöu- miðin við landið FLOTI veiðiskipa frá Austan- Ijaldslöndunum hefur að undan- förnu verið á grálúðuveiðum 75—80 sjómflur vestur af landinu nánar tiltekið út af Bjargtöngum. Eru þetta 17 togarar og 5 verk- smiðju- og birgðaskip, flest aust- ur-þýzk. Þá hafa tveir rússneskir togarar verið á þessum slóðum. Alls eru þetta 24 skip. Þá taldi Landhelgisgæzlan 48 brezka tog- ara á veiðum við landið i gær og 16 vestur-þýzka togara. Fjöldi veiðiskipa frá Austan- tjaldslöndunum hefur farið sívax- andi við Island á hverju vori hin síðustu ár, en þau leggja mikla áherzlu á grálúðuveiðar við ís- land. Sjómenn halda því nú fram, að þessi skip séu búin að hálf eyðileggja grálúðumiðin fyrir Norðurlandi, og ennfremur fyrir Austuriandi og nú sé röðin komin að miðunum úti fyrir Vestfjörð- um. Atvinnuleysi eykst í kaupstöðum en dregst saman í kauptúnum 1 vorblænum við Sæinn. Ljósmynd Mbl. Friðþjófur. Togaraútgerðarmenn: Buðu sams konar samninga og á minni skuttogurunum Sjómenn höfnuðu tilboðinu CTGERÐARMENN stóru togar- anna gerðu nýlega togarasjó- mönnum tilboð um að bátakjara- samningar giltu einnig á stóru togurunum. Viðbrögð sjómann- anna hafa nú verið könnuð, að sögn Jóns Sigurðssonar, for- manns Sjómannasambands ts- lands, og kvað hann algjöra and- stöðu vera meðal sjómanna gegn þessari hugmynd. Kvaðst hann ekki búast við því að samninga- nefnd sjómannanna myndi Ijá máls á þessu tilboði togara- eigenda. Ef sjómenn hefðu ákveðið að ljá máis á boði útgerðarmanna Norglobal: Býður 3 krónur fyrir loðnukíló FRAMKVÆMDASTJORI norska bræðsluskipsins Norglobal og aðstoðarmaður hans sátu f gær á fundi með fulltrúum útgerða Barkar og Sigurðar. A fundinum voru reifuð ýmis mál varðandi loðnuveiðar við Nýfundnaland og verður viðræðum haldið áfram á morgun, föstudag. (Jtgerð Norglobal hefur boðist til að greiða 10 krónur norskar fyrir hvern hektólitra (100 kfló) en það eru um 3 krónur ísl. fyrir hvert kg. Sumir hafa látið i ljós nokkurn efa um að þessar veiðar geti orðið mjög arðvæn- legar, þar sem stór hluti aflans er jafnan veiddur í troll. Það er helzt i ljósaskiptunum, sem hægt er að kasta á Nýfundna- lands-loðnuna með nót. Verksmiðja sú á Nýfundna- landi, sem hefur boðið íslensk- um skipum löndun, hefur ekki boðið eins gott verð fyrir aflann og Norglobals menn, auk þess sem miðin eru um 200 sjómílur frá landi. hefði f raun verið um byltingu að ræða í launakjörum togarasjó- manna. 1 bátakjarasamningunum er gert ráð fyrir 15 til 16 mönnum á skipunum, en f tilboði togara- mannanna nú var gert ráð fyrir 19 mönnum á stóru togurunum. Fækka átti um 5 menn, loft- skeytamann, einn mann f vél, annan af tveimur matsveinum og tvo háseta. Mismunur þessara tveggja samninga er, að í bátakjarasamn- ingunum, en til þeirra teljast allir minni skuttogararnir, eru kjörin byggð upp á hlutaskiptum. Skips- höfn fær ákveðinn hluta aflaverð- mætis miðað við fiskverð verð- lagsráðs sjávarútvegsins. Er þetta tryggt með lágmarkskauptrygg- ingu, sem er á mánuði tiltekin upphæð. Er þetta byggt upp á þremur megin tryggingatíma- bilum frá 1. janúar til 15. maf, frá 16. maí til 15. september og frá 16. september til áramóta. Er afla- hlutur á móti kauptryggingu fyrir þetta tímabil borinn saman og það sem hærra er greiðist. Á stóru togurunum er kjara- samningum öðru vísi farið. Þar er allt af um að ræða fast kaup á mánuði, en síðan eru greidd afla- verðlaun til viðbótar kaupinu. 1 því sambandi er það þó mjög mis- jafnt, þar sem undirmennirnir, Framhald á bls. 22 FÉLAGSMALARAÐUNEYTIÐ hefur tekið saman skýrslu um skráða atvinnuleysingja hér á landi um sfðustu mánaðamót. Kemur í Ijós, að atvinnuleysi hef- ur aukist töluvert í kaupstöðum landsins en minnkað að sama skapi f kauptúnum. Atvinnuleys- isdögum hefur fækkað nokkuð. Alls voru 594 skráðir atvinnu- lausir um sfðustu mánaðamót. Samkvæmt upplýsingum Jóns Sigurpálssonar fulltrúa í félags- málaráðuneytinu er uppsagna f frystihúsum vegna togaraverk- fallsins ekki farið að gæta að öllu leyti þegar þessi nýja skýrsla var tekin saman. I kaupstöðum landsins voru 499 skráðir atvinnulausir um síðustu mánaðamót en voru 331 um mánaðamótin á undan. Atvinnu- leysisdagar voru samtals 5862. Skipting eftir kynjum er sú, að karlar voru 188 en konur 311. Flestir voru á atvinnuleysisskrá í Reykjavík, alls 307 (voru 144), Akureyri kom næst með 68 at- vinnuleysingja, (voru 25) og Sigiufjörður kom í þriðja sæti með 27 atvinnuleysingja (voru 22). I kauptúnum með yfir 1000 íbúa var aðeins einn á atvinnu- leysisskrá um mánaðamótin síðustu (í Garðahreppi), en voru 5 um mánaðamótin á undan. At- vinnuleysisdagar voru 24. 1 minni kauptúnum voru 94 á atvinnuleysisskrá og voru 186 mánaðamótin á undan. Atvinnu- leysisdagar voru samtals 1098. Samtals voru 594 á atvinnuleysis- skrá á móti 522 um fyrri mánaða- mót, atvinnuleysisdagar voru 7871 en voru áður 8365 svo þar er um fækkun að ræða þótt höfða- talan sé hærri. Mokafli minni skuttogaranna Hefst vart undan að vinna aflann Á MEÐANIverkfallstendur yfir á stærri skuttogurum, hefur afli minni skuttog- ara veriö með eindæmum góður hringinn í kringum landið, en á sama tíma hafa netabátar vart fengið bein úr sjó. Sumsstaðar hefur svo mikill afli borizt að, að ekki hefur hafst und- an að vinna aflann. Frá Ólafsfirði berast þær fréttir, að skuttogarar stað- arins hafi fyllt sig á 5 og 6 dögum og togskipið Sigur- björg hafi einnig fiskað mjög vel og orðið að sigla með aflann til annarra Hafréttar- ráðstefnan: Grundvallartexti lagður fram á morgun Genf, 7. maí, frá Matthíasi Johannessen ritstjóra. SENN fer að líða að lokum haf- réttarráðstefnunnar hér í Genf og má sjá, að fjör er að færast f fulltrúana og áhugi er mikill á því, hvað verður í grundvallar- textanum, sem Amerasinghe leggur fram á föstudag. Þá verður einnig haldinn allsherjarfundur til að ákveða, hvar og hvenær næsti fundur ráðstefnunnar verð- ur, en forsetinn ætlar sér ekki að hafa neinar umræður um grund- vallartextann á allsherjarfundin- um. Auðvitað eru áhugamál ein- stakra rfkja harla mismunandi og hefur það verið rakið hér í blað- inu. Að sjáifsögðu geta ekki öll rfki f viðkomandi nefndum sam- þykkt þá texta fyrirvaralaust, sem nefndirnar hafa sent frá sér, en þessir textar eru einum ætlað- ir til að vera formönnum aðal- nefndanna þriggja til hjálpar við samningu grundvallartextans. Nú hafa bæði fyrsta og þriðja nefnd skilað niðurstöðum, en eng- inn skyldi ætla að allir séu ein- huga um efni textanna. Ef svo væri, þyrfti ekkí að halda ráð- stefnunni áfram, þá væri auðvelt að ná endanlegu samkomulagi hér i Genf. En svo er ekki. Áður hefur veríð fjallað um það hér í blaðinu, að gert er ráð fyrir, að i grundvallartextanum frá ráð- stefnunni, þar sem fjallað verður um öll þau atriði, sem hér hafa verið á dagskrá og nefndafor- mennirnir telja að hafi mest fylgi, verði ákvæði um 200 milna efna- hagslögsögu, 12 milna landhelgi, frjálsar siglingar um sund, meng- unarvarnir og alþjóðastofnun sem sjái um vinnslu á alþjóðahafs- botnssvæðinu. Auk þess verða undanþágur og fyrirvarar í Framhald á bls. 22 staða, þar sem ekki hafi hafst undan að finna afl- ann i frystihúsunum. Sömu sögu er að segja úr mörg- um öðrum sjávarplássum norðan lands og austan og vestan. Þar hefst vart und- an að vinna aflann, þótt fólk leggi nótt við dag. Fyrir skömmu var frið- aóa svæóið á Selvogsbanka opnað til togveiða um tíma og þar hafa sunnlenzkir togarar fengið ákaflega góðan afla, komizt upp í það að fylla sig á 4. dögum, eins og t.d. Dagstjarnan frá Keflavík. Moka upp rækju Axafirði a Siglufirði 7. mai. FYRSTI rækjubáturinn af Axar- fjarðarmiðunum kom til Siglu- fjarðar í morgun. Var það Krist- björg ÖF 11 og var hún með 5 tonn af rækju eftir 12 tíma veiði sem rækjuverksmiðjan á Blöndu- ósi sótti eins og skot til Siglufjarð- ar þegar fréttist af þessu. Aflinn Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.