Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 7
 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977 7 r Togarakaup til Reykjavíkur Alþýðublaðið birtir for- ystugrein i fyrradag, þar sem fjallað er um umræð- ur um atvinnulif i Reykja- vik og vikur að framlagi Morgunblaðsins til þeirra umræðna og segir siðan: „Þetta gerir blaðið með því að segja frá þvi, að nýtt og glæsilegt frystihús sé risið i Örfirisey við hafnarbakka og að þetta hús eigi að fá tvo nýja togara frá Noregi innan skamms. Þarna muni skapast mikil vinna. Allt er þetta hverju orði sann- ara. En Morgunblaðið hefði getað bætt við frá- sögn sina þeirri stað- reynd, að ekki var sam- komulag um að lána fé til þessara togarakaupa úr Byggðasjóði. Það var samþykkt með eins at- kvæðis meirihluta og greiddu fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins og Al- þýðuflokksins atkvæði með lánunum en fulltrúar Framsóknarflokksins og Alþýðubandalagsins á móti." Það er hverju orði sann- ara hjá Alþýðublaðinu, að vissulega hefði Morgun- blaðið átt að vekja athygli á þessu og á Alþýðublaðið þakkir skildar fyrir að hafa gert það. En þær upplýsingar, sem fram koma i þessari forystu- grein Alþýðublaðsins op- inbera þá hræsni og þann yfirdrepsskap, sem lýsir sér i skrifum Timans og Þjóðviljans um atvinnu- mál Reykjavíkur, þar sem borgarstjórnarmeirihlut- inn er borinn hinum þyngstu sökum, en svo kemur i Ijós að fulltrúar þeirra tveggja flokka, sem að útgáfu þessara blaða standa, fulltrúar Fram- sóknarflokksins og Al- þýðubandalagsins, beita áhrifum sinum til þess að koma i veg fyrir að ný atvinnutæki séu keypt til Reykjavikur! Stefna Alþýðu- bandalagsins í ríkisstjórn í forystugrein Timans i gær birtist athyglisverð lýsing á þvi, hvaða stefnu i efnahagsmálum Alþýðu- bandalagið mundi aðhyll- ast.ef það gengi til stjórn- arsamstarfs við Sjálfstæð- isflokkinn og fer ekki á milli mála, að þessi lýsing er byggð á þekkingu fram- sóknarmanna á raunveru- legum vilja og áhugamál- um Alþýðubandalagsins frá því í vinstri stjórninni, sem hrökklaðist frá völd- um 1974. Timinn lýsir því hver stefna Alþýðubanda- lagsins yrði i slikri stjórn, m.a. með þessum orðum: „í fyrsta lagi yrði gengi krónunnar lækkað og það látið fylgja kaupgjaldinu i framtiðinni. Vafalitið mundi ekki standa á Al- þýðubandalaginu að fylgja þessu eftir ef það væri komið í stjóm, þótt annað hljóð sé i strokkn- um, þegar það er utan stjómar. í þessu sam- bandi er vert að minnast þess, að mesti fjármála- maður þess og helzti fjár- öflunarmaður um langt skeið, Guðmundur Hjart- arson, hefur verið ein- dreginn fylgismaður allra gengisfellinga, sem hafa verið ákveðnar siðan hann varð bankastjóri Seðlabankans. í öðru lagi yrðu allir vextir stórhækk- aðir, enda þótt Lúðvík Jósepsson fordæmi slikt nú. Þar mundi stefna Guðmundar Hjartarsonar mega sin meira eftir að Alþýðubandalagið væri komið i stjóm. En hann lagði það til fyrir nokkru ásamt öðrum bankastjór- um Seðlabankans, að vextir yrðu hækkaðir miklu meira en raun varð á. í þriðja lagi yrði kaup- gjaldsvisitalan tekin úr sambandi likt og gert var með góðu samþykki Al- þýðubandalagsins þegar það var i rikisstjórn vorið 1974. í fjórða lagi yrði hafizt handa um meiri fjárfestingu erlendra stór- fyrirtækja, enda þótt slikt samræmist illa atvinnu- stefnunni, sem Alþýðu- bandalagið hyggst flagga fyrir kosningarnar. En eft- ir að það var komið i rikis- stjórn mundi afstaða þess breytast samkvæmt fyrri reynslu. Það var t.d. iðn- aðarmálaráðherra Alþýðu- bandalagsins, sem hafði alla forystu um samninga við ameriska auðhringinn Union Carbide um bygg- ingu Grundartangaverk- smiðjunnar. Án þessarar forystu hans mundi það fyrirtæki sennilega aldrei hafa séð dagsins Ijós." Athyglisverð lýsing Þetta er einkar athyglis- verð lýsing á þvi, hver stefna Alþýðubandalags- ins mundi verða, ef það ætti aðild að ríkisstjóm á ný. Veita ber þvi athygli, að sá sem gefur þessa lýs- ingu á stefnu Alþýðu- bandalagsins i rikisstjórn er Þórarinn Þórarinsson, en hann hefur haft afar náið samstarf við foringja Alþýðubandalagsins allt frá árinu 1956 og fram á hin siðustu ár eða i nær- fellt tvo áratugi og þekkir þá manna bezt. Niðurstaða Þórarins er i stuttu máli sú að Alþýðu- bandalagið mundi i fyrsta lagi vilja lækka gengi krónunnar, i öðru lagi stórhækka vexti, í þriðja lagi taka kaupgjaldsvisi- töluna úr sambandi og í fjórða lagi beita sér fyrir erlendri stóriðju á íslandi. Komi mönnum þessi stefnuatriði ókunnuglega fyrir sjónir hjá Alþýðu- bandalaginu er vert að vekja athygli á þvi, að á timum siðustu vinstri stjórnar stóð Alþýðu- bandalagið að öllum þeim aðgerðum, sem Þórarinn telur upp. Þess vegna þyrfti engum að koma á óvart, þótt Alþýðubanda- lagið mælti með slíkum stefnuatriðum, ef það gengi til stjórnarsam- starfs. L. GUÐSPJALL DAGSINS: Lúk. 17: Tíu líkþráir. LITUR DAGSINS: Grænn. Táknar vöxt. Einkum vöxt hins and- lega lífs. DÖMKIRKJAN: Messa kl. 11 árd. Séra Þórir Stephensen. KIRKJA ÓHAÐA safnaðarsins: Messa kl. 11 árd. Séra Emil Björnsson. ARBÆJARPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju kl. 11 árd. (Haustfermingar- börn eru beðin að koma til kirkju og til viðtals eftir messu) Séra Guðmundur Þorsteinsson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11 árd. Séra Karl Sigur- björnsson. LANDSPÍTALINN: Messa kl 10 árd. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKLRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11 árd. Séra Tómas Sveinsson. Haustfermingar- börn mæti i kirkjunni mánu- daginn 12. sept. kl. 18. Prestarnir. FRlKIRKJAN, Reykjavik: Messa kl. 2 siðd. Haustferm- ingarbörn komi til viðtals i kirkjunni þriðjudaginn 13. sept. kl. 6 siðd. Séra Þorsteinn Björnsson. GRENSASKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11 árd. Altarisganga. Organisti Jón G. Þórarinsson. Séra Halldór S. Gröndal. DÓMKIRKJA Krists Konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lág- messa kl. 2 siðd. Alla daga kl. 6 síðdegis er lágmessa, nema laugardaga, þá kl. 2 síðd. ELLI- OG HJÚKRUNAR- HiyMILID Grund: Guðsþjón- usta kl. 10 árd. Séra Jón Kr. Isfeld prédikar. ASPRESTAKALL: Messa kl. 2 síðd. að Norðurbrún 1. Séra Grímur Grimsson. LANGHOLTSPRESTAKALL: Guðsþjónusta kl. 2 síd. Organ- isti Jón Stefánsson. (athugið breyttan messutíma) Séra Arelíus Níelsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11 árd. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Haustferm- ingarbörn eru beðin að mæta. Séra Ólafur Skúlason. LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11 árd. Sóknarprestur. FlLADELFlA: Guðsþjónusta kl. 8 siðdegis. Einar J. Gíslason. HJALPRÆÐISHERINN: Helgunarsamkoma kl. 11 árd. Útisamkoma á Lækjartorgi kl. 4 síðd. og hjálpræðissamkoma kl. 8.30 síðd. Óskar og Ingibjörg stjórna og tala. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11 árd. Séra Arni Pálsson. MOSFELLSPRESTAKALL: 2Messa að Lágafellskirkju kl. 2 síðd. Séra Birgir Asgeirsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 2 síðd. Séra Gunnþór Ingason. KAPELLA St. Jósefssystra í Garðabæ: Lágmessa kl. 2 síðd. GARÐAKIRKJA: Messa kl. 2 síðd. Séra Guðmundur H. Guð- mundsson. NJARÐVlKUR- OG KEFLA- VlKURPRESTAKALL: Messa i Keflavíkurkirkju kl. 2 siðd. Séra Páll Þórðarson. HVALSNESKIRKJA: Messað kl. 2 siðd. Sóknarprestur. GAULVERJABÆJAR- KIRKJA: Messa kl. 2 siðd. Sóknarprestur. HJALLAKIRKJA: Messa kl. 2 síðd. Séra. Sighvatur Birgir Emilsson prédikar. Sóknar- prestur. HEILSUHÆLI N.L.F.I. Hvera- gerði: Messa kl. 11 árd. Sóknar- prestur. HALLGRIMSKIRKJA í Saur bæ: Guðsþjónusta kl. 2 síðd. við upphaf héraðsfundar Borgar- fjarðarprófastsdæmis. Séra Ölafur Jens Sigurðsson pré- dikar. Séra Jón Einarsson. AKRANESKIRKJA: Messa kl 10.30 árd. Séra Björn Jónsson. Ný verzlun Höfum opnað verslun með barnafatnað, herra- föt, sokka, og bindi, smávörur til sauma og m.fl. Gjörið svo vel að líta inn. S.Ó. búðin, Hrísateig 4 7 sími 32388 (við htiðina á Verðlistanum). Halló! Takið eftir Tökum fram í búðina daglega nýja borð-, vegg- og gólflampa. Einnig fjölbreytt úrval af skerm- um við allra hæfi. Sænsku glerin eru komin Pantanir óskast sóttar. LAMPAR OG GLER h.f. Suðurgata — sími 21830 jaZZBaLL©03GKÓLi Baru % Jazzballett Skólinn tekur 1 9.sept. til starfa co u D (D Flokkaröðun fer fram dag, laugardaginn 1 sept. Nemendur mæti sem hér segir: 7— 1 2 ára t dag kl. 4. 1 3 ára og eldri í dag kl. 5. __ Hafið stundarskrár með Skólinn verður til húsa í Q Suðurveri simi 83730. ^nuog !X)JSQ3Qúnœzzpr S 4 SZ C0 0 t V., -U Tilkynning frá sauðfjársjúkdómanefnd Hreppstjórar, réttastjórar og bændur almennt eru alvarlega minntir á eftirfarandi atriSi, sbr. lög no 23/1956 og no. 12/1967. 1. Allir sauðfjárflutningar yfir varnarlínur eru stranglega bannaðir nema með sérstöku leyfi. Einnig slátur- flutningar af garnaveikisvæðum yfir á ósýkt svæði. 2. Öllu óskilafé, sem fyrir kemur í réttum eða annars staðar, svo og ómerkingum, sem ekki finnast eig- endur að, skal slátra en ekki selja til lifs. 3. Grunsamlegar vanþrifakindur skal einangra strax og til þeirra næst og slátra svo fljótt sem við verður komið. Haus, brjóstholslíffæri og óraktar garnir úr fullorðnu vanþrifafé skal tekið, merkt greinilega og sent Tilraunastöðinni Keldum. 4. Öllum kindum komnum í sláturrétt ber að slátra, enga kind má taka þaðan til lífs. 5. Til sláturleyfishafa og sláturhússtjóra hvar sem er á landinu: Skylt er að taka frá, merkja greinilega og senda Tilraunastöðinni Keldum, sýni aftast úr mjó- görn úr öllu fullorðnu sauðfé og nautgripum, sem slátrað er og ganga þannig frá úrgangi sláturhúsa, að ekki stafi smithætta af. 6. Til bílstjóra og ástöðumanna fjárflutningabíla, rétta- fólks, starfsfólks sláturhúsa og allra þeirra, sem fara á milli sýktra og ósýktra bæja eða sveita: Varist smit- hættu af óhreinsuðum flutningstækjum, skófatnaði og öðrum hlífðarfatnaði 7. Allir heyflutningar milli varnarhólfa eru bannaðir nema gegn leyfi sauðfjárveikivarna Sauðfjársjúkdómanefnd Bændahöllinni sími 15473.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.