Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐLÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977 Séð inn í sijórnherberni upptökusalar. Sjónvarpiö: (Ijósm. Mbl. Król) Litútsendingar úr stúdíói hef jast von- andi um mánaðamótin Litiö vid hjá sjónvarpsmönn- um sem eru að leggja síöustu hönd á litvæð- ingu stúdíós — ÞAI) SEM við erum fyrst og fremst að gera núna er að litvæða stúdíóið og stjórnher- bergin svo að við getum sent út f Iit héðan úr stúdíóinu, sagði Hörður Frímannsson. yfirverk- fræðingur hjá Sjónvarpinu, þegar við litum við hjá Sjón- varpsmönnum í fyrradag, en eins og skýrt var frá hér í Mbl. er uppsetningu tækjabúnaðar í stúdfói svo gott sem lokið og nú verið að kenna starfsfólki Sjón- varpsins meðhöndlun ta'kjanna og þjálfa það með tilliti til út- sendingar i lit. — Við höfum fengið þrjár nýjar sjónvarpsupptökuvélar til litmyndatöku, við höfum fengið nýja myndveljara i stjórnherbergi upptökusalar og einnig í stjórnherbergi útsend- inga svo og höfum við fengið nýja litskerma í stjórnherberg- in. Myndveljararnir eru notaðir til að blanda saman merkjum frá hinum ýmsu tækjum svo hæfilegt prógram fáist, og einn- ig eru þeir notaðir til litblönd- unar en í því tilfelli er hægt að fá fram ýmis litbrögð. — Enn sem komið er munum við notast svo til alveg við þann ljósabúnað og ljósa- og hljóð- stjórnartæki sem fyrir eru, en með timanum og með bættum efnahag Sjónvarpsins munum við auka á þetta og endurbæta. Þá munum við í bili reyna að komast af án lágréttra stúdíó- tjalda, en þann búnað munum við fá með bættum efnahag. — Það er nú draumurinn að við getum hafið sendingar i lit úr stúdíói í kring um næstu mánaðamót, en 30. september á Sjónvarpið 11 ára afmæli. Áður munum við gera einhverjar breytingar á fréttasettinu, bæði hvað liti og útlit snertir. Það vantar að vísu enn nokkuð mik- ið meðan við getum ekki sent kvikmyndir út í lit. Það er von okkar að breyting verði þar á um og upp úr áramótum, að einhverju leyti a.m.k., en við höfum sótt um að fá að kaupa sérstaka „skanna", þ.e. sjón- varpsvélar sem hægt er að sýna kvikmynd inn í, til þessa. Hörður Frimannsson sýndi okkur inn í hin ýmsu herbergi sjónvarpsins þar sem dagskrá og útsendingar eru unnar, stjórnað eða hannaðar. I einu herbergjanna var komið fyrir mörgum skápum tækja sem á var mikið viravirki, margir takkar og mælar. — Þetta er nú hjartað, sagði Hörður. Hér mætast margar leiðslurnar og ekki má muna sentimetra á lengd þeirra ef koma á í veg fyrir bjögun á litnum á sjón- varpstækjunum. Hluti af þess- ari miðstöð er stillingartæki sem stillir nákvæmni merkj- anna allt niður i einn milljón- asta úr sekúndu, en þetta er nauðsynlegt til að koma i veg fyrir alla litbjögun, þ.e. tryggja að hlutirnir verði skýrir og í jafnvægi. Það eru tæknimenn frá norska sjónvarpinu sem hannað hafa þennan búnað og sett hann upp, en með aðstoð þeirra höfum við fengið þessa hluti talsvert ódýrari heldur en að kaupa þá frá einhverju fyrir- tækjanna á þessu sviði. Norðmennirnir hafa byrjað að kenna okkur meðhöndlun hins nýja útbúnaðar en það er Horöur við „hjarta" sjónvarps- ins, en þennan útbúnað hönn- uðu tæknimenn Norska Sjón- varpsins og settu upp. Með því fékkst útbúnaðurinn talsvert ódýrar, að sögn Harðar. von á fleirum um miðjan september. Munu þeir halda viku námskeið, bóklegt og verk- legt, í litatækni, fyrir tækni- menn okkar. Síðan bætast við Dani og annar Norðmaður sem munu annast verklega þjálfun starfsfólks í hálfan mánuð, þ.e. kenna fólkinu á þann tækjaút- búnað sem settur hefur verið upp til útsendingar í lit og þjálfa það í notkun þess. Hörður Frímannsson sagði að sá tækjabúnaður sem settur hefði verið upp muni kosta um 75 milljónir korna. Þar væru í tollar og vörugjöld, svo ekki væru gjaldeyrisverð útbúnaðar- ins nema um 25 milljónir króna. Þá sagði Hörður okkur að til þessa hefðu verið flutt til landsins um 3100 litsjónvarps- tæki, en alls hefðu verið um 55 þúsund sjónvarpstæki á skrá i landinu þegar hann síðast vissi. Þótt við hefjum fljótlega út- sendingar í lit þá hef ég nú ekki trú á að menn rjúki til og skipti á tækjum sínum. Ég held að það muni gerast jafnt og þétt með árunum, svona 5—10 árum a.m.k. Þetta mun verða nokkuð dýr fjárfesting fyrir þjóðina i heild, þótt gjaldeyrir sé ekki nema einn þriðji hluti verðs viðtækj- anna sjálfra og útbúnaður hér en ég hef trú á að landsmenn séu allir fyrir þær breytingar sem við erum að gera, og sjái því ekki eftir þeim tekjum til Sjónvarpsins sem það fær af aukinni viðtækjasölu. Tolla- tekjur Sjónvarpsins voru á tímabili ekki nægilegir til að borga afborganir og vexti af erlendum lánum stofunarinn- ar. Ef hvert sjónvarpstæki kost- ar um 100 þúsund krónur í gjaldeyri þá má sjá að til að endurnýja strax þau 52 þúsund svart-hvítra viðtækja sem á skrá eru, þá eru um 5.2 millj- arða króna upphæð i gjaldeyri að ræða. Ef hvert tæki kostar að jafnaði um 300 þúsund þá er þar um 15 milljarða að ræða, en inn í þeirri mynd eru tollatekj- ur Sjónvarpsins, rikissjóðs o.s.frv. Hörður Frímannsson, verkfræðingur Sjónvarpsins, ásamt einum tæknimannanna við tvær nýju litupptökuvélanna. i Nýja Arnar- flugsþotan komin IIIN NÝJA þota Arnar- fluss kom til landsins í fvrrakvöld. Vélin er af gerðinni Boeing 720B oj; her einkennisstafina TF—VLC. Arnarflug fékk vélina til afnota með kaup- leifíusamninfíi, en hún hef- ur undanfarið verið í áætl- unarflufíi f.vrir Western Airlines og einkum flogið á vesturströnd Bandaríkj- anna og til Hawaii. Fiuf;- vélin er nýkomin úr skoð- un er hún kemur hinf;að. Vélin er systurvél þotunn- ar sem Arnarfluf; hefur rekið frá því í maí sl. I henni eru sæti fyrir 149 farþefía. Flugvélin var afhent i Minneapolis í Bandaríkj- unum og tóku þeir Magnús Gunnarsson framkvæmda- stjóri og Arngrímur Jó- hannsson yfirflugstjöri við henni fyrir hönd Arnar- flugs. Forráðamenn Arnarflugs og flugliðar við þotuna. Arnarflugsþotan nýja á Keflavíkurflugvell

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.