Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977 Fjarskiptakerfi hjá SVR tekið í notkun Um þessar mundir er verið að taka í notkun fjarskiptakerfi hjá Strætisvögnum Reykjavík- ur og verður talstöðvum komið fyrir í 45 vögnum af 62 sem eru i daglegri notkun. Eíríkur Ásgeirsson forstjóri SVR sagði í viðtali við borgaryfirvöld að þjönustu SVR mætti bæta veru- lega með þvi að taka í notkun slíkt fjarskiptakerfi, sem gerði það t.d. kleift að grípa til auka- vagna ef á þyrfti að halda i vissum tilfellum, t.d. ófærð eða við bilanir í vögnum. Innkaupastofnun Reykjavík- ur auglýsti eftir tilboðum í slíkt fjarskiptakerfi og að höfðu samrði við radíótæknideild pósts og síma var ákveðið að kaupa svonefnd PYE-tæki, sem Heimilistæki h.f. flytja inn. Slik tæki hafa m.a. verið í notk- un hjá lögreglunni og eru tæk- in með svonefnt VHF-kerfi, en það er lokað kerfi og aðeins hægt að tala úr einstökum vögnum i móðurstöðvar, sem í fyrstunni verða tvær, önnur á Hlemmtorgi, en hin í bæki- stöðvum SVR við Kirkjusand. Sem fyrr segir verða i upp- hafi 45 tæki sett í vagnana og er kostnaður við það um 12 millj- ónir króna. Er gert ráð fyrir að á næsta ári verði bætt við 15—20 tækjum og verða þá allir vagnar SVR búnir slíkum tækj- um. Helzta notagildið ér fölgið i þvi að vagnstjórar geta nú mun fyrr náð sambandi við miðstöð SVR ef eitthvað ber út af í akstri, ef seinkanir eru og mik- ill fjöldi farþega þannig að senda verður aukavagn, ef vagnar bila, og í neyðartilvik- um. Sagði Eirikur Asgeirsson að með þessu móti væri stigið skref í átt til betri þjónustu SVR við borgarana i samkeppni fyrirtækisins við einkabílinn, minni tafir ættu að verða á leið- um SVR. Karl Gunnarsson, eftirlitsmaður hjá SVR, er hér að prófa eitt tækið, en um næstu mánaðamót er gert ráð fyrir að þau verði að fullu tekin til notkunar. ljósm. ÓI.K.M. — Við vorum að Framhald af bls. 21 hvað raunverulega hafði gerzt þegar við komum á símstöðina. Datt ykkur aldrei í hug að forða ykkur í nágrannabyggð- irnar á meðan ósköpin gengu yfir? — Nei, blessaður vertu, það datt okkur ekki í hug. Þá væri maður alltaf á ferðinni. Þessar hræringar eru orðnar það tíðar. Hefur þetta þá engin áhrif á daglegt líf fólks hér í byggð- inni? Yfirleitt hefur þetta eng- in áhrif nema auðvitað hitaveit- án sem er í sundur á einum tíu stöðum, en það standa nú vonir til þess að hægt verði að gera við það innan skamms tíma. En það var að vísu fremur hrá- slagalegt að vakna í morgun í þessari nepju. I vetur verður málaskólinn Mímir 30 ára, en hann var stofnaður árið 1947. Stofnandi skólans og fyrsti stjórnandi var Halldór P. Dungal. Arið 1952 tók Einar Pálsson við skólastjórninni og gegnir því starfi enn. Um tuttugu þúsund nemendur hafa stundað nám við skólann sfðan hann var stofnaður. A myndinni eru Einar Pálsson, skólastjóri ásamt 6 af 14 nemendum, er nýlokið hafa frá skólanum Pitman-prófi í enskum verzlunarbréfum. — Skreið Framhald af bls. 40 ætti að koma til Lagos í septem- berbyrjun en Islendingarnir höfðu ekki orðið hennar varir. Skreiðarsamningurinn við Nígeríumenn, sem íslenzkir skreiðarsölumenn hafa verið að reyna að fá á hreint í allt sumar, er um 115 þúsund ballar af skreið og er verðmæti semningsins 4,4 milljarðar kjóna. — Beam féll Framhald af bls. 1. Bella Abzug, fyrrum fulltrúa- deildarþingmaður, 16%. Þeir Koch og Cuomo halda áfram í aðra lotu prófkjörsins, sem fram fer 19. þessa mánaðar og talið er fullvíst að sá, sem sigrar þá, verði næsti borgarstjóri New York, því að demókratar hafa auðveldlega ráðið þar ríkjum um áratuga- skeið. Stjórnmálafréttaritarar i New York telja Cuomo sigurstanglegri, en hann nýtur stuðnings Hugh Careys, fylkisstjóra New York, sem hvatti hann til framboðs, þar sem hann taldi stórhættulegt fyr- ir New York að Beame yrði áfram borgarstjóri. — Engir ólög- legir . . . Framhald af bls. 1 búnaðarráðherra Israels, sem sagði að nokkrir bústaðir hefðu verið reistir með leynd. Talsmað- urinn sagði, að ísraelsstjórn gæti gefið viðhlítandi skýringu á þessu máli og að Moshe Dayan utanrik- isráðherra yrði beðinn um skýr- ingu á ummælum Sharons og full- yrðingum stjórnarinnar, er hann kæmi til Washington 19. septem- ber. — Schleyer . .. Framhald af bls. 1 sem almenningur getur hringt i og heyrt raddir ræningjanna ef ske kynni að einhver þekkti hver talaði. 1 bréfi, sem barst í morgun, mun hafa verið orðsending, sem einn fanganna 11 átti að lesa i sjónvarpi til að staðfesta að undir- búningur undir ferð þeirra úr landi væri á lokastigi og einnig að skýra flugtakstíma farþegaþot- unnar, sem krafizt hefur verið að fljúgi fólkinu úr landi. Sehleyer var rænt sl. mánudags- kvöld, er hann var á leið heim úr vinnu sinni í fylgd þriggja líf- varða, sem voru i bifreið á eftir. 15 manna hópur gerði árás á bif- reiðarnar á götuhorni, felldi alla lífverðina og bílstjóra Schleyers og hafði hann á brott, ómeiddan að þvi er talið er. Kalla ræningj- arnir sig Siegfried Hausnerflokk- inn, eftir róttækum skæruliða, sem drepinn var i árásinni á v- þýzka sendiráðið í Stokkhólmi 1975. Þrir úr hópi þeirra, sem þá árás gerðu, eru meðal þeirra, sem ræningjarnir vilja fá lausa úr fangelsi. Einnig eru í þeim hópi Andreas Baader, Jan-Carl Raspe og Guðrún Ensslin, harðsvíruð- ustu forystumenn Baadder- Meinhofsamtakanna. V-Þýzka rík- isstjórnin er í stöðugri viðbúnað- arstöðu ef skyndilega þyrfti að taka lokaákvörðun til krafna ræn- ingjanna. — Höldum áfram Framhald af bls. 40 steinn Ólafsson í gær að holur Kísiliðjunnar væru reknar af Orkustofnun og það væri þvi í verkahring hennar að sjá um við- gerðir. Hefðu verið gefnar vonir um að gufa að virkjuninni yrði komin í eðlilegt horf um helgina. Þá tæki ekki langan tima að auka i rafstrengi og simalínur og þegar væru hafnar viðgerðir á vatns- lögn, sem hefði gefið sig á tveim- ur stöðum. Skrifstofuhúsnæði Kisiliðjunn- ar er mjög illa farið, nær ónýtt. Er austurendi hússins I raunvnni slitinn frá aðalálmunni en í austurendanum eru m.a. skrif- stofur framkvæmdastjóra. Er sprunga eftir gólfi og lofti endi- löngu og á mörgum stöðum í hús- inu skipta breiðar sprungur veggjum i tvennt. Eru sumar sprungnanna frá því i april i vor, en hafa gleikkað verulega við raskið nú. Beint áframhald þeirr- ar þróunar, sem hófst i aprilmán- uði. I sjálfu verksmiðjuhúsinu hafa fyrri sprungur stækkað verulega, en brennsluofninn virðist alveg hafa sloppið. Sprunga i gegnum „blautu deild" verksmiðjunnar hefur ekki gleikkað. Hráefnis- tankur verksmiðjunnar hefur færzt nokkra sentimetra á steypt- um grunni, en platan undir hefur ekki gefið sig. Virtist í gær eins og tankurinn hallaði nokkuð. Þá hélt áfram gliðnun á milli við- gerðarverkstæðis og lagers verk- smiðjunnar og er sprungan þar á milli nú orðun um 20 cm. en bygg- ingarnar voru samfastar. Tvær af þremur þróm verk- smiðjunnar skemmdust verulega í jarðraskinu í vor, en ei,n þrónna hélt alveg. Viðgerð á annarri þrónna, sem skemmdist í vor, lauk 18. ágúst og var þá strax hafizt handa við að dæla í hana gúr úr Mývatni. Var komið tölu- vert magn í hana er hún gaf sig i jarðraskinu í fyrrakvöld og rann allt vatn úr henni. Jarðfall varð í þeirri þró, sem styrkust var, en þegar eru byrjaðar viðgerðir á henni, en ekkert lak af hráefni úr henni. Er sú þró alveg full, þann- ig að engin þró er fyrir hendi til að dæla í. 7NY ÞRÓ KOSTAR UM 80 MILLJÓNIR Þorsteinn Ólafsson var að þvi spurður hve mikið fjárhagslegt tjón hefði orðið af hrinunni, sem nú er gengin yfir. — Um það er ekki nokkur leið að segja á þessu stigi málsins, en Ijóst er að þar er um umtalsverða fjármuni að ræða, sagði Þor- steinn. — ÖIl mannvirki, sem eru brunatryggjanleg, eru tryggð og þá um leið eru þau viðlagatryggð. Þrærnar er ekki hægt að bruna- tryggja og þvi eru þær ekki við- lagatryggðar lögum samkvæmt og verður fyrirtækið því að bera þann skaða sem orðið hefur á þeim. Ef í dag ætti að byggja nýja þró á nýjum stað myndi sú fram- kvæmd kosta á að gizka 80 mill- jónir króna. — Að sjálfsögðu er eftir að meta stöðuna og siðan verða tekn- ar ákvarðanir í framhaldi af þeim skemmdum, sem orðið hafa. Mið- að við reynslu undanfarina mán- aða er ljóst að við eigum við vándamál að stríða. Stjórn fyrir- tækisins mun væntanlega fjalla um hver viðbrögð verða, sagði Þorsteinn Ólafsson að lokum. — Tólf manns Framhald af bls. 40 það sem yfirgaf heimili sfn kom allt til baka í gær. Lífið gekk sinn vanagang í Mývatnssveit i gærdag og héldu bændur i göngur árla i gærmorgun. Fóru þeir i Graf- arlönd og Herðubreiðarlindir, en réttað verður i Reykjahlíð- arrétt á mánudag. A skjálftavaktinni í Reyni- hlið fékk Morgunblaðið þær upplýsingar i gærkvöldi að enn væri nokkur skjálfta- virkni á svæðinu og virtist hún einkum vera i miðri Kröflu- öskjunni. Ekki var þó lengur um stóra skjálfta að ræða. Landsigi virtist vera lokið og mældist sigið 12 mm i stöðvar- húsinu, sem er svipað eða held- ur minna en í undanförnum hrinum. Er búizt við að landris byrji á svæðinu á nýjan leik í dag. — Grænlenzku Framhald af bls. 5. heimili hennar og loks hafa aðal- ræðismannshjónin frú Svava og Ludvig Storr boð fyrir gestina á heimili sinu. Á þessu ferðalagi hafa konurnar búið á heimilum ísl. húsmæðra. Ósk hefur komið um það frá gestunum að fá tæki- færi til að vera við guðsþjónustur í kirkjum bæjarins á sunnudag- inn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.