Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977 Séð yfir gosstöðvarnar, enn rýkur úr sprungunni á nokkrum stöðum. Hraunflæmið þekur að lfkindum rúman ferkílómetra (Ijósm. Frið- þjófur). Allt eftir ák sami hringu Frá Ágústi I Jónssyni, fréttamanni Morgunblaðsins í Reynihlíð. HEVRA mátti brak og bresti í hraunhellunni er fréttamenn Morgunblaðsins voru á ferð við gosstöðvarnar norðan við Leir- hnúk á sjöunda tímanum í gær- morgun. Ef gengið var út á þunnt hraunið glitti víða í log- andi augu hraunglóðarinnar, en eigi að síður var hættulítið að ganga aðeins inn á hraunið. Ur gígnum syðst í sprungunni rauk lítillega, en tvær reykjar- strjókur stóð nær því beint í loft upp, úr aðalgígnum á miðju sprungunnar. Hefur reyksúlan trúlega náð 50 metra í loft upp snemma í gærmorgun, en minnkaði þegar leið á daginn. Hverirnir, sem höfðu gosið myndarlegum reykbólstrum við upphaf goss og slett aur og drullu um næsta nágrenni sitt með gný miklum, voru nú hljóðlátir. Sigurður Þórarinsson jarð- fræðingur var einn þeirra sem Fylgdust með síðustu átökun- um á gossvæðinu. Sagði hann að gosið hefði verið í hámarki á níunda timanum á fimmtu- dagskvöld, en siðan farið að Margar myndir mátti lesa úr svartgijáandi, storknuðu hraun- inu. A þessari mynd Friðþjófs sér f átt að megingfgnum. ganga niður strax á tiunda tím- anum. Nokkru fyrir klukkan 23 hefði hraun verið hætt að renna úr sprungunni og gosinu í raun lokið um það leyti. Hefði þetta myndarlega gos því að- eins staðið í röska fjóra klukku- tíma. Aðspurður sagði Sigurður að hann gizkaði á að hraun- sprungan væri 12—-1300 metrar á lengd, en þar sem lengd hraunsins, sem rann, væri mest, næmi það um 1800 metrum. Breidd hraunsins væri hins vegar ekki nema um 700 metrar þar sem það væri breið- ast, en svæði það sem hraunið þekur er mjóst um miðjuna. 7æri hraunið rúmur ferkíló- metri aðflatarmáli. Þetta gos norðan við Leir- hnúk er það mesta sem orðið hefur á þessu svæði síðustu árin, mun meira hraun rann, en hins vegar var minna um leir- sprengingar og aurslettur en verið hefur við gos þar undan- farið. — Gossprungan eins og þegar hún var virkust á fimmtudagskvöldið líktist mjög sprungunni sem opnaðist í v/estmannaeyjagosinu, sagði Sigurður Þórarinsson. — Einnig rann hraunið samfellt úr allri sprungunni við Leirhnúk, ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.