Morgunblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 48
Tillitssemi kostar ekkert FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979 Verzlið í sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki. Ic^ Skipholti 19 BUÐIN sími v 29800 Snjóflóðið í Esju: Piltamir fund- ust báðir látnir TVEIR piltar úr Reykjavík fórust í snjóskriðu í Esju í fyrrakvöld er þeir voru á niðurleið eftir göngu á fjallið. Þriðji pilturinn, sem með þeim var, slapp naumlega þar sem hann var nokkuð á eftir. Piltarn- ir sem fórust hétu: Stefán Baldursson, Tómasarhaga 22, og Sveinbjörn Beck, Brávallagötu 18, báðir nemendur í Menntaskólan- um í Reykjavík. Árni Geirsson, sá sem slapp við snjóskriðuna, lét vita á bænum Leirvogstungu og fóru fyrst af stað félagar úr björgunarsveitinni Kyndli í Mosfellssveit og strax á eftir kallaðar út björgunar- sveitin Ingólfur, Hjálparsveit skáta og Flugbjörgunarsveitin, alls rúmlega 200 manns, og varalið var tilbúið. Piltarnir fundust kl. 1 Iðgjöfd ábyrgðar- trygginga: Félögin vilja 79% hækkun Tryggingarfélögin hafa sótt um hsekkun iðgjalda áhyrgðar- trygginga bíla á yfirstandandi ári um 79%, að sögn Páls Sig- urðssonar ráðuneytisstjóra í tryggingaráðuneyti. Gerði hann ráð fyrir að Tryggingaeftirliti yrði send hækkunarbeiðnin til umfjöllunar í dag og tæki nokk- urn tíma að fá umsögn þess. Samkvæmt upplýsingum Jó- hanns Björnssonar forstjóra Ábyrgðar er aimennt iðgjald 5 manna fólksbíla á Reykjavíkur- svæðinu nú kr. 80.500 eða 96.600 með söluskatti, en sé miðað við 50% bónus er gjaldið 48.300 með söluskatti. Komist á 79% hækkun verða tölurnar 172.800, fullt gjald, en 86.400 sé miðað við 50% bónus. Jóhann kvað hafa tekið hátt í tvo mánuði að afgreiða hækkunar- beiðni félaganna sl. ár og hefði það mikil óþægindi og kostnaðar- auka í för með sér fyrir trygging- arfélögin að þurfa að innheimta iðgjöld um þessar mundir með fyrirvara um hækkun, og kvað hann nauðsynlegt að slíta sam- bandið milli greiðslu iðgjalda og bifreiðaskoðunar eins og nú er. Að sögn Runólfs Þorgeirssonar hjá Sjóvá hefur enn ekki verið fjallað um iðgjöld húftrygginga, en hann bjóst við að iðgjöld þar myndu þurfa að hækka svipað ef ekki meira vegna lakari af- komu. Runólfur kvað útreikning tryggingarfélaganna á hækkunar- beiðninni vera byggðan á aukn- ingu tilkostnaðar að undanförnu, en þar spiluðu einnig inn í þættir svo sem fjöldi tjóna á hverju ári o.fl. Sjálfsábyrgðin hefur verið kr. 24.000 og kvað Runólfur það ekki í valdi tryggingarfélaganna heldur stjórnvalda að ákveða hækkun hennar né vá- tryggingarupphæðarinnar sem er nú 24 milljónir. Hann kvað tillögur vera uppi um að vátrygg- ingarfjárhæðin færi í 240 milljón- ir króna. og kl 3:45 aðfaranótt miðvikudags og var snjóskriðan 400—500 m á lengd og 10—15 m á breidd og misdjúp. Leitað var með snjóflóða- leitarstöngum og gerði það leitar- mönnum erfitt fyrir hversu snjór- inn var þéttur. Sjá: Liðlega 200 manns tóku þátt í' leitinni, bls. 24. Sveinbjörn Beck Stefán Baldursson Miklar um- ræður um þingrofs- tillöguna MIKLAR umræður stóðu á Alþingi í gærdag og í gærkvöldi um þingrofstillögu sjálfstæðis- manna. Var þeim umræðum ekki lokið þegar Morgunblaðið fór í prentun. Gert var ráð fyrir að íjúka umræðum í gærkvöldi eða í nótt, en þingrofstillaga sjálf- stæðismanna mun koma til atkvæðagreiðslu í sameinuðu þingi kl. 14 í dag. Snjóskriðan féll ofan í gil og talið er að hún hafi farið af stað um leið og piltarnir lögðu út á fönnina þar. I.jösm. Kristján. Fíkniefnamálið í Kaupmannahöfn: Teljum peningana vera hagnað af sölu fíkniefna — segir yfirmaður fíkniefnadeildar Kaupmannahafnarlögreglunnar DANSKA lögreglan telur að þeir miklu fjármunir, sem fundust í fórum íslendinganna, sem handteknir voru í Kaupmannahöfn síðastliðinn laugardag, séu hagnaður af sölu fíkniefna, aðallega kókaíns. Þrátt fyrir þetta sagði réttargæzlumaður íslendinganna í sámtali við Morgunblaðið í gær, að þetta fíkniefnamál, sem íslend- ingarnir tengjast, væri að hans mati ekki eins umfangs- mikið og lögreglan vildi vera láta. Því teldi hann að íslendingarnir fengju ekki eins stranga dóma fyrir bragðið. í gær var jafnvel blíizt við því að ein þeirra íslenzku kvenna, sem sitja inni í Danmörku vegna málsins, yrði látip laus áður en gæzluvarðhaldsúrskurður henn- ar rennur út á föstudagsmorgun, en þessi kona var við yfirheyrsl- ur í gær. I dag mun séra Jóhann Hlíðar eiga fund með konu, sem situr í Vester-fangelsinu, og fara fram á við hana að hún gefi leyfi til þess að börn hennar tvö, 5 mánaða gamalt stúlkubarn og 9 ára drengur, fái að fara heim til ættingja á íslandi. Stúlkubarnið dvelst með móður sinni í fang- elsinu. Eitt dönsku blaðanna leiðir að því líkum, að íslenzk hjón, sem sitja inni vegna málsins, hafi um jólaleytið farið til Mexikó til þess að ná í kókaínið, sem fannst í fórum íslendinganna á hótelinu „5 Svanir“, en í Mexíkó er sagt mikið framboð af kókaíni og tiltölulega auðvelt að komast yfir það þar. Danska lögreglan vildi ekki staðfesta þetta í gær. Samkvæmt upplýsingum dönsku lögreglunnar fundust í fórum íslendinganna byssa og 7 hnífar. Byssan var hlaðin og fundust 6 skot, þar af fjögur, þar sem sorfið hafði verið í kúlurnar, en það mun valda því að verði kúlan fyrir mótstöðu splundrast hún ojg getur myndað lófastórt sár. Islendingarnir hafa ekki kannazt við byssuna og hnífana. Sjá nánar frásagnir Sig- tryggs Sigtryggssonar, blaðamanns Mbl. sem nú er í Kaupmannahöfn á bls 22 og 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.