Morgunblaðið - 30.05.1979, Page 1
32 SÍÐUR
120. tbl. 66. árg. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1979
DC-10 þota írá United Airlines á flugvellinum í Chicago í gær. í þessari þotu og sex öðrum fannst örlitil sprunga í vængfestingu og er það
ástæðan fyrir því að allar þotur þessarar gerðar hafa verið settar í flugbann þar til ítarleg skoðun á þeim hefur farið fram. Símamvnd ap.
Flug með DC-10 ligg-
ur niðri um allan heim
Málsókn
vegna
flug-
slyssins
Chicago. 29. maí. AP.
FYRSTA stefnan vegna
flugslyssins í Chicago var
dómtekin þar í borg í dag.
Búizt er við að mörg mál
eigi eftir að fylgja í kjölfar-
ið og að löng málaferli geti
orðið áður en yfir lýkur.
Ekkja og einkasonur 35 ára
gamals Austurríkismanns,
Hans Jurgen Kahl að nafni,
sem fórst með DC-10 þotunni
sl. föstudag höfðuðu í dag mál
gegn American Airlines flugfé-
laginu, sem áttu þotuna,
McDonnell Douglas flugvéla-
verksmiðjunum, sem smíðuðu
hana og General Electric fyrir-
tækinu, sem framleiddu þotu-
hreyflana. Eru gerðar kröfur
um 5,25 milljónir dollara (ca.
1.75 milljarð ísl. króna) í
skaðabætur frá hverjum aðila.
í þessari upphæð eru taldir
með 250 þúsund dollarar fyrir
„kvalir þær og hugarangur,
sem Hr. Kahl varð fyrir rétt
fyrir slysið."
Óttast er nú að fleiri hafi
farizt í slysinu en upphaflega
var talið þar sem fundizt hafa
lík tveggja smábarna, sem að
líkindum hafa ferðast án far-
miða. Illa gengur að bera
kennsl á líkin.
Noregur:
Ósló, 29. maí. Frí fréttaritara Mbl.
Jan-Erik Lauré.
VANTRAUSTSTILLAGA á
norsku ríkisstjórnina var felld í
norska stórþinginu seint í kvöld
með aðeins eins atkvæðis mun.
Tillagan kom fram í umræðum
um gjaldþrot Tandberg-fyrir-
tækisins, þegar Olav Haukvik
iðnaðarráðherra sætti harðri
gagnrýni stjórnarandstöðu-
flokkanna fyrir afstöðu stjórnar-
innar í málinu. Nordli forsætis-
ráðherra sagði í umræðunum að
gagnrýnin á Haukvik jafngilti
gagnrýni á stjórnina alla og hlyti
að skoðast sem vantraust. Vinstri
flokkurinn bar þá fram formlega
vantrauststillögu á stjórnina og
hlaut sú tillaga stuðning Hægri
flokksins, Miðflokksins og Kristi-
lega þjóðarflokksins. Verka-
mannaflokk Nordlis skortir eitt
atkvæði í þinginu til að hafa þar
meirihluta. en tveir þingmenn
Sósíaiíska vinstriflokksins komu
til liðs við stjórnina og forðuðu
henni frá falli.
Þingmenn borgarflokkanna
skelltu í umræðunum skuldinni af
gjaldþroti Tandberg-verksmiðj-
anna á iðnaðarstefnu ríkis-
stjórnarinnar og sökuðu Haukvik
WaMhington. 29. maf. AP. Reuter
BANDARÍSKA ioftferðaeftirlitið
(FAA) skipaði í dag svo fyrir, að
engum flugvélum af gerðinni
DC-10, sem skráðar eru í Banda-
ríkjunum skyldi flogið fyrr en
mjög nákvæm rannsókn hefur
farið fram á öllu er lýtur að
hreyfilfestingum á vængjum vél-
anna. Grunur leikur á um að
málmþreytu gæti á þessum stöðum.
Ákvörðun þessi er tekin í kjölfar
flugslyssins í Chicago sl. föstudag.
iðnaðarráðherra um að bera
ábyrgð á gjaldþrotinu, sem stefnt
hefði atvinnu 430 manna, sem hjá
fyrirtækinu vinna, í hættu.
en rannsókn á DC-10 þotum, sem
fyrirskipuð var þá, hefur leitt f ljós
„alvarlega og hugsanlega hættu-
iega galla" í festingum á vængjum
vélanna, eins og Langhorne Bond
yfirmaður loftferðaeftirlitsins í
Bandaríkjunum orðaði það á
blaðamannafundi í dag. Var þvf
jafnframt beint til annarra rfkis-
stjórna og flugfélaga, sem nota
vélar af þessari gerð að stöðva flug
þeirra þegar og láta rannsaka
vængfestingarnar.
Öllu flugi á DC-10 var þegar hætt
í Bandaríkjunum og ýmis flugfélög
annars staðar sneru við vélum
sínum á flugi, þ.á.m. Flugleiðir og
brezka flugfélagið Laker Airways.
Brezk, v-þýzk, spænsk og ítölsk
flugmálayfirvöld gáfu síðan einnig
út samsvarandi tilskipun til flugfé-
laga, sem fljúga DC-10 þotum.
Upphafleg fyrirmæli bandaríska
loftferðaeftirlitsins náðu einnig til
þeirra flugvéla af gerðinni A-300
Airbus, sem skráðar eru í Banda-
ríkjunum, þar sem talið var að
hreyflar þeirra véla væru festir á
vængina með svipuðum hætti og á
DC-10 þotum. Fallið var frá þessari
ákvörðun, þegar framleiðendur
Airbus-vélanna í Frakklandi og
frönsk yfirvöld höfðu látið í ljós
„furðu“ sína á henni og lýst því yfir
að enda þótt hreyflar vélanna væru
sömu tegundar væru festingar með
allt öðrum hætti.
Mikil röskun varð á farþegaflugi í
Bandaríkjunum og víðar í dag vegna
þessa máls, en vélar af gerðinni
DC-10 eru notaðar í u.þ.b. 12%. af
öllu innanlandsflugi í Bandaríkjun-
um. Talið er að skoðun sú, sem nú
Kampala. 29. maí. AP. Reuter.
HERMENN hinnar nýju stjórnar í
Úganda og herlið frá Tanzanfu
tóku í dag á sitt vald borgina Arua
í norðurhluta Úganda. sem var
síðasta meiri háttar borg landsins,
er hermenn Amíns fyrrum forseta
höfðu á sínu valdi. Engin mót-
spyrna var veitt. þegar borgin var
tekin og höfðu flestir hermanna
Prentsmiðja Morjíunblaðsins
hefur verið krafizt, geti tekið allt að
þrjá daga og er sýnt að verulegar
truflanir verða á flugi á meðan.
Langhorne Bond sagði í dag að eftir
að skoðunin hefði farið fram á
DC-10 þotunum yrði þeim aðeins
heimilað að fljúga 10 daga eða í 100
flugtíma í senn og yrði þá að skoða
þær að nýju. Yrði svo þar til öruggt
væri að komizt hefði verið fyrir alla
hugsanlega galla.
| Amíns flúið. cn þeir sem eítir
i voru, gáfust upp. Eru nú aðeins
i lítil svæði við landamæri Zaire enn
' á valdi manna Amíns og er talið að
sjö mánaða stríði í landinu sé nú í
raun lokið.
Ekki sást tangur né tetur af
Amín þegar hermenn nýju
j stjórnarinnar komu til Arua og
j brotist hafði verið inn í hús hans
þar og það tæmt. Fátt borgarbúa
var eftir í borginni, þar sem búizt
hafði verið við hörðum bardögum,
en einhverjir þeirra sem eftir voru,
sögðu að Amín og varaforseti hans
Adrisi hershöfðingi hefðu hlaðið
vörubíla með eigum sínum og ýms-
um útbúnaði og haldlð í átt til
Zaire. Aðrar heimildir hermdu að
Amín hefði komið sér notalega
fyrir ásamt fjölskyldu sinni í
Baghdad í boði stjórnar íraks.
Innrás í
Nicaragua?
Managua. 29. maí. AP.
Utanríkisrádherra Nicaratfua.
Julio Quintana. sagði { kvöld. að
300 skæruliðar hefðu ráðizt inn í
landið sunnanvert frá Costa Riea.
Sagði ráðherrann að stjórnarher-
inn hefði komið til varnar, en
markmið innrásarmannanna virtist
að ná á sitt vald borginni Rivas um
130 kilómetra fyrir sunnan höfuð-
borgina Managua.
SVARTUR FORSÆTISRÁÐHERRA 1 RHÓDESÍU — Fyrsti blökkumaðurinn, sem tekur við embætti
forsætisráðherra í Rhódesfu, Abel Muzorewa biskup, sést hér lengst til hægri sverja embættiseið sinn í
Salisbury í gær. Hann tekur formlega við embætti á miðnætti á fimmtudag. Með biskupnum á myndinni
eru f.v. Macdonald forseti hæstaréttar Rhódesfu, Ian Smith fráfarandi forsætisráðherra, sem búizt er við
að verði ráðherra í stjórn Muzorewas, og hinn nýi forseti Rhódesfu Josiah Gumede, en hanr sór einnig
embættiseið sinn í dag. (Sfmamynd AP).
Stjórnin hélt
naumlegavelli
Síðasta vigi
Amíns fallið