Morgunblaðið - 30.05.1979, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1979
Konu Bhuttos sleppt
Karachi 29. maí AP.
NUSRAT Bhutto, ekkju Ali
Bhuttos. ok dóttur þeirra, Benaz-
ir, var í dag sleppt úr lögreglu-
búðum skammt frá Isiamabad að
því er sagt var frá í Karachi í
dag. Gefin var út opinber til-
kynninK um. að þær mæðtfur
hefðu farið fluKÍeiðis til Karachi
að eijfin ósk.
Nokkur tími er liðinn síðan
ríkisstjórn landsins hét að láta
þær lausar en þær voru báðar
allatkvæðamiklar í Þjóðarflokki
Bhuttos. Þær voru teknar tveimur
mánuðum áður en Bhutto var
líflátinn, en Nusrat Bhutto fékk
þó að vitja manns síns í fangelsið.
Nusrat Bhutto er nú formaður
flokksins en búizt er við dóms-
úrskurði um að hún megi ekki
hafa afskipti af stjórnmálum.
Fulltrúi Fatah í Kairó?
Kairó 29. maí
Reuter.
ZUHAIR Ezzeddin. fulitrúi Ai
Fatah f Beirut, er kominn til
Kairó tii viðræðna vegna samn-
inga Egypta og ísraela, að þv( er
áreiðanlegar heimildir Reuter
hermdu í dag, en fréttin hefur
ekki fengizt staðfest.
A1 Fatah er undir stjórn Yassirs
Arafats, en hann hefur vísað
eindregið á bug ofannefndum
samningum og talað um að með
þeim hefðu Egyptar svikið Palest-
ínumenn. Hefur Arafat nokkrum
sinnum haft uppi ógnanir vegna
þessa. PLO hefur engan fulltrúa
haft í Kairó síðustu mánuði.
Þetta gerðist 30. maí
1973 — Vestur-Þjóðverjar og
Tékkar taka upp eðlilegt
stjórnmálasamband.
1971 — Mariner 9 skotið frá
Kennedy-höfða til Mars.
1968 — De Gaulle rýfur þing,
boðar til kosninga og neitar að
fara frá.
1967 — Nasser forseti og Huss-
ein konungur undirrita varnar-
samning.
1961 — Trujiilo, einræðisherra
Dóminiska lýðveldisins, ráðinn
af dögum.
1942 — Brezk skipalest kemur
til Rússlands þrátt fyrir harðar
loftárásir.
1913 — Lundúna-sáttmáli
Tyrkja og Balkanríkjanna undir-
ritaður.
1904 — Japanir taka rússneska
bæinn Darien.
1876 — Adbul Azia Tyrkjasold-
áni steypt og Murad V tekur við.
1814 — Fyrri Parísarfriðurinn:
Frakkar viðurkenna landamær-
in frá 1792 og sjálfstæði Niður-
landa og italskra og þýskra
ríkja.
1808 — Napoleon Bonaparte
innlimar Toscana á Ítalíu.
1588 — Flotinn ósigrandi siglir
frá Lissabon til Englands.
1539 — Landganga Hernandqde
Soto á Florida.
1534 — Hinrik VIII kvænist
Jane Seymour.
1498 — Kólumbus siglir frá
Spáni í þriðju ferðina til Nýja
heimsins.
1431 — Jóhanna frá Örk brennd
á báli í Rúðuborg.
Afmæli. Pétur mikli Rússa-
keisari (1672-1725) - Henry
Addington, enskur forsætisráð-
herra (1757—1844) — Benny
Goodman, bandarískur tónlist-
armaður (1909----)
Andiát. Peter Paul Rubens,
myndlistarmaður, 1640 — Aiex-
ander Pope, skáld 1744 — Voit-
aire, rithöfundur, 1778.
Innient. Eggert ólafsson
drukknar 1768 — „Stríðshjálp“,
aukaskattur Kristjans V, 1679 —
Nýr verzlunartaxti 1776 — d.
Ormur Klængsson 1287 — Vís-
indaleiðangur Paul Gaimards
kemur til Reykjavíkur 1836 —
Jón Sigurðsson kosinn forseti
bókmenntafélagsins 1851 — 34
farast af hákarlaskipum norðan-
lands 1875 — Hjalti Jónsson
klífur Eldey 1893 — Fyrsti
íslenzki ríkisráðsfundurinn í
Fredensborgarhöll 1919 — 30
handteknir við knattspyrnu-
keppni 1940 — 25 farast í
flugslysi í Héðinsfirði 1947 —
Efnahagsstofnun tekur til starfa
1962 — Brezk herskip kvödd úr
landhelginni 1975 — f. Erlendur
Ó. Pétursson 1893.
Orð dagsins. Við vitum of
margt og erum sannfærðir um of
fátt — T.S. Eliot, brezkt skáld
(1888-1965).
Talaðu þá beint við fólkið sem notar vöruna.
Þú nærð til þess í VIKUNNI, mest lesna tímariti á lslandi. :
Sértu að bjóða það sem fólkið í landinu raunverulega vill og á verði og/eða
greiðslukjörum sem því líkar, þá færð þú auðvitað viðskiptin.
*Skv. fjölmiðlakönnun Hagvangs og Sambands ísl. auglýsingastofa.
WKM
í 50 daga
nöðruhófi
Hartbecsport. Suóur-Afríku.
28. maí. AP.
EF'TIR „fimmtíu daga vítisdvöl“
með eitursnákum steig Peter
Snyman sigri hrósandi út úr búri
sinu á sunnudag og hét þvf að
gera aldrei tilraun til að slá eigið
heimsmet.
Snyman, tuttugu og fimm ára
að aldri, betrumbætti um fjórtán
daga heimsmet í sambýli við
eitursnáka, en fyrra metið átti
annar Suður-Afríkumaður. „Guði
sé lof að því er lokið," sagði
Snyman, „ég hefði ekki þolað við
einn dag í viðbót."
Heimsmethafinn nýi dvaldi með
tuttugu og fjórum snákum í búri,
sem var tæplega þrír metrar að
flatarmáli. Voru sumir það hættu-
legir að fórnardýrið hefði, að sögn
Snymans, látizt á mínútu hefði
það orðið fyrir biti.
Veður
víða um heim
Akureyrí 5 skýjaó
Amsterdam 23 akýjaó
Apena 30 heióríkt
Barcelona 20 skýjaó
Borlín 27 sól
BrOsael 20 bjart
Chicago 18 bjart
Denpasar 31 skýjað
Franfurt 21 bjart
Feneyjar 26 heiórfkt
Genf 22 bjart
Helsinki 17 bjart
Hong Kong 25 skýjaó
Jerúsalem 26 heiöríkt
Jóhannesarb. 20 skýjaó
Laa Palmas 22 skýjaó
Lissabon 21 bjart
London 16 rigning
Kaupmannahöfn 17 bjart
Los Angeles 21 skýjaó
Madrid 26 rigning
Miami 27 rigning
Malaga 24 lóttskýjaó
Majorka 27 •kýjaó
Montreal 19 skýjaó
Moskva 30 bjart
Nýja Delhi 35 bjart
New York 24 skýjaó
Ósló 17 skýjaó
París 23 skýjaó
Rio de Janeiro 29 •kýjaó
Rómaborg 30 bjart
Reykjavík 5 •kýjaó
San Francisco 19 bjart
Stokkhólmur 21 bjart
Sidney 24 rigning
Teheran 27 bjart
Tel Aviv 26 bjert
Tókíó 26 bjart
Toronto 17 •kýjaó
Vínarborg 29 bjart