Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1979
25
fclk í
fréttum
Kvennadagur
+ Um svipað leyti og íslenzkir hestamenn komu saman á „degi
hestsins“ vestur á Melavelli, var „kvennadagurinn“ austur í lran.
— Efnt var til fjöldafundar í höfuðborginni Teheran, við háskóla
borgarinnar. Þessar konur, með sjálfvirka G-3-hríðskotariffla,
voru í hinum vopnuðu öryggissveitum á fundarstað, tilbúnar að
skerast í leikinn ef með þyrfti. — En til þess að sýna fram á
friðsamlegan tilgang útifundarins, stungu konurnar blómum í
byssuhlaup hrfðskotarifflanna.
Fólk
&
fílar
+ FULLTRÚI fyrir þýzka flug-
félagið Lufthansa í Jóhannesar-
borg í S-Afríku skýrði frá því
fyrir skömmu, að búið vœri að
borga fargjald með einni af
JÚMBÓ-þotum flugfélagsins
fyrir 25 ffla, sem fara eiga til
dýragarða í Evrópulöndum og f
Bandaríkjunum. — í fyrstu ferð-
inni sem farin var, voru eins og
það heitir á „flugmáli" bókaðir f
einu og sömu ferðina til Frank-
furt í V-Þýzkalandi 15 ungir fflar
og 240 farþegar. — Fflarnir
koma úr fflahjörðum f Kruger-
garðinum. Þeir voru látnir vera í
einangrun f mánaðartfma. áður
en Evrópuferðin hófst. Fflarnir,
vega um 1000 pund hver. stóðu á
tréflekum f flugvélunum, bundn-
ir fastir við þá svo þeir ekki færu
að vappa um „farþegarýmið“.
Ekki vildu sérfræðingarnir
svæfa fflana f flugvélinni, heldur
láta þá standa, en fiugtfminn var
áætlaður um 11 tfmar. „Sætið"
kostaði um 2400 dollara fyrir
hvern ffl, en samferðafólk þeirra
borgaði 755 dollara.
Drottn-
ingar
+ Þessi mynd var tekin á dögunum f hinum heimskunna
Tivoligarði Kaupmannahafnar er Elisabeth Englandsdrottning
var þar f borginni f opinberri heimsókn. Kom hún þá að sjálfsögðu
við í skemmtigarðinum. — Að baki drottninganna eru drottning-
armennirnir Henrik prins og Filipus hertogi. Ennfremur er á
myndinni stjórnarformaður Tivoligarðsins.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 98., 100. og 103. tölublaöi
Lögbirtingablaösins 1978, á Bjarnhólastíg 10,
þinglýstri eign Stefáns Stefánssonar, fer fram
á eigninni sjálfri miövikudaginn 6. júní 1979
kl. 12.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Hugheilar þakkir færi ég öllum, sem sýndu
mér vinsemd á áttatíu ára afmæli mínu 25.
maí.
Lifiö heil,
Sveinbjörn Magússon,
frá Skuld.
Ný uppgerður bíll frá verksmiðju erlendis.
Góður bíll á góðu verði ef gengið er frá kaupum
strax.
w
pnimn/on &vnuron hr.
Ægisgötu 10. Sími 27745.
Kvöldsími 23949.
EINSTAKT TÆKIFÆRI
KORFUBILL
TIL SÖLU
Byrjið
daginn snemma
á Esjubergi
í sumar opnum við kl. 700
alla morgna.
Vió bjóðum upp á nýlagað
kaffi, ný rúnstykki og heit
vínarbrauð.
Fjölbreyttar veitingar.
Það er ódýrt að borða hjá okkur.
Verid velkomin,
isaiu