Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ1979 11 Frá kynningunni með pípulagninKarmönnum í Reykjavík. en um 70 aðilar sóttu fundina. Lengst til hægri er Klaus Ernst Leinitz. verkfræðingur frá Fredcrich Grohe. Honum á hægri hönd er Ómar Kristjánsson frá Þýzk-íslenzka verzlunarfélaginu. Kynntu framleiðslu GROHE Steinunn Sigurðardóttir að breyta heiminum eða hvetja til baráttu. Þó er í einu ljóða bókar- innar, Fyrir þína hönd, sögð dap- urleg saga ungrar og ófríðrar stúlku sem vinnur í frystihúsi og lífið er svo andstætt að eina vonin er líf að loknu þessu. En til þess að kynna sjónarmið hennar, draga upp mynd af þeim félagslega veruleik sem hún hrærist í, hefur önnur kona valist: „Ég er svo vitlaus/ að ég get ekki einu sinni skrifað þetta./ Það gerir kona útí bæ. En hvað veit hún.“ Ég er ekki fjarri því að írónía af þessu tagi geti áorkað meiru en alls kyns lúðrablástur sem boðið er upp á í tíma og ótíma. Líkingamál Steinunnar Sigurð- ardóttur er yfirleitt sprottið beint úr umhverfi okkar. En í ljóðum hennar er áberandi þjóðsagna- kennt andrúmsloft, nægir að nefna ljóð eins og Úrræði álfanna, Hannyrðir og ýmis ljóð úr ljóða- flokkunum Dagar og svo framveg- is og Úti og inni. í því hvernig forn minni (einnig málfar) eru ofin saman við líðandi stund er Stein- unn stundum á líkri bylgjulengd og Þorsteinn frá Hamri. En Stein- unn er of mikið borgarbarn til að geta tileinkað sér þennan tjáning- armáta. Þótt í þessari stuttu umsögn hafi verið nefnd tvö önnur íslensk skáld má ekki skilja það svo að Steinunn sé ósjálfstæð í skáldskap sínum. Það er einmitt frumleikinn sem er einn helsti kostur ljóða hennar. „Meistaraleg hótfyndni/ þá er- um vér hressust", stendur í sjötta ljóðinu í Úti og inni. Það er eitt þeira ljóða um samband karls og konu þar sem ort er í senn af hispursleysi og myndvísi. Ekki skal spillt fyrir væntanlegum les- endum Steinunnar með því að fara að lýsa ljóðum eins og til dæmis Nýár (gleðilegt) og fleiri í líkum anda. Astaljóð bókarinnar eru að mínu mati merkilegur áfangi í skáldskap Steinunnar. Þar nýtur sín fyllilega leikandi húmor skáldkonunnar. FYRIRTÆKIÐ Friedrich Grohe í Þýzkalandi hefur í samvinnu við umboðsaðila sinn á íslandi, Þýzk-íslenzka verzlunarfélagið hf. staðið fyrir 10 kynningar- fundum fyrir tækni- og sölufólk f framleiðslu sinni á s.l. tveimur árum. Um síðustu áramót voru 2412 hitastýritæki í notkun frá GROHE hér á landi, en hið þýzka fyrirtæki hefur gert rannsóknir á íslenzka vatninu og tekið mið af þeim við framleiðslu á nýjum tækjum, sem sérstaklega eru ætluð til sölu á íslenzkum markaði. Nýverið voru 4 slík námskeið haldin í Reykjavík og á Akureyri. Þar voru kynntar margar nýjar gerðir af blöndunar og hitastýri- tækjum, er taka þeim eldri fram um verð og gæði. Sérstaka athygli vöktu hitastýritæki með inn- byggðum þrýstijafnara, en mis- munandi þrýstingum hefur mjög truflandi áhrif á blöndun vatns, eins og kunnugt er. Þá kom það einnig mjög á óvart, á tímum mikillar verðbólgu og orkuhækk- anna, að flest nýju hitastýritækin eru um 20—30% ódýrari en hinar eldri gerðir. Þá voru einnig kynnt- ar nýjar og fullkomnari tegundir af vatnsnuddtækjum, en þau hafa fengið góðar móttökur um alla Evrópu, segir í frétt frá Þýzk-ís- lenzka verzlunarfélaginu. Milli 160—170 manns tækni- ög sölufólk sóttu kynningarfundina að þessu sinni, en tilgangur þeirra er m.a. að auka á verkþekkingu þessa fólks. sér þann veg, er liggur til hins fullkomna. Þetta hefur Karl Kvaran skilið og látið hræringar síðustu ára sem vind um eyru þjóta. Hann heldur öruggur sína leið og ræktar sinn garð að eigin geðþótta. Eitt af séreinkennum verka Karls Kvarans er litameð- ferð hans. Hann hefur tamið sér sérlega hreina og sterka liti, sem hann síðan byggir frá í fljúgandi og heilleg form. Persónulega var ég hrifnastur af verkum á þess- ari sýningu, eins og DORIAN GREY No. 26 og Veikir tónar No. 30. Ég nefni aðeins þessi tvö verk, en þau eru algerar and- stæður í eðli sínu og sýna vel þá breidd, sem felst í vinnubrögðum Karls Kvarans. Hann kann einn- jg þá kúnst að láta línuna verulega njóta sín í sveiflum, ef svo ber undir. Þar notar hann allt aðra myndbyggingu bæði í lit og formi en í þeim verkum, þar sem hann heldur sig við samanþjappaðra form. Það er yfirleitt mikill styrkur í þessum verkum, og ég fæ ekki betur séð en að Karl Kvaran sæki í sig veðrið ár frá ári, ef svo mætti að orði kveða. Þetta er mikil sýning og markar tímamót í listferli Karls Kvarans. Tvö önnur verk njóta sín sérlega vel á þessari sýningu og verð ég að benda á þau: Það eru Guðný, No. 6 og No. 7, í Garðasjó. Úrvals verk, þótt ekki takist mér að tengja titlana við sjálf verkin. En hvenær hefur maður allt á reiðum hönd um? Hvað sem því líður eru eins og áður segir bæði þessi verk með því besta á þessari sýningu. Það væri efalaust hægt að skrifa langt og mikið mál um list Karls Kvarans, en ég held, að engum sé greiði gerður með slíkum langhundum nú á tímum. Það gat verið heppilegt fyrir fimmtíu árum að hafa langhund á prenti, nú vill fólk hlaupa yfir lesmál eins fljótt og hægt er, svo að hægt sé að njóta fleiri fjölmiðla, útvarps og sjónvarps. En ef fólk vill gefa sér tíma til að skoða þessa sýningu, sem nú er á Kjarvalsstöðum, þá er ég ekki í neinum vafa um, að Karl Kvaran á eftir að gleðja margan þann, sem auga hefur fyrir myndlist. Þetta er merkileg sýn- ing, sem er ekki á ferð daglega, notið því tækifærið og skoðið verk eins af okkar fremstu málurum. Valtýr Pétursson. Eitthvað sem enginn lifir án Ljósin í bænum, Magnús og Jóhann og Helgi Pétursson skemmta í Klúbbnum í kvöld, Stapa föstudagskvöld, Stykkishólmi laugardagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.