Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1979 15 Á ferð um Dali Skírnir og Torell Anita úti á hlaði að hjóla vegna þess hve köld hún er. En með því að sýna þessum kirkjum sem fyrir eru ræktarsemi og hafa með þeim gott eftirlit standa þær allar fyrir sínu. — Jú, ég messa á stórhátíðum og kirkjusókn er ágæt. I almenn- um messurh hefur kirkjusókn bæði í Haukadal og í Hjarðar- holti verið næstum hundrað prósent. Hvers vegna fólk fer í kirkju? Kannski það sé bara gamall vani. Heldurðu það? Nei, vonandi er einhver trúarþörf í þessu líka. Ég hallast að því, aiténd gegna þessar athafnir ekki lengur því félagslega hlut sem þær höfðu áður, svo að eitthvað knýr á að fólkið sæki kirkju. — Þig hefur ekki langað til að búa? — Ég býst við að hefði ég setzt að á jörð hefði ég nú haft uppi tilburði til þess. Tveir deildarbræður mínir, sem út- skrifuðust með mér, fást við búskap á sínum stöðum. Ég held að það sé ágætt, vegna þess að prestjarðirnar voru yfirleitt með þeim betri í sveitunum og því þótti mörgum bónda hart að horfa upp á að jarðirnar væru ekki nýttar. Ég heyri mikið og vel látið af sr. Eggert heitnum Ólafssyni á Kvennabrekku. Hann hafði aldrei fengizt við búskap er hann kom hingað en sneri sér að því með mesta dugnaði og var gildur bóndi alla sína tíð hér og Dalamenn kunna að meta slíkt. Ég er sjálfur alinn upp í sveit, á miklum hrossabæ, Skollagróf í Hrunamannahreppi. úr guðfræðideild án þess að hafa hugmynd um, hvernig jarðarför fer fram, hvað þá kistulagning — ég hafði raunar ekki einu sinni séð lík — þegar að þessu kom að ég stóð andspænis slíkri athöfn. Ég hafði aldrei séð hvernig átti að gifta hjón og svo mætti telja. Ég hef leitað ráða hjá sr. Jóni Þorsteinssyni í Grundarfirði og hann verið mér betri en enginn. Við fáum góða bóklega og faglega menntun í deildinni, en það er í raun og veru ábyrgðarhluti að senda menn svona hálfblánka út á akurinn. Sú saga var mér sögð á ferð um Dali í kringum hvítasunn- una, að skömmu eftir að sr. Skírnir kom prestur í Búðardal hefði verið haldið dansiball sem er ekki í frásögur færandi. Þar kom prestur að því er talið var glaðbeittur hress og konulaus. Dansaði eins og herforingi um kvöldið og á öllu var greinilegt að hann skemmti sér konung- lega. Sveitungum klerks þótti þetta ekki nógu hugguleg fram- koma — gott og vel að dansa og reka tunguna jafnvel ofan í vín, en að skilja konuna eftir heima mæltist satt að segja dálítið misjafnlega fyrir. Ég spurði sr. Skírni hvað væri hæft í þessari sögu. Hann brosti við hæglætislega og sagði að hún væri víst eilítið færð í stílinn. En sennilega að mestu rétt. Hann vissi það ekki alveg, því að þarna hefði verið á ferð Baldur tví- burabróðir hans, sem var þá í Heimsókn til sr. Skírnis Garðarssonar í Búðardal langa hríð. í öðru lagi fólk sem flutzt hefur hingað úr sveitunum í kring, en sækir eftir sem áður meira og minna sína kirkju. Og í þriðja lagi má svo nefna að- komufólkið sem er orðið ansi margt hér og komið hefur hing- að til búsetu úr ýmsum lands- hlutum á tiltölulega fáum árum. Sjálfur sé ég enga knýjandi ástæðu til þess að ráðast í að fara að byggja hér kirkju. En það er nú bara mín persónulega hér í bráð. Ástæður fyrir því eru meðal annars þær hversu Búð- dælingar eru marglitur hópur og hafa því ólík viðhorf til þessa máls. í fyrsta lagi eru það innfæddu Búðdælingarnir, grónar fjöl- skyldur sem hafa búið hér um skoðun. Það var sjálfsagðara í gamla daga að reisa kirkjur vegna annarra aðstæðna í sam- göngum og fleira. Mér finnst miklu nær að halda þeim gömlu við en reisa nýjar úti um allt. Hér innan sýslu eru þetta ekki nokkrar vegalengdir. Ástand kirkna í sóknunum mínum er mjög mismunandi. Hjarðar- holtskirkja er þeirra elzt og hún þarfnast lagfæringar. Hún er teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni og eru tvær aðrar slíkar kirkjur, á Húsavík og Breiðabólstað í Fljótshlíð. Þetta eru allsérstæð- ar kirkjur útlits. Fyrir nokkrum árum var gluggum hennar breytt og tel ég það langt frá til bóta. Nú hefur kirkjan verið friðuð endanlega og ég vona það verði til þess að hún veri færð í sitt upprunalega horf. En auk þess þarf að lagfæra hana all- verulega, grunnurinn undir henni — einkum kórnum — er sprunginn og skakkur. Snóks- dalskirkja hefur verið gerð mæta vel upp og á Stóra-Vatns- horni er splunkunýtt guðshús. Kvennabrekkukirkja hefur allt- af verið erfið við að eiga einkum En hef enga sérstaka löngun til að búa, ég get alveg viðurkennt það. — Atvinnutækifæri? Þau eru nú heldur fá. Það er sárt áð horfa upp á frystihúsið standa hér ónotað ellefu mánuði ársins. Nú hafa Dalamenn engán þing- mann lengur, það gæti orðið hemill á framfarir hér þótt maður voni allt það bezta. í Búðardal byggist allt á þjónustu, ekki framleiðslu. Reynt var að hefja vinnslu á skelfiski með því að keyra farma frá Stykkis- hólmi, en svo var skellt kvóta á þetta og ekkert Varð meira úr. Við svokölluð félagsleg vanda- mál verður ekki teljandi vart hér, og það er ekki mikið um hjónaskilnaði. Kannski er það fámennið. Afstaða fólks til um- hverfis og eigin vandamála mót- ast óhjákvæmilega töluvert af fámenninu. — Hvernig finnst þér þú hafir verið undir það búinn að hefja prestsstarf? — Bara afleitlega hvað praktíkinni viðvíkur. Við kunn- um eiginlega ekkert til verka i því tilliti. Menn eru útskrifaðir Prestur í Suðurdölum og Laxárdal er sr. Skírnir Garðarsson og hann situr í Búðardal. Hann hefur þjónað þar í þrjú ár, var fyrst settur í eitt ár, en síðan kusu sóknarbörn hann lögmætri kosningu. Hann á norska konu, Torell, sem ættuð er frá Tromsö og tvö hýrleg lítil börn. Auk þess að sinna prestverkum hefur sr. Skírnir stundað kennslu í Búðardal á veturnar, hann er í Tónlistarskóla Dalasýslu að læra orgelspil og mér er sagt að eitt haustið hafi hann unnið í sláturhúsinu. Þá ráku ýmsir upp stór augu og þótti nýstárleg uppáfinning hjá presti. Fjölskyldan býr í Dalgerði í Búðardal. Telpukornið Anita er úti að hjóla, en pilturinn Davíð sem er bara nokkurra mánaða er að snæða hjá föður sínum þegar ég banka upp á til að forvitnast um almenna líðan þeirra og spyrja tíðinda. — Við unum okkur ágætlega þótt við verðum sjálfsagt ekki mosavaxin hér, segir hann. — Dalamenn eru hresst fólk, frjáls- ir í fasi og framkomu og hér í Búðardal er heilmikið um að vera í félagslífi. Þar er til dæmis tónlistarskóli, sem mér finnst mjög merkilegt framtak í ekki stærra byggðarlagi. Það voru milli 80 og 90 nemendur á síð- asta vetri undir skólastjórn Ómars Óskarssonar og kennt var bæði í Búðardal og inni á Laug- um. Nú er Ómar illu heilli farinn, en við vonum að einhver fáist í staðinn. Já, ég er að læra á orgel í tómstundum. Ég er ekki músíkmaður af guðs náð, en með puðinu hefst það. — Ertu duglegur að messa? — Ég er ekki nærri eins dug- legur við það og fyrirrennari minn, sr. Svavar, sem sat hér í eitt ár. En með öllu, barnasam- komum og fleiru býst ég við þetta séu svona fimmtíu athafn- ir á ári. Barnasamkomur hér í Búðardal mælast vel fyrir enda er hér mikið af börnum. Það stendur kirkjulífi nokkuð fyrir þrifum að hér er ekkert fast húsnæði fyrir slíkar samkomur. Það hefur verið talað um að reisa kirkju í Búðardal og meira að segja búið að úthluta henni lóð. Eg er persónulega ekki trúaður á að kirkja verði reist heimsókn. Það væri ekki í fyrsta skiptið sem þeim bræðrum væri ruglað saman og þeir kipptu sér eiginlega ekkert að ráði upp við það lengur þótt smá misskiln- ingur eins og þessi kæmi upp á öðru hverju. h.k. Davíð við morgunsnæðing Húsmæðraskólanum Ósk á ísafirði slitið Húsmæðraskólanum ósk á ísa- firði var slitið þann 31. maí og skýrði þá Þorbjörg Bjarnadóttir, skólastjóri, frá vetrarstarfinu. Skólinn starfaði í 9 mánuði og voru haldin löng og stutt nám- skeið í öllum grcinum heimilis- fræða. Samtals 252 nemendur sóttu þessi námskcið. Auk þess sá skólinn um kennslu stúlkna í Gagnfræðaskólanum á ísafirði. Starfsemi skólans var með sama hætti og undanfarin ár, fram að áramótum voru haldin námskeið í ýmsum greinum matreiðslu og handavinnu og voru námskeið þessi fjölsetin. Eftir áramót hóf- ust fimm mánaða námskeið í hússtjórnun. Hæstu einkunn á slíku námskeiði hlaut Þórleif Friðriksdóttir frá Höfða á Höfða- strönd og fékk hún verðlaun úr Camillusjóði. Fastir kennarar við skólann auk skólastjóra voru þrír. Við skólaslit voru mættir 20 ára nemendur skólans og aðrir vel- unnarar hans. Skólinn mun starfa með sama sniði og næsta vetur og verið hefur undanfarin ár. UTVARP OG SEGULBAND í BÍLINN RS-2B5Q I BILINN ÞEGAR Á REYNIR Beztu kaup land$' ins ÍSETNING SAMDÆGURS! Verö frá 54.000- 29800 Skiphottit9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.