Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980 7 Undiralda í Al- þýöubandalagi Maður er nefndur Kjartan Ólafsson, fyrrver- andi ritstjóri Þjóöviljans og tyrrverandi alþingis- maöur. Hann er varafor- maöur í Alþýöubandalagi og af mðrgum talinn arf- taki Lúðvíks Jósepssonar sem formaður, er sá síðarnefndi lætur af því trúnaðarstarfi fyrir aldurs sakir. En ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið, jafnvel þótt hvort tveggja, kálið og ausan, séu af hinni marxísku uppskrift. Fráfarandi formaður, Lúðvík, mun þeirrar skoðunar, aö Hjörleifur Guttormsson, iðnaðar- ráðherra, sem erfði pól- itískar lendur Lúðvíks eystra, hafi lipurri marx- leníníska tilburði til að bera bjöllu forystusauðs- ins í hinni rauðu hjörð Gulagsins á íslandi. SÍA- liöiö, sem frægt varð á sínum tíma, mun sam- mála því „foringjavali", þó afhuga sé „lúðvísk- unni“ í stefnumörkun flokksins. Þriðji hópurinn, sem drýgstur mun vera i Reykjavík og á Reykja- nesi, er þeirrar skoðunar, að nóg sé komið af landsbyggðarvegvísum í flokksforystunni. Þeir fylkja sér um hinn eína sanna krónprins að þeirra dómi, Svavar Gestsson, og munu lík- legastir til sigurs. Mun þá Kjartan missa af for- mennskunni í kjölfar annars, sem týnst hefur á pólitískri vegferö hans. Mun Svavari ósárt um, þó hann skilji fyrrum meðrit- stjóra langt að baki í eigin hraðför upp á stjörnuhimininn. Hver sem formennsk- una hreppir mun þó líklegt að eins fari fyrir Alþýðubandalagi og Framsóknarflokki, að „sá garnli" verði áfram „ókrýndur foringi" og með hramm á stjórnveli. En mikil undiralda er nú í Alþýðubandalagi og til- burðir í þá átt að beina almannasjónum annað en að því innanflokks- vandamáli, sem tútnar nú út í háhitasvæði flokks- kröflunnar. Af umræöu- toppi í hyl- dýpisþögn Fyrir tveimur árum var Alþýðuflokkurinn „nýr á gömlum grunni“, á um- ræðutoppi almennings og fjölmiðla. Nú er hann kominn niður á flatlendið — í hlégjótur þagnar. Þá léku stormar um flokk- inn, er hann haslaðí sér völl á Stórhöfða líðandi stundar, en nú vaggar hann í lítillæti lygnunnar. Öllum er Ijóst, þó eng- um þyki umtalsvert, að forysta flokksins hefur ekki fylgt eftir því bram- bolti er einkenndi flokk- inn fyrir fáum misserum. Einkum og sér í lagi þykir formaður flokksins, Benedikt Gröndal, hafa verið hógvær og hlé- drægur í leiðtogastarfi, svo ekki sé harkalegar að orði komist. Eru því vangaveltur þar í sveit um hugsanlegt nýtt for- mannsefni. Þar er efstur á blaöi Kjartan Jóhanns- son, varaformaður flokk- sins. Einnig eru í umræð- unni Sighvatur Björg- vinsson, formaður þing- flokksins, Vilmundur Gylfason, sem óneitan- lega setti sinn svip á sviðsetningu flokksins fyrir kosningarnar 1978 og Jón Baldvin Hanni- balsson, ritstjóri Alþýðu- blaðsins. Hvern veg sem mál þróast eru varaformenn Alþýðubandalags og Al- þýðuflokks, Kjartan Ól- afsson og Kjartan Jó- hannsson, undir smásjá þeirra, sem rýna í hugs- anlega framþróun íslenzkra stjórnmála. Líkur benda þó til að Kjartan Alþýðuflokksins eigi greiðari leið en Kjart- an Alþýðubandalagsins aö flokkslegum vegtyll- um, þó báðir njóti hylli í sínum pólitísku heima- högum. Hinn síðari Kjart- aninn á e.t.v. eftir aö finna það enn og aftur, að þeim er hún verst (í raun) sem hún ann mest (í orði) — sú pólitíska lýö- hylli, sem lýtur í lægra haldi fyrir skálmöld per- sónulegs metnaðar með- göngumanna. Varanleg álklæðning á allt húsið A/klæðning er lausn á f jöldamörgum ^vandamálum sem upp koma, s.s. steypuskemmdum, hitatapi, leka o.fl. Fæst í mörgum litum, sem eru innbrenndir og þarf aldrei að mála. A/klæðning gerir meir en að borga sig, þegar til lengdar lætur. INNKAUP HE ÆGISGÖTU 7. REYKJAVlK - SlMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012. Verksmiðjusala Buxur denim, flaueli, kakí og flannel. Góö efni, fjölbreytt sniö, fallegir litir, gott verö. Úlpurogjakkar Margar stæröir og geröir. Gott verö. Gerið góö kaup í úrvalsvöru. Opid virka daga kl. 9—18. Föstudaga kl. 9—22. Laugardaga kl. 9—12. Skipholti 7. Sími 28720. r Konur Megrunar- og afslöppunarnudd Vil vekja sérstaka athygli á 10 tíma megrunarkúrn-' um. Megrunarnudd, partanudd og afslöppunarnudd. Nudd — sauna — mælingar — vigtun — matseðill Opið til kl. 10 öll kvöld. Bflastæði. Sími 40609. Nudd- og snyrtistofa Ástu Baldvinsdóttur, Hrauntungu 85, Kópavogi ★ 8 LITIR ★ SKJALAPOKAR ★ SKJALAMÖPPUR ★ TOPPLÖTUR: EIK-LAM-WENGE ★ NORSK GÆOAVARA E. TH. MATHIESEN H.F. DALSHRAUNI 5 —. HAFNARFIRÐI — SIMI 51888 Sumarbústaða- land óskast Óska eftir aö kaup gott sumarbústaöaland í nágrenni Reykjavíkur, innan 100 km. Tilboð sendist augl.deilL, Mbl. fyrir 16. marz merkt: „Land — 6382“. Ibúð óskast Óskum eftir aö leigja íbúö eöa herbergi fyrir reglusaman einstakling. Helzt þyrfti íbúöin aö vera í nágrenni viö Ármúla — þó ekki skilyrði. Góöri umgengni heitiö. Upplýsingar í síma 81585. HQLUVUððD Fánastengur Aukum viröingu fyrir íslenzka fánanum. Dragiö ís'enzka fánann aö hún. Viö höfum til afgreiöslu vandaöar fánastengur úr húöuöu áli, uppsetning er auöveld. Ólafur Kr. Sigurðsson HF. Tranavogi 1, sími 83499 og 83484.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.