Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980 27 Fastir liðir eins og venjulega hjá Val Kristján Ágústsson átti góðan leik með Val í gærkvöldi og skoraði 27 stig. ÞAÐ ER nú ljóst eftir sigur Váls yfir IS í Haga- skólanum í gærkvöldi að leikur Vals og UMFN ann- að kvöld verður uppgjörið um íslandsmeistaratitil- inn. Hvorugt liðanna hef- ur áður orðið íslands- meistari svo það er ljóst að nýtt nafn verður skráð á íslandsbikarinn í mótslok. Valsmenn unnu öruggan sigur 102:94 eftir að hafa haft yfir í hálfleik 56:39. Eins og sjá má á þessum - ís 102:94 tölum voru það stúdent- arnir sem unnu síðari hálf- leikinn og hefðu víst fæst- ir trúað því, sem horfðu á yfirburði Vals í fyrri hálf- leik. í fyrri hálfleik höfðu Valsmenn algera yfirburði. Það var aðeins á fyrstu mínútunum sem jafnræði var með liðunum en eftir það tóku Valsmenn leikinn í sínar hendur og náðu yfirburðastöðu. Trent Smock fékk þrjár villur á fyrstu fjórum mínútunum og þá fjórðu skömmu síðar og bjuggust menn því við þvi að hann fengi fljótt að yfirgefa völlinn með fimmtu vill- una. En svo fór þó ekki því fimmtu villuna fékk hann ekki fyrr en 19 sekúndur voru eftir af leiknum. En eðlilega gat hann ekki beitt sér sem skyldi í fyrri hálfleiknum. Valsmenn voru í miklu stuði í fyrri hálfleiknum og skoruðu grimmt, þótt hittnin utan af vellinum væri ekki upp á það bezta. En það bættu þeir upp með mjög skemmtilega útfærðum hraðaupphlaupum. Menn bjuggust við því að í seinni hálfleiknum myndu þeir halda áfram sama kraftinum en svo fór ekki. Smám saman söxuðu stúdentarnir á for- skot Valsmanna en sigur þeirra var samt aldrei í hættu. En það hlýtur auðvitað að vera umhugs- unarefni fyrir jafn gott lið og Valsliðið að tapa seinni hálfleikn- um með 9 stigum. Tim Dwyer var að vanda geysi- sterkur í liði Vals bæði í vörn og sókn, örugglega fjölhæfastur þeirra erlendu leikmanna, sem hér leika. Þá átti Kristján Agústsson einnig mjög góðan leik. Hann er einn af þeim fáu leikmönnum, sem alltaf virðist vera á réttum stað á réttum tíma. Ríkharður Hrafn- kelsson var og góður og þeir Torfi Magnússon og Gústaf Gústafsson tóku góða spretti. Trent Smock var að venju allt í öllu í liði stúdenta og hann skoraði meira en helminginn af stigum liðsins. En hann er líka mjög skotbráður og það vakti kátínu þegar einn félaga Smocks skaut misheppnuðu skoti í stað þess að gefa á Smock að kappinn kallaði: „Heyrðu vinur, heldur þú að ég sé á einhverjum heilsubótarhlaupum hérna fram völlinn." Einnig er ástæða til þess að geta frammi- stöðu Jóns Héðinssonar og Bjarna Gunnars Sveinssonar. Stig Vals: Tim Dwyer 30, Krist- ján Ágústsson 27, Ríkharður Hrafnkelsson 14, Gústaf Gústafs- son 8, Jón Steingrímsson 6, Jó- hannes Magnússon 6, Þórir Magn- ússon 6, Torfi Magnússon 5 stig. Stig ÍS: Trent Smock 45, Jón Héðinsson 13, Bjarni Gunnar Sveinsson 12, Ingi Stefánsson 7, Gunnar Thors 6, Atli Arason 5, Jón Óskarsson 4, Guðni Kolbeins- son 2 stig. Guðni skoraði síðustu körfu leiksins með miklum tilþrif- um á lokasekúndunni og fékk mikið klapp fyrir. Jón Otti og Eríkur Jóhannesson dæmdu leikinn og gerðu það vel þegar á heildina er litið. SS Einkunnagjölln ^ _________________—--------:----— Valur: Kristján Ágústsson 4, Ríkharður Hrafnkelsson 3. Jón Steingrímsson 2, Gústaf Gústaísson 2, Torfi Magnússon 2, Gústaf Gústafsson 2, Þórir Magnússon 1, Jóhannes Magnússon 1, Sigurður Hjörleifsson 1, Guðmundur Jóhannsson 1. IS: Jón Héðinsson 3, Bjarni Gunnar Sveinsson 3, Gunnar Thors 2, Ingi Stefánsson 2, Jón Óskarsson 1, Atli Arason 1, Guðni Koibeinsson 1. Jón Björgvinsson 1. 711 nviimtTiToðib Afar jöfn keppni á fiórildamótinu Staöan í úrvalsdeildinni STAÐAN 1 úrvalsdeildinni er þessi Símon Ólafsson Fram, 425 eftir leikina um helgina: Kristinn Jörundsson ÍR 404 UMFN — KR 100:83 Jón Sigurðsson KR 382 ÍR-Fram 120:94 Ted Bee UMFN 357 Valur — ÍS 102:94 Gunnar Þorvarðarson UMFN 336 Guðsteinn Ingimarsson UMFN 312 Valur 18 14 4 1623:1508 28 Marvin Jackson KR 286 UMFN 18 14 4 1529:1419 28 Kristján Ágústsson Val 282 KR 18 10 8 1474:1421 20 Þorvaldur Geirsson Fram 270 ÍR 18 10 8 1622:1622 20 Jón Héðinsson ÍS 237 ÍS 19 5 14 1628:1700 10 Eftirtaldir leikmenn hafa hlotið flest Fram 19 2 17 1483:1676 4 stig í stigagjöf blaðamanna Mbl: Jón Sigurðsson KR 63 Stigahæstu leikmenn mótsins eru: Kristinn Jörundsson ÍR 62 Trent Smock ÍR 637 Guðsteinn Ingimarsson UMFN 61 Tim Dwyer Val , 514 Símon ólafsson Fram 61 Mark Christiansen ÍR 463 Gunnar Þorvarðarson UMFN 59 Breiðablik Akranes og Stjarnan í einum hnapp Buttcrfly-borðtennismótið var haldið í íþróttahúsi Gerplu Kópa- vogi sunnudaginn 9. mars. í mótið voru skráðir 91 keppandi en 75 mættu til leiks. Keppni fór fram í fimm flokkum og urðu sigurvegarar i flokkunum þessir: Meistaraflokkur karla: 1. sæti Tómas Guðjónsson KR 2. sæti Stefán Konráðsson Víking 3. -4. sæti Hilmar Konráðs. Vík. Hjálmtýr Hafsteinsson KR Keppnin í flokknum var mjög jöfn og spennandi og þurfti í flest öllum leikjum oddalotu til að fá úrslit. Tómas og Stefán þurftu að leika tvo úrslitaleiki til að skera úr um úrslitin því keppendur máttu tapa tveimur leikjum til að falla úr keppni. Þegar að síðasta leiknum kom var Stefán taplaus, hann hafði unnið Tómas nokkru áður, Tómas sigraði í fyrri viður- eign þeirra i úrslitunum 2—1 eftir harðar og mjög vel leiknar lotur og í hreinum úrslitaleik sigraði hann 21—15 og 32—30. Meistaraflokkur kvenna: 1. sæti Ragnhildur Sig.d. UMSB 2. sæti Susan Zakarian Gerplu 3.-4. sæti Guðbj. Stefánsd. Fram Guðrún Einarsdóttir Gerplu I flokknum kepptu allar við allar og sigraði Ragnhildur alla keppinauta sína: 1. flokkur karla: 1. sæti Jóhannes Hauksson KR 2. sæti Hjörtur Jóhanns. UMFK 3. -4. sæti Guðm. Maríusson KR Þorfinnur Guðmunds. Víking Jóhannes og Hjörtur þurftu að leika tvo úrslitaleiki eins og Tóm- as og Stefán og eftir mjög jafna og spennandi keppni sigraði Jóhann- es. 1. flokkur kvenna: 1. sæti Sigrún Bjarnad. UMSB 2. sæti Sigrún Sverrisd. Víking 3. -4. sæti Helga Jóhannsd. ÍFR Guðbjörg Eiríksdóttir ÍFR í þessum flokki þurfti einnig tvo úrslitaleiki og í þeim sigraði Sigrún Bjarnadóttir nokkuð ör- ugglega. 2. flokkur karla: 1. sæti Björgvin Björgvinsson KR 2. sæti Jósef Gunnarsson Fram 3. -4. sæti Davíð Pálsson Örninn Árni Hannesson Örninn BREIÐABLIK telst nú næsta öruggur sigurvegari í 3. deild- inni í handknattleik, þótt ekki sé það alveg pottþétt, en Akranes og Stjarnan fylgja fast á eftir og kljást að líkindum um annað sætið og þar með réttinn til þess að lcika aukaleiki um sæti í 2. deild við næstneðsta liðið þar. Það verður því áreiðanlega fjör- ugt á Skaganum á föstudaginn í næstu viku, þegar Akranes og Stjarnan gera þar upp dæmið sín imilli. Úrslit í síðustu leikjum urðu þessi: Keflavík smalaði saman fjórum stigum, fyrst með sigri yfir Gróttu 19:17 (11:9) í báráttuleik, síðan með stórsigri yfir Selfossi 36:17, en báðir þessir leikir voru í Njarðvík. Óðinn náði jafntefli gegn Akra- nesi í Laugardalshöllinni, 16:16 (6:7), þar sem mistökin urðu ekki talin en Óðinsmenn seigluðust. Skagamönnum virðist ganga illa í Höllinni og hafa að auki sennilega lent á „vondri" lögregluvakt! En Óðinn mætir með nokkuð breyti- legt lið, eftir vöktum. Breiðablik sigraði Gróttu ör- ugglega á Seltjarnarnesi 24:18 (14:8), þótt Gróttumenn berðust af grimmd allan leikinn á enda. Eftir fyrstu 5 mínúturnar varð munur- inn aldrei minni en 4 mörk. Breiðablik á nú eftir leiki við Selfoss, Dalvík og Óðin, Akranes við Stjörnuna og Keflavík, Stjarn- an við Akranes, Gróttu og Dalvík. Staðan í 3. deild Breiðab. 11 9 1 1 286:210 19:3 Akranes 12 8 3 1 275:229 19:5 St jarnan 11 7 2 2 283:217 16:6 Óðinn 12 5 4 3 272:263 14:10 Keflav. 12 6 1 5 256:233 13:11 Grótta 12 3 1 8 262:294 7:17 Dalvík 10 2 0 8 209:257 4:16 Selfossl2 0 0 12 223:265 0:24 Víðavangshlaup Islands Viðavangshlaup fslands fer fram á Miklatúni í Reykjavík sunnudaginn 23. marz og hefst klukkan 14. Keppt verður i eftirtöldum flokkum: Stelpur fæddar 1958 og siðar; strákar fæddir 1958 og siðar; telpur fæddar 1966 og 1967; piltar fæddir 1%6 og 1967; sveinar og drengir fæddir 1%2 til 1%5; konur fæddar 1%5 og fyrr; og karlar fæddir 1%1 og fyrr. Þátttökugjald fyrir hvern keppenda í karla og kvennaflokki er kr. 300, en i hinum flokkunum kr. 150. Keppt verður i fjögurra og tiu manna sveitum i öllum flokkum. Þátttökutilkynningar ásamt þátttökugjöldum þurfa að hafa borizt FRÍ, pósthólf 1099, í síðasta lagi 18. marz. ‘mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.