Morgunblaðið - 21.10.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1980
45
.ii
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
InYiMtaeYtiM'un
nokkrum manni? Það fer líka lítið
fyrir hinni sósíalísku menningu.
Um aldamót var Rússland korn-
forðabúr Evrópu, og Austur-
Evrópa brauðfæddi Vesturlönd, en
núna þurfa þessi lönd mat frá
öðrum. Sósíalistarnir hér í vestr-
inu, sem berjast fyrir þessari
helstefnu, hvar ætla þeir að fá
mat handa hinum sveltandi heimi,
þegar þeir eru búnir að ganga af
hinu frjálsa hagkerfi dauðu? Þeg-
ar verið er að safna handa hinum
hungruðu, þá eiga sósíalistarnir
að gefa eins og við, en þeir eiga
líka að fyrirverða sig og láta sem
minnst á sér bera.“
í rólynd-
islegum
tón
B.J. skrifar:
„Ég get vart orða bundist yfir
ritdómi Jóhanns Hjálmarssonar
um bók Stefáns Unnsteinssonar
Stattu þig drengur sem birtist í
Morgunblaðinu þann 7. október
síðastliðinn. Jóhann fílósóferar
vítt og breitt um „glæpamanninn"
og „samfélagið" og að meiningar
séu skiptar um þetta og hitt.
Greinin er skrifuð í rólyndislegum
tón eins reyndar allt það sem
Jóhann skrifar. Og ekki brestur
Jóhann þolinmæðina og ekki
fatast honum rólyndið og stilling-
in þegar hann talar um pynt-
ingarnar í Síðumúlafangelsinu
sem hann kallar „yfirheyrslur og
þvingunaraðgerðir". Hann kemst
að þeirri niðurstöðu að sögurnar
um hrottaskapinn og pyntingarn-
ar — því það er það sem þessar
„yfirheyrslur og þvingunaraðgerð-
ir“ heita réttu nafni — „geta ekki
verið allar lognar".
Með allra skilnings-
ríkustu mönnum
Mér blöskrar hins vegar full-
komlega umburðarlyndi Jóhanns,
þegar hann segir í framhaldi af
þessu: „Ef til vill töldu þeir (þ.e.
fangaverðirnir) sig vera að gera
skyldu sina til að knýja fram
játningu.“ Að halda mönnum í
fullkominni einangrun í tvö ár, að
berja þá sundur og saman, að láta
skært ljós loga allan sólarhring-
inn í klefa þeirra, að halda þeim
vakandi á næturnar, að dýfa
höfðinu á þeim niður í vask, láta
þá fara nakta á salernið og svo
framvegis og svo framvegis. „Ef
til vill töldu þeir sig vera að gera
skyldu sína til að knýja fram
játningu.“ Jóhann Hjálmarsson er
tvímælalaust með allra skilnings-
ríkustu mönnum."
Þessir hringdu . . .
Betri tíma
fyrir Bítlana
R.N. hringdi og kvartaði yfir
óheppilegum tíma sem valinn
hefði verið fyrir þættina um
Bítlana, þ.e. seint á laugardags-
kvöldum. , — Ég er af Bítla-
kynslóðinni svokölluðu, en er eins
og líklega flestir af þeirri kynslóð
komin með heimili og börn. Endi-
lega þurfti að setja þessa þætti á
laugardagskvöldin, þegar verið er
að sýna það fáa sem bitastætt er i
dagskrá sjónvarpsins. Þegar mað-
ur er bundinn yfir börnum er
maður þakklátur að mega eiga von
á vinum sínum í heimsókn og ég
var búin að hlakka til að heyra
aftur í Bítlunum og rifja upp
gamla og góða daga. Ég mæli með
því að fundinn verði betri tími
fyrir Bítlana og þættir þessir
verði fluttir yfir á fimmtudaga —
ekki síst með tilliti til bítlakyn-
slóðarinnar sem nú situr heima og
gætir bús og barna.
Má treysta því?
Þ.P.H. hringdi og sagðist vilja
benda á hvimleiða áráttu frétta-
manna sem færu á vettvang þar
sem stóratburðir hefðu orðið og
ættu viðtöl við staðarmenn og
sérfræðinga: — Þeir eru ekkert að
leyna því þessir drengir, að þeir
vilja meira af gosi, meiri hættu og
meira af öllu. Þeir verða bókstaf-
lega hnuggnir við, ef jarðfræðing-
ur segir þeim að farið sé að draga
úr gosinu eða skjálftunum, land-
risinu eða hvað það nú er hverju
sinni. Það liggur við að spurt sé:
En er ekki einhver von um að
þetta verði svolítið krassandi?
Getur ekki verið að mannvirki og
fólk sé í hættu? Er örlítil von? Má
treysta því? Nú, er að draga úr
gosinu? Er engin hætta á ferðum?
(Æ,æ).
Auðvitað er það ekki meiningin
hjá drengjunum eða þeirra innsta
þrá að eitthvað voveiflegt dynji
yfir. Þetta er bara einhver barna-
legur ákafi eða fréttafiðringur
sem þeir þurfa að hafa betri
stjórn á, finnst mér. Þetta er
svolítið neyðarlegt stundum.
fyrir 50 drum
„GUNNAR B. Björnsson ritstjóri
hefur skrifað nokkrar blaða-
greinar um íslandsförina i sumar
er ieið. í blað sitt „Minneota
Mascot“. Segir hann m.a. frá því
að fjöldi vina sinna hafi spurt
sig, er heim kom, hvort hann hafi
farið með járnbrautariest til Is-
iands, hvort íslendingar séu
nokkuð svipaðir öðrum mönnum
og hvort þeir kunni nokkuð
annað tungumái en sitt eigið
mál...“
„BÚIST er við að nýi barnaskól-
inn (Austurbæjarskóiinn) taki til
starfa um næstu mánaðamót.
Hafði borgarstjóri skýrt frá því á
fundi í bæjarstjórninni i gær-
kvöldi. Það stendur aðeins á
hitaleiðslunni eins og stend-
ur...“
Gjörbylting
á sviði alfræðiútgáfn,
- sú íSrsta í 200ár!
Encyclopædia Britannica 15.útgáfa
Lykill þinn aðframtíðinni!
Kynnist þessari gjörbreyttu
útgáfu þekktasta alfræði-
safns í heimi.
Brítannica 3
Þretalt altræðisafn i þrjátiu bindum
Biðjið um upplýsingabækling á
islenzku.
Hækkun á næstu sendingu verð-
ur u.þ.b. 60.000. Örfá sett fyrir-
liggjandi á gamla verðinu.
Orðabókaútgáfan
Auðbrekku 15,
200 Kópavogi, simi 40887
Nýja línan
frá HAFA
Nýtísku HAFA baöinnréttingar í baöherbergiö
yöar.
Mjög fjölbreytt úrval. Afgreiöum samdægurs.
VALD. POULSEN!
SUÐURLANDSBRAUT10
SÍMI 86499
Fastar
áætlunarferðir.
ANTWERPEN
Umboðsmenn:
Ruys & Co.
Britselei 23-25
B-2000 ANTWERP
Skeyti: Ruysco
Telex: 72255 Ruysag b
Sími: 031/ 32.18.80
SKIPADEILD SAMBANDSINS
Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík
Simi 28200 Telex 2101