Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1981 Hagkaup er eitt stærsta verzlunaríyrirtæki iandsins. Ilefur verið að færa út kví- arnar og stækka frá því verzlunin opnaði 1959 í 150 ferm. húsnæði í hloðu ok fjósi i Eskihiíð ok þar til nú koma 25 þúsund viðskiptavinir vikule^a í verzlanir þess, sem með kjötvinnslu og sauma- stofu eru orðið á 10. þús. ferm (fólíf eti. <)g þar starfa 374 manns. í heilu eða hálfu starfi. En tolur segja ekki alla söKuna. I>etta fyrir- tæki hefur Uálmi Jónsson verið að móta ok byKKja upp með nýjum aðferðum, sem áhrif hafa haft út í þjóðfélaK- ið. í Reykjavík ox úti á landshyKKÖinni. Ok Kera enn. Nýlejfa hefur IlaKkaup opnað nýja stórverzlun á Akureyri ok á na'stu tveimur árum er ætlunin að opna nýjar verzl- anir á þremur stöðum, fyrir Suðurnesin á Njarðvíkur- landi við afleggjarann upp á KeflavíkurfluKvöll. í Hafnar- firði <>k í Vesturbænum í Ueykjavík. Pálmi í Hatikaupi. Þá fengum við stóra vinninginn Þejfar til umfjöllunar eru fyrir- tæki, sem einstaklingar hafa bygKt upp frá grunni og markað hafa spor í okkar þjóðfélagi, þá fellur saga Hagkaups vel að efni páskablaðsins. Því leit blaðamað- ur Mbl. inn á skrifstofuna, sem er á palli eða millihæð í öðrum enda verzlunarinnar í Skeifunni. Þar sitja hvor við sitt skrifborðið í herbergi við enda gangsins, fram- kvæmdastjórarnir tveir, sem sjá um daglegan rekstur fyrirtækis- ins, þeir Magnús Ólafsson og Sigurður Gísli Pálmason. Þar hef- ur líka aðsetur Pálmi Jónsson, sem. er stjórnarformaður fyrir- tækisins, og hefur ekkert skrif- borð, hvorki þar né annars staðar. Hefur ekki þótt nauðsynlegt að fjárfesta í því. Einfalt fundarborð með plastplötu þarna inni gefur þó hugmynd um hvernig stjórnun fyrirtækisins er háttað. Þar hitt- ast í hverri viku á fundi stjórnar- formaðurinn Pálmi, fram- kvæmdastjórarnir tveir og deild- arstjórar allra deilda. En að sjálfsögðu hafa þrír þeir fyrst- nefndu daglegan samgang þarna í skrifstofunni. Fyrirtækinu er skipt í fimm megindeildir, sem sjá um innkaup matvara, innkaup á annarri vöru, sölusvið, skrifstofu- og bókhaldsdeild og verksmiðjur. Skriffinnskan virðist ekkii ríða þarna húsum. Annað af tveimur undrum, sem breski ráðgjafinn Stanley Carter sá, þegar hann kom fyrst til Hagkaups var, að í svo stóru fyrirtæki var aðeins ein vélritunarstúlka hálfan daginn. Nú kemur í Ijós, að þetta er rétt og að stúlkan er enn í hálfu starfi. Innkaupamennirnir eru orðnir um 20 talsins og hafa aðsetur í nánd við vörulager í kjallaranum. Þeir sjá um innkaupin hérlendis og erlendis. Fara látlaust utan í innkaupaferðir, allt til Kína, þótt Hagkaup kaupi að langmestu leyti inn gegnum innkaupastöð C&A, sem hefur aðalaðsetur í Brússel, en skrifstofur víða um heim, og fær tilboð alls staðar að úr heiminum. Hafa innkaupamenn- irnir frjálsar hendur um innkaup- in innan ákveðins kvóta í verði og magni. Stórmarkaðurinn sama «g fjöldaframloiðsla í iðnaði En hvernig byrjaði þetta nú allt saman? Upphafsmaðurinn, Pálmi Jónsson, er lögfræðingur að mennt, upprunninn norður í Skagafirði, sonur Sigurlínu Björnsdóttur og Jóns Jónssonar, bónda á Hofi á Höfðaströnd, sem á sínum tíma rak eitt af myndar- legustu búum í því héraði og var mikill atkvæðamaður og fulltrúi sveitunga sinna í opinberum mál- um. Að loknu lögfræðiprófi hafði Pálmi þreifað fyrir sér við ýmiss konar rekstur, þegar hann á árinu 1959 kynntist hinum svokölluðu „discount“-verzlunum í Bandaríkj- unum, sem leggja einkum áherslu á mikla veltu og litla álagningu. Þar í álfu var þá ofarlega á baugi að fá í viðskiptum sem mesta veltu og ná með því móti niður verði. Pálmi fékk áhuga á þessu, sá að stórmarkaðurinn í verzlun er i rauninni það, sem fjöldafram- leiðslan er í iðnaðinum. Miðar að því að halda niðri verði með hraðri umsetningu og samkeppni. Afleiðingin var sú, að fyrirtækið Hagkaup var stofnað í september 1959 og hóf verzlun í gömlu hlöðunni og fjósinu hans Geirs í Eskihlíð, þegar byggðin var að ýta búskap hans út úr borginni. Fyrstu árin var verzlað með fatn- að, bæði í formi póstverzlunar og smásölu. Póstverzlunin, sem fljótlega hófst, veitti þjónustu út á landsbyggðina og er kafli út af fyrir sig. Gefnir voru árlega út verðlistar og sendir til áskrifenda, þar til fyrir fimm árum, að þeir lögðust niður. Fólk var fljótt að taka við þessari nýjung, enda landsbyggðin víða svelt af vörum og vöruúrvali. En það hefur reynzt erfiðleikum bundið að reka saman verzlun og póstverzlun. Aðdrátt- arleiðir hér eru svo langar og erfitt að tímasetja. Varan kannski ókomin eða útgengin þegar til á að taka samkvæmt pöntunarlista. Þótt pöntunarlistar hafi ekki verið sendir út undanfarin ár, þá heldur fólk mikið áfram að panta vörur í Hagkaupi og fá þær sendar. Ekki hefur Hagkaup þó hætt alfarið við póstverzlunarhugmyndina, tekur hana e.t.v. upp aftur í breyttu formi og í samræmi við fyrri reynslu. Með því að samræma meira úrvalið og þrengja það, yrði sennilega betur hægt að tryggja að varan sé til, að því er Hag- kaupsmenn telja. Árið 1964 setti Hagkaup á stofn saumastofu í Bolholti 4, þar sem voru saumaðar ýmsar vörur fyrir verzlunina. Á sama stað var einn- ig fluttur vörulager og póstverzlun fyrirtækisins. Og um svipað leyti var farið að senda einfaldan fatn- að í heimasaum. Heimasaumur fyrir verzlunina var allmikill um skeið, en nú er búið að endurskipu- leggja saumaskap svo mikið með aukinni tækni, að slíkt á orðið erfitt uppdráttar í samkeppninni, enda gæðaeftirlit mun erfiðara. Og þróunin hefur orðið sú, að Hagkaup rekur nú sjálft vel búna saumastofu á 1400 ferm. gólffleti á Höfðabakka 9, þar sem vinna 40—50 manns og stefnt er að því að geta t.d. saumað 50 buxur á dag. Fluttist fyrst í Skeifuna 1972 en 1975 í Höfðabakkahúsnæðið Eins og á öðrum stöðum, þar sem störf eru leyst af hendi af konum, hafa margar um börn að sjá. Hagkaup hefur því komið upp á staðnum daggæslu fyrir 20 börn. Saumastúlkurnar koma með börn- in um leið og þær koma í vinnu kl. 8, og taka þau með sér heim. Greitt er sama verð og á dagvist- unarstofnunum borgarinnar, en engin niðurgreiðsla kemur þarna til frá opinberum aðilum, svo að með barnaheimil nu leggur fyrir- tækið um 15 milljónir á ári, þegar húsnæðið er meðtalið. Umsvif verzlunarinnar urðu smám saman meiri og var ný fataverzlun sett á laggirnar í Lækjargötu 4 árið 1964, sem hafði á boðstólum vörur fyrir fólk á öllum aldri. Þessi verzlun flutti í Texti: Elín Pálmadóttir Myndir: Ragnar Axelsson marz 1975 í stærra og rúmbetra húsnæði í Kjörgarði á Laugavegi 59, en áfram er rekin verzlun í Lækjargötu með takmarkaðra vöruvali. Nú kom matvaran til sögunnar. Árið 1963 var byrjað með matvöru á Miklatorgi. Gátu viðskiptavinir fengið viðskiptakort, sem veitti 10% afslátt af öllum vörum í fyrstu, en síðar eingöngu á mat- vöru. Viðskiptakortin voru lögð niður um áramótin 1974—’75 og voru þá endurgreidd. En um líkt leyti og matvöruverzlun hófst, var ráðist í að opna verzlun á Akur- eyri, sem hafði á boðstólum fatnað og þrönga línu í matvöru. Sú verzlun var flutt í stærra húsnæði í Tryggvagötu í júní 1975, og loks í eigin húsnæði sumarið 1980 að Norðurgötu 62. Olli það nokkru fjaðrafoki og blaðaskrifum, eins og raunar í fyrstu ýmislegt nýtt, sem Hagkaup hefur tekið upp, svo sem lága sykurverðið á sínum tíma eða upphaf bóksölu í stór- markaði. En Hagkaupsmenn telja ekki endilega farsælast að feta troðnar slóðir. Loks má geta þess, að Vestmannaeyingar fengu sitt Hagkaup 1969 og var verzlunin starfrækt fram að eldgosinu 1973, og verzlanir voru reknar á Sauð- árkróki og Akranesi frá 1968 til 1971. Um 1970 var starfsemi verzlun- arinnar við Miklatorg farin að aukast svo mikið, að plássleysi tók að segja til sín. Þá var leitað stærra húsnæðis og flutt í um 600 ferm. rými að Skeifunni 15. Síð- asta áratuginn hefur orðið stöðug aukning á starfseminni og viðbót- arhúsnæði verið tekið í notkun um

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.