Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1981 17 Ilann hor sig kunnáttusamlona að þossi ungi rnadur. onda danskur fjósameistari. en þeir hafa margir verið í Ármóti. bása í stað þess að vera með mjaltakerfið um allt fjós. En það er þetta með dönsku fjósamennina, það er nú kannski besta búskaparbragðið, því að þessir menn hafa reynst mér afskaplega vel. Kúabúskapur í stórum stíl verður náttúrulega ekki rekinn nema með góðum mönnum, sem kunna vel til verka, en hér er helst ekki hægt að fá nokkurn mann nema á hlaupum. Vissulega höfum við stundum haft ágæta kaupamenn íslenska. Þessir dönsku menn, sem ég hef haft, hafa hins vegar verið lærðir fjósa- meistarar, ef svo má að orði komast, enda starfinu sýndur meiri sómi í Danmörku en hér hefur tíðkast." Og hver er svo bústofninn hjá þér núna? „Það eru nú á annað hundrað gripir í fjósi ef allt er talið með, kvígur og kálfar, en mjólkandi kýr eru um 90 og hafa stundum verið fleiri. Kvótakerfið og fóðurbætis- skatturinn setja hins vegar bú stærðinni sín takmörk eins og nú er ástatt og ekki annað fyrirsjáan- legt en að svo verði á næstu árum. Auk kúnna er ég svo með töluvert af hrossum og aðrar skepnur ekki, losaði mig við svínin og kindurnar fyrir löngu. í vetur hefur hrossunum verið gefið dag- lega allar götur síðan í desember, þótt í venjulegu árferði sé hér annars næg beit allan ársins hring. Það er þó eins með hrossin og aðrar búgreinar, að mjög hefur dregið úr útflutningnum, bæði á kjöti og lifandi skepnum, svo að það kemur sér, að hún Bergþóra dóttir mín er mikil hestamann- eskja, temur og selur svona annað veifið." En Anna, hvernig fannst þér að bregða búskapnum í bænum og byrja að basla hér austur í sveitum, eins og líka aðkoman var hér í byrjun? -Ég var ekkert bangin við að fara útí það,“ segir Anna, „enda Jósep svo mikill áróðursmaður og duglegur að gylla það fyrir mér. Ég hafði þó enga reynslu af búskap, ólst upp í Garði suður þar sem hlutirnir snúast frekar um fisk en fénað, og hafði eiginlega aldrei nærri skepnum komið. Þó voru sumir með einhvern smá- búskap í Garðinum og við krakk- arnir vorum stundum að sniglast þar í kring, en ég tel það ekki. Ég var líka svo forfrömuð á tímabili að vera orðin hlaðfreyja hjá Loft- leiðum á Keflavíkurflugvelli og lét mig dreyma um allt annað en búskaparbasl austur í sveitum, sem ég vissi varla haus né sporð á.“ Nú hef ég heyrt, að þetta hafi verið mjög erfitt hjá ykkur fyrstu árin og ekki hvað síst fyrir þig, Anna, meðan þú varst ein að mestu. Reyndar segja sumir, að þú hafir varla verið einhöm þegar á þurfti að halda. „Það er nú kannski orðum aukið, en hitt var það, að það var annaðhvort að duga eða drepast. Það, sem mér þótti þó verst við einveruna í fyrstu, var myrk- hræðslan. Ég var nefnilega myrk- fælin áður en ég kom hingað austur, en það rjátlaðist nú fljótt af mér. Nei, ég hef aldrei séð eftir þvi að fara í sveitina og hvað ætli maður hefði svo sem haft það betra annars staðar. Eitt vil ég þó nefna, sem ég tel hvað mesta ókostinn við að búa í sveit, en það er hvað bændafólk er bundið. Það getur varla heitið að hjón geti farið að heiman samtímis lengur en dagstund." Nú ertu kominn í tölu stór- bænda, Jósep, á tiltölulega skömmum tíma. Hyggstu láta hér staðar numið eða ertu með eitt- hvað á prjónunum? „Ja, hvað skal segja. í fyrstu höfðu margir ekki mikla trú á fyrirtækinu, töldu okkur hálf- gerða skýjaglópa og kannski ekki nema von. Margir byrja búskap en missa svo úthaldið og gefast upp, en þetta hefur þó allt blessast vel hjá okkur. Landbúnaðurinn á hins vegar við erfiðleika að etja þessa stundina eins og aðrar atvinnu- greinar og svigrúmið þar af leið- andi ekki mikið. Þess vegna hef ég stundum verið að velta fyrir mér nýju búgreinunum svokölluðu, loð- dýrarækt og fiskirækt, en þær hugmyndir hafa svona lifnað og dáið jöfnum höndum. Ég er þó fyrst og fremst kúa- bóndi og hef því mestan áhuga á því, sem það varðar. Við erum að fá okkar fyrstu holdakálfana núna, út af Hríseyjarkyninu svo- nefnda. Það hefur verið í undir- búningi um nokkurt skeið og náttúrulega eru ýmsar vonir við það bundnar. Mér hefur þó fundist ganga alltof hægt með þessar kynbætur og held það sé einhver gömul hræðsla, sem valdi því, ótti við þau mistök sem okkur urðu á fyrir mörgum áratugum, þegar þekkingu manna og aðstæðum var mjög ábótavant. Nú á dögum horfir þetta allt örðuvísi við, sóttvarnir tiltölulega fullkomnar og samgöngur og við- skipti milli þjóða, bæði lögleg og ólögleg, með þeim hætti, að okkur stafar hvað minnst hætta af sæðisflutningum, sem fullt eftirlit er haft með.“ Að lokum, Jósep, ein sígild spurning. Hvernig er afkoma bænda? „Það hefur verið sagt um bænd- ur að þeir kunni að barma sér og berja lóminn og afkoma þeirra er enda mjög misjöfn, hefur alltaf verið svo, búin misstór, bústofninn ólíkur og aðstæður svo misjafnar sem mest má verða. Hvað kúabú- skapinn snertir þá held ég að það megi bjargast sæmilega við hann ef menn skulda ekki mikið, eru ekki ofurseldir þeim lánakjörum, sem nú tíðkast og eru að gera ungu fólki ókleift að byrja búskap. Okkur hefur liðið vel hér á Ármóti þennan tíma og við erum bjartsýn á framtíðina. Auðvitað hefur þetta ekki verið útlátalaust, einkum hvað vinnuálagið snertir, en það væri nú til lítils að lifa lífinu, ef ekkert þyrfti fyrir því að hafa. — Sv. Vorsýning Mynd- listarskólans Það hefur orðið árviss við- burður í menningarlífi höfuð- borgarinnar, að nemendur Myndlistarskóla Reykjavíkur sýni verk sín á Dymbilviku. Þetta er ágætur siður og undir- ritaður veit ekki annað en að sýningarnar séu vel sóttar af- almenningi og að framtakið njóti þannig drjúgra vinsælda. Allir vita, sem með málum hafa fylgst, að skólinn var lengstum til húsa í Ásmundarsal en sl. þrjú ár hefur hann haft inni í rúmgóðum húsakynnum að Laugavegi 118. Hlutverk skólans er að annast fullorðinsfræðslu og undirbúa nemendur til fram- Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON haldsnáms auk þess sem barna- og unglingadeildir skólans njóta mikilla vinsælda. Skólinn er af hæfilegri stærð sem myndlistarskóli er gegnir þessu hlutverki en tækjakostur er fyrir sumt af skornum skammti. Undarlegt til þess að vita, að á meðan hver skólinn af öðrum er byggður vítt og breitt um lands- byggðina og fylltur af hvers konar hjálpargögnum skuli myndlistarskólar landsins allir sem einn búa við hinn frumleg- asta húsa- og tækjakost. Máski fer svo að skólinn er hér er til umræðu missi húsakynni sín í náinni framtíð auk þess sem Myndlista- og handíðaskóli ís- lands býr við algjört fjársvelti, lélegan tækjakost og fullkom- lega ófullnægjandi húsakost og á hann þó að heita þakið á allri myndlistarfræðslu í landinu. Öðruvísi fara menn vissulega að úti í heimi þar sem skilningur á þessum málum er á hærra plani. — Einhverjir mundu vilja halda því fram hér, að einn skóli sé feikinóg á höfuðborgarsvæðinu en það er alrangt þar sem mikilvægt er að engin einokun komist á um myndlistarfræðslu og sérskoðanir fái ráðið ferðinni. Hér er það víðsýnið er gildir öllu öðru framar. Árlega þarf að árétta þetta og hamra á þessu en árangur er jafnan minni en vonir standa til. — Það, sem öðru fremur vakti athygli mína á þessari sýningu að öðru ólöstuðu voru dúkrist- urnar, sem eru mjög vel gerðar og er auðséð að kennarinn hefur ríka tilfinningu fyrir efniviðin- um og hæfileikana til að miðla þeim til annarra. Annað á sýn- ingunni stendur fyrir sínu svo sem á fyrri árum. Það er tilefni til að hvetja sem flesta að skoða sýninguna því að auðséð er ánægja þeirra er líta þar inn. Sýningin stendur einungis yfir páskahelgina og verður ekki framlengt. Flugleiðir flytja rúmlega 1.000 far- þega til ísaf jarðar um páskana fsaíirði 10. april. FLUGLEIÐIR áætla að flytja um 1.150 manns til ísafjarðar á skíðavikuna um páskana. að söKn Jó- hanns Guðmundssonar. af- greiðslustjóra Flusleiða á IsafjarðarfluKvelli. Aukaferðir verða alla daga frá föstudegi 10. apríl til og með fimmtudeginum, skýrdegi, 16. Mikið hefur þegar verið bókað í þessi flug, en það veldur þó Ólafsvik: Sæmilegur afli netabáta Olalsvik lt. april. SÆMILEGUR afli hefur verið hjá netabátunum núna síðustu dagana fyrir páskahlé og var besti afla- dajfur vertíðarinnar í gær, en þá var algengur afli 8 til 15 lestir á bát og upp í 22. Sýnt er þó að vertíðin verður í allra slakasta lagi. Togarinn Lárus Sveinsson land- aði í gær 105 lestum af þorski, en tæpri viku áður hafði hann landað 140 lestum. Klakkur VE landar hér í dag um 170 lestum, en hann landar hér vegna mikils afla syðra. Nú eru bátarnir að koma inn hver af öðrum með netin innanborðs vegna páskahlésins. Helgi Flugleiðafólki áhyggjum hvað illa er mætt, þótt fólk hafi pantað sæti. Til dæmis var fyrsta vélin á föstudegi að koma þegar viðtalið var tekið, í þá vél var biðlisti í Reykjavík, en flugvélin tekur 48 farþega. Með henni komu aðeins 15 farþegar. Slíkir viðskiptahættir hljóta að teljast algjörlega óvið- unandi og útilokað fyrir nokkuð félag að halda uppi þjónustu á þeim grundvelli, að fólk panti far og hætti svo við að fara, eða taki sér far með öðrum flugfélögum án þess að afpanta. Flugleiðir hafa svo mikinn við- búnað eftir páskana til að koma fólki heim aftur. Þannig verða til dæmis ferðir á annan í páskum og 6 ferðir á þriðjudag og er reiknað með að 56 sæta vél félagsins verði þar á meðal. Sumaráætlun Flugleiða tekur gildi 1. maí næstkomandi, þá verða 2 flug á dag alla daga og 3 flug suma dagana. Það er svipaður ferðafjöldi og á síðasta sumri, en mikil aukning verður í fluginu á milli Isafjarðar og Akureyrar, en þá verða 9 vikulegar ferðir og verður flogið með nýrri Mitshu- bitchi-skrúfuþotu Flugfélags Norðurlands. Úlfar. Ferðir ferðafélaganna FERÐAFÉLÖGIN, Ferðafélag íslands «g Útivist skipuleggja fjölmargar ferðir um páskana. ba>ði stuttar og langar. í ferðir Ferðafélagsins verður lagt upp frá Umfcrðamiðstoðinni austan verðri. en að vestanverðu í ferðir Útivistar. í dagsferðir Ferðafélagsins verður alltaf lagt upp klukkan 13.00. en hjá Utivist er farið klukkan 13.00, nema á páskadag. þegar lagt verður upp kl. 11.00. Skírdajíur Ferðafélag Islands verður með tvær ferðir, aðrá á Vífilfell og hina í Bláfjöll, en þar verður gengið um á skíðum. Hjá Útivist verður stutt gönguferð um Foss- vog og Öskjuhlíð. Föstudajíurinn lanjíi Hjá Ferðafélagi Islands verð- ur gengið um Gálgahraun og Álftanes, en hjá Útivist verður gengið upp með Elliðaám. Laujíardajíur Ferðafélag Islands verður með ferð um Keilisnes og Staðarborg, en Útivist verður með skíða- göngu og gönguferð um Hellis- heiði. PáskadaRur Ferðafélag íslands verður með gönguferð með Elliðaám, en Úti- vist verður með ferð um Krækl- ingafjöru eða Brekkukamb. Annar páskadagur Farið verður í Húsafell á vegum Ferðafélags íslands, en hjá Útivist verður boðið upp á gönguferð á Esju og fjörugöngu á Kjalarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.