Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1981 15 Jakob P. Jóhannsson: Kæru lands- menn Ég er þeirrar skoðunar að þegar tveir eða fleiri keppa að ákveðnu markmiði, þá beri að leggja það til grundvallar þátttöku þeirra í slíkri keppni, að aðilarnir séu jafn réttháir gagnvart dómurum sín- um, þannig að þeir kostir sem þeir kunna að hampa sér til almanna hyllis séu a.m.k. að jöfnu lögvarð- ir. Ég á við það, að einhver einn geti ekki í skjóli sérstöðu sinnar að lögum, haft á oddi i allri auglýsingastarfsemi sinni þann kost er allir keppinautar vildu gjarnan hafa en geta ekki vegna þess að þeim er ekki gert jafn hátt undir höfði. Tilefni þessa bréfs eru látlausar auglýsingar Seðlabanka Islands þar sem hampað er sérsleginni skrautmynt sem kjörinni tækifær- isgjöf og ríkisvaldsagnið kórónað með hvatningu til kaupa skulda- bréfa sem hvorki eru framtals- né skattskyld. Það kann að vera allt gott um þetta að segja svo langt sem það nær. Lúti hver sinni dómgreind. Hafið þið, góðir landar, tekið eftir því að nú liggur fyrir ykkur umsókn um tilvist fyrirtækis, sem auka mun þjóðarhag. Hvatamenn að þessari atvinnuuppbyggingu geta því miður ekki skreytt um- sóknareyðublöðin með: „Ilvorki framtals- né skattskyld“, því þarna er þessum aðilum mismun- að. Þeir geta þó réttilega beitt tækifærisgjöfinni sér til vegsemd- ar og það ekki af litlu tilefni. Tvöhundruð og fimmtíu króna (250) hlutabréf til ungu kynslóðar- innar, s.s. fermingarbarna, er ekki aðeins varanleg arðbær eign þeirra er fram í sækir, heldur gjöf sem veitir þeim, þegar á unga aldri, hlutdeild í að tryggja at- vinnuöryggi sitt í framtíðinni. „Á oddinn er sett frelsi einstaklings- ins til athafna stutt af eðlishvöt þjóðar að sjá sjálfri sér farborða. ísland er háð erlendum fyrir- tækjum hvað varðar steypustyrkt- arjárn, algjörlega. Þörfin verður brýnni og brýnni, því ísland er í örum vexti og uppbygging mikil. Um landið vítt og breitt, safnast alls kyns brotajárn, ósamboðið fegurð landsins og landsmönnum öllum til mikilla leiðinda. Já, þetta er hráefnið sem nota á í framleiðsluna — framleiðsluna á steypujárninu sem við kaupum fyrir gjaldeyri af útlendingum. Þá peninga getum við sparað, eða notað í aðra hluti sem við erum ekki færir um að framleiða sjálfir. Breytum óþurft í þurft um leið og við gerum allsherjar hrein- gerningu til lands og sjávar á Islandi. Kaupum hlutabréf í Stál- félaginu hf. — hlutafélagi lands- manna — „Þjóðarhag hf.“. Á fyrirtækinu geta eitthundrað (100) fjölskyldur byggt afkomu sína. Er það ekki þjóðarhagur? Jakob P. Jóhannsson MYNDAMÓT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRETI • SÍMAR: 17152- 17355 , Páska.- s temmnmg í Brauðbæ Opiö í dag skírdag kl. 11—22. Lokað föstudagirm langa. Laugardag, opiö kl. 9—23. Páskadag lokaö. 2. í páskum, opiö kl. 11—22. PáskamatseÖill Skírdagur 16. apríl Blómkálssúpa Heilsteiktur aligrísahryggur með sósu „Charcutiere" framborinn með broccoli, gljáöum gulrótum og kartöflum „Risso- les. “ Dessert: Quenelles Cherry Verd adeins 78.00 Páskamatseðill 2. í páskum 20. apríl Aspargussúpa Hamborgarhryggur með sykurbrúnuð- um kartöflum, rauðkáli, blönduöu grænmeti og rauövínslagaöri sósu „ Bordelaise". Desert: „Quenlles Diplomat" Verd aöeins 78.00 Sérstakur barnamatseðill 11 ára og yngri Verö kr. 7.00 og beztu börnin, sem klára matinn sinn fá páskaegg í verðlaun. & pA Heimsókn með fjölskylduna í Brauðbæ svíkur engan. Brauðbær Veitingahús V/ÓÐINSTORG sími 20490. Viö óskum öllum vinum okkar gleöilegra páska. <á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.