Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIf*. FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1981 aðarforkólfa á búrekstri þeirra bræðra. Kónuar í sínu ríki En hvers vegna fara menn út í atvinnurekstur af þessu tagi? Af hverju að leggja það á sig að hafa sífelldar áhyggjur út af rekstrin- um, hefði ekki verið betra að hafa hestana hjá Fáki og vinna sjálfir í Flugturninum? „Jú, það kann að vera, alla vega værum við frjálsari væri svo,“ segir Gunnar. „En ætli við höfum ekki farið út í þetta af þeirri einföidu ástæðu að Islendingar vilja gjarna vera kóngar í sínu ríki, án þess að þurfa sífellt að sitja og standa samkvæmt óskum og fyrirskipunum annarra. Sál- fræðingar geta ef til vill svarað þessu, en þetta er ævintýra- mennska, og ég sé ekki eftir að hafa farið þessa leið. Áhættan er heldur ekki svo ýkja mikil við þennan rekstur, við skuldum ekki svo mikið að við förum auðveld- lega á hausinn þótt eitthvað bjáti á, en jafnvel þótt svo færi er alltaf hægt að byrja upp á nýtt. Við erum að þessu til að hafa í okkur og á, og hér getum við stundað hestamennsku og önnur áhugamál okkar, en við lítum ekki á okkur sem neina dýrlinga sem erum í þessum búskap af hugsjónaástæð- um.“ - AH Nokkrir kjúklinganna, sem eru í uppvexti á Ásmundarstöðum. I>ar er að jafnaði slátrað um 2000 kjúklingum á viku. Gunnar sýnir blaðamonnum eggjaþvottahúsið. Hér eru öll eggin þvcgin áður en þau fara i neytendapakkningar. Einnig eru þau gegnumlýst, til að koma í veg fyrir að sprungin egg eða „blóðegg“ fari á markað. Jóhann. faðir þeirra Ásmundarstaðabænda, sér um fóðurflutningana frá Reykjavik. Hér er hann að ganga frá lokum á tankbílnum. en þeir Garðar og Gunnar fylgjast með. m Pottarím Umsjón: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR Þegar kristin trú breiddist út um lönd, hafði það ekki aðeins áhrif á trúarlíf manna, heldur á allt daglegt líf og þá einnig mataræði fólks. Kjöt var snemma litið hornauga, því kirkjunnar menn álitu að óhóf- legt kjötát byði heim syndugum hugsunum. Þess vegna var boð- ið, að menn skyldu halda kjöt- lausa daga, t.d. hvern föstudag, sbr. nafnið, en stundum jafnvel miðvikudag og sunnudag. Það er þó hugsanlegt að þessi hófsemi í kjötáti hafi fylgt í kjölfar minnkandi framboðs á kjöti. Fyrr á öldum stjórnuðu kirkj- unnar menn nefnilega ekki að- eins andlegu lífi þjóða, heldur einnig því veraldlega, svo það var ekki fjarri að nota trúna sem hagstjórnartæki ef vildi. Það var einkum í kringum páska, sem áhrifa kirkjunnar gætti í mataræði. Fyrir páska var 40 daga fasta fyrirskipuð til að minnast pínu Krists. En það var ekki alveg einfalt mál að fasta. Þá var kjötmeti, fita og egg bannvara, stundum líka fiskur á ákveðnum dögum. En svo voru ýmis tilbrigði við þess- ar reglur. Stundum mátti t.d. ekki borða þessar fæðutegundir fyrr en eftir sólarlag. Ströng- spillir fastan fyrir á saltfisk- mörkuðum okkar. Það voru uppi miklar vanga- veltur um, hvort selurinn teldist fiskur eða kjöt. I báðum íslenzk- um kristinréttunum, en það eru lög um framkvæmd kristninnar, var bannað að borða sel á föstu. Eitthvað hefur þetta verið óvin- sælt, því Skálholtsbiskup skrif- aði til Rómar og fór fram á undanþágu fyrir íslendinga að borða selkjöt á föstu, og í páfabréfi frá 1481 er þeim það heimilað. Þessi beiðni íslend- inga sýnir líklega hve selkjöt var þá mikilvæg fæða, þó nú sé löngu fyrnt yfir mikilvægi sel- kjöts nema kannski í orðtakinu að gefa einhverjum selbita. Páskahátíðin var tvískipt, annars vegar sorgardagarnir, síðustu dagar föstunnar, og svo hins vegar fagnaðarhátíðin, sjálfir páskadagarnir. Matur setti svip sinn á þessa hátíð eins og aðrar. Hvert svæði hafði og hefur enn sína sérstöku matar- siði. Hér tíðkaðist að borða hnausþykkan mjólkurgraut á Eggið er vissulega tilvalið frjó- semistákn og hefur líklega tengzt þessari vorhátíð snemma. Þegar svo páskarnir komu með kristninni fylgdi eggið með. Það var auk þess ástæða til að njóta eggjanna á páskum eftir langa og oft stranga föstu. Það er nokkuð óljóst hvers konar hátíð hún var, þessi heiðna vorhátíð, því heimildirn- ar eru harla fátæklegar og mun yngri en siðurinn. Á þýzku kallast páskarnir Oster og á ensku Easter, sem eru gömul heiti á þessari heiðnu hátíð. Sumir hafa álitið að til hafi verið gyðjan Ostara, og að hátíð- in hafi verið heitin eftir henni, en þau fræði eru öll býsna óljós og vafasöm, því okkur skortir heimildir. Þessi gamla hátíð tengdist ekki aðeins vexti og viðgangi, heldur einnig birtu og ljósi. Og enn eimir eftir af þeirri trú. Hér, eins og víða um Evrópu, var því trúað að á páskadagsmorgun dansaði sólin af gleði yfir uppstigningu Jesú Krists. Páskamatur fyrr og nú ustu reglurnar giltu í klaustrun- um. Þar iðkuðu margi munkar matarfræði, þ.e. leituðust við að finna út sem nákvæmlegast hvað teldist vera kjöt og hvað ekki, í þeim tilgangi að skil- greina leyft mataræði sem ná- kvæmast. Á miðöldum kom t.d. einu sinni upp sú kenning, að á ákveðnu stigi væri hérafóstur eins og fiskur í laginu og þess vegna mætti lita á héra sem fiska. Það var ekki að sökum að spyrja að hérabú spruttu upp við klaustur víða um Evrópu og Iéttu munkunum föstuna kjöt- lausu. Síld og þorskur var oft tákn föstunnar, því unnt var að geyma þennan fisk með góðum árangri t.d. saltaðan. Og ekki skírdag. Grauturinnn var soðinn svo lengi að hann seyddist og varð rauðleitur. Þessi siður ku hafa haldist allt fram á miðja síðustu öld, a.m.k. sums staðar á landinu. Á föstudaginn langa hefur vafalaust verið borðaður fiskur og oft var ekki farið að borða fyrr en eftir miðaftan, eftir langa guðsþjónustu. Á páskadagsmorgun var svo borð- aður sams konar grautur og á skírdag. Þetta grautarát segir sína sögu um mataræði íslend- inga framan af, því vafalaust var spónamatur lengi megin- uppistaða í fæðinu. Víðast annars staðar í Evrópu setja egg svip sinn á páskahátíð- ina. Það er varla nýtilkomið. Frumkvöðlar kristninnar tóku upp á sína arma ýmsar fornar hátíðir. Þannig er með páska- hátíðina. I heiðnum sið voru haldnar vorhátíðir, sem og víða enn utan kristinna landa. Þetta er eðlilegur tími til hátíðahalda, þegar jarðargróður er að vakna úr vetrarsvefni. Það var því ástæða til að hugsa til uppsker- unnar og biðja æðri máttarvöld um góða og ríkulega uppskeru. Áður en skreytt súkkulaðiegg fóru að tíðkast á páskum voru gefin egg. Þau voru þá listilega skreytt og ýmsir siðir um eggja- skreytingu voru til víðs vegar um Evrópu. T.d. tíðkaðist í Austur-Evrópu að lita egg með því að sjóða þau með laukhýði. Fyrst var gjarnan bundið lauf- blað, t.d. smárablað, á eggið og það svo soðið með miklu lauk- hýði. Þar sem blaðið var kom enginn litur, en annars staðar varð eggið fallega rauðbrúnt. Þetta er siður, sem vert er að taka eftir. Og víða um Evrópu eru til sérstakar aðferðir við að mála á egg og mynztur. Þannig urðu til mörg listaverk, sem af skiljanlegum ástæðum voru ekki mjög endingargóð. Hér voru egg sjaldséð áður fyrr og ekki fastur liður í mataræði, og ekki til nein eggjahefð fyrr en nýlega. En súkkuiaðieggin eru vissulega orðin fastur liður a.m.k. meðal sælkera og barna. Ekki voru aðeins borðuð soðin egg, heldur ýmsir eggjaréttir, og enn í dag þykir vel við hæfi að bera slíka rétti á páskaborðið. Það er áberandi hve mikið er t.d. til af eggjaréttum í Suður- Evrópu. En fleira þótti eiga heima á páskaborðinu, og það er auðvitað einkum í kaþólskum löndum að páskamaturinn er sérstakur. I Grikklandi byrjar páska- og fagnaðarhátíðin á laugardagskvöld. Menn þyrpast í kirkjur og hlusta á prestana hrópa: Kristur er upprisinn. Þá brjóta menn skærrauð egg, sem þeir hafa með sér, flugeldum er skotið og bjöllum er hringt. Síðan heldur hver til síns heima og fólk snæðir páskasúpu, soðna úr innyflum og bitum af páska- lambinu, sem er borðað á sjálfan páskadag. Áður en ofnar urðu hvers manns eign þar i landi, tóku bakarar að sér að sjóða lambið í ofnum sínum. Hver kom þá með sinn kassa með kjötinu í. I Frakklandi var algengt að borða eggjarétti, t.d. eggja- kökur. Börnunum var ýmist sagt að skreyttu páskaeggjunum væri vcrpt af hænum, hérum eða kanínum, allt eftir landshlutum. Lambakjöt, kiðakjöt, pæar með harðsoðnum eggjum og kjöti, kjúklingar og grísakjöt, allt var þetta algengur páskamatur víðs vegar um Frakkland. Og sá réttur, sem sums staðar í Norð- urlöndum kallast fátækir ridd- arar, hveitibrauð velt upp úr eggjamjólk og steikt, var einu sinni páskamatur í því landi. Miðað við ýmsa þessara út- lendu matarsiða er hefðbundinn, íslenzkur páskamatur ósköp lítið spennandi. En auðvitað reyndu forfeður okkar að halda upp á þessa hátíð eins og þeir gátu, en hráefnin voru ekki ýkja fjöl- breytt, og nokkuð ólík því sem nú tíðkast helzt. Þess vegna erum við fremur fátæk af mat- arhefðum nú, og um leið afskap- lega lítið bundin i vali okkar á páskamat. Það er því sjálfsagt að fara eigin leiðir, hver fyir sig, og taka þá mið af því sem hverjum og einum líkar bezt, — eða — að vera laus við allar hefðir og reyna eitthvað nýtt á hverjum páskum ... En hvað sem þið veljið í páskamatinn, þá er það ekki hann sem ræður úrslitum um hvort þið njótið gleðilegra páska, en góður matur getur víst örugglega aukið ánægju ykkar í fríinu ... Gleðilcga páska!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.