Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981 33 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Keflavík Til sölu raöhús í smíöum á tveimur hæöum. Verö kr. 350 þús., útb. 170 þús. Fast verö. Húsiö skilast meö gleri og púss- aö aö utan. Einangraö aö innan. Eignamiölun Suöurnesja, Hafnargötu 57, sími 3868. Wistoft búðarvog nýuppgerö til sölu. Uppl. í síma 35813. Ísland/Danmörk — Eigum við að skipta á húsnæöi í fríinu? Viö höfum ákveöiö aö fara til islands í 14 daga, frá 4. júlí 1981 og óskum efftir húsnæöi miö- svaeöis. í staöinn bjóöum viö hús fyrir noröan Kaupmannahöfn nálægt S-lestinni og grænum grundum, og eöa hjáleigu á Norður-Jótlandi viö Vester- havet. Svar meö ýtarlegum upp- lýsingum sendist Gunnild Bond- am, Tovesvej 27, 2850 Nærum, DANMARK. Viöskiptafræöinemi á þriöja ári óskar eftir atvinnu í júní og júlí í sumar. Þeir sem hafa áhuga, vinsamlegast hring- iö í síma 82429 e. kl. 7 á kvöldin eöa um helqar. Dyrasímaþjónustan sími 43517 Uppsetning og viögeröir. Ljósritun — Fjölritun Fljót afgreiösla — Næg bíla- stæöi. Ljósfell, Skipholti 31, s. 27210. tilkynningar Kvennadeild Rauða kross íslands Konur athugið ' Okkur vantar sjálfboöaliöa til starta fyrir deildina. Uppl. í símum 34703, 37951 og 1490,9. 1300 cc, 1978 til sölu. Ekinn 29 þús. Verö 55 þús. Útb. 40 þús. Uppl. í síma 42061 eftir kl. 7. Fítnir fætur Dansæfing ( Hreyfilshúsinu mánudaginn 20. apríl 1981 kl. 9. Skíðaferðir um páskana Skíðadeild ÍR — Úlfar Jacobsen feröaskrifstofa. SkíÖaferöir í Hamragil um pásk- ana: Skírdag, laugardag, páska- dag og annan í páskum. Erá JL-húsinu kl. 9.30, Noröur- strönd, Lindarbraut, Skólabraut, Mýrarhúsaskóla, Esso v/Nes- veg, Hofsvallagötu, Hringbraut, Biöskýli v/Landspítalann, Miklu- braut Shell-stöö, Austurveri, Bústaöavegi, Réttarholtsvegi, Garösapóteki, Vogaveri, Öldu- selsskóla, Breiðholtskjöri kl. 10.15, Árbæjarhverfi viö Bæjar- braut. Fariö frá Hamragili kl. 18. Heimatrúboöið Austur- götu 22 Hafnarfirði Almenn samkoma á sktrdag. föstudaginn langa og páskadag kl. 5 Allir velkomnir. IOOF 1= 1624178’/,= M.A. 1904812030 Heimatrúboðiö Óðinsgötu 6a Almennar samkomur um bæna- og páskadagana kl. 20.30. Allir velkomnir. Almennar samkomur veröa haldnar á ettirtöldum dögum, föstudaginn langa 17. apr. kl. 5, páskadagur 19. apr. kl. 5, II páskadagur 20. apr. kl. 5. Allir eru hjartanlega velkomnir. Elím, Grettisgata 62 Rvk. IOOF Rb. 4 = 1304218'/t Hörgshlíð 12 Samkomur föstudaginn langa kl. 4 e.h. og páskadag kl. 4 e.h. Austurgata 6, Hafnar- firði Föstudaglnn langa kl. 10 t.h. Páskadag kl. 10 f.h. ÚTIVISTARFERÐIR Einsdagsferöir um páska 16.4. kl. 13. Fottvogur — Oskjuhlið, frítt. 17.4. kl. 13. Meö Elliðaám, frítt, mæting þar. 18.4. kl. 13. Hellitheiði — Sleggjubeintdalir, verö 40 kr. 19.4. kl. 11. Kræklingafjara viö Hvalfjörö eöa Brekkukambur, verö 60 kr. 20.4. kl. 13. Fjöruganga á Kjal- arnesi eöa Etja, verö 40 kr. Brottför í allar feröir frá B.S.Í. vestanveröu (nema á föstudag). Útivist. Kirkja Krossins Keflavík Samkomur um páskana veröa sem hér segir: Skírdag kl. 14.00, Samúel Ingimarsson talar. Föstudagurinn langi kl. 14.00, Urban Vildholm frá Svíþjóö tal- ar. Páskadag kl. 14.00, Ásgrímur Stefánsson talar. Kór kirkjunnar syngur á öllum samkomunum. Allir velkomnir. Sálarrannsóknar- félag íslands Skyggnilýsingarfundir. Hinn heimsfrægi breski skyggnilýs- ingamiöill Robin M. Stevens kemur fram á þremur fundum sem haldnir veröa í Félagsheim- ilinu á Seltjarnarnesi fimmtudag- inn 16. apríl, mánudaginn 20. apríl og þriöjudaginn 21. apríl, allir kl. 20.30. Miöasala á skrif- stofunni í Garöastræti 8 alla virka daga eftir hádegi og viö innganginn. Stjórnin. KFUM og KFUK Amtmannsstíg 2B Almennar samkomur um þæna- daga og páska veröa sem hér segir: Föstudaginn langa kl. 20.30, Halla Bachmann kristni- boöi talar. Páskadag kl. 20.30, herra Sigurbjörn Einarsson bisk- up talar, æskulýöskór KFUM og K syngur. 2. páskadag kl. 20.30 Hilmar Baldurson, guöfræöingur talar, einsöngur. Allir velkomnir á samkomurnar. Skyggnilýsíngafundur Bresku hjónin Robert og Eileen Ison halda skyggnilýsingafund í kvöld, miövikudaginn 22. apríl, kl. 20.30 í Félagsheimili Vík Keflavík. Sálarrannsóknafélag Suöurnesja. ■ GEÐVERNDARFÉLAG ISLANDSB Fundarboð Skógræktarfélag Kópavogs heldur aöalfund aö Hamraborg 1. hinn 21. apríl 1981 kl. 20.30. Fundarefni: 1) Venjuleg aöal- tundarstörf. 2) Siguröur Blöndal, litskuggamyndir. 3) Önnur mál. Kaffiveitingar. Stjórnin Páskaguðsþjónustur Filadelfiu Skírdagur kl. 20, ræöumaöur Urban Widholm. Föstudagurinn langi í Keflavík kl. 14, Reykjavík kl. 20. Laugardagur Páskavaka kl. 22, ungt fólk meö Urban Widholm. Stjórnendur Guöni Einarsson og Hafliöi Kristinsson. Páskadagur Fíladelfía Selfossi kl. 16 og Filadelfia Reykjavík kl. 20. Annar páskadagur Selfossi kl. 16.30 Daniel Glad. Filadelfia Reykjavík kl. 20. Kveöjusam- koma fyrir Urban Widholm IOOFE OB—IP 3 162214-\\\ L FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11796 og 19533. Dagsferðir 16.—20. apríl kl. 13.00. 18.4. Vítilsfell 655 m. Fararstjóri: Baldur Sveinsson. 16.4. Skíðaganga á Bláfjalla- svæöinu. Fararstjóri: Hjálmar Guömundsson. Verö í báöar feröirnar kr. 40.00 gr. v/bílinn. 17.4. Gálgahraun — Alftanes. Fararstjóri: Guörún Þóröardótt- ir. Verö kr. 20.00 gr. v/bílinn. 18.4. Keilisnes — Staóarborg. Fararstjóri: Baldur Sveinsson. Verö kr. 40.000 gr. v/bílinn. 19.4. Gengiö meö Ellióaánum. Fararstjóri: Siguröur Kristins- son. Þátttakendur mæti viö gömlu brúna yfir Elliöaárnar. Frítt. 20.4. Húsfell. Fararstjóri: Sigurö- ur Kristinsson. Verö kr. 35.00 gr. v/bílinn. Allar feröirnar nema feröin á páskadag eru farnar frá Umferö- armiöstööinni aö austanveröu. Feröafélag íslands Samhjálp Samkoma veröur í Kirkjulækj- arkoti í Fljótshlíö föstudaginn langa kl. 14.30 og á laugardag í Akurhól kl. 16.00. Ræöumaöur Óli Ágústsson o.fl. Söngflokkur- inn Jórdan. Allir velkomnir. Samhjálp KFUK, Amtmannsstíg 2B Aöaldeildarfundur fellur niöur 21. apríl, en afmælisfundur meö fjölbreyttu efni og inntöku nýrra félaga veröur haldinn 28. apríl kl. 20.30. Ath.: Aögöngumiöar seld- ir hjá skrifstofunni til föstudags 24. apríl. Allar konur velkomnar. Nefndin Krossinn Páskadagur Almenn samkoma kl. 4.30 aö Auöbrekku 34, Kópavogi. 2. páakadagur Brauösbrotning kl. 3. Almenn samkoma kl. 4.30. Þriðjudagur 21. apríl Almennur biblíulestur kl. 8.30. Allir hjartanlega velkomnir. Sextugur: Sigurgeir Jónsson hæstaréttardómari Hinn 11. apríl varð Sigurgeir Jónsson hæstaréttardómari sex- tugur. Hann fæddist á Isafirði árið 1921. Foreldrar hans voru hjónin Hrefna Sigurgeirsdóttir og Jón Arinbjörnsson framkvæmd- astjóri. Voru þau bæði af vest- firsku bergi brotin. Sigurgeir ólst upp í Reykjavík frá 6 ára aldri, en foreldrar hans fluttust þangað frá Isafirði á árinu 1927. Stúdent varð hann árið 1939 og lauk lögfræðiprófi árið 1945. Jafnframt laganáminu stundaði hann um skeið nám í viðskiptafræðuin. Að námi loknu fór Sigurgeir Jónsson til starfa í dómsmálaráð- uneytinu og var hann starfsmaður þess ráðuneytis lengst af næsta áratug. Um tæplega hálfs annars árs skeið starfaði hann sem lög- fræðingur Framkvæmdabanka ís- lands og um skeið einnig sem skrifstofustjóri bankans. Á árinu 1949 var Sigurgeir við nám og störf hjá lögreglu New York-borgar og kynnti sér einkum lögreglurannsóknir. Árið 1972 var Sigurgeir skipað- ur í dómaskipunar- og réttarfars- nefnd og starfaði í henni til 1978. Sú nefnd samdi m.a. lögréttufr- umvarpið, frv. um rannsóknarl- ögreglu ríkisins og í sambandi við það ýmsar breytingar á lögum um meðferð opinberra mála. Mörg önnur trúnaðarstörf hefur Sigur- geir Jónsson haft með höndum, átti m.a. sæti í bifreiða- og umferðarlaganefnd í átta ár, var í fyrirsvari fyrir ríkisspítalana í vinnudeildum 1949—1957. Setu- dómari var hann margsinnis í ýmsum málum á ráðuneytisárun- um. Sigurgeir var skipaður bæjarf- ógeti í Kópavogi 10. ágúst 1955. Það varð því hlutskipti hins unga bæjarfógeta að verða fyrstur manna til þess að gegna þeirri stöðu — því þótt Kópavogur ætti sér langa sögu, átti kaupstaðurinn stutta. Hann var stofnaður með lögum frá "Alþingi 11. maí 1955. Þar með stofnaðist lögsagnarumd- æmið, sem m.a. þýddi stofnun dómstóls. Sá dómstóll skyldi dæma á grundvelli réttarvitundar hinnar frjálsu íslenzku þjóðar. Þetta var mikil saga. Baksvið hennar var þekkt. Hið erlenda vald hafði einmitt haslað sér völl á miðöldum á Kópavogsþingi. En þar var um langt skeið þing Álftnesinga, Seltirninga og Mos- fellinga. Höfuðvígi konungsvalds- ins var þar skammt undan, á Bessastöðum. Ekki var því að undra, að sögulegri atburðir ger- ðust á Kópavogsþingi en á öðrum þingum. Hið nýja bæjarfógetaembætti þurfti nú að byggja upp frá grunni og hefur það verið ærið verk. í það gekk bæjarfógetinn ungi af miklu kappi. Þá kom sér vel að í dómsmálaráðuneytinu hafði Sig- urgeir einatt haft það hlutverk að endurskoða dómsmálastörf hinna ýmsu sýslumanna og bæjarfógeta um landið. En dómsmálaráðuneyt- ið hefur slíkt eftirlitshlutverk með höndum. Við þau störf kynntist Sigurgeir flestum sýslumanna- embættum, skipulagi þeirra, um- fangi og öllum rekstri. Má nærri geta, að sú reynsla, sem hann fékk við þau störf, hefur reynzt ómet- anleg þegar hann þarf svo sjálfur að stofna slíkt sýslumannsemb- ætti, afla allra gagna, ráða starfs- menn og hefja þjónustu við al- menning og framkvæmd megin- þátta ríkisvaldsins í Kópavogi. Engir embættismenn fara með viðfeðmara starfssvið hér á landi en sýslumenn. Það gefur því auga leið, að margs þurfti að gæta. En allt gekk þetta fljótt og vel í höndum Sigurgeirs Jónssonar. Hann er stjórnsamur maður og reglusamur og krefst þess, að allir starfsmenn leggi sig fram í störf- um. Sjálfur hlífir hann sér hvergi og er það vel þekkt og farsæl leið til þess að fá aðra tíl rösklegra vinnubragða, er einmitt sú, að stjórnandinn gangi vel fram sjálf- ur. Fólki fjölgaði ört í Kópavogi, umsvif í atvinnumálum og fjár- málum færðist í aukana og þar með óx embætti bæjarfógetans, því störfin þar stand í nokkru hlutfalli við íbúafjölda lögsagnar- umdæmisins. Þegar skrifstofa Sigurgeirs bæjarfógeta opnaði að Neðstutröð 5 hinn 6. október 1955, störfuðu þar auk bæjarfógeta tveir starfsmenn. Að tíu árum liðnum voru starfsmenn orðnir 11 og með lögreglumönnum, sem þá voru 14, voru starfsmenn orðnir 25. Um þær mundir sem Sigurgeir hætti sem bæjarfógeti voru þeir orðnir um 40. Það er því augljóst, að stjórnun varð mikið starf hjá bæjarfógetanum. En í því efni trúi ég, að hæfileikar Sigurgeirs hafi notið sín vel. Reyndar er um það efni gott að geta vitnað til skýrslu þeirrar sem J. Ingimar Hansson rekstrarverkfræðingur samdi á árinu 1977 um bæjarfógetaemb- ættið í Kópavogi. Skýrslan var samin til þess að gefa yfirlit um dómskerfið frá sjónarmiði skipu- lags og stjórnunar. Segir verk- fræðingurinn þar m.a.: „Það verð- ur að viðurkennast, að stjórnunin á Kópavogsembættinu er eins góð og bezt verður á kosið innan ramma sem löggjöf og aðrar aðstæður bjóða upp á. Þar reynir jafnmikið á þekkingu og reynslu í stjórnun og í lögfræði. Því stærra sem embættið er, reynir meira á stjórnunarþáttinn." Rétt er að fram komi, að Sigurgeir var í mörg ár í stjórn Sparisjóðs Kópavogs og formaður stjórnarinnar um árabil. Sparisj- óðurinn naut góðs af reynzlu hans og hyggindum á fjármálasviðinu. Sjálfum var Sigurgeir þessi stofn- un Kópavogsbúa mjög kær og hefur hann enn áhuga á velfarnaði sjóðsins og hlutverki hans, sem lyftistöng fyrir framkvæmdir bæjarbúa. Sigurgeir var óg form- aður Dómarafélags íslands og Sýslumannafélagsins um skeið. Hér í þessari afmæliskveðju er þess auðvitað enginn kostur að rekja störf Sigurgeirs Jónssonar að neinu ráði. Enda er hann enn á góðum aldri, á vonandi eftir að starfa mikið og leysa margan vandann. En hitt - má gera að minnast á nokkra drætti í svip- móti þessa manns. I því efni herur mér alltaf sýst að Sigurgeir sé sem embættismaður sannur gagn- vart verkefnum sínum. Hann er bersögull og hispurslaus gagnvart öðrum stjórnvöldum, heldur hres- silega á stundum. Einstaklingum segir hann álit sitt á vanda þeirra eða viðfangsefnum á þann veg, að ekki er hætta á misskilningi. Hreinskilnisleg svör eru bezt, hvort sem mönnum líkar þau bvetur eða verr. Stundum er líka rétt að muna, að vinur er sá, sem til vamms segir. Ráða slíkra manna er hollt að njóta, enda er þá oft léttara að sjá hvar rétt stefnir eða þá hvar miður fer, þegar treysta má, að vægðarlaust er reynt að skilja hismið frá kjarnanum, málsatvik greind sundur í því skyni að ráða úrslit- um mála svo og þau komist heil í höfn, fái hæfandi lyktir. Sigurgeir kann orð Rómverjans, sem sagði: „Þú skalt lifa fyrir aðra ef þú vilt lifa fyrir sjálfan þig,“ þ.e. sjálfum þér til ánægju. Hann er einkar hjálpfús maður og hafa margir til hans leitað um ráð og aðstoð. Engum veitir hann slíkt fúslegar en þeim, sem hann telur að eigi sér óvíða skjóls að leita. Sigurgeir er fróður og minnugur og er reyndar afar sögufróður, bæði um Islandssögu og mannk- ynssögu. Fáir standa honum á sporði í þekkingu á þróun mála sem leiddu til heimsstyrjaldarinn- ar síðari, gang þeirra átaka og afleiðingar hennar. Er gaman að sitja með honum kveldstund og ræða þau efni. Er reyndar gott að koma á hið fagra heimili þeirra hjóna, Hrafnhildar Thors og Sig- urgeirs. Þau hafa búið vel um sig á Flókagötunni. Þau hafa m.a. áhuga á myndlist og hafa af smekkvísi keypt sér margar, fag- rar myndir. Þau hafa eignast fjögur börn: Hrefnu, gifta Guðjóni Jónssyni tæknifræðingi, Kjartan, starfs- mann reiknistofnunar bankanna, kvæntur Þórdísi Bjarnadóttur, Jón, lögfræðing, giftan Herborgu Auðunsdóttur. Yngst er Hrafn- hildur, sem stundar viðskipt- afræðinám í Háskóla íslands. Þessum síðbúnu afmælishugl- eiðingum fylgja allar góðar óskir og kveðjur frá okkur, sem störfum við bæjarfógetaembættið í Kópa- vogi til Sigurgeirs Jónssonar og fjölskyldu hans. Ásgeir Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.