Morgunblaðið - 13.09.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1981
Allar hjálparsveit-
ir skáta á æfingu
LANDSAMBAND hjálparsveita
skáta heldur sina árlegu samæf-
innu nú um helgina i Vestmanna-
eyjum, en hún hófst i KærmorK-
un. Hjálparsveit skáta i Vest-
mannaeyjum hefur veK ok vanda
af a finKunni, sem lýkur siAan i
daK. TryKKVi Páll Friðriksson,
formaóur LHS, saKði i samtali
við Mbl„ að til æfinKarinnar
væru mættir félaKar frá öllum
landshornum, en sveitir innan
Yfirlýsing
MBL. HEFUR borist eftirfarandi
fréttatilkynninK:
„Að Kefnu tiiefni vegna skrifa
HelKarpóstsins lauKardaKÍnn 5.
septcmber viljum við taka fram,
áð samstarf Karnabæjar ok verzl-
unarinnar Cesar hefur aldrei
verið betra en einmitt nú. Við
vísum því skrifum HelKarpósts-
ins heim til föðurhúsanna.
Verslunin Cesar hefur verið
leiðandi verzlun í fatnaði,
hljómplötum ok hljómtækjum hér
í bæ um tíu ára skeið og er engin
sjáanleg breyting á því nema síður
sé. Verzlunin Cesar hefur allan
þennan tíma verzlað einungis með
vörur frá Karnabæ og lýsum við
yfir ánægju með þau viðskipti.
Bjarki Tryggvason,
Jón Bjarnason,
f.h. Cesar hf.
Akureyri.“
sambandsins eru tólf að tölu, að
viðbættri sérstakri hundasveit.
„Æfingin er uppbyggð af leitar-
æfingum og sjúkrahjálpar- og
sjúkraflutningaæfingum og fer
fram í Heimaey og eyjunum í
kring," sagði Tryggvi Páll. Þegar
við spjölluðum við Tryggva Pál
fyrir hádegi í gær, sagðist hann
ekki geta sagt okkur nákvæmlega
um áætlunina, þar sem ýmsir
hlutir ættu að koma þátttakend-
um á óvart, eins og jafnan er á
svona æfingum.
í hjálparsveitum skáta innan
LHS eru starfandi um 800 félagar,
víðs vegar um landið, en sveitum
innan LHS hefur á síðustu árum
verið að fjölga. Má þar nefna, að
hjálparsveitir skáta voru stofnað-
ar í Aðaldal og á Egilstöðum fyrir
nokkrum árum.
Tryggvi Páll sagði, að venjulega
væru haldnar svona stórar sam-
æfingar árlega, en til viðbótar því
væru haldnar minni æfingar á
stöðunum, þar sem kæmu félagar
úr nokkrum sveitum.
Samhliða æfingunni nú er svo
haldinn svokallaður fulltrúaráðs-
fundur LHS, en rétt til setu á
honum hafa tveir fulltrúar frá
hverri sveit, auk stjórnar sam-
bandsins. „Við höldum þessa fundi
tvisvar á ári og eru þeir í raun
æðsta vald í málefnum sambands-
ins milli þinga þess,“ sagði
Tryggvi Páll Friðriksson, formað-
ur LHS, að síðustu.
LJösmynd Mbl. Ólafur Stolzenwald.
Fullbúið hús gangnamanna Hvolhreppinga sett á bilpall á Hvolsvelli í fyrradag, en vel gekk að flytja
það um vegi og vegleysur inn á Emstrur.
Fullbúið gangnamannahús flutt á Emstrur
FULLBÚIÐ liðlega 50 m2 hús
var flutt í gær á bil inn á
Emstrur, afrétt Hvolhrepps I
Rangárvallasýslu, en húsið var
smíðað af Trésmiðjunni Ási á
Hvolsvelli og lögðu Björgunar-
sveitarmenn mikla vinnu I
smíðina, en þeir munu hafa
aðstöðu i húsinu fyrir æfingar.
Hvolshreppur lét byggja húsið
ok að sögn ólafs Sigfússonar
oddvita á Hvolsvelli eru i þvi
átta tvibreiðar kojur, eldun-
arpláss og rúmgóðar vistarver-
ur.
Vel gekk að flytja húsið þótt
erfitt væri um vik á stöku stað
svo sem í Streitum þar sem
vegurinn liðast milli hamrabelta
og á einum stað varð að færa
húsið til á vörubílspallinum. Var
húsið flutt inn Fljótshlíðarafrétt
og er staðsett skammt frá nýju
brúnni yfir Markarfljót. Að sögn
Ólafs kostar húsið um 100 þús.
kr. komið á staðinn.
*
Sveinn Björnsson í Iþróttaráði Reykjavíkurborgar:
Nafn mannsins
sem lést
MAÐtJRINN sem fórst í umferð-
arslysi í Sundahöfn í Reykjavík í
fyrradag, hét Helgi Björnsson, til
heimilis að Skúlagötu 72 í Reykja-
vík. Hann var sextíu og fjögurra
ára að aldri er hann lést. Helgi
lætur eftir sig eiginkonu og upp-
komin börn.
Lagðir verði vetrarvegir í
skíðalöndin á Hengilssvæðinu
Mikið öryggismál og hefði stórlegan sparnað í för með sér
SVEINN Björnsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins I fþróttaráði
Reykjavíkur, lagði hinn 8. sept.
sl. fram tvær tillögur í ráðinu. Sú
fyrri fjallar um að leggja til við
borgarráð og borgarstjórn
Reykjavíkur. að á næsta ári verði
lagðir samhærileKÍr vetrarvegir
frá þjóðveginum i skíðalöndin á
Hengilssvæðinu (Hamragil og
SleggjubeinsKÍI) og i Skálafell og
nú er i Bláfjöll. Þá flutti hann
einnig tillöKU i tilefni af ákvörð-
un Fræðsluráðs Reykjavikur um
að skera niður styrki til skiða-
ferða skólabarna og unglinga i
Reykjavík. Felur hún i sér áskor-
un ráðsins til borgarráðs og
borgarstjórnar, að ákvörðun
Fræðsluráðs verði hnekkt og
„þessum litla styrk haidið áfram
til vinsælasta tómstundagamans
barna og unglinga i Reykjavik“,
eins og segir i tillögunni.
í greinargerð með tillögunni um
vetrarvegi í skíðalöndin á Heng-
ilssvæðinu er m.a. bent á misjöfn
veðurskilyrði á þremur aðalskíða-
Davið Oddsson Gunnar S. Björnsson
Fundur í Valhöll annað kvöld:
Magnús L. Sveinsson
Húsnæðismál til umræðu
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
efna til fundar í Valhöll klukkan
20.30 annað kvöld, þar sem hús-
næðismál verða til umræðu. Fund-
urinn ber yfirskriftina Húsnæð-
ismál — eignaréttur, og verður
rætt um þróun húsnæðismála í
Reykjavík undanfarið, og sér-
staklega fjaliað um stefnu vinstri
flokkanna annars vegar í þessum
málaflokki, og stefnu Sjálfstæðis-
flokksins hins vegar.
Á fundinum, sem verður öllum
opinn, munu flytja framsöguræð-
ur þeir Davíð Oddsson, oddviti
borgarstjórnarflokks sjálfstæð-
ismanna, Magnús L. Sveinsson
borgarfulltrúi og Gunnar S.
Björnsson, formaður Meistara-
sambands byggingamanna.
svæðum Reykvíkinga og að Blá-
fjöllin hafi fengið forgang i vega-
málum. Þá er bent á, að skíðaskál-
inn í Hveradölum sé vel staðsettur
en aftur á móti séu skíðasvæði
félaganna ÍR, Vals og Víkings ekki
eins vel sett í þessu tilliti og sömu
sögu sé að segja af skíðasvæðinu í
Skálafelli, en þar eru Hrönn, ÍK
og KR með aðstöðu. Einnig er á
það bent, að skíðafélögin í Blá-
fjöllum njóti sérstöðu hvað varðar
fleiri atriði framyfir skíðafélögin
á hinum skíðasvæðunum. Þá segir:
„Það er því réttmætt, að öll
skíðasvæðin sitji við sama borð í
vegamálum og væri einnig til
athugunar, hvort svo ætti ekki
einnig að vera um lagningu raf-
magns og síma. Rétt er að vekja
athygli á, að vegurinn á skíða-
svæðið í Hengli og Skálafelli er
samanlagt styttri frá þjóðvegin-
um en vegurinn í Bláfjöll, þannig
að kostnaður við vegagerð er
tiltölulega miklu minni en í Blá-
fjöll.“
I lok greinargerðarinnar er bent
á tvö mikilvæg atriði í sambandi
við vegagerð þessa. í fyrsta lagi,
að hér sé um að ræða afar mikið
öryggismál fyrir allan þann fjölda
sem sækir skíðasvæði þessi og í
annan stað hefðu góðir vetrarveg-
ir stórlegan sparnað í för með sér
í snjómokstri og einnig segir, að
fullvíst sé, að góðir vetrarvegir
myndu borga sig upp á tveimur til
þremur árum.
Helgistund í Áskirkju
IIELGISTUND verður í kirkju-
byggingunni í Ásprestakalli við
Vesturbrún í dag klukkan 14,
og hefst hún með söng kirkju-
kórs Áskirkju undir stjórn
Kristjáns Sigtryggssonar
organista.
Séra Árni Bergur
Sigurbjörnsson predikar.
ByKgingaráfangi sumarsins er
langt á veg kominn og vonast
safnaðarstjórn til að safnaðar-
fólk og aðrir velunnarar kirkj-
unnar noti tækifærið og kynni
sér hvernig byggingunni miðar,
jafnframt því að njóta helgrar
stundar í kirkjuhúsinu og fjöl-
menni í helgistundina.
Helgistundin verður I hálfköruðu kirkjuskipi Áskirkju, en hér sést
hvar unnið er við bygginguna fyrir skömmu.