Morgunblaðið - 19.09.1981, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.09.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1981 5 Sýning á Akureyrar- ljósmyndum Gunnars Rúnars Olafssonar í I)AG. 19. Npptomher hofst sýninK á Akurpyrarljósmyndum Gunnars Rúnars Olafssonar í Listsýninnar- sal Myndlistaskólans á Akureyri. (■loráruotu 31. Sýninicin som or á voKum Ljósmyndasafnsins hf. mun standa fram til sunnudaKsins 27. soptomhor. Opió mun vorða frá 15—22 um helgar on 20—22 alla virka daica. Hér for á eftir æviáicrip Gunnars Rúnars Ólafssonar, sem Stefán Júlíusson tók saman. Gunnar Rúnar Ólafsson varð ekki Kamall maður, var aðeins 46 ára þejcar hann lést í ársbyrjun 1965. Hann var fæddur í Hafnarfirði 23. maí 1917 o(j þar ólst hann upp. Foreldrar hans voru SÍKríður Þor- láksdóttir úr Hafnarfirði og Ólafur A. Guðmundsson útnerðarmaður frá Intjólfsfirði á Ströndum. Móðir hans dó þegar hann var kornabarn ok var hann hjá Guðmundi Sigur- jónssyni skólastjóra. Gunnar Rúnar lauk KaKnfræðaprófi frá Flensbort; árið 1933 og síðan stundaði hann nám í skólum í Reykjavík um skeið, m.a. í menntaskólanum. smekk op ágæta greind. Hann var fljótur að átta sig á viðfangsefnum, með afbrigðum hraðvirkur í skorp- unni, ólatur á tilraunir og bar gott skyn á hvers konar tæki. Hann var prýðisteiknari, hagvirkur og hug- kvæmur í besta lagi. Hann var í raun listamaður að eðlisfari. Hitt er jafnsatt að skapgerð olli því að stundum urðu frátafir frá störfum svo að verkefni gátu dregist á langinn. Ef ending hefði verið að sama skapi og hæfileikarnir og atorkan í bráð hefði hann skilið eftir sig stórvirki. Hann hafði yndi af góðum bókum, unni músik og myndlist og var manna skemmti- legastur í viðræðum, skopskyn hans í besta lagi og kunni vel að segja sögur. Að honum var - mikill mannskaði svo ungum. Gunnar Rúnar Ólafsson var kvæntur Þórdísi Bjarnadóttur frá Húsavík og eignuðust þau þrjú börn, eina dóttur og tvo syni. Stofán Júlíusson Gunnar Rúnar fékk snemma áhuga á ljósmyndagerð og fór ungur að taka myndir. Hann stund- aði verslunarstörf í Hafnarfirði framan af árum og eignaðist þar sjálfur verslun. Einnig var hann á sjó annað veifið og í síldarvinnu vestan lands og norðan. En tóm- stundaiðja hans var ljósmyndun og ljósmyndagerð og eignaðist hann ungur góð tæki í greininni. Sömu- leiðis varð kvikmyndagerð snemma áhugaefni hans. Merkasti ljósmyndaflokkur Gunnars Rúnars frá striðsárunum síðari og næstu árum á eftir er safn mynda af gömlum Hafnfirðingum. Magnús Jónsson safnvörður i Hafn- arfirði hefur gefið út tvær bækur með 200 myndum úr þessum flokki hans. Eru 100 myndir í hvorri bók og fylgir vísa hverri mynd, flestar eftir Magnús. Þessar bækur komu út á árunum 1973 og 1975. Árið 1944 tók Gunnar Rúnar þá ákvörðun að helga sig áhugaefni sínu alfarið. Hann seldi verslun sína í árslok og snemma árs 1945 lagði hann leið sína til Bandaríkj- anna til náms í ljósmynda- og kvikmyndagerð. Dvaldist hann vestanhafs um eins árs skeið, aðal- lega í Hollywood. Að sjálfsögðu var hann vel undir þessa námsdvöl búinn. Hann hafði um árabil kynnt sér allt sem að myndatöku laut, var víðlesinn í greininni og átti ágæt tæki og vinnustofu. Eftir heimkomuna frá Bandaríkj- unum helgaði Gunnar Rúnar sig eingöngu hvers konar myndgerð. Hann var um skeið blaðaljósmynd- ari á Morgunblaðinu og rak eigin vinnustofu. Fór hann nokkrum sinnum utan til að kynna sér nýjungar í starfsgrein sinni. Síð- ustu árin rak hann myndgerðar- stofnun í Reykjavík og hafði rétt fyrir andlát sitt aflaö sér nýtísku vélar til að taka á endurgerðir blaða og bóka. Svo má heita að Gunnar Rúnar hafi eingöngu unnið að myndatöku og myndagerð, bæði kyrrmynda- og kvikmyndagerð, í hartnær tvo ára- tugi. Var hann um sumt brautryðj- andi á því sviði. Liggja eftir hann margs konar verkefni, heilir Ijós- myndaflokkar og kvikmyndir. Hann tók kvikmyndina Fagur or dalur fyrir Skógrækt ríkisins og kvikmyndina um Reykjalund, Sigur lífsins. fyrir Samband íslenskra berklasjúklinga. Einnig tók hann marga aðra kvikmyndaþætti, suma hina merkustu, þótt ekki ynnist honum tími eða ráðrúm til að fella þá saman í heilsteyptar kvikmynd- ir. Margt renndi stoðum undir að gera Gunnar Rúnar að snjöllum ljósmyndara og kvikmyndagerð- armanni. Hann hafði næmt auga fyrir öllu myndrænu, prýðilegan VOLVCÍ^ Meira úrval en nokkru sinni fyrr! « Nú heíur Veltir á boðstólum íleiri gerðir aí Volvo íólksbilreiðum og á betra verði en nokkru sinni tyrr. Eins og verðlistinn ber með sér er breiddin mjög mikil, en hvergi er þó slakað á kröfum um öryggi. Volvo öryggið er alltal hið sama. Verðmunurinn er hins vegar fólginn í mismunandi stœrð, vélaraíli. útliti og íburði, og t.d. eru' allir 240 bílarnir með vökvastýri. Verðlistinn er miðaður við gengi ís- lensku krónunnar 15. sept. 1981, ryð- vöm er inniíalin í verðinu. Haíið samband við sölumenn okkar VELTIR HF. Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200 Verd 103.300 Verd 144.700 Veró 106.100 Verd 185.400

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.