Morgunblaðið - 19.09.1981, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.09.1981, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1981 5^5 1912 Heb. 10. 1-4 Þar sem lögmálió nú hefir einung- is skugga hinna komandi gæóa, en ekki sjálft líki hlutanna, getur þaö aldrei meó sömu fórnunum ár hvert, er þeir stöóugt bera fram, fullkomnáð þá, er ganga fram fyrir Guð. Því aó heföi ekki annars veriö hætt vió að frambera þær, vegna þess að samvizkan hjá dýrkendunum var sér alls ekki framar meövitandi synda, er þeir voru eitt sinn hreinir orönir? En einmitt meö þeim fórnum er mint á syndirnar ár hvert. Því aö þaö er ómöguiegt aö blóð nauta og hafra geti burt numiö syndir. 1981 Lögmáiiö geymir aöeins skugga hins góöa, sem er í vændum, ekki skýra mynd þess. Ár eftir ár eru bornar tram sömu fórnir, sem geta aldrei gjört þá fullkomna til frambúöar, sem ganga tram fyrir Guð. Annars heföu þeir hætt aö bera þær fram. Dýrkendurnir heföu þá ekki fram- ar verið sér meövitandi um synd, et þeir heföu í eitt skipti fyrir öll oröiö hreinir. Menachem Begin, forsœtisráðherra í ísrael, virðist harð- skeyttur maður eins og hann kemur fram í fjölmiðlum. En flestir eiga marga tóna í hörpu sinni. Tónar saknaðar og trega voru áberandi í framkomu Begins og máli, er hann rœddi um Sál konung og spámanninn Samuel, á dögunum. A hverju föstudagskvöldi er Biblíulestur heima hjá forsætis- ráðherranum. Sœkir hann fastur hópur, bœði listamenn, stjórnmálamenn og frœðimenn úr hópi Ggöinga. Nokkrir kristnir menn eru einnig i hópnum, t.d. fréttaritari tímaritsins Time og forstöðumaður sænsku þróunarstofnun- arinnar. Leggur Begin áherzlu á að sem mest breidd sé í viðhorfum og bakgrunni manna til þess að sem flestar hliðar hins biblíulega texta komi fram. Þátttakendur í hinni alþjóðlegu keppni um þekkingu á Gamta testamentinu, sem haldin varí Jerúsalem á dögunum, voru boðnir til þessa vikulega biblíulestrar ásamt fleiri og var undirritaður meðal þeirra. Boifin tíerir hæn sína við xrátmúr- inn i Jerúsalem. um Faríseanna til máitíöar, aö þeir höföu gætur á honúm. Og sjá, frammi fyrir honum stóö maöur nokkur vatnssjúkur. Og Jesús tók til máls og talaöi til lögvitringanna Sr. Bernharúur Guhmundsson er fréttafulltrúi kirkjunnar. Ilann var viðstaddur hina alþjoéleKU hihlíukeppni i Jerúsalem á dögun- um. þar sem islenski þátttakand- inn. Ileltci Ilermann Hannesson, komst í úrslit. Biblíulestur við bgssuvakt Það var í sjálfu sér óvenjuleg reynsla að taka þátt í biblíu- lestri, þar sem lífverðir með hlaðnar byssur stóðu á þaki og við allar útgöngudyr, en slíkar eru aðstæður á heimili Begins. Ekki var síður fróðlegt að kynnast því, hversu hand- gengnir forystumenn Israels eru ritum Gamla testamentis- ins. Begin ræddi á svipaðan hátt um þá Sál og Samuel, sem Helgi á Hrafnkelsstöðum ræð- ir um persónur Njálssögu. Hann dró fram ýmsa þætti lífs þeirra og dró af þeim lærdóma í nútíð, með þeim hætti að flestir viðstaddir tóku fram Samuelsbók er heim var komið og lásu hana út frá þessari ieiðsögn Begins. Við brottför frá Islandi hafði undirritaður fengið í hendur eintak nýju íslenzku biblíuút- gáfunnar. Það var góð upp- götvun að sjá að hin nýja prentun og uppsetning er ein- staklega auðveld og aðlaðandi til lestrar. Dálkaskipan, letur- gerð og umbrot, allt dekrar svo við augað, að áður en varði þetta kvöld, voru Samuelsbæk- ur að baki og komið fram í Konungabók. Blaðað í ngrri Biblíu Biblían nýja er sem sé komin á markaðinn, og ekki aðeins í hátíðlegu svörtu bandi, heldur fæst hún í öðrum litum, rauð- um, bláum og brúnum. Þar að auki er hún prýdd kortum, orðalistum og ýmis konar hjálparefni við lesturinn. Stór hluti Nýja testamentisins hef- ur verið endurþýddur. Mál og Súl , Begin og Biblían nýja BeKÍn hýöur menn vclkomna til hihlíulesturs á heimili sínu. málskilningur tekur sífelldum breytingum og því þarf að endurskoða Biblíuþýðingar, svo að efni hennar komist trúverðuglega til skila á hverri tíð. Það er fróðlegt að bera saman nýju útgáfuna við text- ann frá 1912 og kanna hversu að hefur verið staðið við þýð- inguna. Margir hafa átt erfitt með að átta sig á röksemdafærslum, t.d. í Hebreabréfinu, þar sem setningar eru mjög langar. Hér er dæmi um það hvernig setn- ingaskipan er bætt í nýrri þýðingu: Fyrirliðar nýju BihlíuútKálunnar kynna hana i hópi clstu eintaka hihliunnar allt Irá árinu 1584. Frá vinstri: Hermann Þorsteinsson. Jón Sveinhjörnsson. dr. SÍKurhjörn Einarsson ok dr. Isirir Kr. Þórðarson. En meö þessum fórnum er minnt á syndirnar ár hvert. Því aö blóö nauta og hafra getur meö engu móti numiö burt syndir. Víða hefur verið dregið úr hátíðleika þeim sem oft skap- ast, þegar þýtt er orðrétt úr öðru máli, með því að fella niður ýmis tengiorð. Dæmi um þetta er umræðan um hvíldar- daginn, milli Jesú og faríse- anna: 1912 Lk 14. 1-3 Og svo bar viö, er hann kom á hvídardegi í hús eins af höföingj- og Faríseanna og sagöi: Er leyfi- legt aö lækna á hvíldardegi eöa ekki? 1981 Hviidardag nokkurn kom Jesús í hús eins af hötöingjum tarísea til máltíöar, og hötöu þeir gætur á honum. Þá var þar frammi fyrir honum maöur einn vatnssjúkur. Jesús tók þá til máls og sagöi viö lögvitringana og faríseana: ,Er leyfilegt að lækna á hvíidardegi eöa ekki? Orð í tveimur tungumálum hafa aldrei nákvæmlega sama merkingarsvið. Nýja þýðingin fer í vissum tilvikum meira eftir samhengi orðanna og not- ar þess vegna fleira en eitt íslenzkt orð til þess að tjá merkingu gríska orðsins. Hin -þekktu fyririnælT Jesú um sambúð fólks sem lesin eru við brúðkaup hafa því breyst í nýju þýðingunni. Mt. 19. 5 Fyrir því skal maöur yfirgefa fööur og móöur og búa viö eiginkonu sína, og þau tvö skulu veröa eitt hold. Fyrir því skal maöur yfirgefa fööur og móöur og bindast konu sinríi, og þau tvö skulu veröa einn maöur. Jón Sveinbjörnsson, prófess- or, fyrirliði þýðingarstarfa Nýja testamentisins, hefur í nýrri greinargerð bent á ýmsa erfiðleika þýðendanna. „Yms grundvallar hugtök og myndir í Nýja testamentinu, sem fyrstu lesendur þess skildu af eigin raun, t.d. í sambandi við fórnarþjónustuna og rétt- arfarið eru sum hver framandi og nokkuð merkingarsnauð nútíma lesanda. Orð eins og friðþæging, sáttargjörð, lausn- argjald, réttlæting o.fl. sem höfundar Nýja testamentisins hafa notað til að tjá með skilning sinn á þýðingu Krists og lesendur þeirra áttuðu sig á út frá því samhengi sem þeir lifðu í, eru orðin að eins konar guðfræðingamáli sem þarfnast fræðilegra skilgreininga.“ Sumum þessara orða er breytt, til dæmis er notað orðið hjáipari í stað huggari, enda felst í því einnig merking liðsinnis og uppörvunar. Orðið eingetinn er stundum misskilið meðal fólks og því orði er breytt i þessari útgáfu. 1912 Jóh. 1. 18 Enginn hefir nokkurn tíma séö Guö; sonurinn eingetni, sem hall- ast aö brjósti fööurins, hann hefir veitt oss þekking á honum. 1981 Enginn hefur nokkurn tíma séö Guö. Sonurinn eini, Guö, sem er í faömi tööurins, hann hefur birt hann. Fleira má auk þess nefna, t.d. breytingu á orðinu skepna. sem breytt hefur um merkingu 1 nútíma máli. 2 Kor 5. 17 Ef þannig einhver er /' samfélagi viö Krist, er hann ný skepna, hiö gamla varö aö engu, sjá, þaö er oröiö nýtt. Ef einhver er í Kristi, er hann skapaöur á ný, hiö gamla varö aö engu, sjá, nýtt er oröiö til. Þetta eru aðeins fáein sam- anburðardæmi, lesandinn get- ur fundið mörg fleiri og sjálf- sagt athyglisverðari og á hann þar góða skemmtun í vændum. Neðanmáls eru svo tilvitnan- ir sem vísa til texta til saman- burðar. Þessar tilvitnanir eru ekki sérstaklega ætlaðar einhverj- um fræðimönnum heldur öll- um sem lesa Biblíuna. Þær hafa það fram yfir skýringar að þær segja lesandanum ekki beint hvað viðkomandi vers eða hugtak þýði heldur fá þær hann til að glíma við textann og veita honum þannig þá gleði að geta uppgötvað sjálfur hvað textinn segir. Jón Sveinbjörnsson telur þessar neðanmálstilvitnanir vera ein athyglisverðustu ný- mæli þessarar útgáfu. Nýja Biblían er semsé komin og bíður lesenda sína, að vera lesin ofan í kjölinn en ekki aðeins á kjölinn. Bernharður Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.