Morgunblaðið - 19.09.1981, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.09.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1981 21 „Það er að vísu rétt, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft á að skipa traustum forystu- mönnum og sterkum leiðtoKum, sem svo eru neíndir. Saga flokksins sýnir það hins vegar með óygKjandi hætti, að það er fyrst og fremst umburðarlyndið, sem gert heíur Sjálfstæðis- flokkinn stóran og haldið honum saman um æði langt skeið.“ M ungir sjálfstæðismenn hins vegar, að þeir menn víki algjörlega úr Sjáifstæðisflokknum, sem taka sæti á framboðslistum, sem „réttkjörnar stofnanir flokksins standa ekki að“. Nú talar enginn þeirra um flokksræði. I viðtali við Morgunblaðið 13. september sl. segir nýkjörinn formaður Sambands ungra sjálf- stæðismanna, Geir Haarde, að fyrri liður tillögunnar, er fjallar um skyldur og stöðu þingmanna við stjórnarmyndanir, sé megin- atriði málsins og verulegur fengur yrði að slíkri breytingu á skipu- lagsreglum Sjálfstæðisflokksins. Hann kveður tillöguna ekki mæla fyrir um brottrekstur stjórnar- sinna úr Sjálfstæðisflokknum, heldur sé tilgangur hennar sá, „að það liggi framvegis skýrt fyrir þingmönnum, hvað það þýði að taka upp samstarf við aðra flokka gegn vilja rétt kjörinna stofnana í flokknum". Þá eigi reglurnar „að fryggja, að núverandi ástand verði ekki fordæmi síðar meir“. Eins og ég áður sagði, er það út af fyrir sig ekki illskiljanlegt, að slíkar hugmyndir skuli vakna, og tilgangurinn er í sjálfu sér góðra gjalda verður. Góður tilgangur getur hins vegar ekki helgað hvaða meðal, sem vera skal. Þetta meðal er að minni hyggju svo varhugavert og órafjarri grund- vallarhugsjón sjálfstæðisstefn- unnar, umburðarlyndi og virðingu fyrir skoðunum og rétti annarra, að við því verður að vara. Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna rökstyður þessa tillögu með eftirfarandi hætti í margnefndu Morgunblaðsviðtali: „Við teljum hins vegar, að stjórn- málaflokkur, sem tekur sjálfan sig alvarlega, verði að hafa reglur sem þessar, ekki sízt Sjálfstæðis- flokkurinn, eftir það sem á undan er gengið. Sagt hefur verið, að þeir, sem ekki hlýði óskráðum reglum, verði að hafa þær skrifað- ar. Þátttöku í skipulegum stjórn- málasamtökum fylgja skyldur ekki síður en réttindi." Við þessa málafylgju er ýmislegt að athuga. I fyrsta lagi er það fjarri sanni, að stjórnmálaflokkur, sem tekur sjálfan sig alvarlega, verði að setja félögum sínum slíka úrslita- kosti og ungir sjálfstæðismenn vilja setja á oddinn. Stjórnmála- flokkur, sem tekur sig alvarlega og ætlast til, að aðrir geri slíkt hið sama, verður að gera sér grein fyrir innra þreki sínu og staðfestu og byggja þannig á þeim grunni, sem flokksmennirnir mynda og styrkja af sjálfsdáðum. Flokkar eru tæki fólksins, sem til eru orðnir fólksins vegna, en fólk verður ekki til fyrir flokka. I öðru lagi er það næsta hláleg röksemd, að ekki sízt Sjálfstæðis- flokkurinn þurfi á slíkum reglum að halda, „eftir það sem á undan er gengið". Hver er styrkur Sjálf- stæðisflokksins, ef hann þarf öðr- um flokkum fremur að hafa slíkan refsivönd á lofti í sjálfshirt- ingarskyni? I þriðja lagi dreg ég það mjög í efa, að þeir, sem ekki hlýða óskráðum reglum í frjálsum stjórnmálasamtökum, skipist að gagni við það eitt, að reglurnar komist á blað. Hér ber enn og aftur að þeim brunni, að vilji og siðferðisþrek ráða úrslitum í því samstarfi manna, þar sem stefnt er að sameiginlegum markmiðum, — ekki boð og bönn. Það er svo vitaskuld grundvallaratriði og for- senda alls árangurs, að menn þekki og skynji skyldur sínar og takmörk ekki síður en réttindi. Það leikur ekki á tveimur tung- um, að það er mikið áfall fyrir stjórnmálaflokk, þegar þeir at- burðir gerast, sem tillögum ungra sjálfstæðismanna er ætlað að koma í veg fyrir, að endurtaki sig. Það, sem hent hefur Sjálfstæðis- flokkinn að undanförnu, þarf hins vegar ekki að verða honum óbæt- anlegt tjón. Til þess hníga öll rök, að hann geti og muni endurheimta styrk sinn og samheldni, þegar fram líða stundir, þótt leiðir hafi um sinn skilið þar með ýmsum mönnum. Enn hafa engar brýr verið brotnar að baki til fulls. Hefðu þær reglur verið í gildi, sem ungir sjálfstæðismenn leggja nú tii, að teknar verði upp, hefði Sjálfstæðisflokkurinn hins vegar klofnað með örlagaríkum hætti ekki aðeins við myndun núverandi ríkisstjórnar heldur einnig síðustu alþingiskosningar. Það getur eng- um dulizt, jafnvel ékki hinum glámskyggnustu eða bjartsýnustu mönnum. Þeir menn, sem þá sögðu sig úr bræðralagi við samherja sína um stund, eru ekki einfarar í Sjálfstæðisflokknum. Þeim hefur fylgt að málum einhver hópur manna, sem að vísu er óþekkt stærð. Þetta fólk hefði án alls efa bundizt einhvers konar samtök- um, sennilega í nýjum stjórnmála- flokki, sem staðið hefði Sjálfstæð- isflokknum nærri að marki og miði og tekið frá honum fylgi. Þegar svo hefði verið komið, hefði sameiningin verið lengra undan en nú er og líkast til úr sjónmáli. I viðtali við Helgarpóstinn 11. september sl. lýsir varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Gunnar Thoroddsen, því viðhorfi sínu, að þeir, sem stæðu að slíkri tillögu- gerð á landsfundi og ungir sjálfstæðismenn hafa boðað, „væru vitandi vits að kljúfa Sjálf- stæðisflokkinn. Frjálslyndir menn myndu aldrei sætta sig við slíkt þverbrot á grundvallarhugmynd- um Sjálfstæðisflokksins." Hann bætir því við, að sennilegt sé, að þá myndu frjálslyndir menn bind- ast samtökum, ef tillaga af slíkum toga yrði samþykkt. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, er hér á ferðinni raunsætt mat á köldum veruleika, þótt ýmsum kunni að vísu að þykja slík varnaðarorð koma úr hörðustu átt. Nú er mál að linni hjaðninga- vígum í Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðismenn verða allir sem einn að gera sér grein fyrir því, hvort þeir vilja, að Sjálfstæðis- flokkurinn verði áfram styrkasta brjóstvörn lýðræðisaflanna í land- inu gegn átumeini ríkisafskipta- hyggjunnar. Samþykkt af því tagi, er ungir sjálfstæðismenn beina til landsfundar, væri til þess eins fallin að blása í glæður ófriðar og illinda. Hún væri ávísun á enn meiri sundrungu en ríkt hefur í Sjálfstæðisflokknum um alltof langa hríð. Hún myndi engan raunverulegan vanda leysa, hvorki í bráð né lengd. Hún myndi þvert á móti skapa nýjan vanda sýnu verri þeim, er sjálfstæðismenn eiga allt sitt undir, að verði leystur með farsælum og frið- samiegum hætti. nffu Afhenti trúnaðarbréf NÝSKIPAÐUR sendiherra Bandaríkjanna, hr. Marshall Brement, afhenti í dag forseta íslands trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum, að viðstöddum Olafi Jóhannessyni utanríkisráðherra. Síðdegis þáði sendiherrann boð forseta að Bessastöðum ásamt fleiri gestum. (FréttatiJkynninK.) Stjórnmálamenn og guðfræð- ingar ræða friðarmál í Skálhoíti NÚ UM helgina efnir Kirkjuritið til ráðstefnu í Skálholti undir yfir- skriftinni: Friður ú jörðu. Þar verður fjallað um friðar- hreyfingar samtímans, vígbúnaðar og afvopnunarmál og mun jólahefti Kirkjuritsins birta efni frá ráð- stefnunni. Þremur fulltrúum hefur verið boðið til ráðstefnunnar frá hverjum stjórnmálaflokkanna, sem hafa fangað því tækifæri að ræða þessi brýnu mál á sem breiðustum grundvelli. Þetta er þriðja ráðstefnan sem Kirkjuritið efnir til með þessu formi. í vor áttu myndlistarmenn og guðfræðingar samtalsdaga í Skál- holti en í fyrra voru bókmennta- menn viðmælendur guðfræð- inganna. Meðal þátttakenda í ráðstefnunni um friðarmál eru alþingismenn, stjórnmálaritstjórar, sagnfræð- ingar og guðfræðingar. Ráðstefnustjórnar verða af hálfu Kirkjuritsins þeir dr. Gunnar Kristjánsson ritstjóri og sr. Bern- harður Guðmundsson, frétta- fulltrúi. Biskupaskipti um mánaðamótin SEM kunnugt er verða biskupa- skipti nú um mánaöamótin. llerra l’étur Sigurgeirsson veitir emhætti sínu viðtöku við guðsþjónustu í Dómkirkjunni. þann 27. sept. kl. 10.30 og verður nánar tilkyrint um fyrirkomulag þeirrar hátíðar síðar. Hinn 1. október tekur herra Pétur formlega til starfa sem biskup lands- ins. Herra Sigurbjörn Einarsson mun draga sig í hlé, og er það samkvæmt orðanna hljóðan, er hann laetur af embætti eftir 22 ára starf. Hann hyggst ekki koma fram opinberlega fyrsta kastið, hvorki persónulega eða í fjölmiðlum. (Frá fréttafulltrúa kirkjunnar). isari glæsilegu rétt Skeiða- og Flóamanna í ittum Hin glæsilega rétt Skeiða- og Flóamanna var tekin í notkun í gær eftir endurbyggingu, en hún er byggð fyrst 1881, en endurbyggð á sl. fjórum sum- rum fyrir 90 millj. gkr. Reykja- rétt er nú glæsilegasta rétt landsins og er liðlega mann- hæðarhár grjótgarðurinn klæddur torfi að ofan, en það var hinn kunni hleðslumaður, Sigurþór Skæringsson, bóndi, sem stjórnaði hleðslunni á þessu mikla mannvirki, sem telur nær 30 dilka og er hátt í hundrað metrar í þvermál. Eins og sjá má er margt um mann- inn í þessum glæsilegu réttum og var myndin tekin seinnihluta réttardagsins þegar sumir voru lagðir af stað með fé sitt heim á leið en þorri manna var þó kominn saman í almenningnum til þess að ræöa ofurlítiö um mannlífiö á léttu tónunum og taka tagiö í hinni stórfallegu rétt bænda. Á þessari ljósmynd Ragnars Axelssonar, ljósmyndara Morgunblaðsins, má þekkja mikinn fjölda þess margmennis sem tók þátt í Skeiðaréttum í gær og myndin sýnir einnig glöggt hve fagurt mannvirki Reykjarétt er endurbyggð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.