Morgunblaðið - 19.09.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.09.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1981 19 Frakkar afnema dauðarefsingu París. 18. september. AP. FRANSKA þingið samþykkti í kvöld með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að afnema dauðarefsingu. Afnám dauðarefsingar var eitt helsta kusningamál Francois Mitterrands og sósíalista. Alls greiddu 363 atkvæði með afnámi dauðarefsingar en 117 voru andvígir. Úrslit atkvæðagreiðslunnar bjargar sex mönnum frá fallöx- inni, sem nú fer á safn. I stað dauðarefsingar verður þyngsta refsing lífstíðar fangelsisdómur. Le Figaro birti í gær niðurstöð- ur skoðanakönnunar og þar kom fram, að 62% Frakka eru andvígir afnámi dauðarefsingar. Robert Badinter, dómsmálaráðherra sagði, að Mitterrand hefði gert afnám dauðarefsingar að einu helsta stefnumáli sínu í kosn- ingabaráttunni og því ætti þessi niðurstaða ekki að koma Frökkum á óvart. Fallöxinni var fyrst beitt árið 1791 á tímum frönsku stjórnar- byltingarinnar. Henni var síðast beitt árið 1977. Johan Johannsson ma'tir á skrifstofu fylkishappdraútisins í New York til að taka á móti vinningnum. stmamynd - Al*. Sænskur öryrki milli í New York Now York. 18. sopt. AP. IIANN datt heldur betur í lukkupottinn hann Johan Johannsson. sænskur maður. sem búsettur hefur verið len>?i í New York, því í fylkishappdrættinu hlaut hann 2,2 milljóna dollara vinninj?. Ilann þarf því ekki að hafa áhyKsjur af að eiga ekki fyrir salti í srautinn það sem eftir er. „Ég vildi þó heldur að heilsan skánaði, því ekki er hægt að kaupa betri heilsu fyrir þessa peninga," sagði Johannsson. Hann er 58 ára fyrrverandi sjómaður og býr í lítilli einstakl- ingsíbúð í Brooklyn. Johannsson fylgdist með út- drætti í sjónvarpi síðastliðið laugardagskvöld, en gaf sig ekki fram fyrr en í dag, en í millitíð- inni höfðu fjölmiðlar nærri því gengið af göflum í leitinni að hinum nýja milljónamæringi. Johannsson sagði blaða- mönnum í dag, að hann hefði skrifað talnaröð á blað og beðið kunningjakonu sína, Rósu, að að kaupa happdrættismiða og rita röðina þar á. Miðinn kostar einn dollar. Hann sagðist ætla að gefa Rósu hluta vinningsins, eitthvað til líknarmála, og þá fengju fósturbörn hans fjögur í Kóreu, Indlandi og Afríku, en hann kostar uppeldi þeirra, sinn skerf. Milljónamæringurinn, sem látið hefur sér 521 dollara ör- orkubætur á mánuði nægja, seg- ist engin áform hafa um að flytja úr litlu blokkaríbúðinni í Brooklyn. Prior óvænt í Maze-fangelsi Bolfast. 18. september. AP. JAMES PRIOR. nýskipaður írlandsmálaráðherra brezku stjórnarinn- ar. kom i dag i óvænta heimsókn i Maze-fangelsið í Belfast. þar sem írskir hryðjuverkamenn hafa verið í hungursvelti frá þvi i marz, til að leggja áherzlu á kröfur sínar um að verða viðurkenndir sem pólitiskir fangar. Tíu hryðjuverkamenn hafa þegar látist í þessum mótmælaað- gerðum. og sex eru hætt komnir. Prior skoðaði fangelsið í tvær klukkustundir ásamt konu sinni og dóttur og tveimur aðstoðarráð- herrum sínum, Gorie lávarði og Nicholas Scott. t Heimsóknin jók vonir stuðn- ingsmanna hungurfanganna um að einhver árangur yrði af til- raunum til að leysa deilu fang- anna við brezk yfirvöld. Fangarnir krefjast þess að þurfa ekki að vera í sérstökum fangaklæðnaði, að þurfa ekki að inna nein störf af hendi og að þeir fái að hafa frjálsan samgang sín á milli í fangelsinu. Embættismenn hermdu, að Prior hefði skoðað H-bygginguna svonefndu, þar sem fangarnir dvelja og ræddi hann við marga þeirra, þar sem þeir voru vafðir teppum í stað fangelsisklæða. Einnig leit Prior inn til sumra hungurfanganna, en ræddi þó ekki við þá. Prior kom til Norður-írlands í gær og ræddi við ýmsa leiðtoga í héraðinu þá og i dag, þ.á m. James Molyneaux og Ian Paisley klerk, leiðtoga mótmælenda á N-írlandi. Ný lyf hindra æðakölkun WashinKton. 18. soptomhor. AP. TILRAUNIR með lyf sem koma i veg fyrir að kalsíum safnist fyrir í líkamanum. hafa leitt í Ijós. að lyf þessi gætu komið í veg fyrir a'ðakölkun. að sögn handarískra vísindamanna. I Ijós kom við tilraunir á öpum, að lyfin, sem koma í veg fyrir kalk- m.vndun, hindra einnig að fituefni safnist fyrir og setjist að í æðum. Þessar upplýsingar eru birtar, aðeins einum degi eftir að skýrt var frá því opinberlega, að dánartíðni vegna ýmiss konar hjarta- og æða- sjúkdóma í Bandaríkjunum, hefði minnkað um 25 af hundraði. Árlega deyja um 900.000 manns vegna æða- og hjartahilana. Tilraunirnar með lyfin, sem hindra kalsíummyndun, leiddu í ljós, að þau festu sig við það kalsíum sem fyrir væri í æðum, og kæmu í veg fyrir frekari myndun. Einnig kom í ljós, að lyfin hafa engar alvarlegar aukaverkanir í för með sér, en óttast er þó, að mikið magn þeirra geti hindrað beinmynd- un í ungu fólki. Tilraunirnar eru enn á byrjun- arstigi, en þær þykja lofa góðu. Simon og Garfunkel syngja aftur saman New York. 18. september. AP. HINIR þekktu tónlistarmenn Paul Simon og Art Garfunkel syngja saman á ný, en þeir hættu samstarfi árið 1970 eftir árangursrika samvinnu i rúman áratug. Simon og Garfunkel efna til hljómleika í Central Park í New York á morgun, laugardag, og er búist við a.m.k. hálfri milljón áhorfenda. Hljómleikarnir verða festir á tónbönd og myndbönd, en þó hefur enn ekki verið ákveðið hvort gefnar verða út hljómplðtur í kjölfar tónleikanna. Dúettinn, sem á sínum tíma seldi plötur í tugmilljónatali, þar af seldist breiðskífa þeirra „Bridge Over Troubled Water" í yfir tíu milljónum eintaka, hefur verið við æfingar í íbúð Garfunk- els ásamt ellefu manna hljóm- sveit. Báðir búa listamennirnir í New York. Aðgangur að tónleikum Simons og Garfunkels verður ókeypis, en ágóði af sölu stuttermabola og veggspjalda á tónleikunum mun renna í sjóð til eflingar útivista- svæðum í New York. Þrír létust í sprengjutil- ræði í Beirút Beirut. 18. september. AP. ÞRÍR biðu bana þegar öflug sprengja sprakk í hverfi múhameðstrúar- manna í Beirut, höfuðborg Líbanon í dag. Hægrisinn- uð öfgasamtök hafa lýst ábyrgð á hendur sér. Sprengjan var skilin eftir í bifreið við fjölfarna verzlunargötu og slösuð- ust margir. Þúsundir fylgdu 25 manns til grafar í Sídon í dag. Þeir létust þegar öflug sprengja sprakk í gær fyrir utan höfuðstöðvar frelsissamtaka Palestínu, PLO, í borginni. Þá létust 10 manns í gær í sprengjutilræði í sements- verksmiðju í Chekka í norður- hluta landsins. Öfgamsamtök hægrimanna stóðu einnig að baki þessum sprengjutilræðum. Veður víða um heim Akureyri 7 alskýjað Amsterdam 17 skýjað Aþena 26 heiðskírt Barcelona 27 skýjað Berlín 18 heiðskírt Briissel 14 rigning Chicago 11 skýjað Oublin 17 heiðskírt Feneyjar 23 þokumóða Frankfurt 19 skýjað Færeyjar 10 rigning Genf 22 heiðskírt Helsinki 11 skýjað Hong Kong 27 skýjað Jerúsalem 26 heiðskírt Jóhannesarborg 29 heiöskirt Kaupmannaböfn 15 heióskírt Lissabon 25 skýjað London 18 skýjaö Los Angeles 34 heiðskírt Madrid 33 heiðskirt Malaga 29 léttskýjaö Mallorka 28 skýjað Miami 31 rigning Moskva 14 skýjað Nýja Delhí 36 skýjað New York 19 skýjað Osló 11 skýjað París 23 skýjað Reykjavík 7 skýjað Ríó de Janeiro 26 skýjað Romaborg 27 heiðskírt San Francisco 20 heiöskírt Stokkhólmur 13 heiðskírt Sydney 24 heiöskírt Tel Aviv 30 heiðskírt Tókýó 26 heióskýrt Vancouver 19 rigning Vínarborg 13 skýjað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.