Morgunblaðið - 16.10.1981, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 16.10.1981, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 Maður og mynd Yfirlitssýning Kristjáns Davíðs- sonar í Listasafni íslands Myndlist Bragi Ásgeirsson í sölum Listasafns íslands stend- ur nú, og til fyrsta nóvember, yfir sýning á myndverkum Kristjáns Ilavíðssonar, spannar hún feril hans frá fyrstu tilraunum á lista- brautinni og fram til þessa árs. Listamaðurinn Kristján Davíðs- son er vel þekktur af verkum sínum og athafnasemi á myndlistarvett- vangi og það langt út fyrir lands- steinana. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í ótal samsýningum heima og erlendis, auk þess sem hann hefur verið virkur í félagsmálum myndlist- armanna. — Um 14 ára skeið eða frá 1957—71 sýndi Kristján svo til árlega í höfuðborginni og hann mun eiga metið um samfelldar einkasýningar í Bogasal Þjóð- minjasafnsins eða 12 samtals. Það þótti jafnan hressilegur viðburður er Kristján opnaði sýningu og þær vöktu mikla athygli og voru iðulega fjölsóttar. Á síðasta áratug hefur Kristján aftur á móti ekki stofnað til neinnar einkasýningar enda var hann búinn að fá nóg af öliu um- stanginu í kring um þær, en hann hefur verið með á fjölda samsýn- inga og verk hans voru kynnt í FIM-salnum á Listahátíð 1978. Eins og svo margir af eldri skól- anum þá fór Kristján rólega af stað og þannig liðu t.d. 18 ár frá fyrsta myndlistarnámi þar til að hann hélt einkasýningu hér heima, sem var í Listamannaskálanum gamla árið 1950. Þegar hér var komið hafði hann langt en slitrótt mynd- listarnám að baki, sem byggðist öllu meir á skoðunarferðum og dvöl erlendis en samfelldu námi. Lengst var hann í samfleitt tvö ár vestur í Bandaríkjunum við Barnes-stofn- unina í Merion, Pennsylvaníu. Þar vestra hlotnaðist honum sá frami að Barnes-stofnunin keypti af hon- um mynd á sitt einstæða safn nú- tímalistar og hann heldur fyrstu sérsýningu sína í International Student House 1946. Eftir heimkomuna frá Banda- ríkjunum gerðist hann virkur þátttakandi í Septembersýningun- um, tók þátt í þeirri fyrstu og síð- ustu ásamt því að vera einn þeirra er mest hefur haft sig í frammi eftir endurreisn samtakanna fyrir 8 árum. Með sýningum Septemb- er-hópsins var brotið blað í ís- lenzkri myndlistarsögu, því að nú fengu nýjir straumar samtímalist- ar í fyrsta skipti óhefta útrás á íslenzkum sýningavettvangi, — að vísu með dálítilli forsögu en það sem máli skiptir var að þetta var innlend framleiðsla. Viðbrögð þorra almennings urðu og heiftar- legri en í nokkurn annan tíma og þessir menn urðu tákn um hroð- virknisleg vinnubrögð á svipaðan hátt og lengi var spurt í skólum „hvort viðkomandi væri að herma eftir Kjarval" ef þeir gerðu afkár- lega mynd í teiknitíma! Með Sept- embersýningunum hélt það innreið sína, sem lærðir hafa skilgreint með heitinu „Art Brut“ (hrá list) og gerði það einnig með svo óhefl- uðum krafti að líkast var sem að íslenzk fagurfræði fengi blauta tusku framan í sig. Frá þeim tíma var ekkert eins og áður í íslenzkum veruleik á myndlistarsviði. Kristján var fremstur í flokki þeirra er tileinkuðu sér umbúða- laus vinnubrögð og hann hitti hér á kjarna séreðlis síns, því að á meðan að ýmsir félaga hans hafa gengið í gegnum ýmis þróunarstig agaðrar flatarmálslistar hefur hann haldið sinu striki um málunarmáta, þótt list hans hafi tekið miklum breyt- ingum. Þessi listamaður var eigin- lega svo sannfærður um þýðingar- leysi þess, að vera ekki með í því sem væri á oddinum á hverjum tíma, að þegar að vegur flatarmáls- listarinnar var sem mestur kaus hann frekar að halda að sér hönd- um en að mála á sviði er var honum sjálfum framandi. Hér gerði hann þó ekki rétt, því að á þessum tíma var mikið að gerjast á bak við tjöldin þótt ekki þætti það fram- úrstefnulegt og sýningarsalir og framúrstefnulistfræðingar sneru baki við. Það beið einungis síns tíma og þegar það loks ruddist fram á yfirborðið í öllu sínu fjöl- breytilega veldi eftir listrænt meinlæti í mörg ár, — þá fór Kristján að mála aftur og var svo Kristján Davíðsson sannariega með á nótunum. Þetta lýsir manninum vel og við verðum að gæta þess, að Kristján var bú- settur hér, á einangruðu útskeri á hjara veraldar og var svo sem fleiri fórnardýr gefinna aðstæðna. Eng- inn vafi er á að þróunin hefði orðið önnur ef að hér hefði ríkt víðsýni og umburðarlyndi fyrir öðru en sviðsetningu þröngsýnna listapáfa á hinum eina og stóra sannleik. Sagan endurtekur sig og því skulu þeir er vilja fara eigin leiðir í trássi við viðurkennd erlend sjónarmið einfaldlega gera það ... Kristján Davíðsson hefur lýst tilfinningum sínum við gerð mynd- ar mjög vel í ágætu viðtali í Eim- reiðinni 1974. Spyrjendurnir voru fimm og sóttu stíft á listamanninn og allt er viðtalið í þá veru, að til eftirbreytni telst. Listamaðurinn svaraði eftirfarandi spurningu á snjallan hátt. „Hvað rekur þig áfram við gerð myndar, er þér hvati?“: — Þar gengur saman ánægjan af að fara með efnið, málninguna, litinn, línurnar. E.t.v. er bróður- parturinn ánægjan af efninu og litnum. Það gaman, sem unnt er að hafa af efninu, sú nautn, sem er af því að ráða við litinn, láta hann gera eitthvað fyrir sig, er það sem skiptir mig mestu. Ég er ekki mik- ill hestamaður, en ég gæti ímyndað mér, að það sé líkt því að þeysa á gæðingi, — sem er svolítið baldinn á köflum. — Þegar ég er með autt spjald fyrir framan mig, eru auð- vitað ekki önnur skilyrði til en hið auða spjald. Hins vegar eru ýmis afstæði orðin til strax og fyrsti litaflokkurinn hefur komizt á það. Þá er oft góð von um framhald. Yfirleitt er mér mjög illa við að byrja að mála: „Ég fer í hringi eins og köttur í kring um heitan graut u Það er auðséð á öllu, að hér lýsir listamaður kenndum sínum um- búðalaust og betur verður það Allir kennararnir voru mættir með nemendum 9. bekkjar og foreldrum þeirra f Álftamýraskola á laugardag. Óli Runólfsson, formaður foreldrafélagsins í ræðustóli. Ljósm. kee. 4 Nemendur, foreldrar og skóli undirbúa saman lokaprófin Sl. laugardag efndi Ragnar Júlí- usson, skólastjóri í Álftamýrar skóla, til fundar eftir hádegi með nemendum 9. bekkjar, foreldrum þeirra og kennurum, til að undir búa sameiginlega síðasta vetur þeirra í skólanum og ræða hvernig bestur árangur náist í lokaprófum. I skólanum eru 75 nemendur í ní- unda bekk, sem voru mættir með foreldrum sínum og kennarar þeirra mættu allir. Formaður for eldrafélagsins, Óli Runólfsson, var fundarstjóri. Ragnar skólastjóri benti á að samræmdu prófin í 9. bekk, þ.e. í íslensku, dönsku, ensku og stærðfræði nálguðust, yrðu 2.-5. febrúar og ræddi hvað hægt væri að gera til að nemendur næðu sem bestum árangri. Áformað er að hafa annan fund með foreldr- um og nemendum í nóvember til að fylgjast með náminu. í jóla- vikunni er ákveðið að efna til prófa, sem verði sem líkust sam- ræmdu prófunum, svo að nem- endur geti áttað sig á hvar þeir standa. Þegar komið er í skólann eftir jólin, verður athugað með kennurunum hvað vantar upp á. Þá ræddi skólastjórinn hvað heimilin gætu gert, fylgst með náminu og gætt þess að stundvísi sé í hávegum höfð, svo ekki miss- ist neitt úr kennslustundum. Ut- skýrði hann hvernig próf 9. bekkjar hefðu gengið áður, en nemendum hefur gengið vel í skólanum. Eftir samræmdu prófin, eða þegar kemur fram um páska, er áformaður fundur líkur því sem var á sl. ári, þar sem skóli, for- eldrar og nemendur munu ræða hvað tekur við að grunnskóla- prófi loknu. í fyrra sátu fyrir svörum skólastjóri Menntaskól- ans í Hamrahlíð, sem er framhaldsskóli þessa hverfis, skólastjóri Ármúlaskóla og skólastjóri Iðnskólans. Sagði Ragnar Júlíusson skólastjóri skýrir prófín og ræðir undirbúning þeirra. Ragnar að skólinn vildi reyna að skilja sem best við nemendur, þegar þeir hyrfu þaðan. Lausaskuldum húsbyggjenda breytt í föst lán: Heildarupphæð lána rúmar 24 milljónir SAMKVÆMT samkomulagi við ríkisstjórnina ákváðu viðskipta- bankar og sparisjóðir í aprílmánuði sl. að breyta lausaskuldum hús- byggjenda í bönkum og sparisjóð- um í föst lán til 8 ára. Alls bárust 427 umsóknir til viðskiptabankanna og var orðið við þeim öllum, nema 14. Alls voru því veitt 413 lán er greiddu upp samtals 1485 lán. Heildar- upphæð lánanna nam 24.157.000 kr. og var meðalupphæð lána 58.500 kr. Ákveðið var að viðskiptabank- arnir afgreiddu sameiginlega sín á milli þau lán, sem væru í bönk- unum, en sparisjóðirnir þau, sem hjá þeim væru. Sérstök sam- starfsnefnd banka og sparisjóða sá um undirbúning og fram- kvæmd skuldbreytingarlánanna. Utbúin voru umsóknareyðublöð, þar sem skrá átti öll skammtíma- lán sem óskað var að breyta. Um- sóknina sendi umsækjandi í þann banka eða sparisjóð, sem hann hafði aðalviðskipti sín við. Sá banki eða sparisjóður gekk frá endanlegu láni. Umsóknarfrestur var til 31. maí en afgreiðslu allra umsókna lauk í ágústmánuði sl. Skilyrði fyrir skuldbreytingu voru: Að umsækjandi hefði fengið lán hjá Húsnæðismálastjórn ríkisins á árunum 1978, 1979 og 1980 eða verið lánshæfur á þess- um árum, samkvæmt núgildandi reglum stofnunarinnar. Að umsækjandi hefði fengið lán hjá banka eða sparisjóði til íbúðarkaupa eða byggingar og skuldað í árslok 1980 vegna slíkra lána 20.000 nýkrónur eða meira, enda hefðu lánin upphaflega ver- ið veitt til skemmri tíma en fjög- urra ára og ættu að greiðast upp á næstu þremur árum eða skemmri tíma. Undanskilin væru skammtíma- lán veitt vegna væntanlegra hús- næðislána, lífeyrissjóðslána eða annarra tímasettra greiðslna. Nýju lánin áttu að vera til 8 ára, eða skemmri tíma sam- kvæmt ósk lántakenda, bundin lánskjaravísitölu með 2'á% vöxt- um. Lánin væru veitt gegn fast- eignaveði, og veðsetning eignar mátti ekki nema hærra hlutfalli en 65% af brunabótamati. Lánsfjárhæð skyldi ekki nema hærri upphæð en 100.000 kr. og endurgreiðast með ársfjórðungs- legum afborgunum lánstímabilið. Enginn at- vinnuleysis- dagur á Vest- fjörðum SAMKVÆMT þeim tölum, sem nú liggja fyrir frá þeim aðilum sem ann- ast vinnumiðlun og atvinnuleysis- skráningu um land allt, reyndust skráðir atvinnuleysisdagar á landinu öllu í septembermánuði vera 4.852 dagar. I frétt frá vinnumáladeild í fé- lagsmálaráðuneytinu segir að þetta svari til þess að 224 hafi ver- ið skráðir atvinnulausir allan mánuðinn eða 0,2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði í mán- uðinum. Skráðum atvinnuleysisdögum hefur samkvæmt þessu fjölgað um 951 og atvinnulausum um 44 frá síðasta mánuði. Hundraðshlutfall er hins vegar óbreytt vegna fækk- unar á vinnumarkaði þar sem skólafólk hefur látið af störfum. Á Vestfjörðum var enginn at- vinnuleysisdagur í september, eft- ir öðrum landshlutum skiptust skráðir atvinnuleysisdagar þann- ig; Höfuðborgarsvæðið 2.509, Vesturland 154, Norðurland vestra 998, Norðurland eystra 780, Aust- urland 34 og Suðurland 220.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.