Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 25 Vistmaður að starfi. i jslonsUum ImUnu'imti""] 1 in1<‘ii»J\iiiii l,*-, Hefti med sérstök- um yrkisefnum um mikið áfall er hann féll frá fyrir aidur fram frá mikilvægu starfi. í fyrrnefndum útvarpsþætti um skólamál fatlaðra fannst mér nokkurs vanmats gæta hjá vini mínum, Arnþóri Helgasyni, á af- skiptum B.í. af skólamálum blindra, hann lét þau orð falla tvisvar í þættinum að Blindravina- félag Islands hefði rekið Blindra- skólann að Bjarkargötu 8, að nafn- inu til í þessi ár. Félagið fékk að vísu kennarann settan á ríkislaun en rak skólann að öðru leyti, greiddi aukavinnu til meiri en sett var á reikning, einnig þurfti að greiða ýmsum fyrir gerð námsgagna, því allt þurfti að búa til heima á blindraletri og segul- böndum. Auk þess sá félagið þeim fyrir heimavist sem áttu heima utan Reykjavíkursvæðisins. Þó skólinn að Bjarkargötu 8 hafi verið ófullkominn og vantaði margt sem þurft hefði og húsnæði væri knappt, hljóta nemendur að hafa fengið þar allgóða undirstöðu; annars hefði sumum þeirra ekki tekist að komast síðan áfram i al- mennum skólum og allt upp í Há- skóla á sama tíma og ófötluðum nemendum, þrátt fyrir eigin dugn- að, sem auðvitað er alltaf sterkasti þátturinn í menntakeðju nemand- ans. Eftir fráfall Einars Halldórs- sonar var Margrét Sigurðardóttir, kennari, send til sérnáms í Dan- mörku og var sú námsför að veru- legu leyti styrkt af félaginu. Nú starfar Blindraskólinn sem deild í ríkisskóla, Laugarnesskól- anum, og við skulum vona að menntamálastjórnendur framtíð- arinnar hafi hann ekki í svelti en sjái um að sérmenntaðir kennarar verði til taks þegar á þarf að halda. Vorið 1941 réðst ég til skrif- stofustarfa hjá Blindravinafélagi íslands. Um haustið það ár gengu 6 manns blindir út úr húsi félagsins. Þau höfðu þá stofnað Blindrafé- lagið, eins konar stéttarfélag blindra, og stofnsettu Blindra- vinnustofuna, sem nú er orðin að stórfyrirtæki og menningarstöð í höndum þeirra að Hamrahlíð 17. Þau sem fóru voru fyrrveraiidi nemendur Blindraskólans, yngsta og duglegasta fólkið. Það var dá- lítið tómlegt á vinnustofunni þegar þau voru farin, svona eins og þegar börnin á heimilinu fara út í lífið til að búa sjálf. En Blindraiðn hélt áfram með þeim, sem vildu vera, og smátt og smátt kom nýtt fólk og aftur fjölgaði á stofunni. Þau ár, sem ég vann þar, var mest unnið að burstagerð og gólfklúta- og gólfdreglavefnaði og Þórsteinn kenndi einhverjum hús- gagnabólstrun í Körfugerðinni. Það er mikil lífsreynsla að vinna á svona stað og verða vitni að þeim hetjudáðum, sem blindir drýgja hvern dag með því einu að lifa líf- inu á jafn eðlilegan hátt og hinir sem hafa sjónina, að láta ekki bug- ast og halda gleði sinni. Enn sitja nokkrir blindir á vinnustofu Blindraiðnar, Ing- ólfsstræti 16, ríða körfur og draga í bursta ásamt aðstoðarfólki sínu. Þarna eru manneskjur, sem ann- ars ættu þess ekki kost að vinna, og þeim er þetta mikils virði, bæði til að vinna sér inn ofurlitla viðbót við ellilaunin og ekki síður vegna ánægjunnar að hafa eitthvað handa á milli hluta úr degi. Blindravinafélag íslands þarf enn um sinn að styðja við bakið á þess- um skjólstæðingum sínum og leit- ar þess vegna til almennings um ofurlitla aðstoð við reksturinn með því að hafa merkjasölu nú á laug- ardag og sunnudag. Merkin eiga að kosta kr. 30 og eru um leið happdrættismiði. Kannski finnst ykkur þetta dýr merki, góðir samborgarar, ég vona þó að ykkur finnist ekki farið fram á of mikið. Það er svo sem andvirði þriggja brauða eða smágjafar í barnaafmæli. Blindravinafélag íslands mun vera fyrsta félag á íslandi, sem stofnaði vinnustofu til styrktar ör- yrkjum. Sýnum samhug með því að kaupa merki félagsins um helg- ina og gleðjum með því aldinn formann þess, Þórstein Bjarnason. Þeir eru fáir sem hafa starfað að velferðarmálum blindra af jafn- mikilli eljusemi og fórnfýsi og í svo langan tíma sem hann. ÚT ERU komin há Iðunni þrjú hefti með bókmenntatextum handa skólum, Þemakver Iðunnar. Er hér um að ræða valda texta um ákveðið yrkisefni eða þema, og eru þeir sóttir í íslenskar bókmenntir að fornu og nýju. Menntaskóla- kennararnir Bjarni Ólafsson, Sig- urður Svavarsson og Steingrímur Þórðarson sáu um útgáfuna. Fyrsta heftið nefnist Hetjan í ísr lenskum bókmenntum, annað heft- ið Ástin og hið þriðja Konan. Text- arnir eru birtir með orðskýringum eftir því sem þurfa þótti og aftast eru skrár um útgáfu verkanna. Textar eru jafnt í bundnu máli og óbundnu, sögukaflar, smásögur og ljóð. Elsta efni í kverunum er úr Eddukvæðum, en yngsti höfund- FÉLAG bókagerðarmanna mun í þessari viku fara þess á leit við ríkissáttasemjara, að hann boði til fundar með félaginu og atvinnu- rekendum um gerð kjarasamn- inga, svo fljótt sem auðið er, að því er formaður félagsins, Magnús Einar Sigurðsson, prentari, sagði í samtali við Morgunblaðið. Magn- ús sagði félagið hafa lagt fram kröfur sínar fyrir all nokkru, en engar viðræður hefðu enn farið fram. Nú í vikunni sagði Magnús fara fram vinnustaðafundi, til urinn, Elísabet Þorgeirsdóttir, er fædd árið 1955. í formála útgefenda segir að kver þessi séu ætluð „til notkunar í framhaldsskólum. Þó hurfu út- gefendur frá því að hafa hér sér- stök skólaverkefni. Engin hefð er komin á að bókmenntir séu lesnar eftir sérstökum þemum eða aðal- efni í framhaldsskólum og töldum við ekki rétt að binda hendur kennara og nemenda með verkefn- um sem fylgdu þessari útgáfu. Við teljum að vinna megi með texta þessa kvers út frá mörgum sjón- arhornum og viljum við gefa hugmyndaríkum nemendum og kennurum tækifæri á að spreyta sig.“ Þemakver Iðunnar eru 64 bls. hvert um sig. Prentrún prentaði. kynningar á kröfum félagsins í komandi kjarasamningum, og þar færi einnig fram skoðana- könnun í atkvæðagreiðsluformi, um hvort skuli sett á oddinn krafa um að samningarnir gildi frá 1. nóvember næstkomandi, eða þegar núverandi samningar verða lausir. Úrslit úr skoðana- könnuninni sagði Magnús vænt- anlega liggja fyrir á fimmtu- dagskvöld eða á föstudag, en ljóst væri þó að krafan um gild- istöku nýs samnings yrði ein megin krafa félagsins í komandi samningum. Félag bókagerðarmanna: Skoðanakönnun um gildistöku nýs samnings verið formaður Jarðræktarfélags Reykjavíkur er Einar Ólafsson, fv. bóndi í Lækjárhvammi, — eða í 36 ár. Aðrir sem hafa unnið félaginu ómetanlega í tugi ára og eflt um- svif þess í þágu landbúnaðarins eru þeir feðgar Kristófer Grímsson, frá Steig í Dyrhóla- hreppi (f. 12. apríl 1893, d. 13. nóv. 1969) og sonur hans, Helgi M. Kristófersson, Silfurteig 4 Reykjavík. Sá fyrrnefndi var jarðræktar- maður og framkvæmdastjóri fé- lagsins um 40 ára skeið eða frá því að hestverkfæri voru aðal- lega notuð við jarðabótafram- kvæmdir og síðan fylgdi hann eftir vélaöldinni fram á efri ár þegar Jarðræktarfélagið hafði mjög mikið umleikis oft á tíðum. Helgi byrjaði sem vélamaður strax á unga aldri, auk þess sem hann sá um margvísleg önnur störf í þágu þess og er nú í stjórn. Það eru að verða um 50 ár síðan Helgi á ýmsan hátt fór að vinna fyrir Jarðræktarfélag Reykjavík- ur svo þeir feðgar hafa því starf- að samanlagt í um 90 ár til efl- ingar þessum jarðræktarfélags- skap sem nú fyllir 90 árin. Stjórn Jarðræktarfélags Reykjavíkur skipa í dag Eðvald B. Malmquist formaður, Helgi Kristófersson og Birgir Matthí- asson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.