Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ1982 19 vera að súa við sér bakinu og endurheimta öll þau gæði, sem henni höfðu fallið í skaut. Síðar léku þau Alain Delon þó saman í myndum tvisvar sinnum. Hún, sem orðin var fræg er þau hittust, hafði stuðlað að því að hans stjarna hækkaði, en er hún hafði tekið sér frí í eitt ár til að hugsa um son sinn, 1966, og var ekki eins eftirsótt þegar hún vildi koma til baka, þá gat hann farið fram á að fá hana sem mótleikara í „Sund- lauginni". Þau héldu því síðar sambandi, og urðu góðir vinir til æviloka hennar. En meðan þessi fræga leikkona á sínum tíma syrgði Alain Delon sárlega, hélt hún til foreldra sinna í Þýskalandi og hitti þar hinn kunna leikhúsmann Harry Huber- stock eða Harry Mayer. Hann var þá kvæntur leikkonunni Anne- Lise Röhmer og ekki laus. Þrátt fyrir hneykslan og skrif í þýsk blöð, ákváðu þau að eyða saman ævinni og héldu til St. Tropez, þar sem þau giftu sig strax og hægt var. Eftir að hafa leikið í einni eða tveimur kvikmyndum í Frakk- landi, héldu hjónin til Berlínar og settust þar að. Þar fæddist þeim 3. desember 1966 sonurinn David, sem upp frá því var augasteinn móður sinnar. Hún ætlaði jafnvel að hætta alveg að leika til að geta sinnt honum, en entist ekki til þess nema eitt ár. Kona á borð við Romy hætti ekki lífsstarfinu einn góðan veðurdag, bara si svona. Kvikmyndaverðlaun og velgengni Fyrr en varði var hún aftur komin á toppinn. Um 1970 lék hún t.d. í fyrsta, en ekki síðasta skipt- ið, undir stjórn Claude Sautet og árið eftir undir stjórn Joseph Los- eys í „Morðið á Trotsky", og þar á eftir í mynd Viscontis „Sólarlag guðanna". Henni gekk semsagt allt í haginn í starfi, þótti orðin stórkostleg leikkona. Hún fékk tvisvar sinnum Cesar-verðlaunin fyrir besta kvenhlutverk fyrir „Mikilvægast er að elska" með Yvez Montant sem mótleikara og aftur fyrir leik sinn í „Einföld saga“ eftir Claude Sautet. Einnig var hún á kvikmyndahátíðinni í Taormina kjörin besti leikari í kvenhlutverki. Kvikmyndin „Gamli riffillinn", sem hún lék í, fékk líka Cesar-verðlaunin 1975. En meðan Harry setti á svið framúrstefnuleikrit í Hamborg, lék hún í kvikmyndum í London, Róm, New York og París, og hún vildi ekki slíta David frá föður sínum og heimili og tók hann með sér. 1975 skildu þau með miklum harmkvælum og baráttu um Dav- id. Eftir að hún hafði fengið drenginn fyrir mikið af eignum sínum, flutti hún aftur til Frakk- lands eftir stutta dvöl í Sviss og tók til við að leika af krafti. Lék í 10 kvikmyndum á 3 árum. Fram- kvæmdastjóri hennar og hjálp- arhella var Daniel Biasini, sem staðið hafði við hlið hennar gegn- um hinn erfiða skilnað frá Harry. Sex mánuðum eftir að skilnaður- inn loks gekk í gegn, gengu þau í hjónaband í Berlín. Með seinni manni sínum eignaðist hún Söru Ung og áhyggjulaus. Þessa mynd af sér og syninum David skildi Romy Schneider ekki við Romy með Söru litlu, sem er nú við lát móður sinnar 5 ára. sig. litlu, sem var fimm ára við lát móður sinnar. Romy, Daniel, Dav- id (sem stjúpfaðirinn hefur ætt- leitt) og Sara áttu gott fjölskyldu- líf í 8 ár, fyrstu árin að minnsta kosti. David fór aftur í sinn gamla skóla og eignaðist eigin vini og þeim fannst að ekkert gæti komið fyrir, segir Daniel Biasini í viðtali. Samt fer það svo að þau skildu, en héldu góðu sambandi, hringdu oft hvort í annað og David heimsótti stjúpföður sinn. Daniel var oft með Söru og hann hjá foreldrum sínum í Saint-Germain-en-Laye rétt utan við París. David hafði alltaf verið hluta úr árinu í Þýska- landi hjá sínum eigin föður, þar til hann fyrirfór sér. Sonarmissir Slysið varð þegar hann var í heimsókn hjá foreldrum stjúpföð- urins. Hann leit á þau sem afa sinn og ömmu og var þar oft. 5. júlí í fyrrasumar var hann þar með Daniel og Söru, systur sinni. Þennan sunnudag hafði hann fylgt vini sínum á hjóli heim. Þegar hann kom aftur að húsinu, vildi hann ekki trufla ömmu sina með því að hringja á bjölluna í hliðinu og ætlaði, eins og svo oft áður, að klifra yfir háa girðinguna með oddhvössum tindum. En þar hefur hann misst jafnvægið og dottið á tindana, sem stungust á hol. Samt tókst drengnum að dragast lang- leiðina að húsinu, en hafði misst svo mikið blóð að holskurður í sjúkrahúsinu dugði ekki til að bjarga lífi hans. Móðir hans féll saman. Þrátt fyrir ungan aldur var David orð- inn besti vinur hennar, stoð og stytta. Þótt hún hefði alltaf varið börnin fyrir ljósmyndurum, þá hafði hún nú tekið hann með sér við móttöku Cesar-verðlaunanna og fleira. Milli þeirra var mjög hlýtt samband. David hafði lesið handritið að næstu kvikmynd, „La Passante de Saint-Souci", og sagt: „Taktu þetta hlutverk, það verður næsta Cesar-verðlaunahlutverkið þitt.“ Nú dembdi Romy sér í vinn- una við gerð þessarar kvikmynd- ar, sem varð hennar síðasta. Og hún helgaði kvikmyndina syni sín- um. Framan við hana stendur: „Tileinkuð David og föður hans.“ Þegar hún var spurð, sagði hún: „Úr því að allir virðast eiga mig, þá hljóta þeir að eiga rétt á að þekkja það sem mér er kærast og það sem ég hefi misst." Og hún sagði við annað tækifæri: „Ég hefi jarðað föðurinn, ég hefi jarðað soninn. En ég hefi aldrei skilið við þá og þeir hafa heldur ekki horfið frá mér. Ég vil ekki gleyma." Og einnig: „Mér er ekki sköpuð ham- ingja. Ég greiði fullt verð fyrir velgengnina. Maðurinn minn er búinn að fá son okkar frá mér.“ Tvær myndir Romy á hvíta tjaldinu í Reykjavík David ætlaði að klifra yfir grindverkið til að ónáða ekki ömmu sína, eins og hann hafði oft gert áður, þegar hann féll á teinana. Það var hörmu- legt slys.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.