Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 44
r Gkkm ikif’inn! SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982 Fæðingum fjölgar FÆÐINGUM á Fæðingardeild Landspítalans hefur fjölgað um meira en 100, á fyrra helmingi þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra. I ár eru skráðar 1254 fæð- ingar til miðnættis 30.6. en voru í fyrra 1147. Sex háhyrningar fangaðir í haust ,,VIf) IIÖFIJM fengið leyfi til þess að fanga sex háhyrninga og munum gera það þegar síldveiðar hefjast í haust,“ sagði Jón Gunnarsson, for- stjóri Sædýrasafnsins í Hafnarfirði, í samtali við Mbl. Háhyrningarnir verða fangaðir fyrir handaríska aðila og verða fluttir vestur um haf með flugi. I'rjátiu háhyrningar hafa verið fangaðir fyrir erlenda aðila frá 1976. — Verður Sædýrasafnið opið almenningi í sumar? „Hverfandi líkur eru á að Sæ- dýrasafnið verði opnað almenn- ingi í sumar. Það er ekki grund- völlur fyrir rekstrinum og vilji virðist ekki fyrir hendi af hálfu opinberra aðila, að styðja við bak- ið á safninu. Dýrin eru þar ennþá og ég er ekkert farinn að huga að því, hvernig best verður að ráð- stafa þeim, ef svo fer sem horfir að Sædýrasafninu verði lokað," sagði Jón Gunnarsson. LAGT Í’ANN Morgunblaðið/ Kristján Einarsson Margir leggja land undir fót um þessar mundir í sumarblíðunni og það hefur aukizt á undanfórnum árum að menn fari í gönguferðir, yfirgefi bíla sína til þess að stuðla að aukinni rækt líkama og sálar. Morgunbladið/ KÖE Aðeins einn og einn karl með sæmilegt — segir Björn Guðjónsson um grásleppuvertíðina „ÞAD KK ekkert fiskirí eins og er og ef litið er á heildina er þessi grásleppuvertíð mjög léleg. Það er bara einn og einn karl, sem fær sæmilegan afla og sjálfur er ég ekkert óánægður því ég bjóst ekki við neinu," sagði Björn Guðjóns- son, stjórnarformaður Samtaka grásleppuhrognaframleiðenda, í spjalli við Morgunblaðið. Björn sagðist ekki vilja gefa upp afla sinn að þessu sinni. Hann réri frá Grímsstaðavör- inni og hefði stundað gráslepp- una síðan hann myndi eftir sér og væri nú orðinn rúmlega sex- tugur. Sagði hann að það væri ekkert einsdæmi þó veiði dytti niður á köflum og væri hann ekkert hræddur um að gráslepp- an væri að hverfa. Veiðin hyrfi oft um þetta leyti en gysi síðan upp aftur. Hann vissi af því að menn, sem verið hefðu að kafa á þessum slóðum, hefðu séð mikið af fiski við botninn og mikið af fallegri grásleppu væri á ferð- inni. Það þyrfti bara einhverjar breytingar á sjónum og sjávar- lagi til þess að hún fengist. Ver- tíðinni ætti síðan að ljúka þann 18. þessa mánaðar, yrði hún ekki framlengd og það væri bara að bíða og vona að þetta lagaðist. Björn sagðist venjulega keyra út í þrjá stundarfjórðunga og legði netin í kantana utan Skerjafjarðarins. Hann væri með 140 net í sjó og verkaði einnig alltaf ögn af grásleppunni og hengdi hana upp. Það væri herramannsmatur, sem margir, jafnt ungir sem gamlir, væru mjög sólgnir í. Annars væri það að fara minnkandi að menn nenntu að eyða tímanum í þetta. Þeir hefðu frekar fleiri net í sjó og eyddu ekki svefntímanum í verkunina. Iceland Seafood í Bandaríkjunum: 19% samdráttur í sölu frystra fiskflaka í ár SALA FISKS í dollurum hjá Iceland Seafood í Bandaríkjunum fyrstu 6 mánuði þessa árs hefur aukizt um 1% miðað við sama tímabil á siðasta ári. 9% aukning hefur orðið i magnsölu á framleiddum vörum, en í sölu frystra flaka hefur orðið 19% samdráttur, að sögn Guðjóns B. Ólafssonar, fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. Hann sagði, að verðmismunur á 5 punda pakkningum væri frá 30 upp í 60 cent og hefði því hlutdeild fyrirtækisins á markaðnum minnkað á síðustu mánuðum. Á sama tíma hefði Kanadamönnum einnig tekist að auka gæði fram- leiðslu sinnar og væru þeir því orðnir erfiðari keppinautar en áð- ur, auk þess hefði orðið samdrátt- ur í framleiðslu frystra flaka hér heima. Þá hefði verð verið hækkað á íslenzkum flökum fyrir ári og þá dró úr sölunni. Hvort sem um væri að kenna framleiðsluminnkun eða verðhækkun, væri það staðreynd að við hefðum misst mikinn hluta markaðarins og erfitt yrði að ná honum aftur. Þá sagði Guðjón að það væri mjög mikil verðsamkeppni á mat- vælamarkaðnum og efnahagslíf í Bandarikjunum einkenndist af lít- illi eftirspurn og mikilli deyfð. Þá hefðu tvö af stærstu kanadísku fyrirtækjunum sameinað sölu- starfsemi sína í Bandaríkjunum og gerði það samkeppnina enn erf- iðari. Þá bæri að geta þess að niðurgreiðslur og rikisaðstoð til kanadískra fyrirtækja væri mjög mikil og gerði það þeim því mun auðveldara með að komast inn á markaðinn. Sagði Guðjón að eina leiðin fyrir íslenzku fyrirtækin væri að þrauka þar til Kanadamenn kæmu niður á jörðina og halda áfram mestu gæðunum og stöðugu fram- boði. Hann teldi það mjög óheppi- lega farið að hengja upp svona mikla skreið og það hefði kannski einnig sett niður gæðastaðla á þorskflökum. Byrjuiuaríramkvænid- ir við Oshlíð í haust „MEININGIN er að færa Óshlíðarveginn fjær hlíðinni og gera rás á milli vegarins og hlíðarinnar. Það verður byrjað eitthvað á þessu verki í haust, en fjárveitingin til verksins, 3 milljónir króna, nægir eingöngu til lítils brots af heildarframkvæmdunum," sagði Jón Rögnvaldsson, yfirverkfræðingur Vega- gerðar ríkisins, er Mbl. spurði hann hvenær hafist yrði handa við endurbætur á Óshlíðarveginum milli ísafjarðar og Bolungavíkur, en eins og sagt var frá í Mbl. í gær eru Bolvíkingar flemtri slegnir vegna slyssins sem varð á veginum i fyrradag, er skriða féll á bíl með þeim afleiðingum að kona stórslasaðist. Á bæjarstjórnarfundi í Bolung- arvík kvöldið fyrir slysið var Óshlíð- arvegurinn til umræðu. Var þar samþykkt samhljóða áskorun á vegagerðina um að hreinsa tafar- laust stalla, sem gerðir hafa verið í hlíðinni á nokkrum stöðum fyrir ofan veginn í þeim tilgangi að taka við hruni. Bolvíkingar segja stalla þessa ekki hafa verið hreinsaöa lengi. Vegagerðarmenn hafa svarað því til að stallarnir verði hreinsaðir í haust um leið og framkvæmdir hefjist við veginn. Álþingi samþykkti í vetur sér- staka fjárveitingu til svonefndra Ó-vega, þ.e. Óshlíðar, Ólafsvík- urennis og Ólafsfjarðarmúla. Að sögn Jóns er hér aðeins um byrjun- arfjárveitingar að ræða og verða framkvæmdir hafnar við Oshlíðar- veg og Ólafsvíkurenni í haust, en eingöngu unnið að rannsóknum við Ölafsfjarðarmúla. Til Ólafsvík- urennis eru ætlaðar 6 milljónir króna, en hugmyndin er að leggja þar nýjan veg niðri í fjöru. Jón sagði að hugmyndin væri að núverandi vegur við Öshlíð yrði að mestu leyti endurbyggður, þó yrði hann heldúr lækkaður og breikkað- ur eins og fyrr segir. Aðspurður um á hvaða kafla vegarins yrði byrjað sagði hann að reiknað væri með að byrja nokkru innar en þar sem slys- ið varð á föstudag, þó væru allir möguleikar á að breyta því, ef talin væri meiri nauðsyn á að byrja ann- ars staðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.