Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JULI 1982 Minning — Hans Elif Johansen Kæddur 7. mars 1933 I)áinn 25. júní 1982 Hans fæddist á Akureyri. En þar bjuggu foreldrar hans, þau Marta Jóhannsdóttir hjúkrunar- kona og Freidar Johansen bryti, norskrar ættar. Eignuðust þau fjögur börn, þrjá drengi og eina stúlku, Erlu, sem látin er. Eftir lifa bræðurnir tveir, Svanur bú- settur í Kaupmannahöfn og Gunn- ar búsettur í Noregi. Marta móðir þeirra er á lífi og dvelur á heilsu- hæli í Kaupmannahöfn. Þegar Hans var 7 mánaða, tók móðuramma hans hann til sín í fóstur. Marta var þá í hjúkrunar- námi. Um tíma var Hans með móður sinni að nýju, en fór til ömmu sinnar aftur og lágu leiðir þeirra saman, þar sem Guðný amma fóstraði hann til manns. Stóð heimili þeirra í smiðjunni í fjörunni á Akureyri. Hans var mjög laginn maður og lágu allir hlutir opnir fyrir hon- um. Fór hann til Texas í Banda- ríkjunum og lærði þar flugvirkj- un. Aflaði hann sér menntunar sem opnaði honum dyr í lífsbar- áttunni, vegna framúrskarandi hæfni. Það var þó ekki á sviði flugvéla, heldur á öðrum vett- vangi. Hans gekk mikið gæfuspor er hann giftist Hrafnhildi Tómas- dóttur. Stóð heimili þeirra í Reykjavík og Kópavogi. Börn þeirra eru tvö, Guðrún og Örn. Hrafnhildur bjó manni sínum mjög fagurt heimili, sem Hans kunni að meta og virða. Gestrisni og kærleikur voru auðsæ, er mættu öllum er þar bar að garði. Nú við sóistöður á hásumri, hef- ur skjótt brugðið sólu. Hans er all- ur aðeins 49 ára gamall. Harmur er kveðinn að öllum ástvinum hans. Ég, amma hans og fósturmóðir, vil með þessum línum kveðja drenginn minn og þakka honum allt er hann sýndi mér. Hann olli mér aldrei vonbrigðum. Eftir að árin færðust yfir mig, þá sýndi hann mér enn frekar nærgætni og kærleika. Kona hans Hrafnhildur studdi hann drengilega í því. Um síðustu jól var ég á heimili þeirra og naut alls hins besta er t Konan min og móðir okkar, GUDRUN STEFÁNSDÓTTIR, Lönguhlíð 21, andaöist 27. júni í Landspitalanum. Útförin veröur í Fossvogskirkju þriöjudaginn 6. júlí kl. 13.30. Pélmi Guömundsson, Guömundur Pálmason, Garöar Pálmason, Guörún Árnadóttir. SpeMHUHti hæhlco Brunabillinn sem týnaist Bókaflokkurinn,,Skáldsaga um glæp” eftir Maj Sjöwall og Per Wahlöö nýtur víða um heim virðingar fyrir vandaða framsetningu og æsispennandi en raunverulegan söguþráð. Allar eldri bækur lögreglusagnaflokksins eru nú fáanlegar. Sögurnar eru sjálfstæðar hver um sig en ávallt eru Martin Beck og félagar hans í rannsóknarlögreglu Stokkhólms- borgar í sviðsljósinu. Góðar bækur í útileguna og útlöndin. Mál IMI og menning hægt er að bjóða upp á. 7. janúar sl. náði ég því að verða 90 ára. Ekki kom annað til greina en að ég væri á heimili Hans og Hrafnhild- ar. Fjöldi gesta heimsótti mig þann dag og var þeim öllum tekið af rausn og myndarskap. Þá var hægt að sjá að hverju stefndi með heilsu hans, þó vonað væri það besta. Hans lét ekkert skyggja á, var lífsglaður og gladdi alla með ljúfleika og elsku sinni, sem var honum svo meðfædd. Hans var dulur og flíkaði ekki tilfinningum sínum. Trú hans á Jesúm Krist var einlæg. Nýtur hann hennar nú í öðrum heimi, fyrir náð og verðskuldan Jesú Krist. Blessuð veri minning hans. Guðný Guðjónsdóttir + Maðurinn minn, faöir, tengdafaöir og afi, DIÐRIK G. HELGASON, múrarameistari, Blönduhlíö 26, lést 23. júní. Útför hans hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Helga Ólafsdóttir, Ólafur Diöriksson, Mólfríöur Guösteinsdóttir, Theodór Diöriksson, Edd» Kristinsdóttir og barnabörn. Móðir okkar, + INGIBJÖRG SIGUROARDÓTTIR, fyrrum húsmóöír Holtsgötu 3, Hafnarfiröi, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi, mánudaginn 5. júlí kl. 3 síðdegis. Guöjón Krístinsson, Siguröur Ingi Kristinsson, Sigrún Kristinsdóttir. + Eiginmaöur minn, faöir okkar og afi, HANS ELIF JOHANSEN, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. júlí kl. 1.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag íslands. Hrafnhildur Tómasdóttir, örn Johansen, Guðrún Johansen barnabörn og aörir vandamenn. + Elskulegur faöir, tengdafaöir, afi og langafi, HALLBJÖRN ÞÓRARINSSON, trésmiöur, Reynimel 84, verður jarösunginn frá Neskirkju mánudaginn 5. júlí kl. 3.00. Blóm afþökkuö. Fyrir hönd aöstandenda. Guðlaug Hallbjörnsdóttir. Faöir okkar, tengdafaöir, fósturfaöir, afi og langafi, ARNKELL INGIMUNDARSON, fyrrv. verkstjóri, Ægisíóu 113, veröur jarösunginn frá Neskirkju mánudaginn 5. júlí kl. 13.30. Jarðsett verður í kirkjugaröinum viö Suöurgötu. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á Kristniboös- sambandiö, Amtmannsstíg 2B. Gunnar Arnkelsson, Benedikt Arnkelsson, Sverrir Arnkelsson, Jakobína U. Arnkels-Webb, Gíslí Arnkelsson, Júlíana Rut Sigurósson, Sigríöur Símonardóttir, Samúel Arnkels-Webb, Katrín Þ. Guölaugsdóttir, Sævar Siguróason barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móöir okkar og tengdamóöir, HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR, Hagamel 36, sem lést í elliheimilinu Grund, þriöjudaginn 22. júni, veröur jarö- sungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 6. júlí kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á minningarkort Elll- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Fyrir hönd bræöra og annarra vandamanna hinnar látnu. Siguröur Þ. Guömundsson, Ástríöur Guömundsdóttir, Hólmfríóur Guömundsdóttir, Gylfi Guömundsson, Þorbjörg Guömundsdóttir, Geröur G. Bjarklind, Ingvar Emilsson, Árni Þ. Þorgrímsson, Ása H. Hjartardóttir, Baldvin Arsælsson, Sveinn A. Bjarklind.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.