Morgunblaðið - 07.12.1982, Side 13

Morgunblaðið - 07.12.1982, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982 13 HVER BOKIN ANNARRI VANDAÐRI OC BETRI! Þorgils gjallandi Ritsaf n l Þorgils gjallandi er skiigetid afkvæmi menningarbyltingar Suður-Þingeyinga í lok 19. aldar og sögur hans framlag til þeirrar hugsjónar, að hamingja manna og dýra væri innan seilingar ef umhverfi þeirra væri bætt. Þetta er fyrsta bindið í þriggja binda útgáfu okkar á ritum Þorgils gjallanda og hefur að geyma dýrasögur, erindi og greinar, auk langrar ritgerðar Þórðar Helgasonar um skáldið, verk hans og þær móttökur sem þau hlutu hjá samtímamönnum. Faöir minn — Skólastjórinn. Fimmtán þættir um þjóðkunna og mikils virta skólamenn, sem hafa haft ómetanleg og varanleg áhrif í uppeldis- og fræðslumálum þjóðarinnar. Þættirnir eru skráðir af börnum þeirra, og fléttast inn í frásögnina lýsingar á heimilisbrag og fjölskyldulifi, sem og öðrum þáttum í lifi þessara miklu fræðara, sem margir voru athafnasamir og mikilvirkir á öðrum sviðum. Áður eru komnar út hliðstæðar bækur um lækna, bændur, skipstjóra og presta. Benedikt Gröndal Rit II Gröndal var einn afkastamesti og skemmtilegasti rithöfundur okkar. í þessu öðru bindi rita hans er gullfalleg Gröndalsminning eftir skáldkonuna Huldu, ritgerðir Gröndals, blaðagreinar og bréf. Gröndal var ólatur bréfritari og skrifaðist á við fjölda manna, innlenda og erlenda, og eru bréf hans full af fjöri og gáska. Fyrsta bindi rita Gröndals kom út í fyrra og hefur að geyma kvæði, sögur og leikrit, en í lokabindinu verður ævisagan Dægradvöl og Reykjavík um aldamótin 1900. Einar Guðmundsson Þjóðsögur og þættir II Einar Guðmundsson kennari er einn afkastamesti siðari tima manna við söfnun og varðveizlu þjóðlegs fróðleiks. í þessu safni hans eru sögur, ævintýri og kveðskapur hvaðanæva að af landinu. Einar er orðhagur vel og hefur frábært vald á islenzku máli og er auk þess ágætlega snjall sögumaður. Þetta safn hans er góður viðauki við þjóð- sögur og þætti annarra safna og mun mörgum aufúsugestur. VI___LZ Skúli Guðjónsson frá Ljótunnarstöðum Hver liðin stund er lögð í sjóð Þessir minningaþættir eru fádæma skemmtilegir. Skúli segir frá barnaskóla- námi sínu, en kennari hans þar var Arndis Jónsdóttir, sem þekktari er sem „Elskan hans Þórbergs.“ Hann segir frá Samvinnuskólaárum sínum, kennurum, nemendum og öðru gáfufólki, sem hann kynntist, Borðeyrardeilunni, pólitískum hræringum heima i sveitinni á tima Finnagaldursins o.fl. Töfrar máls og stils eru með þeim hætti, að þessi bók veröur lesin aftur, aftur og aftur. Guðmundur Jörundsson Sýnir og sálfarir Farsæll skipstjóri og útgerðarmaður segir frá sérstæðum þætti ævi sinnar, m.a. draumamanni, sem vitjaöi hans fyrst 17 ára gamals og hefur fylgt honum æ siðan og um margt haft áhrif á líf hans og lífsviðhorf, vísað honum á fengsæl mið og skip i sjávarháska, veitt honum þá lífsfyllingu og fögnuð, sem þvi er samfara að bjarga lífi nauðstaddra sjó- manna. — Atburðir, sem hér er sagt frá, eru ekki aðeins dularfullir, mörgum mun þykja þeir óskiljanlegir. Gils Guðmundsson Frá ystu nesjum lll Lokabindi þessa fróðlega og skemmtilega safns vestfirskra þátta. Hér eru m.a. þættir um Ögurbændur, Bændur í Önundarfirði, Ætt Guðmundar á Selabóli, Goðafoss-strandið 1916 og björgunarafrek Látramanna, Útveg Arn- firðinga á ofanverðri 19. öld, Sighvat Borgfirðing og löng ritgerö höfundar um Ólaf Þ. Kristjánsson. Fyrri bindi ritsins eru enn fáanleg. GILS GUÐMUNDSSON 1: X V 1 ^ % 0 1!^. • ■■■HrTT Einar Benediktsson Ritgerðir Kristján Karlsson hefur ritað inngang að þessu safni og annazt efnisval. Rit- gerðirnar fjalla um þau efni er Einar lét sig einkum varða, og þar sem sérkenni- iegur stíll hans kemur bezt í Ijós. Þar á meðal eru greinar hans um ísienzk Ijóð- skáld í Dagskrá, einhver fremsta gagn- rýni, sem skrifuð hefur verið á íslenzku. Við höfum áður gefið út Ljóðasafn I—IV og Sögur eftir Einar Benediktsson, en þessi 6 bindi eru vandaðasta og handhægasta útgáfa á ritum skáldsins, sem hér hefur verið gefin út. Sigurður A. Friðþjófsson Heimar Þetta er höfundur, sem vert er að kynnast. Þessi bók hans er ekki skáld- saga í venjulegum hefðbundnum skiln- ingi, — snertipunktar hennar eru jafnt í raunveruleika og draumi, þjóðsögu og ímyndun, — en hún mun vekja athygli. Þetta er sagan af Ágústi, ungum manni af hernámsárakynslóðinni. Hann er áttavilltur í tilverunni, taldi sig geta beygt lifið að eigin geðþótta, en er reynslunni ríkari í sögulok. a. ÆVISKRAR SAMTÍÐARMANNA A - H SKUGGSJÁ BÓKABÚD OUVERS STEINS SF ! Torfi Jónsson Æviskrár samtíðarmanna A—H Æviskrár samtiðarmanna verður þriggja binda rit. Þar verða ævískrár 5-6 þúsund núlifandi íslendinga, sem gegnt hafa eða gegna meiriháttar opinberum störfum í þágu ríkis, höfuðborgar, bæjar- og sveitarfélaga. Einnig athafna- manna, forstöðumanna og sérstakra trúnaðarmanna fyrirtækja í ýmsum starfsgreinum, forvigismanna i félágs- málum og annarri menningarstarfsemi, rithöfunda, listamanna og ýmissa fleiri. Fyrsta bindi þessa rits, með nöfnum sem byrja á stöfunum A-H, er komið út. Næsta bindi kemur upp úr áramótum. — Þetta er ómissandi handbók. —

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.