Morgunblaðið - 08.01.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.01.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1983 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Stúlka ekki yngri en 25 ára óskast eftir hádegi í sérverslun í miðbænum strax. Uppl. í síma 82660 og 33027. Mosfellssveit Umboðsmenn óskast í Reykjahverfi. Upplýsingar hjá afgreiöslunni í Reykjavík, sími 83033. fMtogttitliIfifeife Stokkseyri Umboösmaöur óskast til aö annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Uppl. hjá afgreiðslunni í Reykjavík, sími 83033. fHnr0iM#I$tt»i$> Tæknifræðingur Ungur byggingartæknifræöingur óskar eftir starfi, helst fjölbreyttu. Meðmæli ef óskaö er. Upplýsingar í síma 76872. Mosfellssveit Umboðsmenn óskast í Helgalandshverfi. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 66500 og hjá afgreiöslunni í Reykjavík sími 83033. Skipverjar — netaveiðar Stýrimann, vanan II vélstjóra, matsvein og háseta vantar á MB Hafrúnu ÍS 400, sem stunda mun netaveiðar í vetur, Upplýsingar gefur skipstjórinn í síma 91- 53833. Einar Guöfinnsson hf. Fyrirtæki í miðborginni óskar eftir starfsfólki A) Til hreinlegra framleiðslustarfa í matvaBlaiönaði. Óskert sjón nauðsynleg. — Laun skv. 6. fl. BSRB. B) Til lagerstarfa. Einhver enskukunnátta nauösynleg — 8. fl. BSRB. Góð starfsaöstaöa. Mötuneyti. Umsóknir með sem fyllstum uppl. um viökomandi og fyrri vinnustaö sendist augl.deíld Mbl. fyrir 14. janúar merkt: .Hreinlaeti — 3582". Keflavík Blaðberar óskast. Upplýsingar í síma 1164. \ Atvinna St. Fransiskussjúkrahúsiö í Stykkishólmi Vill ráða hjúkrunarfræöing til starfa á sjúkra- húsinu hið allra fyrsta. Dagheimili og íbúð er til staðar. Upplýsingar hjá príorinnunni í Stykkishólmi, annað hvort bréflega eða í síma 93—8128. St. Fransiskussjúkrahúsiö í Stykkishóimi. Beitingamann Vanan beitingamann vantar á Rauðsey AK 14. Uppl. hjá skipstjóra í síma 93-2089 eða 93-1854. Haraldur Böövarsson og Co. hf. Mosfellssveit Blaðbera vantar í Njarðarholt, Dvergholt, Markholt, Lágholt. Uppl. hjá afgreiðslunni í Reykjavík. Sími 83033. Helgi G. Benediktsson fyrrv. oddviti Hvamms- tanga — Minning Fæddur 12. janúar 1914 Dáinn 29. desember 1982 Náinn frændi minn og nafni er nú allur svo löngu fyrr en skyldi. Horfinn er af sviði mikill öðlings- maður, sannur ljúflingur að öllu skapferli, hinn gegnasti og grandvarasti þegn, sem öllu góðu lagði lið. Óvænt kom dauðans kall, þó heilsan væri ekki sterk, en lífs- gleðin og lífslöngunin fylgdu hon- um allt að leiðarlokum. Sterk fjölskyldu- og vináttu- tengsl hafa jafnan ríkt með hinum mörgu systkinum Helga og þeirra fólki og hefi ég þar hvergi farið varhluta af. Ungur kom hann til dvalar í Seljateigi hjá systur sinni og mági, foreldrum mínum, og gott og náið samband var þar ætíð á milli, þó fjarlægðin hindraði meiri og betri samskipti. En mjög var með þeim kært og saknaðarkveðjur eru nú sendar norður frá þeim og blessunar beð- ið þeim, sem þar syrgja nánasta ástvin sinn. Helgi Benediktsson var óvenju vel gerður maður. Komu þar til ágæt greind og gjörhygli, skap- lyndi svo gott að fágætt er, þannig að hann var hvers manns hugljúfi, óbilandi bjartsýni og trú á tilver- una og ekki sízt hversu vandaður maður hann var að hverju sem hann gekk. Ætíð var að öllu starf- að svo sem atorka frekast leyfði og aldrei slakað á. Sanngirni, heiðar- leiki og réttsýni voru honum í blóð borin. Sannarlega hefði maður eins og Helgi Benediktsson haft við það að gera að stunda skólanám með svo fjölbreytta hæfileika og góða eðlisgreind að veganesti, en fá- tækt kreppunnar leyfði ekki slík- an munað. En í lífsins skóla hlaut hann hina ágætustu einkunn, það sýndu þau fjölmörgu félagsmála- og trúnaðarstörf, sem honum voru falin og þá ekki sízt, er hann var oddviti þeirra Hvammstangabúa um átta ára skeið. Þar komu bjartsýnin og hin létta lund hans sér vel, en ekki síður hin óþreyt- andi elja hans og óbrigðula sam- vizkusemi, sem hann var rómaður fyrir. í hverju því starfi, sem hann innti af hendi kom hin einstaka lipurð og hjálpfýsi hans vel fram, ekki hvað sízt í störfum hans fyrir Kaupfélagið á Hvammstanga, þar sem hann vann lengst við verzlun- arstörf. Lifsskoðun hans var fast- mótuð og ákveðin. Hann var mikill trúmaður, enda ævinlega í Ijóssins fylgd og ungur hreifst hann af hugsjón jafnaðarstefnunnar og var sannur merkisberi hennar í orði sem verki. Slíka liðsmenn er hverri hreyfingu gott að eiga og þar átti Alþýðuflokkurinn tals- mann, sem hvergi bifaðist, þó ým- islegt gengi á og ekki væri honum allt að skapi. En hugsjón jafnað- arstefnunnar var samofin skap- gerð hans og lyndiseinkunn allri og sigrar hennar, margir og mót- andi á flestum sviðum þjóðlífsins, voru honum hugum kærir. Aldrei deildum við frændur um stjórn- mál, enda taldi hann áherzlumun einan skilja okkur að og færði að því góð og gild rök, sem vissulega var unnt undir að taka. Helgi Guðmundur Benediktsson var fæddur 12. janúar 1914 að Skinnastöðum í Torfalækjar- hreppi í Austur-Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru hjónin Guð- rún Fr. Þorláksdóttir og Benedikt Helgason. Barnahópurinn var stór og alls urðu systkinin 13, þar af komust 12 til fullorðinsára. 9 systkini Helga eru enn á' lífi en tveir bræður hans látnir. Erfið voru kjör þeirra hjóna Guðrúnar og Benedikts og lífsbaráttan hörð. 7 ára gamall fór Helgi að Svína- vatni og var þar í 10 ár. Vinnu- harka var mikil j)ar nyrðra og börnum og unglingum hvergi hlíft og fengu þau systkini, sem flest fóru ung frá foreldrum sínum, vissulega að kenna harkalega á því. En þau hlutu að lúta tíðar- anda þess tíma, stóðust hverja raun og urðu öll hinir nýtustu þjóðféiagsþegnar. Um 18 ára aldur lá leiðin svo austur á Reyðarfjörð til Helgu systur hans og hennar manns Jó- hanns bónda í Seljateigi og þar var hann um nær tveggja ára skeið, vann bæði bústörf og ýmsa daglaunavinnu og var vinsæll og vel látinn þar sem annars staðar. Þá fer hann norður á ný, en for- eldrar hans voru þá flutt til Blönduóss. Þar vinnur hann í 5 ár við vélgæzlustörf við rafstöðina í Sauðanesi og var til þess tekið, hve vel honum fórust þau verk úr hendi, alls ólærðum á þessu sviði. Þar gekk hann á vit lífsgæfu sinn- ar, en þá kynntist hann eftirlif- andi konu sinni Kristínu Jónsdótt- ur frá Hlíð á Vatnsnesi, sérstakri öndvegiskonu og glæsilegri að allri gerð. Foreldrar Kristínar voru þau hjón Halldóra M. Guð- mundsdóttir og hinn þjóðkunni kvæðamaður Jón Lárusson bóndi í Hiíð. Listrænir % hæfileikar eru miklir í þessari ætt, sem komin er af Bólu-Hjálmari og hefur Kristín ekki farið varhluta af þeim. Jafn- ræði var með þeim hjónum og ástríki mikið. Þau gengu í hjóna- band 1. september 1945 og voru fyrstu tvö árin á Blönduósi. Þá fluttu þau til Reykjavíkur og voru þar búandi í eitt ár, en hugðu síð- an til búskapar að Hlíð á Vatns- nesi og voru þar í tvö ár. En þar kom glögglega í ljós, að hvorugt var heilsuhraust og afréðu þau hjón þá að flytja til Hvamms- tanga 1949 og þar hafa þau búið alla tíð síðan. Þau eignuðust eina dóttur, Guðrúnu Halldóru, en eig- inmaður hennar er Þráinn Traustason húsasmiður og búa þau á Laugarbakka í Miðfirði og eiga þrjú börn. Voru þau eftirlæti afa síns og sáu ekki sólina fyrir honum. Eins og áður er að vikið var starfsvettvangur Helga á Hvammstanga fjölbreyttur og hvarvetna skilur hann eftir sig spor hins dáðríka drengskapar- manns, sem allra götu vildi greiða. Traust sitt á honum sýndu Hvammstangabúar glöggt og í engu brást hann því trausti. Ég minnist þess glöggt, er ég var þar á ferð, hve stoltur hann sýndi mér hið vaxandi blómlega þorp, en ekki síðra var það, hve mikla hlýju hann bar í brjósti til íbúanna, ekki sízt hinna ungu. Það fannst líka glöggt á viðmóti þeirra, er á vegi okkar urðu, hvern hug menn báru til Helga. En í dagsins önn og erli var heimilið griðastaður og mikil un- un var að sækja þau heim, og sjá hversu gleðin og ástúðin merlaði milli þeirra, hve alúðin við gestina var ósvikin og þó veikindi herjuðu á, var hinn létti tónn ævinlega í öndvegi. Það leiftrar af kvöldinu góða fyrir nokkrum árum, þegar við Þórir Gíslason frændi minn áttum þar dýrlega stund, sem hvorugum gleymist. Þvílík elsku- semi, þvílík hátíð gamanmálanna og gieðinnar. Og nú kveðjum við þennan góða dreng þakklátum og klökkum huga. Lífsbraut hans var í engu dans á rósum, en ævistarfinu skil- aði hann með ágætum þess, sem ævinlega gerði skyldu sína, sem ætíð gerði það sem hann vissi sannast og réttast. Björt og góð er sú mæta minning, sem ég á um þennan farsæla og hugumprúða frænda minn og nafna. Hlýjar eru kveðjurnar að aust- an, Kristín mín og þið öll, sem syrgið nú ykkar kæra vin. Minn- ingarnar um allt hið góða vermi hugskotið í sárum söknuði ykkar og veiti ykkur hugarfró. Systir og mágur þakka og kveðja hrærðum hug. Skammdegismyrkrið grúfir yfir, en ofar öðru skín vissan um geisl- andi dýrð vorsólarinnar. Fáa veit ég sannari syni þeirrar sól- skinstrúar en Helga Benediktsson. Blessuð sé minning hans. Helgi Seljan Afmœlis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða aö berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.