Morgunblaðið - 10.02.1983, Side 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
33. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
„Einhugur meðal
leiðtoga í NATO
«
— sagði George Bush við lok ferðar sinnar um sjö Evrópulönd
Francis Pym, utanríkisráðherra Bretlands, býður hér George Bush,
varaforseta Bandaríkjanna, velkominn, en Bush kom í gær til London.
Er það síðasti áfangi hans í 12 daga ferð um sjö Evrópulönd.
London, 9. fobrúar. AP.
GEORGE Bush, varaforseti Banda-
ríkjanna. sagöi í dag í London, sem er
síöasti áfangi hans í ferð um sjö Evr-
ópulönd, aö hann heföi komist aö
raun um aö leiötogar NATO-ríkjanna
væru einhuga um aö standa viö
ákvarðanir bandalagsins í kjarnorku-
vopnamálunum. Sagöi Bush þetta
vera „bestu fréttirnar fyrir þá, sem í
raun og veru vilja vinna að friöi".
í ræðu, sem Bush flutti í Guild-
hall í London, tók hann sér í munn
orð Mark Twains og lýsti því yfir, að
„fréttirnar um lát bandalagsins
okkar eru stórlega ýktar". Hann
sagði, að NATO-þjóðirnar styddu
núll-lausnina, sem miðaði að því að
engar meðaldrægar eldflaugar væru
í Evrópu, en hins vegar væri hún
enginn úrslitakostur, Bandaríkja-
menn væru reiðubúnir til að ræða
allar skynsamlegar tillögur, sem frá
Sovétmönnum kæmu. Sagði Bush,
að það, sem fyrir samningamönnum
Bandaríkjanna vekti, væri að núll-
lausninni frágenginni að semja um
eins mikla fækkun meðaldrægra
eldflauga og unnt væri og að raun-
verulegt jafnræði yrði með stórveld-
unum í þessu efni.
Breska stjórnin með Margaret
Thatcher í broddi fylkingar er mjög
einörð i stuðningi sínum við tillögur
Bandaríkjastjórnar en í Bretlandi
fer nú fram áköf umræða um kjarn-
orkuvopnamálin. Líklegt er, að þau
verði eitt af aðalmálunum í næstu
þingkosningum, sem flestir telja að
fari fram síðar á árinu, og á morg-
un, fimmtudag, mun prestastefna
ensku kirkjunnar taka til umræðu
tillögu þar sem gert er ráð fyrir ein-
hliða afvopnun Breta. I skoðana-
könnun, sem blaðið The Daily Tele-
graph birti í dag, kemur fram, að
tveir þriðju spurðra voru andvigir
því, að Bretar eyðilegðu kjarnorku-
vopn sín nema Rússar gerðu slíkt
hið sama. Hins vegar voru 54% á
móti því að koma fyrir í Bretlandi
bandarískum dtýriflaugum.
Þremur írönskum
herskipum sökkt
Irakar segjast hafa hrundið sókn írana
Nikósíu, 9. febrúar. AP.
ÍRASKAR herflugvélar og herskip
réöust í dag á og sökktu þremur ír-
önskum herskipum að því er útvarpiö
ísraelsstjóm frestar ákvörðun:
Flestir ráðherranna
vilja afeögn Sharons
Jerúsalem, 9. febrúar. AP.
ÍSRAELSKA stjórnin hélt í dag annan
skyndifund um niöurstööur nefndar-
innar, sem rannsakaði fjöldamoröin í
Beirút. Engar ákvarðanir voru teknar
að sinni en búist við, aö það verði gert
á fundi stjórnarinnar á morgun. Haft
er eftir nokkuð áreiðanlegum heimild-
um, að meirihluti stjórnarinnar sé
samþykkur því áliti rannsóknarnefnd-
arinnar, að Ariel Sharon, varnarmála-
ráðherra, segi af sér embætti.
Háttsettur en ónafngreindur
embættismaður ísraelsku stjórnar-
innar sagði í dag, að meirihluti
væri innan stjórnarinnar um að
Sharon bæri að segja af sér og að
nú væri það Sharons sjálfs að taka
ákvörðun. ísraelska sjónvarpið
hafði það hins vegar eftir Sharon í
dag, að hann ætlaði ekki að segja af
sér sjálfur en Begin, forsætisráð-
herra, gæti rekið hann ef honum
sýndist svo. Eftir Begin var svo aft-
ur haft, að hann myndi ekki reka
Sharon.
ísraelska útvarpið hafði það eftir
samstarfsmönnum Begins, að hann
væri þegar búinn að ákveða hvernig
hann ætlar að bregðast við í þessu
máli og eru einkum uppi getgátur
um þrjár leiðir. f fyrsta lagi, að
Sharon segi af sér og firri stjórnina
þannig frekari vandræðum en sá
möguleiki er talinn fremur ólíkleg-
ur. f öðru lagi, að Begin segi af sér
og myndi nýja stjórn án Sharons og
í þriðja lagi, að Begin segi af sér og
boði til nýrra kosninga. Er Begin
sagður hallast ekki síst að þriðja
kostinum vegna góðrar útkomu í
skoðanakönnunum að undanförnu.
Viðbrögð manna á Vesturlöndum
við skýrslu rannsóknarnefndarinn-
ar hafa yfirleitt verið þau að segja
hana sigur fyrir ísraelskt lýðræði
og að nú sé það stjórnvalda að
bregðast við henni á réttan hátt.
Undir það tekur líka Maariv, eitt
stærsta dagblaðið í fsrael, sem
jafnan hefur þótt nokkuð hallt und-
ir Begin og stjórn hans. Segir það,
að ef stjórnin ætli að hunsa niður-
stöður rannsóknarnefndarinnar,
muni það verða vatn á myllu and-
stæðinga fsraela og færa þeim þau
vopn í hendur, sem þeir hafi lengi
beðið eftir. f Arabaríkjunum er
skýrslunni fagnað og sum blöð líkja
Sharon við Klaus Barbie, nasista-
foringjann, sem á dögunum var
framseldur til Frakklands.
í Bagdaö skýröi frá. frakar segjast
einnig hafa hrundið „lokasókn" Irana
og síðustu tilraun þeirra til að bera
sigur úr býtum í Persaflóastríöinu.
Útvarpið í Bagdað sagði, að nokk-
ur írönsk herskip hefðu ætlað að
reyna að komast til Khomeini-
borgar fyrir botni Persaflóa þegar
íraskar flugvélar og herskip hefðu
komið þeim að óvörum og sökkt að
minnsta kost þremur skipum og skil-
ið við önnur í logum. íranir hafa
ekkert sagt um þessa árás, sem er sú
sjötta síðan 9. desember, en írakar
hafa að undanförnu styrkt mjög
flugflota sinn.
Engar fréttir voru í dag af stór-
sókn frana gegn frökum en í gær
sagði íraska herstjórnin, að henni
hefði verið hrundið á allri víglín-
unni, 30 km langri. frakar segjast
hafa talið lík 7— 8000 iranskra her-
manna á vígvellinum en það sé þó
aðeins brot af raunverulegu mann-
falli frana.
Pólland:
Vilja framsal
flugmannanna
Varsjá, 9. febrúar. AP.
PÓLSKA stjórnin hefur krafist þess,
aö tveir flugmenn, sem í gær flýðu á
hcrþyrlu til sænsku eyjarinnar Tarno,
verði framseldir en sænsk yfirvöld
hafa enn ekki svaraö þeirri beiðni.
í opinberri yfirlýsingu pólsku
stjórnarinnar, sem PAP-fréttastof-
an pólska skýrði frá, voru mennirn-
ir nefndir á nafn og sagt, að þeir
hefðu rænt þyrlu af gerðinni MI-2.
Var þess krafist að þeir yrðu fram-
seldir sem hverjir aðrir flugræn-
ingjar.
Pólverjarnir lentu á eyjunni
Tarno sem fyrr segir og hefur það
vakið nokkra furðu, að svo virðist
sem sænski herinn hafi ekkert orðið
þyrlunnar var fyrr en eftir að hún
var lent. Á Tarno býr aðeins einn
maður og hafði hann samband við
sænska herinn að beiðni Pólverj-
anna, sem ætla að sækja um póli-
tískt hæli í Svíþjóð.
Veðhlaupahesturinn Shergar, tvöfaldur sigurvegari í Derby-kappreiðunum,
ásamt knapanum Walter Swinhurn. Pessu fræga hrossi, sem er í eigu Aga
Khans, var stolið í fyrrinótt og hafa ramingjarnir, sem voru tveir, nú krafist
um 60 milljóna ísl. kr. í lausnargjald. Sjá „Kappreióahesti rænt.." á bls. 22.
Kúba:
140.000 í
fangelsum
('aracas, Venezuela. 9. febrúar. AP.
KÚBANSKA skáldió Armando
Valladares, sem í 22 ár sat í fang-
eslum Kastrós, sagói í dag, að
140.000 manns væru hafðir í haldi
í kúbönskum fangabúóum.
Valladares, sem kom til Cara-
cas í gær, sagði, að hann ætti
frelsi sitt að þakka Mitterrand,
Frakklandsforseta. sem. hefði
beitt áhrifum sinum við Kastró.
Hann neitaði því, að kólombiska
skáldið og nóbelsverðlaunahaf-
inn Gabriel Garcia Marquez
hefði átt nokkurn þátt i að
hjálpa honum.
„Garcia Marquez hefur alltaf
sagt, að ég væri glæpamaður og
ég er viss um, að hann hefur
ekki farið að tala máli glæpa-
manns,“ sagði Valladares.
Valladares sagðist ekki hafa i
h.vggju að tengjast einhverjum
andkúbönskum samtökum. „Ég
mun verja þeim tíma, sem ég á
eftir ólifað, til að tala máli ann-
arra pólitískra fanga á Kúbu,“
sagði hann.