Morgunblaðið - 10.02.1983, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983
Hugheilar þakkir færi ég öllum þeim sem minnt-
ust mín á 90 ára afmælisdegi mínum, 8. janúar
1983.
Guð blessi ykkur öll.
Yaldimar Jóhannsson frá Kljá.
ARKIMEDES
tölvuskóli
Raunverulegt
tölvunám
BASIC — FORRITUN I.
Byrjendanámskeið í BASIC-forritun hefst 14. febrú-
ar '83. Forkröfur eru engar.
Námsefni: Grundvallarhugtök um tölvur, helstu
skipanir í BASIC-forritun, flæðirit.
BASIC — FORRITUN II.
Framhaldsnámskeið í forritun hefst 15. febrúar '83.
Forkröfur eru Forritun I eða hliöstæð kunnátta.
Námsefni: Gerö og uppbygging forrita, sérhæföar
BASIC skipanir. Hagnýt verkefni leyst meö tölvu.
Verð á námskeiöi kr. 1.550,- fyrir 20 klst. Kennari
Steinþór D. Kristjánsson.
innritun og upplýsingar í síma 17040 kl. 16—22 og
í síma 50615 á kvöldin og um helgar.
ARKIMEDES — Tölvuskóli,
Laugavegi 97.
Borð og 4 stólar kr. 5.570.-
Stærð á borði 95 cm stækkun 40 cm.
Litur Ijóst og brúnbæsað.
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU
VALHÚSGÖGN
ÁRMÚLI 4 SÍMI82275
eftir DREW MIDDLETON
Hermenn íraka mega nú verja sitt eigið land og verða því harðari í horn að taka en nokkru sinni áður.
Ekki búizt við afgerandi úr-
slitum milli írana og íraka
Snemma á mánudagsmorgun
hóf fjölmennt herlið Irana nýja til-
raun til þess að sækja inn í Irak.
Þúsundir hermanna tóku þátt í
þessum sóknaraðgerðum, sem út-
varpið í íran lýsti sem öflugustu
sókn Irana allt frá því að styrjöldin
hófst í september 1980. Sagði út-
varpið ennfremur, að her írana
hefði ruðst yfir skotgrafir og
jarðsprengjusvæði, náð undir sig
hundrað fermílna landsvæði og
„brotið á bak aftur hernaðarmátt
hers íraks“ í héraði því, sem nefn-
ist Misan og er um 300 km fyrir
suðaustan Bagdad.
Herstjórn íraks staðfesti, að
íranski herinn hafi gert til-
raun til innrásar inn í Misan-
héraðið, en samkvæmt frásögn út-
varpsins í Bagdad hafði her íraks
tekizt að gersigra tvö írönsk her-
fylki, sem tóku þátt í innrásinni.
Hefðu 6.894 menn úr liði Irana
verið felldir og fjölmargir verið
teknir til fanga. Þá var því enn
haldið fram, að flugher íraks væri
mun öflugri en flugher Irans, bæði
að því er snertir fjölda flugvéla,
búnað og kunnáttu flugmanna,
hefði eyðilagt fjölda skriðdreka og
komið á algerum yfirráðum íraka
i lofti yfir bardagasvæðinu.
Ekki hefur verið unnt að stað-
festa þessar fréttir, þar sem er-
lendum fréttamönnum hefur ekki
verið leyft að fara til vígstöðvanna
og kynna sér það, sem þar hefur
gerzt. Þá hefur hvorki leyniþjón-
usta Bandaríkjanna né nokkurs
annars vestræns ríkis ekki viljað
staðfesta þessar fréttir hernaðar-
aðila af gangi mála á vígstöðvun-
um, hvorki þær, sem borizt hafa
frá Teheran né Bagdad. Menn
þykjast hins vegar gera sér grein
fyrir því, að þessi styrjöld hefur
færzt á nýtt stig, ef frásagnir Ir-
ana af sigurvinningum þeirra eru
sannar.
Þetta er fjórða sókn írana frá
því í júlí sl. og var henni lýst sem
lokasókn styrjaldarinnar af Hash-
emi Rafsanjani, forseta íranska
þjóðþingsins. „Þjóðin væntir þess,
að þessi hernaðarsókn verði loka-
þátturinn í stríðinu," var haft eft-
ir honum í útvarpinu í Teheran.
Sókn írana nú var valinn jæssi
tími til þess að minnast þess, að
nú eru fjögur ár liðin frá bylting-
unni í íran, sem fór fram undir
forystu Ayatollah Khomeini, en
íranir skjóta eldflaug í stríðinu við íraka, sem nú hefur staðið í fjögur ár.
hinn 11. febrúar 1979 sagði síðasta
ríkisstjórn Mohammed Reza Pahl-
avis keisara af sér. Forsætisráð-
herra hennar var Shahpur Bakhti-
ar.
Margt hefur þótt benda til þess
undanfarna daga, að stórsókn Ir-
ana væri yfirvofandi og sam-
kvæmt frásögn forystumanna fr-
aka áttu franir að hafa safnað
saman 150.000 manna herliði í
þessu skyni.
Svo virtist sem sóknaraðgerðum
frana væri fyrst og fremst beint
gegn A1 Amarah, sem er borg við
þjóðbrautina, er liggur frá norðri
til suðurs, frá Bagdad til hafnar-
borginnar Basra í Suður-írak. Ef
frönum tækist að ná A1 Amarah á
sitt vald, þá myndu þeir samtímis
ná að stöðva alla umferð fraka um
þjóðbrautina og þar á meðal alla
herflutninga milli Bagdad og
Basra.
Ýmsir hafa orðið til þess að
draga i efa yfirlýsingar frana um,
að herliði þeirra hafi tekizt að ná
skjótum og miklum árangri í
sóknaraðgerðum sínum nú. Er á
það bent, að svæðið, sem íranir
réðust á, hafi verið víggirt ramm-
lega af frökum frá því að herlið
frana kom sér fyrir sl. haust í
hæðum þeim, sem liggja meðfram
landamærum ríkjanna á þessum
slóðum.
Mikilli árás frana í nóvember sl.
var hrundð af frökum, sem beittu
þá óspart stórskotaliði og flugvél-
um. Aður höfðu íranir reynt að
sækja inn í frak í norðri, á því
svæði sem heitir Mandali en verið
hraktir til baka. f júlí höfðu íranir
ráðizt inn í frak nálægt Basra, en
orðið að hörfa til baka eftir harða
mótspyrnu fraka.
Ef íranir hyggjast nú sækja
fram á svæði því sem nefnt er
Fakeh, þá verða þeir að fara um
opna sléttu til þess að geta ráðizt á
virki fraka og víggirðingar, sem
búin eru fallbyssum, eldflaugum
og skriðdrekum. Talið er að að-
staða fraka sé betri á þessu svæði
til varnar en frana til sóknar,
nema því aðeins að þeir síðar-
nefndu hafi náð að verða sér úti
um fjölda af nýjum herflugvélum.
Eins og í fyrri sóknarlotum frana
myndu frakar heyja varnarstríð,
þar sem þeir réðu yfir öflugum
varnarvirkjum meðfram attri vfg-
línunni og væru studdir úr lofti af
vel búnum flugher sínum, sem
væri mun öflugri en flugher frana.
franir hafa reynt að festa kaup
á herflugvélum og öðrum vopnum
í Asíu og Austur-Evrópu frá því
snemma sl. haust, en árangur
þeirra hefur verið fremur litill í
því efni. Er talið, að efnahagur fr-
ana standi ekki það traustum fót-
um, að þeir geti varið stórfé til
hergagnakaupa.
Aðstaða fraka í styrjöldinni nú
er af mörgum talin fremur góð. Þá
má búast við því, að þeir muni
sýna af sér meiri hörku nú, er þeir
eiga sitt eigið land að verja, heldur
en í sóknaraðgerðum þeirra inn í
fran 1980 og 1981.
(N.Y. Times News Service)