Morgunblaðið - 10.02.1983, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983
Lerby fer til Ajax:
Liöin hafa þegar
undirritað samning
í stórfrétt í danska blaðinu BT
fyrir nokkrum dögum er sagt fré
• Sören Lerby
því að danski landsliðsmaðurinn
Sören Lerby, sem nú leikur meö
Ajax, fari örugglega til Bayern
Mtinchen í vor og komi í staö
Paul Breitner sem mun hætta að
leika knattspyrnu er þessu
keppnistímabili lýkur.
Blaðiö segir að Lerby, sem er 25
ára, fari til þýska liðsins í júlí. Síö-
an segir blaðið: „Þó Þjóðverjarnir
hafi beðið bæði Sören og Ajax aö
þegja yfir leyndarmálinu fram yfir
leiki Bayern í undanúrslitum Evr-
ópukeppni bikarhafa í næsta mán-
uði, getur BT afhjúpaö þaö, aö
bæði Villi O. Hoffmann, forseti
Bayern, og yfirmaður Ajax, Tom
Harmsen, hafa þegar skrifað undir
fyrirframsamning í sambandi viö
söluna á Lerby."
Bayern mun greiða Ajax 1,6
milljónir þýskra marka (um ellefu
og hálf milljón íslenskra króna)
fyrir Lerby aö sögn blaösins, og að
sjálfsögðu mun hann hafa gríöar-
lega mikil laun hjá liðinu eins og
allir helstu leikmennirnir í Þýska-
landi.
Lerby segir í samtali við BT aö
hans undirskrift vanti raunar undir
samninginn en liðin tvö hefðu aldr-
ei gert samning sín á milli heföi
hann ekki veriö búinn aö sam-
þykkja félagaskiptin. „Ég hef nú
veriö í sjö og hálft ár hjá Ajax og vil
gjarna reyna eitthvað nýtt. Bayern
hafði fyrst samband viö mig fyrir
tveimur árum og síðan hefur verið
stööugt samband okkar á milli,"
segir Lerby. — SH.
Loks var sigurganga
Þróttar í blaki stöðvuð
ÍS SIGRADI Þrótt í 1. deild karla ó
þriðjudagskvöldiö í hörkuspenn-
andi leik þar sem þurfti fimm
hrinur til aö fá fram úrslit. Meö
þessum sigri stöðvuðu stúdentar
fádæma sigurgöngu Þróttar, en
þeir höfðu unniö 63 leiki í röð.
Mikill fögnuöur var í röðum stúd-
enta að leik loknum og er þetta
þeim örugglega gott veganesti til
Þýskalands en þangað halda þeir
um helgina, ásamt kvennaliöi
sínu, í tíu daga keppnisferöalag.
En snúum okkur að leiknum.
ÍS liöið mætti mjög ákveöiö til
leiks og var greinilegt aö þeir ætl-
uöu aö selja slg dýrt að þessu
sinni. Þeir unnu fyrstu hrinuna
fremur auðveldlega 15—7 og voru
þeir með forustu allan tímann. í
næstu hrinu snéru Þróttarar dæm-
inu við og unnu 15—7. Þróttur
vann einnig þriöju hrinuna en að
þessu sinni 15—9. í þeirri fjóröu
komst Þróttur í 4—2 og var staðan
mjög lengi þannig eöa þar til Þor-
varöur Sigfússon hóf aö smassa af
fullum krafti, en Þróttur réð ekkert
viö hann í þessum leik. Lokatölur
uröu 15—5 og þurfli því oddahrinu
til að skera úr um hvorir færu með
sigur af hólmi. j henni sáust á töfl-
unni tölur eins og 1 — 1, 3—3,
4—4 og 6—4 fyrir Þrótt en þá
hófst annar þáttur Þorvaröar í
þessum leik og breyttist þá staöan
á skömmum tíma í 6—14. Þrótti
tókst aö vísu aö rétta sinn hlut
nokkuð en úrslitin uröu 15—10 og
sigur ÍS í höfn.
Bestu menn ÍS auk Þorvaröar
voru Friöbert Traustason og Hol-
lendingurinn Wim Buys. Hjá Þrótti
voru þeir Lárentsínus Ágústsson
og Jón Árnason bestir og var Jón
aö mínu mati besti maöur vallar-
ins.
í 1. deild kvenna léku sömu fé-
lög og uröu úrslit þau aö Þróttur
vann 3—2. Fyrstu hrinuna unnu
Þróttarar 15—13 eftir aö (S haföi
veriö yfir 13—10. Næstu hrinu
vann ÍS 15—9 og þá þriöju
15—10. í fjóröu hrinu komst Þrótt-
ur í 8—0 og unnu án teljandi erfið-
leika 15—9. Urslitahrinuna unnu
þær einnig 15—9 og viröist nú fátt
geta komiö í veg fyrir sigur þeirra í
deildinni.
Einn leikur var í 2. deild karla
um helgina sem láöist aö geta um
í þriðjudagsblaöinu en þaö var
leikur Þróttar Nes. og HK sem leik-
inn var á Neskaupstað og lauk
meö sigri HK 15—4, 15—4 og
15—11. SUS.
Liverpool í úrslitin?
Landsliðin okkar í golfi hafa ekki slegið slðku við að undanförnu þó
aðstaða til golfiðkunar hafi ekki verið fyrir hendi. Til að undirbúa sig
sem best fyrir sumarið hafa landsliðin þrjú, karla-, kvenna- og ungl-
ingalandsliðið æft þrek af fultum krafti í allan vetur ásamt frjálsíþrótta-
fólki úr Ármanni undir stjóm Stefáns Jóhannssonar, þjálfara Ármenn-
inga. Þessi mynd var tekin á einni æfíngunni.
Liverpool er nú svo gott sem
komiö í úrslit mjólkurbikar-
keppninnar, en liöið hefur leikið
til úrslita í keppninni síðastliðin
tvö ár. Liverpool sigraöi Burnley í
fyrrakvöld á Anfield, 3:0, í fyrri
• Úr leik Þróttar og ÍS í meistaraflokki kvenna, en þar sigraði Þróttur, 3—2. Og fátt getur nú komið í veg
fyrir sigur Þróttar-stúlknanna í íslandsmótinu í blaki. L|ó«m. RAX.
undanúrslitaleík liðanna, en sá
seinni fer fram á Turf Moor næsta
þriðjudag.
Tvö mörk á síöustu átján mínút-
unum i gær geröu þaö aö verkum
aö möguleikar Burnley á aö kom-
ast í úrslitin eru nánast engir.
Graeme Souness skoraöi fyrsta
markiö á 41. mín. Phil Neal skoraöi
annaö markiö úr vttaspyrnu á 72.
mín. eftir aö lan Rush haföi verið
felldur innan teigs og þriöja markið
geröi David Hodgson 10 mín. fyrir
leikslok.
Liverpool er nú meö í baráttunni
á fernum vígstöövum. Liöiö er svo
gott sem komið í úrslit í mjólkur-
bikarnum, það hefur nú 12 stiga
forystu í ensku 1. deildinni, og
einnig eru þeir meö í ensku bikar-
keppninni og Evrópukeppni meist-
araliöa og mikið álag veröur á leik-
mönnum liðsins á næstu mánuö-
um ef aö líkum lætur.
Önnur úrslit á Bretlandi í fyrra-
kvöld uröu þau aö Plymouth Ar-
gyle og Walsall geröu markalaust
jafntefli í 3. deild, Aberdeen burst-
aöi Jóhannes Eðvaldsson og fé-
laga, 5:1, i úrvalsdeildinni skosku
og í annarri deild í Skotlandi sigr-
aöi Clyde Alloa 3:1 á útivelli.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Urslitaleikur í kvöld
í KVÖLD fara fram tveir leikir í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Annar er viðureign ÍBK og Vals í
Keflavík og má segja aö þar sé
um úrslitaleik deildarinnar aö
ræða. Valur hefur nú tveimur
stigum meira en Keflvíkingar eft-
ir jafn marga leikí, þannig að ör-
ugglega verður hart barist í
kvöld.
í Hagaskólanum mætast svo
KR og UMFN og má búast viö
hörkuviðureign þar einnig. KR er
á botni deildarinnar og verður að
fara aö spjara sig ef liðið á ekki
aö falla. Njarövíkingar gætu
blandað sér í toppbaráttuna vinni
liðið í kvöld, en þaö veltur nokk-
uö á úrslitunum í leiknum í Kefla-
vík.
Staðan í þessi: úrvalsdeildinni er nú
Valur 14 11 3 1281—1160 22
ÍBK 14 10 4 1162—1146 20
UMFN 14 6 7 1139—1158 14
ÍR 15 6 9 1155—1192 12
Fram 15 5 10 1311—1332 10
KR 14 4 10 1186—1286 8