Morgunblaðið - 12.02.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
39
Borgarstjórinn í Manchester heilsar upp á Hilmar Jónsson sem sá um
matinn á íslandskynningunum.
fært að koma til London, níu ræð-
ismenn í Bretlandi auk ræð-
ismannsins í Rotterdam, vararæð-
ismannsins í Harlingen og aðal-
ræðismannsins í Dublin. Fulltrúar
íslensku fyrirtækjanna, sem tóku
þátt í kynningunni, gerðu grein
fyrir starfsemi fyrirtækjanna,
sendiherra fjallaði um störf ræð-
ismanna og sendiráðsins og Jónas
Haralz ræddi um íslensk efna-
hagsmál og svaraði spurningum
varðandi þau. ísland hefur kons-
úla í Dover, Edinborg, Felixstowe,
Glasgow, Grimsby, Hull, Liver-
pool, Manchester, Newcastle,
Dublin, Rotterdam og gátu þessir
komið því við að koma til London,
en konsúlarnir í Amsterdam,
Bristol, Aberdeen og Bervik kom-
ust ekki og óskipað er í stöðu
konsúls í Nígeríu.
Upphafíö hjá sendiherranum
Birgir Þorgilsson, markaðs-
stjóri hjá Ferðamálaráði, sagði að
upphafið að þessari íslandskynn-
ingu á Bretlandseyjum mætti
rekja til áhuga Einars Benedikts-
sonar, sendiherra, en áður hefði
slík kynning verið meðal annars i
Frakklandi, þegar Einar var
sendiherra. Einar hefði kallað
fulltrúa fyrirtækja í London á
sinn fund og borið hugmyndina
undir þá og þeir verið áhugasamir.
Jóhann Sigurðsson hjá Flugieið-
Á löngum ferðalögum með langferðabflum milli borga f Bretlandi var ýmis-
legt gert sér til dundurs. Það var tekið í spil
Frá konsúlaþinginu í London. Taldir frá vinstri: Jóhann Sigurðsson, svæðis-
stjóri Flugleiða í London, Ólafur Guðmundsson, framkvæmdastjóri S.H. í
Bretlandi, Sveinn Björnsson, sendiráðunautur, Einar Benediktsson sendi-
herra og Jónas Haralz, bankastjóri.
Myndir voru teknar af íslenska sýningarfólkinu í íslenskum fötum frá Hildu og Álafossi við ýmis tækifæri á
íslandskynningunni. Þessi mynd er tekin í diskótekinu Hippodrome í London, en það opnaði aðeins hálfum mánuði
áður en hópurinn var þar á ferð.
um í London hefði síðan haft sam-
band við sig og hann kannað þátt-
töku hér að heiman og úr hefði
orðið þessi hópur sem hefði farið í
ferðina.
Heildarkostnaður
um 500 þúsund
Birgir sagði að kostnaðurinn af
kynningunni deildist jafnt niður á
þátttakendur. Heildarkostnaður
hefði verið um 500 þúsund krónur
og þar sem þátttakendur hefðu
verið átta væri þetta tiltölulega
ódýrt fyrir hvern aðila. Sá mögu-
leiki hefði verið nefndur að halda
kynningar sem þessar árlega í
Bretlandi, en ekkert hefði verið
ákveðið með það enn sem komið
væri. Hann kvað íslandskynn-
ingar haldnar í tengslum við allar
opinberar heimsóknir forsetans.
Þá hefði verið þriggja vikna fs-
landskynning i sambandi við
Skandinavia Today í Bandaríkjun-
um. Koma forseta fslands, Vigdís-
ar Finnbogadóttur, vekti hvar-
vetna mikla athygli erlendis og
hún hefði mætt á allar þessar
kynningar og þær því vakið meiri
athygli en ella.
Byggist á fólkinu
hvernig til tekst
„Það byggist algerlega á fólkinu
sem tekur þátt í þessum kynning-
um hvernig til tekst. Þegar allir
eru sammála um að láta svona
nokkuð takast vel, þá skilar það
tilætluðum árangri og það hefur
gengið eins og rauður þráður í
gegnum þessar kynningar að allir
geta staðið saman fyrir land og
þjóð, þó svo að um samkeppnisað-
ila sé oft að ræða. Mér fannst
þessi fslandskynning í Bretlandi
takast eins og best varð á kosið,
einmitt af þessum ástæðum sem
ég hef nefnt. Þarna var um ein-
staklega samstilltan hóp að ræða
sem var sammála um að láta allt
takast vel og samvinnan var
árekstralaus. Fyrsta skrefið er að
vekja áhuga og síðan er að fylgja
því eftir á viðeigandi hátt,“ sagði
Birgir Þorgilsson, markaðsstjóri
Ferðamálaráðs, að lokum.
Fyrir utan Olympia Hall á leið á ferðasýninguna. Guðmundur Hreiðarsson, Helga Möller, Dorthe Steenberg.