Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984 Bygginganefnd fær ekki að funda: „Kemur sér illa fyrir húsbyggjendur“ - segir Hilmar Guðlaugsson, form. bygginganefndar „Ég reyndi í gær að halda fund bygginganefndar Reykjavíkurborgar í skrifstofunni að Skúlatúni 2, en varð frá að hverfa vegna andstöðu verk- fallsvarða BSRB,“ sagði Hilmar Guðlaugsson, formaður bygginganefndar Reykjavíkurborgar, í samtali við blm. Morgunblaðsins. „Skömmu áður höfðu skipu- um að að mati bygginganefndar lagshöfundar hinna ýmsu hverfa orðið að fara af staðnum án þess að komast inn og arkitektar fá heldur ekki inngöngu í húsið. Með þessu athæfi eru verkfallsverðir að hindra löglega kjörna fulltrúa í að sinna störfum sínum og það hefur í för með sér að ég verð að aflýsa fundi, sem halda átti i bygginganefnd á fimmtudag," sagði Hilmar. „Ég skil þetta ekki, því að við erum á engan hátt að brjóta á BSRB með okkar starfi. Við höf- um haldið einn fund frá því að verkfall hófst, þ. 11. okt. sl. Þann dag barst okkur bréf frá BSRB þar sem sagði m.a. að byggingafulltrúi hefði ítrekað framið verkfallsbrot. Við svöruðum þessu bréfi og sögð- hefði byggingafulltrúi í hvívetna starfað á grundvelli laga og reglu- gerðar. Ég held að forsendur BSRB- manna séu þær, að þeir telji bygg- ingafulltrúa hafa farið að ein- hverju leyti út fyrir sitt verksvið, með því t.d. að stimpla teikningar. En til þess hefur hann fulla heim- ild og fáir embættismenn borgar- innar hafa sitt verksvið jafn vel skilgreint og byggingafulltrúi," sagði Hilmar. „Það kemur sér illa fyrir hús- byggjendur að störf nefndarinnar liggi niðri, því þau mál sem koma fyrir bygginganefnd öðlast ekki gildi fyrr en hún hefur samþykkt þau og á það við jafnt um nýbygg- ingar, sem viðbætur og breytingar á húsum,“ sagði Hilmar að lokum. Bifreiðin utan vegar á SkutulsfjarðarbrauL Ljósmynd/úlfar. Sovéska bensínskipið: Undanþágubeiðni hjá BSRB Olíufélögin bafa sent verkfalls- nefnd BSRB beiðni um undanþágu til losunar bensíns og gasolíu úr sovéska olíuskipinu, sem kom til landsins á fostudag. Er beiðnin nú til umfjöllunar hjá verkfallsnefnd BSRB. Þórður Ásgeirsson, forstjóri Olíuverslunar tslands, sagði i samtali við blm. Morgunblaðsins að farið hefði verið fram á und- anþágu til að losa farminn við komu skipsins á föstudag og væri nú beðið eftir svari frá verkfallsnefnd BSRB. Fyrr í vik- unni veitti nefndin undanþágu til losunar svartoliu úr sovésku olíuskipi, sem beðið hafði af- greiðslu i rúma viku, og var leyf- ið háð þeim skilyrðum að farm- urinn yrði geymdur í innsigluð- um geymum og að oliufélögin héldu eftir birgðum af bensini til nauðsynlegrar heilsugæslu og öryggisþjónustu og til nota vegna verkfallsvörslu BSRB. Hjá BSRB fengust þær upplýsingar, að verið væri að fjalla um und- anþágubeiðnina vegna seinna skipsins í verkfallsnefnd, en niðurstaða lá ekki fyrir er Morg- unblaðið fór í prentun eftir há- degi á laugardag. Morgunblaöid/R A X Sovézka bensínskipid i forgrunni, bíður eftir löndun. Fjær sjást flutningaskipin á ytri höfninni í Reykjavík. var einn í bilnum og slapp hann án meiðsla, en billinn er mikið skemmdur. Úlfar Ekki í ráði að lengja skólaárið tsanrdi, 26. oklóber. LÍTILL pallbfll fór út af Skutuls- fjarðarbraut við Túnatenginguna um fimmleytið á fímmtudag. Bíilinn var að koma utan úr bæ, þegar öðrum bíl var ekið framúr honum. Ökumaður bilsins sem framúr ók, beygði of fljótt inn á hægri akreinina og hemlaði. öku- maður pallbílsins reyndi að forða árekstri með því að beygja yfir á vinstri vegarhelming, en við það lenti hann í lausamöl með þeim afleiðingum, að bíllinn fór veltu, en hafnaði á hjólunum niðri við sjávarmál. ökumaður pallbílsins VERKFALL BSRB hefur nú sUðið í tæpan mánuð og befur kennsla í grunnskólum landsins legið niðri þann tíma. Enn sem komið er mun þó ekki vera i ráði að lengja skólaár- ið fram á vorið né slaka á námskröf- um til prófs, en skólamenn, sem blm. Morgunblaðsins hafði sam- band við vegna þessa máls, töldu að ekki mætti verkfallið sUnda öllu lengur án þess að grípa þyrfti til ein- hverra ráðsUfanna. ( menntamálaráðuneytinu feng- ust þær upplýsingar að reynt yrði að koma námsefni vetrarins til skila á þeim tíma sem eftir væri til vors og er þá miðað við að skólahlé í vetur verði ekki lengri en lögskylt er. Skólamenn, sem blm. Morgunblaðsins hafði sam- band við vegna þessa máls, voru sammála um, að enn væri ekki ástæða til að ætla annað en að slíkt mætti takast með „góðri skipulagningu og samstöðu nem- enda og kennara", eins og einn þeirra orðaði það. Ef verkfallið stæði hins vegar öllu lengur þyrfti óhjákvæmilega að grípa til ein- hverra ráðstafana, hverjar svo sem þær yrðu. íslenska liðinu tókst Bílvelta á ísafirði ekki að sigra Dani — eiga samt enn möguleika á NM-titli íslenska landsliðið í handknattleik tapaði fyrir því danska með fjórum mörkum, 22—26. á NorðurlandameisUramótinu í handknattleik í gær- dag í Finnlandi. I hálfleik skildu tvö mörk liðið, staðan 12—10 fyrir Dani. íslendingar léku seint í gærdag síðasU leik sinn í mótinu gegn Norð- mönnum en vegna þess hve blaðið fór snemma í prentun getum við ekki greint frá þeim úrslitum. Að sögn Guðjóns Guðmunds- sonar var það fyrst og fremst mjög slakur varnarleikur, sem varð íslenska liðinu að falli í leiknum. Leikmenn voru staðir og náðu sér ekki á strik. Sóknar- leikurinn var lengst af nokkuð góður. íslenska liðið náði að jafna leikinn, 12—12, og síðan var jafnt á öllum tolum upp í 17—17, þá tókst Dönum að ná þriggja marka forskoti og gerði það út um leikinn. Það var eins og íslensku leik- mennirnir misstu alla einbeit- ingu þegar líða tók á síðari hálf- leikinn. Góð marktækifæri nýtt- ust ekki og mikil pressa setti leikmenn úr jafnvægi. Sigurður Gunnarsson skoraði flmm mörk f gær gegn Dönum. Sigurður lék ekki með gegn Norðmönnum þar sem hann þurfti að fara til Spánar síðdegis í gær. Þau óvæntu úrslit urðu I gær að Norðmenn sigruðu Svía með einu marki, 22—21, eftir að Sví- ar höfðu haft forystu í leiknum allan tímann þar til alveg undir lokin. Svíar og Danir leika síð- asta leik mótsins í dag. Takist Svíum að sigra Dani og íslend- ingum að sigra Norðmenn ræður markahlutfall úrslitum í mótinu. íslenska liðið á því enn mögu- leika á meistaratitlinum. Mörk íslands gegn Dönum skoruðu þessir. Kristján Arason 5 lv., Sigurður Gunnarsson 5, Þorgils Óttar 4, Hans Guðmundsson 2, Viggó Sigurðsson 2, Páll ólafs- son 2, Jakob Sigurðsson 1 og Steinar Birgisson 1. -------- ♦ * ísland í Efna- hags og félags- málaráð SÞ HINN 22. október var ísland kjörið í Efnahags- og félagsmálaráð Samein- uðu þjóðanna (ECOSOC) næstu þrjú árin frá 1. janúar nk. að telja. Kosningin fór fram á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna, sem nú stendur yfir í New York. 1 ráðinu eiga sæti alls 54 ríki og voru átján kosin að þessu sinni. Efnahags- og félagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna er ein af aðal- stofnunum samtakanna og fjallar m.a um mál á sviði auðlinda, iðn- væðingar, viðskipta og þróunar, mannréttinda, tækni og vísinda, og félagslegrar þjónustu. Island hefur ekki áður verið i framboði til ráðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.