Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984 47 Guðrún Þórðar- dóttir - Minning hverfur Steinþór Sæmundsson gullsmíðameistari brott af leik- sviði lífsins fyrir aldur fram. Ungur kynntist ég Steinþóri vestur á Seltjarnarnesi, fjögurra ára eða svo þegar hann flutti á Nesið með fjölskyldu sína. Börnin þeirra Boggu urðu brátt bestu vin- ir mínir og leikfélagar þar um slóðir. Brimsorfið, grýtt og mýr- sælt Nesið, blómgróið og litrænt, var kjörinn leikvangur börnum að vori lífsins. Við krakkarnir gerð- um út leiðangra um Nesið vítt og breitt sem landkönnuðum er títt, lentum í klassískum hrakningum, en stóðum vitaskuld uppi sem sig- urvegarar við heimkomu. Ég var nánast sem einn af fjölskyldunni og kynntist því snemma mann- kostum Steinþórs og dugnaði. Hann var einstakur heimilisfaðir, elskaður og virtur af konu sinni og börnum. Steinþór Sæmundsson fæddist á ísafirði 28. nóvember 1922, þriðja barn hjónanna Ríkeyjar Eiríks- dóttur og Sæmundar Guðmunds- sonar, en þau hjón áttu alls níu börn og var því þröngt í búi á stundum, en með áræði, seiglu og skynsemi komu þau ár sinni vel fyrir borð og öll komust börnin til nokkurs þroska. Sex mánaða gam- all fór Steinþór um stundarsakir í heimsókn til hjónanna Engilráðar Jónsdóttur og Elíasar Halldórs- sonar að Nesi í Grunnavík, og svo aftur þegar hann var eins árs. Svo vel undi sveinninn hag sínum hjá þeim sæmdarhjónum á Ströndum og börnum þeirra, að teygðist úr dvölinni og var hann hjá þeim allt til 14 ára aldurs. Þeirra ára minntist Steinþór ævinlega með hlýhug. Óefað hafa árin á Strönd- um vestur, hrikafagrar andstæður náttúrufars og veðra, mótað og stælt skaphöfn og viljafestu sveinsins unga og mótað alla hans framtíðargerð. Þar fæddist nátt- úrudýrkandinn og íslendingurinn Steinþór Sæmundsson. Ég var ekki búin að vera mörg ár í kristinni manna tölu, þegar ég var svo heppin að ráðast í vist til Helgu og Friðriks. Þá var varla um aðra vinnu að ræða fyrir stúlkur en vistir og kaupavinna á sumrin. Það var áreiðanlega mjög góður skóli, væru konurnar eitt- hvaö líkar þeim, sem ég kynntist: stórgáfaðar, geðprúðar með af- brigðum og vildu öllu lifandi gott gera. Fákunnandi var ég og fannst öll vinna herfilega leiðinleg, nema helst heyvinna í góðu veðri. Mér fannst allt skemmtilegt, sem lífið hefur að bjóða, búið, þegar skyldu- námi lauk, aðeins myrkur og leið- indi framundan. Liklega hefur mátt segja um mig, að ég væri hyskin, því að oft gleymdi ég mér og sat í þungum þönkum þegar ég átti að vinna, ég var þá ekki komin upp á lag með „að slá tvær flugur í einu höggi“, að láta hugann leika lausum hala, þó að ég væri að vinna. Ekki var ég búin að vera lengi hjá Helgu, þegar ég tók eftir því, hve hún söng fallega við börnin. Bara að ég gæti, að einhverju leyti, tileinkað mér þessa list, en ég var heldur vonlítil, Helga kunni svo mikið og söng alltaf annað og annað, varla gæti ég lært bæði lag og ljóð, þó að ég heyrði þetta ein- hvern tíma aftur. Svo, þegar hún byrjaði líka að syngja erlend kvæði, þá leit ég nú heldur en ekki upp úr gólfþvottin- um. Ég braut heilann vel og lengi. Að lokum herti ég mig upp og sagði: „Helga, viltu kenna mér það, sem þú varst að syngja 1 gær?“ Helga: „Hvað var það?“ Ég hélt að það hefði byrjað eitthvað á þessa leið: „Du, som har sorg í sinde“. Helga tók það skýrt fram, að við yrðum að ljúka við verkin fyrst, og svo sæjum við til. Árið 1941 hóf Steinþór nám í gullsmíði hjá Aðalbirni Péturs- syni gullsmíðameistara á Siglu- firði og lauk sveinsprófi í grein- inni. Hann fluttist ásamt iðn- meistara sínum suður til Reykja- víkur árið 1943 og bjó og starfaði þar upp frá því. Á þessum árum stundaði hann íþróttir af miklu kappi, fimleika og hnefaleika, með góðum árangri, var enda ætíð djarfhuga keppnismaður. Hann kvæntist árið 1945 Sól- borgu Sigurðardóttur frá Hjalt- eyri við Eyjafjörð, dóttur hjón- anna Jakobínu G.C. Friðriksdótt- ur og Sigurðar G. Jónssonar. Börn Steinþórs og Sólborgar eru: Álf- heiður, sálfræðingur, var gift Birni Arnórssyni hagfræðingi. Börn þeirra: Arnór og Andri; Sig- urður, gullsmíðameistari, kvæntur Kristjönu Ólafsdóttur snyrtisér- fræðingi. Börn þeirra: Sólborg, Berglind og Steinunn Þóra; Magn- ús, gullsmíðameistari, kvæntur Gloríu Steinþórsson hjúkrunar- fræðingi. Sonur þeirra: Magnús; Steinþór, tölvufræðingur, kvæntur Helgu Sigurðardóttur. Börn þeirra: Kolbeinn, JökuII og Arn- hildur. Árið 1952 stofnaði Steinþór ásamt Jóhannesi Leifssyni gullsmið fyrirtækið Gullsmiðir Steinþór og Jóhannes, sem starf- rækt var allt til ársins 1972, að hann stofnaði fyrirtækið Gull & Silfur hf., ásamt konu sinni og sonum, Sigurði og Magnúsi, og starfaði þar æ síðan. Sem gull- smiður var Steinþór frábær hand- verksmaður og skóp margan kjör- gripinn i eðalmálma um dagana. Ég hef starfað við fyrirtækið Gull & Silfur um árabil og var þvi samstarfsmaður Steinþórs lengst af. Það var mjög ánægjulegt sam- starf, maðurinn hafsjór fróðleiks og sögumaður einstakur, húmor- isti upp á það besta. Munnmæla- sögur, klassík, ljóð og ieikrit — bókmenntir i sinni bestu geymd, Hún lofaði ekki upp i ermina sína, en kenndi mér mörg lög og Ijóð, sem ég hef alltaf kunnað síð- an, og oft raulað mér til ánægju. Með þessu kenndi Helga mér líka að keppast við vinnuna — að drífa verkin af, — jafnvel það var til- vinnandi svo að við gætum farið að syngja. Hún kenndi mér lika mörg hús- ráð og ýmislegt verklegt. Nú fannst mér ekki lengur ein- tómt myrkur framundan, þó að ég þyrfti að vinna. Söngvarnir fylltu huga minn birtu og ævintýrum. Ekki minnkaði aðdáun mín á Helgu, þegar ég komst að því, að hún gat sjálf búið til ljóð við lög, sem hún kunni, og hvað hún þurfti litinn tíma til þess. En þegar ég lét í Ijós hrifningu mína, hló hún og sagði, að þetta væri bara bull, og bað mig að hafa ekki orð á því við neinn. Það þótti mér leitt, því að ljóðin voru bæði falleg og gam- ansöm, mig Iangaði að lofa sem flestum að heyra þau, en ekki tjó- aði að óhlýðnast húsmóðurinni. Helga var sonardóttir hins skáldmælta og fræga kirkjusmiðs Halldórs Bjarnasonar. Hún hefur ekki verið látin ganga með skarð- an hlut frá borði, þegar ættararf- inum var úthlutað, hvorki til sálar né líkama. Helga kynntist manni sínum við nám og félagsstörf á Hvitárbakka- skóla. Þau höfðu verið örfá ár í hjónabandi, þegar þau fluttu í Borgarnes úr Álftaneshreppi. Þar höfðu þau verið við kennslustörf um tíma. Friðrik var hugsjóna- maður og var hamhleypa að hverju sem hann gekk. Þrátt fyrir langan vinnutíma við verslunar- störfin var hann alls staðar með, þar sem eitthvað var á döfinni, sem horfði til framfara og menn- ingarauka. Fljótlega varð hann driffjöður í málfundastarfi Ung- mennafélagsins, æfði kórsöng og kom fyrstur manna á laggirnar allt lék honum Iistavel á tungu. Hann hafði óvenjulegt minni á rit- aðan texta og gat þulið upp heilu blaðsíðurnar orðrétt úr uppá- haldsverkum sínum klassískum. Slíkt afbragðsminni, jafnt á sögn í munnmælum sem og ritaðan texta, samfara leikandi frásagn- argáfu, eykur manni trú á trausta munnlega geymd íslendingasagna frá atburðum til skrásetningar. Mér er ekki grunlaust um, að Steinþór hefði kosið sér langskóla- nám í bókmenntum og listum, ef efni og ástæður hefðu leyft á sín- um tíma. Til þess hafði hann alla burði til að verða góður vísinda- maður á þeim sviðum. Steinþór Sæmundsson var alla tíð mikill náttúruunnandi, gastro- nom á íslenska landið, fegurð þess og hreinleika. Hann unni óspillt- um íslenskum heiðum, dansandi bergvatnsám og söng mófugla undir heiðbláum hásumarhimni. Þó að hann færi um viða erlendis og hefði gaman af að kynna sér menningu og háttu annarra þjóða, þykist ég þess fullviss, að hvergi hafi hann notið sín betur en á bökkum bergvatnsárinnar sinnar vestur á Skógarströnd. Við Laxá átti hann heima. „Vatnið hreina, vatnið heima, vatn, sem lagst er hjá og þambað, - þetta vatn mér veldur þrá ...“ (N.Grieg) Og nú hefur hann lagt í sína hinstu för til fjarlægra stranda, en „ ... þar bíða vinir í varpa, sem von er á gesti Nú er skarð fyrir skildi að Álf- hólsvegi 54. Steinþór og Sólborg voru einstaklega samrýnd hjón, og hefur hún því mikils misst við fráfall manns síns. Ég bið henni og börnum þeirra hjóna og öðrum vandamönnum allrar huggunar. eþ kvöldskóla fyrir unglinga o.s.frv. Blessuð sé minning þessara ágætis hjóna. Guðrún Brynjúlfsdóttir Á morgun, mánudag, fer fram frá Áskirkju í Reykjavík útför Helgu G. Ólafsdóttur frá Borgar- nesi. Helga var fædd á Ölvaldsstöð- um í Borgarfirði þ. 3. maí 1890, dóttir hjónanna Olafs Halldórs- sonar og Jórunnar Helgadóttur og var ein 6 systkina. Nú er aðeins eitt þeirra á lífi, Hjörtur, búsettur í Keflavík. Ung missti Helga föður sinn og ólst upp með móður sinni i Borgarfirði og á Akranesi. Sem unglingur var hún í Kalmans- tungu og hélst mikil vinátta á milli hennar og heimilisfólks þar alla tíð. Leiðir Helgu og Friðriks Þor- valdssonar lágu saman á Hvítár- bakkaskólanum þar sem þau lærðu og störfuðu siðan, hann sem kennari en hún hjálpaði húsmóð- urinni í veikindum hennar. Þau Friðrik giftust þ. 22. des- ember 1917, en hann andaðist i janúar á síðasta ári eftir 65 ára hjónaband. Þau eignuðust 6 börn sem öll eru á lifi en þau eru Edvard mjólkurfræðingur í Abbotsford í Kanada, giftur Barböru Friðriks- son; Guðmundur, yfirverkfræðing- ur á Keflavikurflugvelli, giftur Guðrúnu Jónsdóttur; Þorvaldur, verslunareigandi i E1 Paso í Tex- as, giftur Joan Friðriksson; Elsa, Kveðja frá vinkonum Það er erfitt að koma orðum að þeim harmi sem hefur gagntekið okkur þegar mjög náin vinkona frá barnæsku kveður þennan heim, langt fyrir aldur fram. Sú sem kveður okkur er Guðrún Þórðardóttir, sem lést í Landspít- alanum þann 26. september síð- astliðinn, eftir stranga sjúkdóms- legu. Guðrún Þórðardóttir fæddist 21. júní 1930, dóttir hjónanna Krist- ínar Helgadóttur og Þórðar Ólafssonar, sem þá bjuggu að Odda í Ögurhreppi og var Guðrún næstelst fjögurra systkina. Fjöl- skyldan fluttist til Jsafjarðar árið 1944, en þá um haustið hóf Guðrún nám við Gagnfræðaskólann á Jsa- firði og mynduðust þar þau vin- áttutengsl á milli okkar, sem síðan hafa haldist. Skólaárin f Gagn- fræðaskólanum voru með ein- dæmum skemmtileg, hópurinn samstilltur og glaðvær og margs að minnast frá þeim tíma. Haustið 1947 hóf Guðrún nám í Kennara- skóla íslands og lauk þaðan prófi 1950. Upp frá því var kennsla hennar aðalstarf. Guðrún giftist árið 1950 Guð- bjarti Gunnarssyni, bekkjarbróð- ur sínum úr Kennaraskóla Js- lands, og eignuðust þau tvö börn, Steinþór sem er fæddur 1952, íþróttafræðingur menntaður í Kanada og Rósu sem er fædd 1954, kennari að mennt, gift og tveggja barna móðir. Fyrstu hjúskaparár Guðrúnar og Guðbjartar voru þau við nám í Skotlandi og kennslu úti á landi. Guðbjartur og Guðrún slitu samvistir. húsmóðir í Reykjavík, gift Óskari Jóhannssyni, Ólafur, sjónvarps- virki í Abbotsford í Kanada, giftur Maríu Hálfdánardóttur Víborg; Jónas, yfirverkfræðingur á Adak- eyju í Alaska, giftur Valgerði Gunnarsdóttur. Heimili Helgu og Friðriks stóð lengst í Borgamesi, þar sem hann var „Frumherji eða styrktarmað- ur flestra framfaramála kaup- túnsins meðan hann var þar“ svo vitnað sé beint í Borgfirskar æviskrár. Þótt vettvangur Helgu hafi fyrst og fremst verið innan veggja heimilisins studdi hún mann sinn heils hugar í hans margvíslegu áhugamálum. Heimilið var mannmargt og gestagangur mik- ill, því þar var gott að koma. Þótt Helga og Friðrik væru að mörgu leyti ólík, áttu þau mjög vel saman og báru mikla virðingu hvort fyrir öðru. I þau rúm 30 ár, sem ég hef haft kynni af þeim vissi ég aldrei til að styggðaryrði færi á milli þeirra. Helga var einstaklega hlýleg og geðprúð kona. Ekki held ég að hún hafi nokkru sinni látið vanhugsað orð frá sér fara eða illt tal um nokkra manneskju. Síðastliðin níu ár átti hún við mikil veikindi að stríða og hjúkr- aði Friðrik henni á meðan heilsa hans og kraftar leyföu. Einnig nutu þau aðstoðar dótturinnar og heimahjúkrunar. Eftir að Friðrik féll frá var hún i Hátúni 10B og sjúkradeild Hrafnistu, þar sem hún lést þ. 19. þ.m. Fyrir hönd systkinanna og annarra ættingja vil ég færa starfsfólki heima- hjúkrunar, starfsfólki Hátúni 10B og sjúkradeildar Hrafnistu inni- legustu þakkir fyrir mikla alúð og nærgætni í störfum sínum fyrir Helgu. Þótt hún fylgdist vel með öllu fram á síðustu daga kvartaði hún aldrei undan hinni löngu bið og starfsfólkið hafði oft orð á því, hve hún væri róleg og geðgóð. Nú er löngu dagsverki lokið og langþráð hvíld og endurfundir við ástvin orðin að veruleika. Ég þakka Helgu fyrir löng og góð kynni og óska henni alls hins besta í nýjum heimkynnum. Óskar Jóhannsson Það þurfti mikla útsjónarsemi fyrir einstæða móður með tvö ung börn að láta enda ná saman, en með þrautseigju og dugnaði eign- aðist Guðrún íbúð og stækkaði við sig eftir því sem efnin leyfðu og bjó hún sér fagurt og hlýlegt heimili. Guðrún fór mðrg sumur í kaupavinnu og var hún alltaf með yngra barnið með sér, en eldra barninu kom hún fyrir á góðu sveitaheimili. Guðrún var heilsteypt og sterk- ur persónuleiki. Hún var með af- brigðum heilsuhraust að undan- teknum þeim sjúkdómi sem að lokum dró hana til dauða. Strax sem barn var hún áberandi sam- viskusöm og vandvirk að öllu því sem hún gekk. Reglusemi og skipulag var henni f blóð borið. Hún var glaðvær og létt i skapi og gekk af lífi og sál fram 1 því sem hún tók sér fyrir hendur. Guðrún átti langan kennsluferil að baki, meðal annars kenndi hún nokkur ár við Kársnesskóla í Kópavogi og yfir tuttugu ár við Hlíðaskóla, eða þar til hún veikt- ist síðastliðinn vetur. Guðrún lagði mikla alúð við starf sitt sem kennari og gladdist yfir velgengni nemenda sinna. Snemma kom i ljós að Guðrún hafði mikla ánægju af ferðalögum. Á skólaárum okkar á ísafirði var ekki algengt að fólk ferðaðist um helgar eða í sumarleyfi, eins og gert er nú til dags. Oft höfum við rifjað upp ferðalag sem við fórum þrjár vinkonur, þá 15 ára gamlar, með áætlunarbíl frá ísafirði að Gemlufalli i Dýrafirði og þaðan með smábáti yfir til Þingeyrar. Þaðan var lagt á brattann með tjald og bakpoka upp i Brekkudal þar sem við tjölduðum og dvöldum yfir verslunarmannahelgi. Ferðin var fyrst og fremst farin til að skoða landið og njóta útiverunnar. Áhugi Guðrúnar á ferðalögum átti eftir að koma enn betur i ljós með árunum, en hún ferðaðist mjög mikið, sérstaklega innanlands og var hún í mörg ár fararstjóri á vegum Ferðafélags Jslands. Guð- rún var skýr og greinargóð í lýs- ingum sínum á landinu, enda tal- aði hún fallegt og kjarngott ís- lenskt mál. Haustið 1952 hittumst við nokkrar skólasystur úr Gagn- fræðaskólanum á ísafirði, sem þá voru búsettar i Reykjavfk, og ákváðum að stofna saumaklúbb. Guðrún Þórðardóttir var ein af þessum skólasystrum. Allt síðan þá höfum við hist að staðaldri á vetrum heima hjá hver annarri. Sem dæmi um reglusemi Guðrún- ar má geta þess að hún hélt skrá yfir alia saumaklúbba sem við héldum í meira en þrjátiu ár. Fyrir sex árum gekkst Guðrún undir aögerð við alvarlegu meini og leit út fyrir að komist hefði verið fyrir það. 1 febrúar síðast- liðnum gekkst hún undir aðra að- gerð sem virtist bera árangur, en er líða tók á sumarið fór smám saman að draga úr lifsþrótti henn- ar. Aldrei heyrðist æðruorð frá Guðrúnu og sýndi hún mikinn styrk i veikindum sinum, sem og endranær. Við vottum nánustu ættingjum hennar innilega samúð. Helga G. Ólafs- dóttir - Minning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.