Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984 K K y < f. ÞÓS : ÞÓRISVATNSSTÍPLUH kÓN SKÝRINGAR GKS: GRJÓTAKVÍSLARSTÍFLA SSK STÓRAVERSSKURÐUR SST : STÓRAVERSSTlFLA m. SS : SVARTARSKUROUR , !í* BS BRAÐABIRGÐASTlFLA I SVA S-1 : SVARTARSTlFLA Þ-1 TIL Þ-5: ÞÚFUVERSSTlFLUR E-1, E-2: EYVINDARVERSSTlFLUR EKS ES HS HKS ÞSK ÞST EYVINDARSTlFLA EYVINDARSKURÐUR HR|)'SISSKURÐUR HREYSISSílFLA ÞJÓRSARSKURÐUR þjórsArstifla AKS l AUSTURKVI Sl.AHáTJ FLA f ; y..^T^‘ KVISLAVEITA B G “ÚRISVATNSM iolun Afangaskipting 22. MARS M PÓ/MÞ ,L\W r <» V K'-,S*S> \ > v W<x S 1 11 -S.- \ \ >*v/ KVÍStAVtlTA- LANOBKURÐVA Í VtlTUlClD UR PJOIISÁ » I LCUO A V E «9 K V IS L BOTSRAS Í ÞJÓR9ÁRSTÍFLU 25 <=■ ; , í ÍSJí HÁAUMEYj*iÓM-\ Kort sem sýnir KvíslaYeitu og áfangaskiptingu verksins þegar kvísl unum er renna austur í Þjórsá er snúið við og falla í Þórisvatn. Öllu verkinu á að verða lokið haustið 1986. Þórisvatn er lengst til hægri, Arnarfell hið mikla á miðju kortinu til vinstri og kvíslarnar og vðtnin, sem þarna eru að myndast, eru merkt. Dratthalavatn er þegar komið þarna á hálendinu og hleypt á Kvíslarvatn í haust Þjórsárkvíslum veitt í Þórisvatn 300-400 gl búbót til allra virkjananna „Hugsa sér, þarna er þetta komið. Þegar ég var hér í mælingum var það fjarlægur draumur að þetta væri hægt,“ varð Jóhanni Má Maríussyni aðstoðar framkvæmdastjóra Landsvirkjunar að orði sem við náttúruverndarráðsfólk ókum með virkjunarmönnum á hálendi íslands suðaustan Hofsjökuls tii að skoða þar djúpa skurði og mikla stífhigarða úr grjóti og möl sem falla merkilega vel inn i hrjóstrugt landslagið. Framkvæmdum er að Ijúka á þessu ári enda vetur í nánd þaraa á háhálendinu. Þar hafa í sumar unnið og dvalið á nokkrum stöðum um 300 manns á vegum verktakanna Suðurverks og Hag- virkis, svo og starfsmenn Landsvirkjunar. Þarna er svonefnd Kvísla- veita, sem veitir vatni úr þeim kvíslum Þjórsár er koma úr austri í Þórisvatn svo að það megi nýtast til aukinnar raforkuframleiðslu í Sigölduvirkjun, Hrauneyjafossvirkjun, Búrfellsvirkjun og brátt í svonefndri Vatnsfellsvirkjun áður en það skilar sér aftur út í Tungnaá og Þjórsá. En þessum framkvæmdum á að ljúka haustið 1986 og kemur þetta aukavatn í gagnið smám saman með hverjum áfanga og um leið og fleiri kvíslar og lón bætast við. Helst í hendur við aukna raforkuþörf landsins fram að þeim tíma sem Blönduvirkj- un getur komið í gagnið. Þónsvatnsmiðlun var gerð laust eftir 1970 er Köldukvísl var veitt í vatnið og útrennsli vatnsins stífl- að við Þórisós. Fengust þá vatns- birgðir til virkjananna, en nauð- synleg forsenda að stækkun Búr- fellsstöðvar og nýtingar í Vatns- fellsvirkjun þar sem það kemur úr Þórisvatni á leið sinni f virkjan- irnar, var aukin miðlun ofan af hálendinu. Stórfelld miðlun í Þjórsárverum með vatninu niður Þjórsá sjálfa var útilokuð vegna umhverfissjónarmiða og náðist farsælt samkomulag um að vernda Þjórsárverin með því vatni sem ber því næringu og verða því allar kvíslarnar að vestan ósnert- ar, en tekið til nýtingar í virkjanir það vatn sem kemur í ána úr upp- takakvíslum að austan og skiptir ekki eða litlu máli. Og það er þetta vatn sem nú er verið að veita um skurði til Þórisvatns og gera stífl- ur til að geyma það á leiðinni. Þannig verða þarna á söndunum nokkur minni vötn ofan við Þór- isvatn. Verður vatnsborð þeirra stöðugra en Þórisvatns og ekki fjarstæða að hægt verði í framtíð- inni að fara á bátum 70—80 km leið frá Þórisvatni og upp í vænt- anlegt Þjórsárlón og e.t.v. rækta þarna fisk þegar fram líða stund- ir. En það er önnur saga. Nú þegar er komið ofan við stíflu syðsta vatnið er nefnist Dratthalavatn. En dratthali er gamalt refanafn og er m.a. að finna í Blöndalsorðabók. Næsta lón fyrir norðan er Kvíslavatn, sem fær sitt vatn m.a. úr Þúfu- verskvísl og mun ætlunin að hleypa vatninu i það í haust. Þá kemur Eyvindarlón, sem dregur sína næringu úr Eyvindarkvfsl og Hreysislón og er unnið að teng- ingu þar. En f fimmta og sfðasta áfanga er svo Þjórsárlón, sem ekki kemur strax, en verði það gert mun þangað renna vatn úr Þjórs- árkvislinni ofan við Arnarfell.og verður henni þar veitt í Hreys- iskvísl. Þarna er maður kominn á móts við Arnarfell hið mikla og á slóðir Eyvindar og Höllu. Hagvirki nefn- ir sínar vinnubúðir, sem eru uppi undir Hreysi, Höllubúðir. Rétt er að taka fram að Eyvindarkofi verður utan við þessar fram- kvæmdir og óhultur. En Fremra Hreysi svonefnt ekki, enda að verða ónýtt og hefur Gísli Gests- son safnvörður á Þjóðminjasafni skrifað um það efni grein. En ætli þeim Eyvindi og Höllu hefði ekki þótt ónæðissamt á fjöllum um þessar mundir, þar sem hundruð manna eru á sifelldu randi með stórar vinnuvélar. Gröfur moka sandinum upp úr skurðum sem geta orðið djúpir á borð við átta hæða hús og grjótflutningabílar fara um með tugi tonna af stór- grýti í stíflurnar er geta náð 20 metra hæð. Það eru allt jarðstíflur og er lagður vatnsheldur dúkur á þær undir grjótið. Þar sem um jarðefni af staðnum er að ræða falla stiflugarðarnir inn í lands- lagið, sem er æði hrjóstrugt á þessum slóðum. Er við vorum þarna á ferðinni var verið að tengja þriðja og fjórða áfanga verksins, en sem fyrr er sagt er áformað að ljúka fimmta og siðasta áfanga haustið Unnið er með stórum vinnuvélum að því að gera jarðstífhir, aem geta orðið allt að 20 metra háar. Hér sést yfir verin austan fri til Arnarfells. Eyvindarver sem bér er fremst á myndinni verður óhult, enda utan við athafnasvæðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.