Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JUNÍ 1985 AF INNLENDUM VETTVANGI FRÍÐA PROPPÉ ar í vikunni og aðalfundar Dagsbrúnar á fimmtudagskvöld. Eins og minki hafi verið hleypt inn í hænsnahús Framkvæmdastjórn VMSÍ kom síðan saman sl. þriðjudag og var þar hart deilt. Mikill meirihluti fundarmanna vildi þegar ganga til viðræðna við VSÍ en formaðurinn, Guðmundur J. Guðmundsson, var þungorður í garð forustumanna VSÍ, sagði engan árangur geta orðið af viðræðum. Beitti hann fyrir sig samþykkt formannafund- arins frá 19. maí, sem hann sagð- ist þá hafa lofað úr ræðustóli að haldin yrði. Karl Steinar Guðna- son varaformaður hafði orð fyrir þeim sem vildu þegar ganga til viðræðna við VSÍ, en af ellefu manna framkvæmdastjórn lýstu aðeins tveir fundarmanna yfir stuðningi við skoðanir Guðmund- ar, þau Jón Kjartansson úr Vest- mannaeyjum og Sigrún Clausen frá Akranesi. Halldór Björnsson varaformaður Dagsbrúnar sat og þagði, en talið er að hann hefði vart komist hjá að styðja Guð- mund, ef til atkvæðagreiðslu hefði komið. Menn voru orðnir þungorðir þegar forustumönnum meirihlut- ans leiddist þófið og Karl Steinar lagði fram tillögu sem hafði svip- uð áhrif, að sögn heimildarmanns blaðsins, og að minki hefði verið hleypt inn í hænsnahús. Hún fól í sér að framkvæmdastjórnin óskaði þegar eftir viðræðum við VSÍ um samningstilboðið og leit- aði eftir upplýsingum um nokkur tilgreind atriði. Lokaorð tillög- unnar voru þau að framkvæmda- stjórnin liti á slíkar viðræður sem undirbúning að næsta for- mannafundi VMSÍ, þ.e. þeim sem síðan var ákveðið að halda í gær- dag. Guðmundur J. var lítið ánægður með þessa tillögu og bað menn lengst allra orða að stinga henni undir stól. Hann benti mönnum á að aðalfundur Dagsbrúnar væri á fimmtudagskvöld og bað um frest á ákvarðanatöku fram yfir hann. Lyktir málsins urðu þær að meiri- hlutinn féllst á, með vísan til nauðsynlegrar samstöðu verka- lýðshreyfingarinnar, að bíða með Morgunblaðid/Bjarni Eiríksson Verkalýðshreyfingin er eins og gamalt og gigtveikt tröll í augum hins almenna félags- manns, sagði varaformaður Verkamannasambands íslands, Karl Steinar Guðnason, á fundi formanna landssambanda Alþýðusambands íslands sl. miðvikudag. Hann hefur ennfremur sagt það mikið áhyggjuefni að Vinnuveitendasambandið hefði nú tekið allt frumkvæði, en „tröllið hökti bara og gáði til veðurs“. Ummæli Karls Steinars eru tilkomin vegna þeirrar ósamstöðu sem verið hefur innan verkalýðshreyfingarinnar um hvernig svara eigi tilboði Vinnuveitendasambandsins um kjarabætur. Tilboð VSÍ barst ASÍ 23. maí sl. en í því var gert ráð fyrir að fyrstu launahækkanir tækju gildi í dag, 1. júní. Þegar þetta er ritað, um miðjan dag í gær, föstudag, stóð yfir formannafundur hjá Verkamannasambandi íslands, sem taka mun ákvörðun um hvernig svara skuli tilboðinu og bíða önnur landssambönd úrslita þar. Ver kalýðshrey fingin sem gamalt gigtveikt tröll Forustumenn í verkalýðshreyf- ingunni eru yfirleitt á einu máli um að tilboð VSÍ hafi komið þeim í opna skjöldu og hafa margir átt erfitt með að ná áttum. Á ýmsu hefur gengið og enn á ný tala for- ustumennirnir um ítök og afskipti stjórnmálaflokkanna og úrelt, þunglamalegt skipulag, eins og orð varaformanns VMSÍ hér að framan bera vitni um. Hér á eftir verður gerð nokkur grein fyrir gangi mála á nokkrum fundum í verkalýðshreyfingunni í þessari viku, sem varpa nokkru ljósi á þá togstreitu sem ríkir meðal kjör- inna fulltrúa launafólks sem fara með samningsumboð þeirra. Verkamannasamband fslands hefur verið langáhrifamesta aðild- arsambandið innan Alþýðusam- bandsins og þar gegnir Guðmund- ur J. Guðmundsson þingmaður Al- þýðubandalagsins og formaður Dagsbrúnar i Reykjavík for- mennsku, en Karl Steinar Guðna- son þingmaður Alþýðuflokks og verkalýðsleiðtogi í Keflavík vara- formennsku. I ljósi reynslunnar af afstöðu Guðmundar J. í fyrri kjarasamningum í tíð þessarar ríkisstjórnar, sem ekki verður rakin hér, beindust augu manna strax að VMSÍ og Dagsbrún. For- mannafundur VMSÍ haldinn 19. maí sl. fjallaði um stöðu kjara- mála, áður en tilboð VSl barst. Þar var samþykkt tillaga þess efn- is að þegar skyldi hefja undirbún- ing að kjarabaráttu á komandi hausti, þar sem viðræður við VSÍ virtust nú árangurslausar. Tillag- an var flutt af Guðmundi J. Guð- mundssyni, Jóni Karlssyni Sauð- árkróki, Hrafnkeli Jónssyni Eski- firði og Kolbeini Friðbjarnarsyni Siglufirði. f umræðum á fundinum lýsti Guðmundur því yfir, að hann teldi viðræður við VSl vonlausar þar sem þeir hefðu ekki áhuga á nokkrum kauphækkunum. Hann bar þar við, sem víðar, að VSÍ hefði margsvikið og frestað hand- söiuðum loforðum frá síðustu kjarasamningum um sérsamninga við einstaka hópa innan Dags- brúnar. Tilboð VSÍ barst síðan 23. maí. Stjórn Dagsbrúnar kom saman daginn eftir, 24. maí, og þar var samþykkt tillaga þess efnis að stjórnin teldi tillöguna óaðgengi- lega og að stjórnin muni ekki leggja til að hún verði samþykkt. I viðtali við blm. Mbl., sem birt er 25. maí, segir Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri Dagsbrúnar, aðspurður um hvað niðurstaða stjórnarinnar þýði, að stjórnin muni bíða niðurstöðu fram- kvæmdastjórnarfundar VMSÍ síð- Morgunbladið/Bjarni Þessir gestir vöktu athygli á aðalfundi Dagsbrúnar, en þeir eru talið frá vinstri: Jón Kjartansson Vestmannaeyjum, Sigrún Clausen Akranesi og Kolbeinn Friðbjarnarson frá Siglufirði. Guðmundur J. Guðmundsson í ræðustól á aðalfundi Dagsbrúnar sl. fimmtudagskvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.